Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 19
DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. 19 Menning Menning Menning Menning Bókmenntir Matthías Viðar Sæmundsson „Þótt ein bára brotni, rís alltaf önnur í staðinn." Ætli megi ekki túlka samstefnu söguþráðanna á eftirfarandi hátt: Örlagasaga Sólu gömlu kennir rithöfundinum að hann sjálfur er hluti af þjóð og sögu, að enginn getur skilið sjálfan sig - og lifað af, án þess að þekkja uppruna sinn. Fólk hennar lifði við sárustu örbirgð en átti þó lífsvilja og fögnuð í brjósti. Gafst ekki upp þótt á móti blési. Saga Sólu gerir honum kleift að ganga í fótspor ómagans, föður Sólu, sem gaf barn sitt nýrri öld, þótt það kostaði hann sjálfan allt. Taka illa nauðsyn í sátt. Fórna. Sé þessi túlkun í áttina er boðskap- ur verksins afar uppbyggilegur. Sóla, Sóla er þá öðrum þræði sjálfs- uppgjör þeirrar kynslóðar sem nú er að nálgast miðjan aldur, firrtrar kynslóðar sem slitnað hefur úr tengslum við fortíð sína og framtíð. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað hvort sagan standist sem listræn heild. Sannast sagna efast ég um það, því að heimar fortíðar og nútíðar tengjast minna en við hefði mátt búast innan hennar. Þó að greina megi ýmsar vísanir og hhðstæður koma þeir hvor öðrum furðanlega lítið við. Ástæðan er öðru fremur fólgin i lýsingu Sólu gömlu. Hún er tengiliðurinn: mögnuð og rammgöldrótt, búin hæfileikum sem nútímafólk hefur glatað og lifir í ljósaskiptum hins náttúrlega og yfirnáttúrlega. Guð- laugur nýtir hins vegar möguleika hennar fulllítið. Þótt hún geri öðrum sendingu öðru hverju er hún lítið annað en sagnaþulur: massi af sögum. Af þeim sökum verður fortíðin ekki að lifandi afli í sam- tíðarsögunni. Og það var jú til- gangurinn. - MVS Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir Eykur áhuga fyrir náttúrunni Fuglarnir okkar er hið mesta lista- verk hvað varðar alla vinnu og frá- garig. Þar er að finna nákvæmt efnis- yfirlit, atriðisorðaskrá, myndaskrá og heimildaskrá sem auðveldar notk- un bókarinnar í vísindalegum til- gangi. Ljósmyndirnar eru hver ann- arri betri og skemmtilegri og. sýna þær allar fuglana í sínu rétta um- hverfi. Sumar þeirra sýna einnig egg þeirra eða unga og eru þær hvað bestar t.d. mynd af uglu með unga (bls. 37), fýll á eggi (bls. 55), þúfutittl- ingur og skógarþröstur með unga sína (bls. 12 og 15). Höfundur textans hefur víða leitað fanga. Einstaklega skemmtilegt er að tengja svona saman líffræðilegan fróðleik og menningarlegan. Þetta færir lesend- ur nær dýrunum og eykur skilning á tilfinningu fólks fyrir náttúrunni áður fyrr meðan menn lifðu í sátt og samlyndi við hana. 'Slík meðferð efnis hlýtur að auka á virðingu og áhuga barna fyrir náttúrunni og tengslum við hana. Verðum við að vona að Stefán Aðalsteinsson haldi áfram að miðla börnum af fróðleiks- brunni sínum varðandi íslenska náttúru á sem flestum sviðum. Þessi bók á erindi miklu víðar en á bóka- söfn og skólastofur. Hún er kjörin fyrir böm og foreldra til að njóta saman í sumarfríum, sunnudags- bíltúrum eða heima í stofu. Hún gefur líka tilefni til margs konar umræðna því að fróðleikur hennar vísar út á við, skírskotar til margra sviða. Hún hefur þann kost að sam- eina bæði fræðslu og skemmtigildi. H.H. Níunda Bruckner-Te Deum Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands i Háskólabíói 5. desember. Stjórnandi: Karolos Trikolldis. Einsöngvarar: Anna Júliana Sveinsdótt- ir, Elisabet Waage, Garðar Cortes, Krist- inn Hallsson. Kór: Söngsveitin Filharmonia. Efnisskrá: Anton Bruckner: Sinfónia nr. 9 i d-moll, Te Deum. Af ýmsum alkunnum ástæðum hefur hljómsveitin okkar lítt glímt við helstu meistara germanskrar rómantíkur þeirra er til wagner- íana teljast. Yfirleitt eru ástæður þessar mjög svo skiljanlegar hér hjá okkur. Fyrst og fremst veldur að þeir voru frekir á mannskap og áttu til að nota sérsmíðuð eða nýsköpuð hljóðfæri. Hins vegar höfum við farið varhluta af því stjórnmálalega og menningar- pólitíska moldviðri sem þyrlað var upp um þessa karla. Helst er að andmælendur þeirra hnussi og hunsi tónleika þar sem verk þeirra eru á dagskrá. Sú ástæða, til dæmis, að sniðganga Brucknersin- fóníur vegna þess að á þeim tón- leikum er yfírleitt ekki hlé, er skilj- anlega nærri óþekkt hér um slóðir. Sá háttur reyndist stúdentum hins vegar kærkominn, að minnsta kosti hér í eina tið, því þá átti maður von á sæti á tónleikum eða öllu fremur að geta laumast í sæti úr sínu annars kærkomna stæði. Engar afsakanir Kannski er það af því að maður býst ekki fyrirfram við neinni glansframmistöðu að maður gleðst svo ósegjanlega þegar hljómsveit- inni tekst vel við svo vandasamt verkefni sem Níundu Bruckner. I upphafi verð ég að lýsa undrun minni yfir frumhlaupi stjórnan- dans að afsaka fyrirfram í fjölmiðl- um hugsanleg mistök wagnertúbu- þeytara. Hann ætti, hreinræktaður Vinarbúinn, að vita að hljómsveit- arfær hornisti blæs wagnertúbu af sama öryggi og opið horn og að þar sem þær eru á annað borð í brúki oftar en einu sinni á áratug ætlast menn til að blásið sé á þær með sama árangri og önnur hljóðfæri hljómsveitarinnar. Því er kannski við að bæta að auðveldara mun talið þeim hornistum, sem gjarnan blása á einfalt horn, að stíga yfir á wagnertúbu, þótt það helgist kannski af því að þar sem wagn- ertúban er tíðast blásin halda menn hvað harðast í einfalda hornið. Nú vantaði viðbótarstrengi Úr því að fyrir því var haft að leigja hingað wagnertúbur hefði átt að viðhafa svipaða rausn við strengjaliðið og fjölga upp í þolan- legan Wagner/Bruckner/Strauss- kjarna. Það hefur borið góðan Tónlist Eyjólfur Melsted árangur að bæta við vel undir- búnum, langt komnum nemum á slíkum stundum og vantaði átak- anlega á stundum þótt strengjalið- ið léki gegnumsneitt mjög vel. Hvergi kom vöntunin þó eins ber- lega í ljós og í undirröddum djúp- fiðlanna við „Te per Orbem". Hornistarnir, allir níu, voru heið- ursfylking hljómsveitarinnar þetta kvöldið. Þeirra hljómur, mjúkur og þykkur, hefði gjarnan mátt enduróma í leik trompeta og bás- úna. En grófleiki lúðurþeytaranna stakk oft óþyrmilega í stúf við spil annarra. Einnig stóðu flautunnar menn fyrir þeim óvanalega verkn- aði að valda hnökrum á leik tré- blásaraliðsins. Vel undirbúinn Kórinn kom vel undirbúinn til leiks. Ekki fór milli mála að þar kunnu menn sitt. Það skal viður- kennast að erfitt er að syngja sig upp á tiltölulega stuttum spretti eftir að hafa setið á Sviðinu undir þremur köflum sinfóníunnar. Því hefðu kórlimir að ósekju mátt gefa meira í. Þnð gerðu reyndar tenór- arnir, þó án þess að rjúfa heildina, og er langt síðan ég hef heyrt jafn- kjarnmikið tenóralið í stórkór. Einsöngvarar komu vel út og ber þar fyrstan að nefna Kristin Halls- son, sem átti afgang frá söngtækni- legum þenkingum til að leggja hjartans einlægni og virðingu í það drottins orð sem hann fór með. Hátónarnir reyndust Garðari Cort- es skeinuhættir og stundum verk- uðu kvennaraddirnar einum um of til baka. En í flestu stóðu einsöngv- ararnir sig vel, hafandi á bak við sig góðan kór og fyrir framan sig vel spilandi hljómsveit. Karl Ka- spar Trikohdis náði góðum árangri með hljómsveit og kór og ekki skemmdi, sem reyndar lá ljóst fyrir þegar á námsárunum, að sviðsí- mynd hans á stjórnpalli væri feik- nagóð. - EM Ingi- bjargar . .. það er stíll á þessu hjá Sheldon . . . þetta er bara dúndur- reyfari! Eftir Hailey, Jaí Verðkr. 975,00. Verðkr. 975,00. Aðrar útgáfubækur Bókaforlags Odds Björnssonar 1985: GUÐJÓN SVEINSSON: Glaumbæingar samirvið sig. Verðkr. 675,00. JÓN GÍSLI HÖGNASON: Gengnarleiðirll. Verðkr. 975,00. JÓNAS THORDARSON Vestur-íslenzkar æviskrár V. Verð kr. 2.250,00. Verðkr. 750,00. fer ad BÓKDFORLflGSBÓi ?*i*»jgira~iact.Tri3tiaaw ... buslubækumar um Depil! Depill fer ad busla Eric Hill ... mjúkar íbaðið, þola tómat- sosuna! Kr. 181,25 hvorbuslubók.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.