Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 3
55
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985,
HAPPILY
EVER AFTER
Loksins kom sjónvarpið okkar
með lausn á vanda húsbyggjenda
og var að margra áliti kominn tími
til að þaðan kæmi eitthvað annað
en beinar útsendingar af því þegar
Kenny Dalglish og félagar bruna
upp vinstri kantinn í Englandi og
óbeinar af brosi JR í Dallas því að
þótt hann virðist tilbúinn undir
tréverk mörgum sinnum í hverjum
þætti hef ég alltaf litið fremur á
það sem auglýsingu fyrir viskí en
innlegg í baráttu þeirra sem eru
að reyna að koma þaki yfir höfuðið
á sér á háa verðinu.
í ' kvikmyndinni laugardaginn
tuttugasta og þriðja nóvember
fengu menn sem sagt það resept
sem þá vantaði tilfinnanlega til að
bjarga sér úr skuldafeninu og lifa
síðan happily ever after eins og
menn gerðu í amerískum stríðs-
myndum forðum daga þegar þeir
voru búnir að drepa alla óvinina
fyrir föðurlandið og skunduðu
heim með bros á vör, gullstjörnu
dinglandi í barminum og skriflegt
loforð um verkstjórastöðu í slátur-
húsi upp á vasann.
Uppskriftin í myndinni að sæl-
unni eilífu amen var hins vegar háð
þeim skilyrðum að menn ættu konu
,og bíl og skammbyssu sem gæti
orðið jafnerfitt að komast yfir og
það ætti að reynast auðvelt að
komast yfir konu og bíl ef marka
má tölur um mannfjölda og bíla-
eign landsmanna.
Að uppfylltum áðurnefndum skil-
yrðum sestu inn í bílinn ásamt
konunni þinni sem biður þig vin-
samlegast að skjóta ekki af þér
fótinn með byssunni í buxna-
strengnum sem er að vísu óhlaðin
en það kemur ekki að sök varðandi
fyrirhugað rán því að í Ameríku
eru dæmi þess að menn hafi rænt
flugvél af stærstu gerð með því
móti að miða rúgbrauði á flug-
manninn og hóta að skjóta hann í
gagnaugað með því ef hann fljúgi
ekki á stundinni til dæmis til Kúbu.
Það þarf því ekki að hafa áhyggj-
ur af því þótt ekkert skot sé í byss-
unni.
Næsta atriðið á fjárhagsáætlun-
inni er að finna apótek að kvöldi
dags sem er opið, missa byssuna
niður í vinstri buxnaskálmina og
kaupa tveggja ára birgðir af magn-
íltöflum á meðan verið er að reyna
að ná í byssuna svo að hægt sé að
ógna konunni í apótekinu með
henni.
Þetta fyrsta rán mistekst sem
sagt en það gerir ekkert til því
ballið er rétt að byrja.
Daginn eftir misheppnaða magn-
íltöfluránið er enn haldið af stað
og að þessu sinni er brunað í hljóm-
plötuverslun, tómu byssunni miðað
á afgreiðslumanninn á meðan
konan tæmir peningakassann og
afgreiðslumaðurinn biður vinsam-
legast um að verða drepinn áður
en eigandi verslunarinnar snúi
hann úr hálsliðnum fyrir að hafa
gleymt að fara með peningana í
banka en við þeirri bón er auðvitað
ekki hægt að verða þar sem platan
með samkór alþingismanna er
uppseld í bili og eins og áður sagði
ekkert skot í byssunni.
Á heimleiðinni er komið við í
banka og borgað af vísitöluláni sem
hækkar um fimmtíu þúsund við það
eins og lög gera ráð fyrir.
Babb í bátinn
Eftir mörg árangursrík rán kem-
ur babb í bátinn. Ríkisstjórnin
| ákveður að lækka tolla á sykruðum
jávöxtum og fella niður vörugjald
af hljómplötum í þeim tilgangi að
hagur heimilanna vænkist og þess
vegna koma færri krónur í kassa
kaupmannanna og því minni fjár-
'munum hægt að stela.
Af þessum sökum verður að finna
lyginn, samviskulausan, ríkan og
hæfilega drykkfelldan mann sem
stundar mútur sér til dægrastytt-
ingar og geymir mútuféð í peninga-
skápi í klæðaskápnum sinum í
skrifstofunni og ræna því.
Og af því að það ert þú en ekki
ég sem ætlar að ræna mútufénu
skal ég segja þér hvernig á að fara
að því.
Þú ekur að stórhýsi samvisku-
lausa, ríka og hæfilega drykkfellda
mannsins og töltir upp á tíundu
hæð þar sem skrifstofan með fata-
skápnum er. Þar verður fyrir þér
BENEDIKT AXELSSON
vörður sem þú snýrð upp á hend-
urnar á þangað til hann fer að
öskra eins og hann eigi lífið að
leysa, þá keflarðu hann með ullar-
trefli svo að hann hætti því og að
svo búnu rotarðu hann til vonar
og vara.
Þegar þú ert búinn að ganga
tryggilega frá verðinum læðistu
inn í fataskápinn og bölvar talsvert
í hljóði yfir því að peningaskápur-
inn skuli vera læstur því að það
gerir þér erfiðara fyrir að nálgast
peningana. Þú lætur samt ekki
hugfallast, tekur borvél upp úr
töskunni þinni og borar gat á skáp-
inn sem þú stingur hárnál í og þá
opnast hann og við þér blasa fleiri
dollarar en þú hefur áður séð og
nokkrir tíkallar.
Þegar þú ert búinn að horfa á
dollarana í dálitla stund seturðu
þá í töskuna sem borvélin og hár-
nálin voru í og ferð síðan fram á
gang þar sem vörðurinn er að
rakna úr rotinu og kvarta yfir því
hvað ullartreflar séu vondir á
bragðið og þar sem vörðurinn er
ágætisnáungi spyrðu hann vin-
gjarnlega hvort þú eigir kannski
að kefla hann með vínarbrauðs-
lengju að þessu sinni úður en þú
rotirhann.
Að svo búnu rogastu með tösk-
una heim til þín, borgar alla reikn-
ingana daginn eftir, ef þá er ekki
sunnudagur, og lifir síðan happily
ever after.
Kveðja
- Ben. Ax.
VIIMSÆLASTI HERRAFATIMADUR í EVRÓPU.
______________ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERD.___________
mclka í ÖLLUM BESTU HERRAFATAVERSLUNUMÁ LANDIIMU.
Alb/«
GÆÐIN í ÖNDVEGI
GÆÐIN í ÖNDVEGI
GÆÐIN í ÖNDVEGI
w
c!ka úlpur
IkasKYRTUR^ mclka buxur
A k IV1I\