Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Side 8
8
Útlönd
Útlönd
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
Utlönd
Utlönd
Grafarar i Maxíkó hafa nóg að gera við að grafa fórnarlömb jarðskjálftans i Mexíkó.
j.: . 2 /j
■I-11*
Er matarúthlut-
unin í ólestri?
— margir kvarta undan þvíað matarsendingarnar nái
ekki tii þurfandi í Mexíkóborg
Fjórum átta daga gömlum bömum
var bjargað úr rústum Mexíkóborgar í
gær. Þykir ganga kraftaverki næst
hvaö komabömin hafa þraukað og eru
læknar furðu lostnir yfir seiglunni í
svona litlum manneskjum.
Alls hefur 41 hvítvoðungi verið
bjargaö úr braki fæðingarheimila og
sjúkrahúsa. 35 var bjargað á fimmta
degi en sex var bjargaö eftir viku eða
átta daga undir rústunum.
Mexíkanar, sem standa í biðröðum
til að fá úthlutað gjafamat, kvarta
undan því aö sjálfboðaliðar við
björgunarstörfin láti greipar sópa um
birgðimar. Hefur sést til björgunar-
manna bera eitthvað burt heilu
kassana af aðsendum matvælum
þegar skyggja tekur.
A meðan hefur þurft að vísa bág-
stöddum mæðrum meö börn, sem þjást
af næringarskorti, burtu úr biðröðun-
um, slyppum og snauðum. — Hefur þó
Mexíkóforseti sjálfur sagt aö nóg hafi
borist af hjálpargögnum og matvælum
erlendis frá.
Ein húsmóðirin með sjö ung börn var
farin að örvænta þegar bónda hennar
var þrjá daga í röð vísað frá tómhent-
um eftir sjö stunda stöðu í biöröð hvern
daginn.
„Við sjáum matvælin rotna í portinu
í birgöastöðinni en kl. 2 daglega
tilkynna þeir, sem deila út matar-
skömmtumun, að allt sé gengið til
þurrðar,” sagði ein konan við
blaðamann.
Starfsmenn Rauða krossins bera á
móti þessu og segja að öllum tiltækum
mat sé deilt út jafnharðan og eins fljótt
og auðiö sé til þeirra sem þurfandi eru.
Tugir þúsunda manna, sem misstu
heimili sín í jarðskjálftunum, hírast í
tjöldum í almenningsgörðum og eru
algjörlega upp á matargjöfina komnir.
Fellibylurinn
stefnir núna
á New York
Fellib ylurinn „Gloría” stefnir beint
á þéttbýlissvæði á austurströnd
Bandaríkjanna. New York virðist vera
beint á leið Gloríu, sem mun bera aö
ströndinni einhvern tíma með
kvöldinu.
Gloría hefur ögn breytt stefnu sinni
og gengur nú meir norður á bóginn svo
aö horfir beint á New York, Long
Island og Nýja England. Gloría er sögð
einhver grimmilegasti fellibylur sem
sögur fara af á þessari öld.
Fólk á þessum svæðum hefur verið
varað við og tekur viövörunin til 40
milljóna manna, sem þarna búa.
Þúsundir hafa flúið heimili sín á blá-
ströndinni og innar á land.
Fellibylurínn nálgast nú land með
32 km hraöa á klukkustund, en vind-
hraðinn er um 210 km.
Loftárásir í
Líbanon
Palestinumenn taka á móti
israelskri árásarflugvél með
SAM-7 loftvarnareldflaug.
ísraelskar flugvélar vörpuðu í gær-
kvöldi sprengjum yfir austurhluta
Bekaa-dalsins í Líbanon í skjóli myrk-
urs.
Útvarp kristinna í Líbanon sagöi að
sprengjunum virtist einkum beint að
bækistöðvum skæruliða Palestínuar-
aba, og sama segir útvarp Drúsa.
Israelar hafa gert tíðar loftárásir aö
undanförnu á skæruliða Palestínuar-
aba og aðra skæruliða fylgjandi Sýr-
lendingum í Líbanon. Árásirnar í gær-
kvöldi fylgja í kjölfar morðanna á
þrem Israelsmönnum í höfninni í
Kýpur á dögunum.
Það hefur lengi verið siður ísraelska
flughersins að grípa til sprengjuárása
til hefnda fyrir einhver hervirki, unnin
á Israelsmönnum.
DOLLAR FELLUR
ISALFRÆÐISTRIDI
Dollarinn féll mikiö gagnvart yen-
inu á f jármálamörkuðum í gær. Þetta
er tekið sem merki þess að seðlabank-
ar hafi ákveðið aö halda loforð sín um
aö þrýsta verði dollarans niður.
Þegar kauphöllum var lokað var
dollarinn fáanlegur á 221.10 yen, en á
miövikudag var verð hans 226,10 yen.
Punjabar sýndu andúð sína á
öfgamönnum með því að hlusta
ekki á áskoranir um að snið-
ganga kosningarnar. í þvi felst
einhver sárabót fyrir Rajiv
Gandhi, þrátt fyrir að flokkur
hans fengi ekki nema rúm 30
þingsæti.
Á föstudag, fyrir helgina sem seðla-
bankastjórar komu sér saman um að
veikja dollarann, kostaði dollarinn
238,85 japönsk yen.
Það varð frekar til að veikja dollar-
ann gagnvart yeninu að frétt birtist
um að Japansbanki ætlaði að koma
dollaranum niöur í allt að 200 yen og
hygðist selja fleiri dollara.
Orðrómur sagði að Japansbanki
heföi seít allt að milljarð dollara til að
lækka verð hans.
Kauphallarmenn segja að dollara-
stríðið sé orðið að sálfræðibaráttu milli
seðlabankanna og markaösins, þar
sem hvorir reynir að fá aðra til
aöblikna.
Vilja ekkigefa jóla-
trétilLondon
Punjab-kosningarnar:
STÓRSIGUR AKAU DAL
Akali Dal flokkurinn, sigurvegari
kosninganna í Punjab, mun funda
síðar í dag til að velja aðalráðherra
fyrir Punjab og binda enda á beina
stjórn ríkisins frá Nýju Delhí.
Akali Dal, flokkur hægfara sikka,
vann 65 af 102 þingsætum í Punjab.
Enn á þó eftir að telja atkvæði frá 13
einmenningskjörnum. Þingsætum
flokksins kann því enn að fjölga.
Einnig var kosið um sæti fylkisins í
þjóðþinginu í Nýju Delhí. Akali Dal
hefur forystuna í sjö af 13 kjördæmum
á því sviöi.
Eftir þessar kosningar kemst Akali
Dal í fyrsta skipti á þjóðþingið síðan
1977.
UrsUt kosninganna eru séð sem
sigur hinna hægfara sikka gegn öfga-
mönnum og sem mikiU ósigur
Kongressflokks Gandhis forsætis-
ráðherra sem háði harða kosninga-
baráttu í fylkinu.
Þegar enn átti eftir að telja í 13
kjördæmum haföi Kongressflokkurinn
aðeins fengið 31 sæti á fylkisþinginu.
Þaö er líklega forseti Akali Dal,
Surjit Singh Barnala, 59 ára gamall
lögmaður, sem verður valinn aðal-
ráðherra. Hann sagöi að engin barátta
yrði um embætti aðalráöherra.
Barnala sagði að kosningarnar
sýndu stuðninginn við fyrri leiðtoga
flokksins, Harchans Singh Longowal,
sem öfgamenn sikka drápu fyrir
einummánuði.
Það var í júU sem Longowal skrifaði
undir sáttmála við Rajiv Gandhi og
stjórn hans í Nýju Delhí. Sá sáttmáli á
að vera grundvöllurinn að bættum
samskiptum sikka og stjórnarinnar.
Þrátt fyrir að öfgamenn heföu
skorað á fólk að sniðganga
kosningarnar greiddu 60 prósent
manna afkvæði. Það er hærra hlutfall
en yfirleitt fæst í sumum ríkja á
Vesturlöndum, til dæmis Bandaríkjun-
um.
Umhverfisverndarmenn vilja að
Oslóborg hætti að gefa Lundúnabúum
jólatré á hverju ári. Þetta á að vera
svar viö trega Breta til að minnka hjá
sér útblástur eiturefna sem umhverfis-
verndarmenn segja að séu nálægt því
aö leggja skóga á Noröurlöndunum í
auðn.
Fyrir hver jól sendir borgarráð
Oslóar stórt jólatré til London sem er
svo sett upp á Trafalgartorgi.
Umhverfisverndarhópurinn, sem
lagði þetta til, sagði aö meö því aö
binda enda á þessa hefð myndu Norð-
menn benda Bretum á að það væri ekki
góðum nágrönnum sæmandi að eyði-
leggja skóga vina sinna.