Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1985, Side 37
DV. FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985.
37
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Danskir prinsar
í prinsessuleit
Dönsku prinsarnir, Friðrik og
Jóakim, eiga nú í vök að verjast í
einkalífínu því áhugi fjölmiðla á
hinum smæstu athöfnum þeirra á sér
lítil takmörk. Friðrik er eldri og
þykir hægari manngerð en yngri
bróðir hans, Jóakim, einkum á yfir-
borðinu.
Krónprinsinn hefur að sögn fjöl-
miðla fundið sér efnilegt drottning-
arefni og nú keppast dönsku blöðin
um að birta myndir af þeim - hvoru
í sínu lagi og saman. Rigmor Zobel
heitir sú útvalda og er skólasystir
prinsins frá Öregaard Gymnasium.-
Hún er bæði fögur og rík. nokkuð
sem gleður hjarta fjölmiðlamanna á
staðnum. Faðir hennar er forstjóri
og býr með börnum sínum tveimur í
dýrasta hverfi Kaupmannahafnar.
Móðir Rigmor lést í bílslysi árið 1971.
Á meðan Friðrik læðist milli kvik-
myndahúsa með kærustuna pent
undir arminn og reynir að komast
hjá athygli vegfarenda situr Jóakim
í stofufangelsi vegna óláta sem hann
tók þátt í á skólaskemmtun fyrir
skömmu.
Það var reyndar nokkrum dögum
eftir íslandsheimsóknina með skóla-
félögunum að haldin var kvöld-
skemmtun þar sem nemendur fluttu
leikrit - eða reyndu sitt besta til þess.
I miðjum þætti gátu Jóakim og
nokkrir aðrir í salnum ekki á sér
setið og hófu sína einkaskemmtun
með eggjakasti og framíköllum.
Nokkrir ávextir fengu að fljúga líka
og allt var í hers höndum þegar tókst
að skakka leikinn. Flestir óeirðaseg-
girnir sluppu - nema prinsinn sjálfur.
Honum var tilkynnt að slík hegðun
væri stöðu hans ekki samboðin, hann
ætti að ganga á undan með góðu
fordæmi. Því situr hann inni í höll-
inni, fær einungis námsbækur að
lesa og samskipti við kunningjana
eru ekki til umræðu. Þar er meðtalin
kærastan, Helena, sem, eins og
Rigmor, er ung, rík og ljóshærð og
öll ganga þau í sama skólann. Blöðin
sitja um Helenu og fjölskylduna í
þeirri von að einhver fáist til þess
að gefa yfirlýsingu um málið. Það
er ekki til umræðu, þau neita að
ræða hegðunarvandamál í kóngs-
höllinni og nú er beðið i eftirvænt-
ingu þess dags þegar færi gefst á
syndaselnum sjálfum. Þangað til
verða menn að fjalla um prinsessu-
leit prinsanna tveggja og þar virðist
allt á hreinu - lítil , feit , fátæk og
dökkhærð kvenpersóna kemur alls
ekki til greina í danska hásætið.
Rigmor Zobel er
væntanleg
Danadrottning
ef marka má
umsagnir danskra
tímarita.
Fagurt útlit spillir ekki fyrir ef stefnt er á hásætissetu og sýningarstúlkan Rigmor prýðir forsíður helstu
tímaritanna. Þetta er nýleg forsíða á Alt for damerne.
Krónprinsinn Friðrik slapp með
skrekkinn og mætti í skólann eins
og ekkert hefði í skorist.
Jóakim var rekinn úr skóla í eina
viku og hafður í eins konar stofu-
fangelsi.
ALLT Á SAMA STAÐ!
ÞVERHOLTI11.
Sízninn á öllum deildum 27022. ESI
Mtcrn
HÁRSNYRTIVÖRUR
H. HELGASON SÍMAR 18493-22516
SENNILEGA BESTU HÁRSNYRTIVÖRUR
SEMVÖLERÁ, SPYRJIÐ
FAGFÓLKIÐ.
FÁST AÐEINS Á
HÁRSNYRTI-
STOFUM.
NÝTT ÚTLIT