Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Blaðsíða 10
10 DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. Útlönd ÚUönd ÚUönd Útlönd BROTTREKSTVR FÁLLDINS MÆUSTILLA FYRIR Gunnlaugur A. Jónsson, frétta- ritari DV í Lundi: „Það er skelfilegt til þess að vita að Thorbjörn Fálldin, einn hæfasti stjórnmálamaður Svía, sem gert hef- ur svo mikið fyrir Svíþjóð og Mið- flokkinn, skuli þurfa að segja skilið við starf sitt á þennan hátt,“ sagði Karin Söder, varaformaður Mið- flokksins sænska, er hún var innt álits á þeirri ákvörðun kosninga- nefndar flokksins að sparka Fálldin úr sæti formannsins. Það kom svo í hlut Söders að gegna til bráðabirgða formennsku þar til nýr formaður hefur verið valinn. REYNIR PÉTUR og Islandsgangan Rijjið upp ísíanásgönguna Kynrdst viðíwrfum monns órsins 1985 Styrkið storfsemina í SóCFidmum Bókin um Reyni Pétur og ís íondsgöngtma, sem Eðvorð Ingóífsson skróðij ex skemmdíeg og íœrdómsrík Cesning, ítreint út sagt ntantiBcetandí. h Otgáfan SKÁLHOLT Söder var þó mjög treg til þess og hafði um hríð í hyggju að segja af sér varaformennsku í mótmælaskyni við ákvörðun kosninganefndarinnar, en þegar Fálldin sjálfur lagði að henni lét hún undan. Látinn gjalda ósigursins Ákvörðun kosninganefndarinnar hefur mælst misjafnlega fyrir, svo að ekki sé dýpra tekið í árinni. Eru flestir þeirrar skoðunar að Fálldin hafi að minnsta kosti átt skilið að fá að yfirgefa formannsstólinn með meiri reisn en raun varð á. Sagt er að nokkrir þingmenn flokksins hafi fellt tár þegar Fálldin greindi þeim frá ákvörðun kosninganefndarinnar. Bakgrunnur málsins er sá að Mið- flokkurinn fékk í kosningunum i haust innan við helming þess fylgis, sem hann fékk í kosningunum 1973, er Fálldin leiddi flokkinn í fyrsta sinn -eða 12,5% núna (og raunar eru þá atkvæði Kristilega flokksins meðtalin) á móti 25,1% í kosningun- um 1973. Óhjákvæmilegt virtist að þetta fylgishrun flokksins mundi draga dilk á eftir sér, eins og raunar er komið á daginn. Fálldin lýsti því hins vegar strax yfir um kosninga- nóttina að hann sem fyrrum íþrótta- maður hefði ekki í hyggju að hætta í kjölfar ósigurs heldur vildi hann ekkert frekar en jafna hlut sinn í næstu kosningum. - Nú er hins vegar orðið fjóst að Fálldin fær ekki tæki- færi til þess að hefna ósigursins. Áframhaldandi fylgishrun Skoðanakannanir að undanförnu höfðu sýnt að enn hafði sigið á ógæfuhliðina eftir kosningarnar og að fylgi Miðflokksins væri komið niður í um 6% -eða svipað og þegar fylgi Þjóðarflokksins var komið nið- ur úr öllu valdi og Ola Ullsteen, formaður hans, var þvingaður til þess að segja af sér. Arftaki Ullste- ens, Bengt Westerberg, reyndist mjög farsæll og var hinn stóri sigur- vegari kosninganna í haust. Skoð- anakannanir að undanförnu sýna að Þjóðarflokkurinn, undir stjórn Westerbergs, er orðinn stærstur borgaralegu flokkanna með 24% fylgi- Óánægja með frávikninguna Það er án efa velgengni Wester- bergs sem á þátt í því að kosninga- Bóndinn sem varð forsætisráðherra Svíþjóðar, Thorbjörn Fálldin. nefnd Miðflokksins vill nú fá nýjan leiðtoga til þess að leysa Fálldin af hólmi, leiðtoga sem hafi næga per- sónutöfra til að bera til að veita Westerberg samkeppni. Ýmsir eru þó efins um að eins vel takist hjá Miðflokknum við leið- togaskiptin og hjá Þjóðarflokknum. Ekki síst vegna þess að margir eru óánægðir með að Fálldin skyldi sparkað og telja að hann hafi átt annað og betra skilið eftir langt og dyggilegt starf í þágu flokksins. Auk þess telja þeir að flokkurinn hafi einfaldlega ekki á að skipa betri foringja en Fálldin. Bóndinn við stýrið Árið 1976 var sögulegt fyrir Fálld- in. Þá fyrst komst hann í heimsfrétt- irnar. Hann varð forsætisráðherra í fyrstu ríkisstjórn borgaralegu flok- kanna í Svíþjóð í 44 ár. Alls staðar var rætt um bóndann sem var orðinn forsætisráðherra Svíþjóðar. Jafn- framt má segja að árið 1976 hafi verið upphafið að endi stjórnmálaferils Fálldins. Þegar kjamorkuverið í Barsebáek var sett í gang, þrátt fyrir aðalloforð Fálldins um að slíkt mundi aldrei verða ef borgaralegu flokkarnir kæmust í ríkisstjórn, hó- fust umræðurnar um „svik Mið- flokksins" í kjamorkumálunum. Ýmsir fréttaskýrendur telja eimmitt að sú umræða hafi verið ofarlega í huga kosninganefndarinnar þegar hún ákvað að víkja Fálldin frá eftir ósigur flokksins í fjórum kosningum íröð. Stutt skólaganga Thorbjörn Fálldin fæddist 26. apríl 1926. Þegar á unglingsárum gekk hann í Bændaflokkinn sem síðar varð Miðflokkurinn. Eina menntun GEYSILEGT - úrval leikja og 1 forrita og KíonamL Gunnar Ásgeirsson hf. % Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 (jjLU- Abörirtöba í étrulegu verðil MSX fSANYO * ÖRTOLVA Z-80 A * ROM minni, 32 KB * RAM minni, 64 KB * UPPLAUSN 258x192 * LITIR 16-Microsoft basic * 72 LYKLAR í BORÐI 14“ TOLVULITSKJAR 12.900.- Aðeins kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.