Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Qupperneq 7
DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985.
7
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
PIPARKOKUR
w V.'W
Jólin nálgast óðum. Enn er þó tími
til þess að baka og hér er uppskrift
að deigi sem passar vel til þess að
búa piparkökuhús, tré dýr og hver
veit hvað.
200 g sykur
1 egg
2 tsk kardemommur
1/2 tsk negull
2 tsk kanill
1 msk sýróp
1 1/2 tsk lyftiduft
250 g smjör
250 g hveiti
Hrærið saman sykur, egg, lyftiduft,
sýróp og krydd. Bræðið smjörið, látið
það kólna og hrærið saman við hitt.
Hrærið síðast hveitinu saman við og
látið bíða í kæliskáp í nokkra tíma.
Jólaglögg
á jólaföstu
bæði með og
án áfengis
Það er orðinn útbreiddur siður hér
á landi að bjóða fólki upp á jólaglögg
í jólamánuðinum. Það er ágætur
siður en ekki er jólaglögg heppilegur
drykkur fyrir þá sem aka sjálfir heim
á eftir. En til er jólaglögg sem er
óáfengt og fer uppskrift að því hér á
eftir.
Óáfengt glögg
1 1 rauð vínberjasaft eða -
þynnt sólberjasaft
einnig má nota óáfengt rauð-
vín
1 stk. heill kanill
4 negulnaglar
1 stk. kardimomma
1 appelsína
1 dl rúsínur
50 g möndlur
Skerið appelsínuna í þunnar sneiðar
og látið i pott með kryddinu. Látið
1 1 1/2 dl af vatni í pottinn og sjóðið
1 20-25 min. við vægan hita en hafið
lok á pottinum.
Sigtið kryddblönduna og látið í
pott með saftinni og hitið að suðu.
Bætið þá kryddinu út í og látið
standa á heitri plötu i svona 10 mín.
og berið fram með piparkökum,
snarpheitt.
Áfengt glögg
2 flöskur rauðvín
1 appelsína
10 negulnaglar
2 heilar kardimommur
1 stk. heill engifer
2 stk. kanilstengur
2 dl rúsínur
50 g möndlur
sykur eftir smekk
Ef þið viljið hafa glöggið sterkara
er hægt að bæta 1 dl af brennivíni
útí. - A.Bj.
Fletjið þá deigið út, hafið það ca
3-4 mm á þykkt. Skerið út myndir
og húshluta sem bakaðir eru á bök-
unarpappír í ca 7 mín. í 200 gráðu
heitum ofni.
Langbest er að mála húshlutana
áður en húsin eru límd saman en það
er gert á eftirfarandi hátt:
Bræðið strásykur á þurri pönnu við
vægan hita. Dýfið börmunum, sem á
að líma saman, varlega í sykurbráð-
ina og ýtið hlutunum saman með
gætni. Haldið þeim þannig í svolitla
stund eða þar til sykurinn er stífnað-
ur.
Gleymið svo ekki að kveikja á
þriðja aðventukranskertinu á
sunnudaginn.
- (þýttA.Bj.)
S"«ÉL Aíd
HM /aaaaaa * -
■I8H r.acDza ciuuo:
m. JfHJggg LúLiCLiaaQaj^
JPQtJJJjiS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600