Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Síða 32
32 DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985. Andlát Guðrún Guðnadóttir, Karlagötul ■ 19, lést í Landspítalanum 11. des&mb- er sl. Sigmundur Friðriksson, Hjarðar- haga 58, lést í Landakotsspítala 10. desember. Knut Langedal, Þórsgötu 15, Reykjavík, lést í Landspítalanum 8. desember 1985. Mundína Freydís Þorláksdóttir, frá Ytri-Á í Ólafsfirði, verður jarð- sungin frá Ólafsfjarðarkirkju föstu- daginn 13. desember kl. 14. Ragnhildur Davíðsdóttir frá Vopnafirði verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. des- ember kl. 13.30. Arngrímur Vídalín Guðmunds- son frá Hesti í Önundarfirði, Þing- hólsbraut 24, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 13. desember kl. 10.30. Ingimundur Guðmundsson fv. brunavörður lést 4. desember sl. Hann fæddist í Ámundarkoti í Fljóts- hlíð 24. mars 1911. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og kona hans Þórunn Tómasdóttir. Ingimundur starfaði lengst af sem slökkviliðsmaður hér í borg. Eftirlif- andi eiginkona hans er Kristjana Kristjánsdóttir. Þau hjónin eignuð- ust eina dóttir. Útför Ingimundar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Afmæli 85 ára er í dag, 12. desember, Elísa- bet Guðjónsdóttir er um árabil starfaði hjá Bæjarútgerð Reykjavík- ur og átti þá heima á Njálsgötu 8B, nú Norðurbrún 1. Hún ætlar að taka á móti gestum nk. sunnudag milli kl. 15 og 17. 70 ára er í dag, 12. desember, Jón G.- Þ. Jóhannsson, Óðinsgötu 11 hér í bænum, starfsmaður hjá Eim- skip. Hann ætlar að taka á móti gestum á sunnudaginn kemur á Norðu^lrúii 1 kl. 15-17. Þau eru. góðkunningjar Elísabet og Jón og' slá saman móttöku vina og vanda- manna. 70 ára er í dag, 12. desember, Svavar Bjarnason frá Fljótsdal, síðar á Seyðisfirði en nú í Engihjalla 25, Kópavogi. Hann ætlar að taka á móti gestum í tilefni afmælisins á laugardaginn kemur, 14. þ.m., á Suðurlandsbraut 30, húsi Trésmíða- félags Reykjavíkur, milli kl. 15 og 19. Tilkynningar Söng- og skemmtidagskrá á Hótel Borg I kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 heldur Leikfélag Reykjavíkur dans- leik á Hótel Borg. Þar verður kynnt nýútkomin plata með lögum úr söng- leiknum LAND MÍNS FÖÐUR sem gerist á stríðsárunum og einmitt að hluta til á Hótel Borg. Einnig verða flutt skemmtiatriði ,,í stríðsárastíl" og gömlu stríðsáraslagararnir sungnir. Loks mun sextett Leikfé- lagsins spila fyrir dansi til kl. 1 eftir miðnætti. íslandsdeild Amnesty gefur út póstkort Islandsdeild Amnesty hefur nú byrj- að útgáfu póstkorta vegna fanga mánaðarins. Á kortin er prentuð áskorun til stuðnings fanganum og heimilisfang hlutaðeigandi stjórn- valda. Kortin verða seld í áskrift og það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að undirrita kortin og koma þeim í póst. Þeir sem hafa áhuga á áskrift eða nánari upplýsingum hafi samband við skrifstofu samtakanna, Hafnarstræti 15, Reykjavík, sími 16940. Skrifstofan er opin frá kl. 16-18 alla virka daga. Jólafundur Kvenfélags Kópa- vogs verður í dag, fimmtudaginn 12. des- ember, kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Dagskrá helguð jólunum. Regine Deforges í Nýja köku- húsinu í kvöld Franska skáldkonan Regine Deforg- es, höfundur bókarinnar Stúlkan á bláa hjólinu, mun halda stuttan fyrirlestur á vegum Alliance Fran- caise og Isafoldar í Nýja kökuhúsinu við Austurvöll í kvöld, fimmtudaginn 12. desember, kl. 20.30. Hún mun fjalla um efnið „Höfundur og út- gefandi". Fyrirlesturinn verður á frönsku og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á kaffi og smákökur. Mtnningarkort Áskirkju Minningarkort Safnaftarfélflgs Askirkju hafa eftirtaldir aðilar til sölu: Þuríður Agústsdóttir, Austurbrún 37, sími 81742. Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, simi 82775. ÞJónustuibúðir aldraðra, Dalbraut 27. Helena Halldórsdóttir, Norðurbrúnl. Guðrún Jónsdóttir, Klelfarvegi 5, sími 81984. Holtsapótek, Langholtsvegi 84. Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg27. | Þá gefst þeim, sem ekki eiga heimangengt, kostur á að hringja f Askirkju, síma 84035, milli kl. 17.00 og 19.00 á daginn og mun kirkju- vörður annast sendingu minningarkorta fyrir þásemþessóska. íMiklagarði Lokal, ný verslun Nýlega var opnuð að Þórsgötu 14, Reykjavík, verslunin „Lokal“. Þar er til sölu mikið af heimaunnum Jólakort Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eru enn á ný komin á markaðinn. Það er Kven- stúdentafélag Islands sem í þrjátíu ár hefur séð um sölu kortanna hér á landi. Kortin eru prýdd myndum eftir ýmsa þekkta listamenn. Margar myndanna hafa verið gerðar sérstak- lega fyrir Barnahjálpina auk þess sem sumar eru eftir gamla meistara málaralistarinnar. Á hverju ári er valið úr um 700 myndum til að setja saman úrvalið hverju sinni. Þar eru, auk jólakortanna, kort fyrir ýmis tækifæri, s.s. sérstök blómakort, Austurlandakort, ,,visit“-kort og ýmis önnur kveðjukort. Barnahjálp SÞ hefur það aðal- markmið að bæta aðstæður barna og mæðra alls staðar í heiminum. Starfið felst meðal annars í neyðar- hjálp, eins og nú nýverið í kjölfar jarðskjálftanna í Mexíkó og eldgoss- ins í Kólumbíu. 1 Kaupmannahöfn er sérstök birgðastöð fyrir Bama- hjálpina m.a. vegna þessa og er það tryggt að innan sólarhrings geti flug- vélar verið komnar í loftið með hjálpargögn ef válegir atburðir eiga sér stað einhvers staðar í heiminum. Engu að síður leggur Bamahjálpin mesta áherslu á starf sem stuðlar að varanlegri lausn vandamála hvar sem er. Þess vegna vinnur starfsfólk Barnahjálparinnar mest að ýmsum langtímaverkefnum. vörum, svo sem fatnaði, brúðum, gjafavörum og ýmsu fleiru. Eigandi verslunarinnar er Oddný Sigurvins- dóttir. Starfsemi Barnahjálparinnar byggir á frjálsum framlögum ríkja og einstaklinga. Tekjur af sölu jóla- kortanna nema um 10-12% af fram- kvæmdapeningunum. Jólakortin eru til sölu í öllum helstu bókabúðum landsins, auk þess sem þau eru fáanleg á skrifstofu Kvenstúdentafélagsins að Hallveig- arstöðum í Reykjavík. Frá Óskari Magnússyni, frétta- manni DV í Washington: „Röksemdir voru í meginatriðum þær sömu og fyrir undirrétti og málatilbúnaður svipaður," sagði Helgi Ágústsson, sendifulltrúi við íslenska sendirúðið i Washington, í samtali við DV um málflutninginn í Rainbow-málinu. Málið var flutt munnlega fyrir áfrýjunardómstólnum hér í Was- Þegar sagt var frá verðkönnun Verðlagsstofnunar á leikföngum í gær urðu mistök. Sagt var að eld- fláug úr leikfangaseríunni Masters of the Universe væri langsamlega dýrust í bókaversluninni Snerru í Mosfellssveit. Þetta var ekki rétt. Eldflaugin var dýrust í Miklagarði! Þar kostaði þessi eldflaug 79% meira en þar sem hún var ódýrust, í bókaversluninni Vedu í Kópavogi. Þar kostaði eldflaugin 945 kr. en 1695 kr. í Miklagarði. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. . A.Bj. hington í gær. Óvíst er hvenær dómur verður kveðinn upp en ljóst er að vegna aðstæðna mun reynt að hraða málinu eftir föngum. Undirréttur í málinu dæmdi Rain- bow skipafélaginu í vil og meinaði þannig bandarískum stjórnvöldum að bjóða út flutningana fyrir varnar- liðið en um slíkt útboð hafði verið gert samkomulag við íslensk stjórn- völd. Jólakort Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Rainbow-málið flutt í gær: Málf lutningur sá sami og í undirrétti Samtök áhugamanna um stjörnuspeki Sunnudaginn 15. desember kl. 13.45 verður haldinn í Víkingasal Hótel Loftleiða stofnfundur SÁS, samtaka áhugamanna um stjörnuspeki. Markmið samtakanna er það að skapa aðstæður til að áhugamenn um stjörnuspeki geti hist og rætt það sem efst er á baugi, einnig að miðla upplýsingum um stjörnuspeki, m.a. í gegnum fyrirlestra og almenna um- ræðu. Allir áhugamenn eru vel- komnir. Ekki er skilyrði fyrir þátt- töku að hafa þekkingu á stjörnu- speki, heldur að hafa áhuga og vilja til að fræðast frekar um fagið. Mark- mið okkar er að halda tíu fundi á ári, stundum með mat og drykk, og sameina þannig lifandi samveru- stund og skemmtilega umræðu. Við- fangsefnið verður það sem stendur öllum nálægt, stjörnuspeki og mann- legt eðli. Nánari upplýsingar í síma 10377. Undirbúningsnefnd. Fyrsta sólóplata Hjalta Gunnlaugssonar I byrjun desember kom út gospel— plata á vegum útgáfunnar Ný tónlist. Hún inninheldur 10 lög, öll samin af Hjalta í léttum rokkstíl, þar sem hann vitnar um trú sína á Krist Jesúm á hispurslausan hátt eins og nafn plötunnar gefur til kynna, „Sannleikurinn í mínu lífi“. Hjalti syngur einnig flest laganna. Við gerð plötunnar hefur Hjalti vandað mjög til verks og fengið til liðs við sig úrvals tónlistarmenn. Þar má helst nefna Páll E. Pálsson, Ásgeir Óskarsson og Magnús Kjartansson auk fjolda annarra. Upptökur fóru fram í Hljóðrita, Hafnarfirði, undir stjórn Gunnars Smára Helgasonar, sem einnig sá um útsetningar og hljóðblöndun ásamt Páli E. Pálssyni og Hjalta Gunnlaugssyni. Alfa sá um pressun og Prisma um filmuvinnu og prentun. Doktorsvörn viö læknadeild Háskóla íslands Laugardaginn 14. desember fer fram doktorsvörn við Læknadeild Há- skóla Islands. Nikulás Þ. Sigfússon læknir mun þá verja doktorsritgerð sína sem læknadeild hefur metið hæfa til doktorsprófs í læknisfræði. Heiti doktorsritgerðarinnar er: „HY- PERTENSION IN MIDDLE-AGED MEN. The Effect of Repeated Scre- ening and Referral to Community Physicians on Hypertension Cont- rol“. Andmælendur af hálfu lækna- deildar verða prófessor Göran Berg- lund, yfirlæknir við Sahlgrenska sjukhuset í Gautaborg, og dr. med Þorkell Guðbrandsson. Prófessor Davíð Davíðsson stjórnar athöfn- inni. Doktorsvörnin fer fram í há- tíðasal háskólans og hefst kl. 14. Öllum er heimill aðgangur. Fræðslufundur um íþróttasálar- fræði Fræðslunefnd ISl gengst fyrir fræðslufundi um íþróttasálarfræði, laugardaginn 14. desember nk. kl. 14 18 í kennslustofu ÍSl í íþróttamið- stöðinni í Laugardal. Erindi flytja Jon S. Karlsson sálfræðingur og Hildigunnur Gunnarsdóttir BA, en þau sóttu námskeið í íþróttasálar- fræði sem haldið var á vegum íþróttasambands Danmerkur í júni sl. Þjálfarar, leiðbeinendur og leið- togar í íþróttum eru sérstaklega hvattir til að mæta á þessum fræðslu- fundi. Þátttökutilkynningar berist skrifstofu Isl í síma 83386 sem fyrst. Jólaball FB og Kvennó verður haldið í Broadway 17. des- ember nk. Herbert Guðmundsson kemur í heimsókn, hljómsveitin Cosa Nostra leikur nokkur lög, einnig munu þar skemmta jólasveinar skól- ans. Miðasala verður í anddyri skól- ans milli kl. 11 og 13, 16. og 17. des- ember. Eldflaugin langdýrust Ný verslun með sælgæti á Opnuð hefur verið ný sérverslun með sælgæti að Laugavegi 53 og ber hún nafnið Dandý. Á boðstólum eru yfir 80 tegundir sælgætis sem er selt í lausri vigt og er allt selt á sama verði. Er það nýjung hér á landi að Laugavegi viðskiptavinurinn geti sjálfur valið úr svo mörgum tegundum og blandað eftir eigin smekk. Eigendur verslun- arinnar eru Már Jónsson, Jósef Sig- urgeirsson og Sólveig Jónsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.