Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Page 12
GOTT FÖLK / SÍA
12
D V. FIMMTUD AGUR12. DESEMBER1985.
I
SS-búðunum versla þeir sem kjósa
k +M.
u
Jólin eru á næsta leiti og
í SS-búðunum getur þú
fengið nánast allt sem
þarf til hátiðarinnar —
nema lifandi jólasveina. í
búðunum er þér nú boðið
uppá glæsilegt úrva,I af
girnilegum kjötvörum með
öllu tilheyrandi, úrvals
ávexti, óviðjafnanlegt
sælgæti og allt sem þú
hugsanlega þarft í jóla-
baksturinn.
Það er auðvitað ekki ráð-
legt að fara í búðarkerru-
kappakstur í SS-búðunum,
en rýmisins vegna er það
vel mögulegt. Þar ert þú
laus við þrengsli, hama-
gang og hávaða stór-
markaða; þar er afslapp-
andi umhverfi og nægt
olnbogarými.
I SS-búðunum rignir vör-
unum hreinlega yfir þig —
úrvalið er eins og best
verður á kosið. Og þar er
auðvelt að nálgast vörurn-
ar; hjá okkur hittir þú
nefnilega fyrir hjálpsamt
og nærgætið starfsfólk
sem veitir hraða og góða
þjónustu af alúð og hlýleik.
I Austurveri, Glæsibæ, Skólavörðustíg, Hafnarstræti, við Hlemm og á Akranesi.
MEMEDMJÓI
Ut er komin skáldsaga eftir Yashar
Kemal, frægasta núlifandi höfund
Tyrkja og hinn vinsælasta meðal
tyrkneskrar alþýðu. Memed mjói
kom út árið 1955 í Tyrklandi og var
fyrsta skáldsaga höfundarins. Það
er Þórhildur Öláfsdóttir dósent sem
þýðir söguna úr tyrknesku og skrifar
eftirmála.
Yashar Kemal fæddist árið 1923 í
litlu fjallaþorpi í Suðaustur-Tyrkl-
andi og ólst upp í rammtyrkneskum
menningarheimi. Hann er sjálfur af
kúrdískum ættum en í þorpinu
bjuggu aðallega hirðingjar af ætt-
flokki Turkmena. Meðal þessa fólks
varðveittust hetjuljóð og munn-
mælasögur frá ómunatíð sem Yashar
laerði í æsku og hreifst af.
Memed mjói, söguhetjan, elst upp
í þorpi ríkismannsins Abdi aga sem
hefur sölsað undir sig landareignir
fólks í fimm þorpum á Tsjúkuróva-
sléttunni og drottnar með harðn-
eskju. Memed er bara barn að aldri
þegar hann gerir uppreisn gegn þess-
um harðstjóra og hefnist grimmilega
fyrir. Þegar hann er unglingur gerir
hann markvissari uppreisn, skipu-
legur flótta með unnustu sinni. En
flóttinn tekst ekki ög fyrr en varir
er Memed kominh í flokk stiga-
manna og útlaga í fjöllunum.
Memed mjói er 408 bls., gefin út
hjá Máli og menningu bæði í bandi
og sem Ugla. Prentsmiðjan Oddi hf.,
prentar bókina, en Robert Guille-
mette gerir kápumynd.
Ingimar Erlendur Sigurðsson.
Ljósahöld
Út er komin ljóðabókin Ljósahöld
og myrkravöld eftir Ingimar Erlend
Sigurðsson. Er þetta sextánda bók
höfundar. í bókinni eru 86 ný ljóð.
Skáldið hefur að einkunnarorðum
þessar ljóðlínur: Meðan hefur myrk-
rið völdin/í mannsins sál,/lífsins eru
ljósahöldin/guðs leyndarmál.
Ljósahöld og myrkravöld er 101 bls.
á stærð, prentuð í Prentsmiðju Áma
Valdimarssonar hf. Víkurútgáfan gef-
urút.