Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ1985.. ArnarflugíArabíu: SjöDC-8 þotur og átján erlend- ar f lugáhaf nir Pílagrímaflug Arnarflugs í Saudi Arabíu hefst 1. ágúst næstkomandi. Áætlað er að félagið fljúgi með yfir 100 þúsund pílagríma. Um 200 manns vinna að þessu verkefni hjá Arnar- flugi. Flugvélarnar verða sjö DC-8 þotur og flugáhafnir 21. „Verkefnið gengur út á að flytja píla- gríma frá Alsír, Egyptalandi og Túnis yfir til borgarinnar Jedda í Saudi Ara- bíu,” sagði Agnar Friðriksson, for- stjóri Arnarflugs, í morgun. Hann sagði að þeir væru nú þegar með fjórar DC-8 vélar í gangi suður frá, í kennarafluginu svokallaða, en það verkefni hófst 10. maí síöastliðinn. „Vélarnar, sem við erum með, leigð- um við af KLM og franska félaginu UAS. Þær þrjár sem bætast við koma frá Bandaríkjunum og Kanada.” — Hvað um flugáhafnir? „Sjálfir komum við með 3 áhafnir, en við erum með flugmenn í vinnu frá mörgum löndum, eins og Bandaríkjun- um, Kanada, Frakklandi, Sviss, Bret- landi. Það er þegar búið aö fá þær 18 erlendu áhafnir sem við þurfum í þetta verkefni,”sagðiAgnar. -JGH Tæknideildin fullmönnuð: Útvarpað á rás tvö um helgina Utvarpað verður með eðlilegum hætti á rás 2 um næstu helgi. Mikið álag hefur verið á tæknimönnum Ríkisútvarpsins að undanförnu vegna sumarleyfa og þess vegna varð að hætta við að útvarpa frá rás 2 sl. sunnudag. Um næstu helgi verður tæknideild út- varpsins fullmönnuð þannig að engin hætta er á aö dagskrárliðir falli niður. sos Sjúkdómsvaldar visnu í sauðfé og ónæmistæringar skyldir: Bandalag jaf naðarmanna: ■ : FUNM MEÐ ÓÁNÆGÐUM „Við þingmennimir ræddum við þann hóp fólks sem mikið var í frétt- um fyrir um það bil hálfum mánuði. Eg held að það hafi komið í Ijós að ágreiningsefni voru ekki eins stór og veigamikil og virtist af fréttum,” sagði Stefán Benediktsson, þing- maöur Bandalags jafnaðarmanna, um fund sem haldinn var í veitinga- húsinu Ladtjarbrekku síðdegis í gær. „Það var algjör samstaða. Það er ekkert sem ber á millí þingflokksins og þessa hóps,” sagði Kristín Kvaran alþingismaður. Garðar Sverrisson, starfsmaður Bandalags jafnaðarmanna, sagði: „Það er ekkert leyndarmál að hópurinn lýsti eindregnum áhuga á því að Bandalag jafnaðarmanna legði aukna áherslu á þá jafnaðar- stefnu, þann sósíal-demókratisma, sem viö lögöum upp með á sínum tíma. Á fundinum var rætt um áherslur og taktík B.J. í nútíð og framtíð, einkum og sér í lagi með hliðsjón af nýsköpun klassiskrar jafnaðar- stefnu.” Svör þremenninganna benda ekki til að það kraumi undir niðri innan flokksins, eins og aðrar heimildir gefa til kynna. Samkvæmt þeim heimildum á ágreiningurinn eftir að koma betur upp á yfirborðið með haustinu. — KMU Sólarlandaferðir: „Vorið erfitt” Mun minni þátttaka varð í sólar- landaferöum í maí og júní en ferða- skrifstofumar reiknuöu með. Talað er um að samdrátturinn sé i kringum 15 til 20%. Júlí og ágúst virðast hins veg- ar ætla að verða toppmánuöir. „Vorið var erfitt. Það sýnir sig að þegar páskarnir eru snemma, þá er vorið alltaf erfitt í sólarlandaferðum. En það er fullt hjá okkur í júlí og ágúst,” sagði KarlSigurhjartarson hjá Urvali. „Vorið var greinilega verra en í fyrra, en þá var þetta líka eins og best gerist, óvenjugott. En það er líflegt núna og til dæmis uppselt í næsta mánuði,” sagði Ingólfur Guðbrands- son hjá Utsýn. „Við höfum verið mjög heppnir í ár, erum með um 15% aukningu í sólar- landaferðum í maí og júni og allt upp- selt í sumar,” sagði Helgi Jóhannsson hjá Samvinnuferðum. Þær ferðaskrifstofur sem fengið hafa minni þátttöku hafa brugðist meðal annars við með því að sameina ferðir, og þess eru dæmi að ferðir hafi verið felldar niður til að verjast mestu áföllunum. En nú virðist semsé ganga vel hjá ferðaskrifstofunum, spár standast og þær eru sólarmegin í tÚverunni. -JGH Skólastofa I hrakningum. Í nótt átti að flytja skólastofu norður í land ð þar til gerðum flutningavagni úr Raykjavik. Þegar upp é Kjalarnes kom, á móts við Sjávarhóla, vildi ekki betur til en svo að vind- hviða tók völdin og fór tengivagninn meö skólastofuna á hliðina, sem hún er þar enn. -KÞ/DV-mynd S Rannsóknir ónæmis- „Það hefur ekki komið til tals að við tækjum að okkur rannsóknir vegna ónæmistæringar. Hins vegar værum við reiðubúnir til viðræðna um það, og ef neyðarástand skapast hikum við ekki viö að gera alla mögulega hluti,” sagði Guðmundur Pétursson, forstööumaður tilrauna- stöðvar Háskólans að Keldum, í samtaliviðDV. Um alllangt bil hafa staðið yfir rannsóknir að Keldum á visnu í sauðfé. Hefur komið í ljós að skyld- leiki er milli þeirra veira sem valda visnu og ónæmistæringu. „Það er ekki hægt að segja að bein tengsl séu þarna á milli. Hins vegar er greinilegur skyldleiki í samsetn- ingu erfðaefnis þama, og ýmis sér- kenni beggja þessara sjúkdóma til- heyra sama veiruflokki. Þá má nefna þaö að fleiri hæggengum sýkingum, til dæmis í kúm og hross- um, má Úkja viö ónæmistæringu,” sagðiGuðmundur. — Hvemig litist þér á að taka við rannsóknum á ónæmistæringu? „Það hefur ekki komið til tals, en ef það yrði þyrfti að kanna það mjög vel. Það má segja að við séum að komast í húsnæðishrak, en þá kemur aftur spumingin um það hvað er mest aökallandi. Við værum reiðu- búnir til viðræðna um þetta án allra skuldbindinga fyrirfram. Með þeim aðbúnaði, sem við höfum í dag, þyrftum við aö ýta öðru út til að taka þettaaðokkur.” — Myndi það kosta mikið að setja upp rannsóknaraðstöðu fyrir ónæmistæringu hjá ykkur ? „Já, þetta væri ekki hægt, nema það kostaöi eitthvað, en hversu mikið er ómögulegt að segja, þar sem við höfum ekki velt þessu dæmi fyrir okkur,” sagði Guðmundur Pétursson. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.