Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 5
DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985.
5
Samruni NT, Þjóðvil jans og Alþýðublaðsins?
Blööin á hausinn se
ekkert róttækt gert
„ Við, ritstjórar þessara blaða,
eigum í viðræðum um málið. Áhugi
hefur vaxið til muna vegna rekstr-
arerfiðleika. Við erum nú að sigla
inn í ár útvarps og sjónvarps sem
mun ekki létta okkur róðurinn.
Reksturinn yrði á allan máta hag-
kvæmari við sameiningu. Hægt
væri að sameina rekstrareiningar
úr þrem í eina. Þetta gæti litið
þannig út að hvert blaðið hefði
fjórblööung inni í blaðinu þar sem
pólitisku hliðar hvers blaðs gætu
rúmast, 3 leiðarar o.s.frv. Fyrir-
myndir er að finna bæði í Dan-
mörku og Frakklandi," sagði
Helgi. Að sögn Helga stendur NT
mjög illa, t.d. voru margir sem
fengu desemberlaunin sín fyrst í
gær. Ef ekkert róttækt yrði gert
myndu þessi blöð fara á háusinn.
„Meira að segja menn sem horfa
á þetta með pólitískum gleraugum
eru hugmyndinri fylgjandi. Þetta
yrði að gerast fljótt, allavega fyrir
kosningamar í vor,“ sagði Helgi.
-KB
Össur Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóð-
viljans:
EINS OG
ÞRÍHÖFÐA
ÞURS
„ Mér líst ékki á hugmyndina um
1300 - 400 islk> nnm^ar
um heyrnaríjón *4v'!
Dæmiö genn"
i**--
__juatue _
t (vci'shnfik<i ífttfskipsmú.iió
Matador
Al
Sameinast þessi blöð:NT,Þjóðviljinnog Alþýðublaðið.
3 pólitíska fjórblöðunga , 3 leiðara
o.s.frv., inni í stærra blaði. Þetta
yrði eins og þríhöfða þurs eða
geðklofa ófreskja. Þjóðviljinn er
helsta stjórnarandstöðublaðið og
við stöndum vel að vígi eins og er.
Við þurfum ekkkert að flýta okkur.
Hins vegar er sjálfsagt að ræða
þetta. Einhvern veginn þarf að
sameina vinstri pressuna gegn
Morgunblaðinu og DV,“ sagði
Össur.
-KB
Ámi Gunnarsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins:
FRJÁLS OG
ÓHÁÐ
RITSTJÓRN
„Framundan eru miklir erfiðleikar
í blaðaútgáfu og reyndar almennt
hjá fyrirtækjum í landinu. Samruni
þessara 3 blaða yrði hagkvæmur
kostur. Aðalatriðið er þó að mynda
sterkt blað gagnvart Sjálfstæðis-
flokknum sem er búinn að koma
sér æði vel fyrir hvað varðar blaða-
kost og í ríkisíjölmiðlunum. Það
sýnir auðvitað dugnað og klókheit
og ekkert við það að athuga. Hins
vegar hlýtur það að kalla fram
viðbrögð hinna."
Að sögn Árna yrði stórt blað,
svipað og Morgunblaðið, með 3
leiðurum og plássi fyrir 3 skoðana-
hópa góð hugmynd. Ritstjórnin
yrði að sjálfsögðu að vera frjáls og
óháð. Vel yrði að fylgjast með að
fréttamatið væri frjálst og óháð.
„Þetta myndi spara flokkunum
stórkostlega fjármuni,“ sagði Árni
Gunnarsson. - -KB
Kjarnorka í
Kvennalista
'Á tveimur síðustu þingum hafa
þingmenn Kvennalistans lagt
fram þingsályktunartillögu um
frystingu kjamorkuvopna. Til-
lögur þessar em samhljóða þeini
sem Svíþjóð og Mexíkó ásamt
fleiri ríkjum hafa undanfarin ár
lagt fram á þingi Sameinuðu
þjóðanna. Tillögur Kvennalist-
ans hafa ekki hlotið afgreiðslu
fram að þessu.
í frétt frá Kvennalistanum, þar
sem bent er á þessa staðreynd,
er þess einnig getið að þingmenn
flokksins telji að ákvæði af-
vopnunartillögunnar, sem sam-
þykkt var i vor á alþingi, hindri
það að ísland samþvkki fyrr-
nefnda úllögu seni borin verður
fram í þessari viku á þingi Sam-
einuðu þjóðanna.
APH
ÁstináSelfossi
Frá Regínu Thorarensen,
fréttaritara DV á Selfossi:
Hvar sem fólk hittist, tvær mann-
eskjur eða fleiri. er ekki talað
um annað en ástina. Svona er það
síðan Lcikfélag Selfoss fór að
sýna ástarkabarettinn í Inghóli.
Hann hefur nú verið sýndur fjóra
laugardaga. Aðsóknin er svo
mikii að sýna varð bæði á föstu-
dag og laugardag sl. helgi. Var
húsfyllirbæði kvöldin.
Erálit fólks á Selfossi að hjóna-
höndin hafi lagast mikið við
þessa frábæru kabarettsýningu.
Þóra Grétarsdóttir, sem er kynn-
ir á sýningunni. segir að það
hafi átt að sýna kabarettinn 7.
desember sl. en þrýstingur hafi
verið svo rnikill að sennilega
verði aukasýning nk. laugardag.
Það hefur þó ekki verið fastá-
kveðið. Þess rná geta að eldra
fólkið hefur ekki siður garnan af
sýningunni en það yngra.
ímsassv
A&$y
■gCÉNSKUR
Jólamyndin í ar
Þessi frábæra fjölskyldumynd er væntanleg a
næstu myndbandaleigu i vikunni.
‘ptffR. Jó&w
UMUM\
1
Teiknimyndaflokkur á
tveimur spólum.
Ijtlcu cP)'jnsessaru
Hrífandi teiknimynd sem heldur börnum
jafnt sem fullordnum hugföngnum frá
fyrstu mínútu til hinnar sióustu.
TEFLI
VIDEO
Dreifing Tefli hf.,
Síðumúla 21, Reykjavík
Sími686250
Svona eiga fjölskyldumyndir að vera.
Kær kveðja,
jólasveinninn.
Dreifing Tefli hf.,
Síðumúla 21, Reykjavík
Sími686250
TEFLI
VIDEO