Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985.
Forsiður Life-blaðanna sem héldu lifi á öskuhaugum Akureyrar síðastliðinn sunnudag. En þar var heilt
Life-safn jarðað á mánudagsmorgun.
„Fomleifafundur” á Akureyri:
Nixon, Beta drottning,
MonroeogJane
Russel á öskuhaugum
Akureyrar
— einhver tók sig til og henti mörgum árgöngum
af Life-safninusínu
„Eg var aö henda rusli á haugana
og rakst þá á gömul blöö af tímarit-
inu Life um allt. Þaö voru margir
kassar fullir af því. Eg stóðst satt aö
segja ekki mátið og nældi mér í nokk-
ur blöö,” sagði maður nokkur sem
skrapp meö rusl á öskuhaugana á
Akureyri síðastliðinn sunnudag.
Maöurinn, sem vill ekki láta nafns
síns getið, haföi samband við okkur á
DV á mánudaginn. Við fórum þegar
með honum upp eftir til að líta á Life-
safniö, en þá reyndist búið að jaröa
það fyrir fullt og fast.
„Þaö er geysileg fúkkalykt af þess-
um blööum. Eg er viss um að þaö
hefur einhver veriö að hreinsa til í
geymslunni hjá sér og brugðið á það
ráð að henda öllum gömlu blöðunum
sínum.”
Blööin, sem maðurinn nældi sér í,
voru flest frá árunum 1950 til 1960 en
nokkur voru frá stríösárunum. Þrátt
fyrir fnykinn er engu að síður
skemmtilegt að skoða þessi gömlu
blöö, sjá hverjir prýddu forsíður Life
á þessum árum. Flest eru nöfnin
kunnugleg.
Þarna má sjá mynd af Elísabetu
drottningu en hún prýddi forsíðu Life
15. janúar 1943. Leikkonumar Mari-
Jane Russel voru á forsiðunni 29.
júni 1953. Glæsilegar stellingar,
ekki satt?
lyn Monroe og Jane Russel voru
þann 29. júní 1953. Og Nixon karlinn
komst á forsíöuna 6. janúar 1958.
Innihald blaðanna frá stríðárunum
snýst að sjálfsögðu mest úm stríöið.
Og forvitnilegt er að sjá hvernig aug-
lýsendur nota stríöið til að koma vör-
Nixon á forsiðunni 6. janúar 1958.
Talar frá Hvíta húsinu.
um sínum á f ramfæri.
Ekki vitum við enn hver henti Life-
safninu sínu á haugana. Eitt er víst,
það hefur örugglega aldrei verið
jafnmikið líf á öskuhaugum Akur-
eyrar og þennan sunnudag.
-JGH
Svona leit hún út á forsiðu Life,
15. janúar 1953. Konan á myndinni
er engin önnur en Elisabet Breta-
drottning.
Þeir hjá Campbell auglýstu svona
þann 27. september 1943: Hvernig
þú getur notað jeppa til að ná þér í
heitan mat."
Og svona auglýsti Mobilgas 27.
september 1943 flugvélabensínið
sitt, Flying Horsepower. Inni i
hringnum stendur: ,,Þökk sé Fly-
ing Horsepower að bandarisku
sprengiflugvélarnar geta borið
meira."
Tannlæknar
Tannlæknar óskast til starfa við Heilsugæslustöð Horn-
brekku, Ólafsfirði.
Fyrsta flokks aðstaða og aðbúnaður.
Upplýsingar veittar í síma 96-62482.
Forstöðumaður Hornbrekku.
Lærið frönsku hjá
Alliance Francaise
— Kvöldnámskeið og síðdegisnámskeið fyrir byrjendur
og lengra komna.
— Bókmenntaklúbbur.
— Upplýsingar og innritun á skrifstofu Alliance Francaise
alla virka daga frá 16. til 27. sept. kl. 15 til kl. 19.
— Kennsla hefst30. sept.
— 15% afsláttur fyrir námsmenn.
Alliance Francaise
Laufásvegi 12
simi 23870.
OSRAM
Ijóslifandi orkusparnaður
80% lægri lýsingarkostnaður
og sexföld ending
LJOS&ORKA
Suðurlandsbraut 12
@84488. Landsins mesta lampaúrval
Nauðungaruppboð
annað og síöara á fasteigninni Nestúni 8, austurhluta, Hellu, þinglesin
eign Haralds Teitssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 30.
september 1985 kl. 18.00.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 95., 98. og 99. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á 60%
jarðarinnar Bakkavöllur i Hvolhreppi, þinglesin eign Lúðvíks Gizurar-
sonar, fer fram að kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri
mánudaginn 30. september 1985 kl. 9.00.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Heiðvangi 19, Hellu, þinglesin eign Jóns
Thorarensen, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 30. september 1985
kl. 11.00.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
Nauðungaruppboð
annaö og síðara á jörðinni Völlur II i Hvolhreppi, þinglesin eign Gunnars
Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 30. september 1985
kl. 14.00.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.