Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1985, Qupperneq 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985. Spurningin Með hvaða liði í knattspyrnu heldur þú og hvernig finnst þér það hafa staðið sig í sumar? Sigurborg Leifsdóttir: Engu sérstöku. Eg hef náttúrlega taugar til Snæfells í Stykkishólmi því þar á ég heima. Þeir hafa staöiö sig ágætlega þótt þeir séu í 3ju deild. Árni Jónsson: Ég held meö ÍA. Eg hef bara alltaf haldiö meö þeim. Þeir hafa staöiö sig vel í sumar. Stefán Garðarsson: Ég held aö sjálf- sögöu meö Fram. Ég ætla ekki aö segja þér af hverju. Þaö vita allir aö þaö er besta liöið. Þeir hafa staöiö sig vel ef viö gleymum síðustu þremur leikjum. Snæbjörn Snæbjörnsson: Ja, Breiöa- blik sennilega. Þeir hafa staöiö sig bærilega finnst mér miðaö viö aöstæð- ur. Annars fylgist ég ekki svo náiö meö þessu. Sigurjón B. Sigurjónsson: Engin spurning: Valur. Þeir eru bestir og hafa staöið sig mjög vel í sumar. Sæmundur Steinar Sæmundsson: Aö sjálfsögöu Skagamönnum. Viö erum búnir aö vera besta liöiö í 30 ár eins og titlarnir vitna um. Ef viö leggjum ríka áherslu á þjálfun yngri flokkanna munum viö halda áfram að vera stór- veldi íslenskrar knattspyrnu. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Höldum neyslunni við helgamar” Einar B. ísleifsson skrifar: Mikiö hefur veriö rætt um góða drykkjusiöi í þeim löndum þar sem bjórinn er leyfður og alla dásemdina sem þeim fylgja. Ég vil gjarnan leggja orö i belg um galla þessara „góöu drykkjusiöa” og kynna hvaö í þeim felst. England hefur löngum veriö kennt viö góöa drykkjusiöi og sagt aö þjóöin kunni meö áfengi aö fara og þaö borið saman við óhófsneyslu okkar um helgar. Á hverju máli eru jafnan tvær hliöar og vil ég nú benda á aðra. Þar þykir sjálfsagt aö fara út á „pöbb” og drekka'l—2 „pænt” (pint- ara) a.m.k. áöur en farið er heim eftir vinnu. Og síöan aftur um kvöldið þegar fariö er út á „pöbb” til aö hitta vini og kunningja. Því verður ekki á móti mælt að bjórinn slævir viljann og áhugann til framkvæmda. Þegar fólk kemur heim skortir þaö kraft og vilja til að leysa þau vandamál og verkefni sem bíöa úrlausnar heima fyrir. Ætli Islendingum þætti ekki full- mikið að drekka fjóra tvöfalda af sterku víni á hverjum degi (en þaö svarar til 4 „pænta” af bjór) og er þá ekki tekinn meö í reikninginn sá vin- sæli siöur aö fara út á „pöbb” í há- deginu og fá sér snarl og a.m.k. einn „pænt” meö. Á laugardögum og sunnudögum þykir og sjálfsagt aö byrja daginn á því aö fara út á „pöbb” eftir hádegi og drekka 2—3 „pænt”. Er þá ótalið þaö magn sem fólk drekkur þegar það fer út aö skemmta sér. Á íslandi hefur þaö löngum verið hefö aö vinir og vandamenn skiptast á heimsóknum og ræöa öll heimsins mál yfir kaffibolla. Á Englandi er slíkt mjög sjaldgæft. Þar hittist fólk úti á „pöbb” yfir könnu af bjór. Eftir dvölina í Englandi á ég mjög erfitt meö aö sjá hvaö er svona fínt viö þessa drykkjusiði sem ranglega Lesandi kann ekki við drykkjusiði Englendinga. Eftir að hafa skoðað þessa mynd hljóta fleiri að vera sammála honum. hafa veriö kenndir viö hófdrykkju. Þaö hefur mikiö veriö rætt um hina miklu drykkju Islendinga um helgar en þá gleymist gjarnan aö þaö er ekki nema lítill hluti þjóöarinnar sem drekkur um hverja helgi. Meiri- hlutinn fer kannski út aö skemmta sér einu sinni í mánuöi og drekka margir í óhófi en snerta síðan varla áfengi þess á milli. Minnihlutinn, mest ungt fólk, fer út um aöra hverja eöa hverja helgi en snertir varla vín þess á milli. Nær þaö fólk sínum íslensku einkennum aftur: Skarpleika í hugsun og dugnaöi. Eg tel þaö tvímælalaust betri vín- menningu að halda neyslunni við helgar en aö taka upp siöi erlendra þjóöa með öllum þeirra göllum. Ég var áöur hlynntur því að selja áfengan bjór í ríkinu og á veitingastöð- um en eftir að hafa kynnst vínmenningu Englendinga er ég því mótfallinn. Umferðarlagabrot í Kópavogi Kópavogsbúi hringdi: Eg er óánægöur meö hvað lögreglan fylgist lítið með umferöarlagabrotum í Kópavogi. Eg verð vitni aö því á hverjum degi aö menn þverbrjóta allar umferöarreglur og viröa að vett- ugi umferöarskilti sem sett hafa verið upp og blasa viö þeim. Til hvers er veriö aö setja upp þessi skilti ef enginn fer eftir þeim? Vil ég nefna sem dæmi umferðarmerki viö Byko Nýbýlavegi, í Hamraborg og viö Engihjalla. Hvareru unglinga- þættimir? Stína skrifar: Ég vil taka undir meö öllum þeim sem hafa skrifaö vegna lélegrar sjón- varpsdagskrár fyrir unglinga. Þann 19. september skrifaöi 3893- 9203 og kvartaði undan skorti á unglingaefni. I þeirri sömu grein var rætt viö Hinrik Bjarnason hjá sjónvarpinu og sagöi hann nú þegar vera allmikið unglingaefni á dag- skránni (t.d. Montreux-þátturinn). Einnig nefndi hann Skonrokk sem er eini þátturinn fyrir unglinga sem sendur er út reglulega, þ.e.a.s. hálfs- mánaöarlega. Eg held aö aöeins helmingur unglinga nenni aö horfa á Skonrokk vegna lélegs efnis sem þar er oft. Einnig minntist Hinrik á einhverja ungiingaþætti. Eg hef nú verið aö fletta gömlum óg nýjum sjónvarpsdagskrám og hvergi rekist á neinn unglingaþátt. Ég hvet sjónvarpsmenn til aö gera betur og sýna góöa unglingaþætti. Svo væri ekki amalegt ef viö fengjum Topp of the Pops á skjáinn. Og munið nú aö það er ár æskunnar. Annað langaöi mig að minnast á en þaö er dónaskapur fulloröins fólks í garö krakka í strætisvögnum. Um daginn kom ég dauöþreytt úr bænum og var fegin aö fá sæti í fullum vagni. Ég var ekki búin aö sitja lengi þegar ég tók eftir því aö kona ein stóð fast upp viö sætiö mitt og starði á mig. Eg setti bara upp mitt blíðasta og horföi á móti. Eftir aö hún haföi horft á mig þessu stingandi augnaráði nokkra stund spuröi hún frekjulega: „Ætlaröu ekki aö standa upp fyrir mér?” Ég svaraöi frúnni og sagði: „Nei þaö ætla égekklaðgera.” Fauk þá í hana og byrjaði hún að röfla um hvaö þesir unglingar væru spilltir og illa upp aldir. Hér sjást þrjú ensk læri kljást um knöttinn á skjánum. Enska boltann á skjáinn strax Eiríkur Jónsson skrifar: Hvaö er að gerast í sjónvarpinu? Ég get ekki oröa bundist lengur. Engin ensk knattspyrna og þó hafa verið leiknar níu umferðir. Veit ég vel að Bretar hafa ekki tekið upp leiki fyrir sig, en Evrópuþjóöir hafa fengið leiki í beinni útsendingu og nú síöast leik Everton-Liverpool sem er talinn besti leikur á Bretlandi þaö sem af er keppnistímabilinu. Svo ég vitni í blaðiö Sunday Express en þar segir í laus- legri þýðingu um leik Everton-Liver- pool: „Þetta var andlit breskrar knatt- spyrnu, til sýnis fyrir áhugamenn víöa um heim. Og sem betur fer voru sjónvarpsmyndavélar á staðnum í 133. leik liöanna til að senda beint út til milljóna Evrópubúa og annarra víða um heim, og þaö þrátt fyrir aö viö í Bretlandi fengjum ekkert að sjá.” Nú var komið svo í fyrra aö margir leikir voru sýndir beint úr ensku knatt- spyrnunni, sem er talin vera sú erfið- asta í heiminum og jafnframt sú skemmtilegasta. Menn veröa aldrei leiöir á henni eins og þeirri þýsku og ítölsku. I ensku knattspyrnunni er allt- af eitthvaö skemmtilegt aö gerast. Ég skora því á yfirmenn sjónvarps- ins aö ráöa bót á þessu, og bregðast við skjótt svo þær þúsundir Islendinga sem hafa átt um sárt aö binda í þessu máli fái aftur sýnda leiki úr ensku knattspyrnunni beint, sem fyrst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.