Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 16
16 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Ævintýraleg kvöldstund í Kvosinni með Jónasi Jónas sat við háborð eins og keisari í höli sinni og sér á vinstri hönd hafði hann formann Klúbbs matreiðslu- meistara, Lárus Loftsson. DV-myndir PK. Kristjánssyni sem hefur borðað á 670 veitingahús- umí27 löndum og eyttí það 2600 klukku- stundum. stefna í byggingarlist og tekin upp í matargerð um 1800. Þessi stefna veltir sér upp úr smjöri og feiti og þeir sem nota hana í matargerðarlist í dag eru læstir í fortíðinni. Til gamans get ég nefnt það að um daginn fékk ég skötusel, vafmn inn í beikon.“ Jónas heldur áfram að tala um barokkið yfir matreiðslumeisturum sem margir hafa hlotið verðlaun í Bella Center í Kaupmannahöfn þar sem þessi ákveðna matargerðarlist er í hávegum höfð: „Ég get haft gaman af að horfa á svona mat. En ég borða hann ekki fyrir nokkurn pening. Þetta á meira skylt við högg- myndahst en matargerð og toppur- inn á þessu er hið svokallaða „kalda borð“. Fundur Klúbbs matreiðslumeist- ara fór fram á veitingastaðnum Kvosinni en um þann stað skrifaði Jónas Kristjánsson einhverju sinni að engu væri líkara en kokkinum væri illa við gestina, reyndar líkti hann staðnum við miðevrópskt hóru- hús á millistríðsárunum. En það er langt síðan. Staðurinn hefur skipt um eigendur og gestirnir eru farnir að koma aftur. Tilgangur mat- reiðslumeistaranna með því að bjóða Jónasi til kvöldverðar og erinda- flutnings var einmitt sá að ræða við hann um skrif um veitingahús eins og þau hafa komið fyrir hér á síðum helgarblaðs DV. verðsins sem sé of lágt,„... þetta er samkeppnin." Keisari og riddarar Jónas sat við háborð eins og keisari í höll sinni og sér á vinstri hönd hafði hann formann Klúbbs mat- Matur í 25 ár Jónas Kristjánsson stendur upp frá háborðinu og dauðaþögn slær á saddan mannskapinn. Ritstjórinn hefur mál sitt á þvi að minna kokk- ana á hversu mikilvæg atvinnugrein eldamennska sé, sérstaklega með tilliti til ferðaþjónustu sem vex um 10 prósent á ári. Hann segist hafa hugsað og skrifað um mat í aldar- fjórðung og á þeim tíma hafi hann snætt á 670 veitingahúsum í 27 þjóðl- öndum og allt hafi þetta tekið hann 2600 klukkustundir. „Þetta er ríkur þáttur í lífi mínu,“ sagði hann. „Ég var hér á fundi með ykkur fyrir 5 árum og þá hafði orðið bylting í veitingamennsku á Islandi. Fjöldi nýrra staða hafði bæst við, menn Cuisine Nouvelle Ef trúa skal Jónasi þá er tími bar- okksins liðinn, til sögunnar eru komnir nýir viðskiptavinir með nýj- ar þarfir. Og hvað vilja þeir? Lausn- arorðið er franskt: „Cuisine Nou- velle“. „Stefnan á rætur sínar í Frakkl- andi og varð fyrst áberandi fyrir um 15 árum. Hún á nokkuð skylt við japanska matargerð og grundvallast á fersku hráefni, grænmeti og fiski en ekki fitu, mjöli í sósur og súpur, forvinnu matarins né misnotkun örbylgjuofna. Nýju stefnunni fylgja stuttir matseðlar sem taka tillit til staðbundinna hefða og umhverfis. Allir heimsfrægir kokkar eru á þess- ari línu,“ segir ritstjórinn og bætir því við„ að fólk hafi ekki lengur áhuga á að láta eitra fyrir sig..“ Þá stendur upp matreiðslumeistari af erlendu bergi brotinn og staðhæfir að „La Cuisine Nouvelle" sé ekki lengur til, ekki einu sinni í Frakkl- andi. „Þetta er bara orðfræði. Stefnan getur gengið undir ýmsum nöfnum en er samt enn þessi sama ,“ svarar Jónas að bragði. Og nú dynja spurn- ingarnar á honum. Mönnum er hlaupið kapp í kinn: ONAS OGMEIS Eftir Eirík Jónsson „Hvemig myndirðu bregðast við ef þú kæmir inn á veitingahús og þjónninn segði við þig: Ert þú kominn aftur, helvítis fíflið þitt?“ Svona var spurt og svarið kom um hæl: ,.Þetta hefur aldrei komið fyrir Eplamús. Með þessu var drukkið Piat Macon Vive (675 kr.). mig. Það var meistarakokkur sem spurði og Jónas Kristjánsson rit- sfjori sem svaraði. Jónas var sérlegur geslur í Klúbbi matreiðslumeistara fyrr í vikunni, flutti þar erindi og svaráði fyrirspurnum að málsverði loknum. Umræður urðu líflegar enda voru þátttakendur vel smurðir af kræsingum sem á borð vom bornar í þessari röð: - Kjúklingamósaik. - Smálúðurúlla, fyllt með laxi, humri, hörpuskelfiski og rækjum. Hvar eru konurnar? Klúbbur matreiðslumeistara er merkilegur félagsskapur og inn- göngu í hann fær ekki hver sem er. Viðkomandi verður að vera, eða hafa verið, yfirmatreiðslumeistari á við- urkenndum veitingastað og félagar eru nú 35 talsins. 31 meistarakokkur mætti á fundinn með Jónasi, allt karlmenn; engin kona. Enda hefur enginn kvenmaður enn sótt um inn- göngu í Klúbb matreiðslumeistara. „Nú get ég sagt frá því heima hjá mér að til sé ein listgrein þar sem konur hafa ekki haslað sér völl,“ sagði Jónas er honum varð ljóst hvemig í pottinn var búið. reiðslumeistara, Lárus Loftsson. Við langborð sátu svo óbreyttir félags- menn eins og riddarar og ýmislegt var skrafað yfir smálúðurúllunni. Til dæmis var athyglisvert að heyra að 95 prósent af veitingastöðum á höf- uðborgarsvæðinu væru rekin með halla og með réttu ætti að vera búið að loka þeim flestum fyrir löngu ef ekki kæmi til dæmafá yfirvinna eig- enda og nánasta skylduliðs. „Það kostar meðalstóran veitinga- stað 200 krónur að snúa lyklinum og hleypa hverjum gesti inn,“ segir einn meistarinn yfir kjúklingamósa- ikinu. „Gjöldin eru svo mörg og há. Það þarf að þrífa, þvo og mála...“ „Þetta eru góð borð hérna. Það þarf ekki dúka á þau,“ segir annar og strýkur brúna borðplötuna i Kvosinni, grípur síðan munnþurrku á lofti og heldur áfram: „Það kostar 20 któnur að þvo eina svona munn- þurrku og 60 krónur að þvo dúk.“ Matreiðslumeistararnir eru sam- mála um að það sé dýrt að reka veitingastað og eini ljósi punkturinn í því dæmi sé sá að gestirnir njóti höfðu uppgötvað að hægt var að borða fisk, sætaframboð á veitinga- stöðum hafði stóraukist en síðan hefur ekkert gerst. Það ríkir stöðnun og stöðnun er hættuleg. Nýir staðir, sem bæst hafa við á allrar síðustu tímum, hafa engu bætt við það sem fyrir var. Þessir nýju staðir eiga það sammerkt að vera ofsalega smart; góðir til að bjóða út stúlku. En svo kemur maturinn og stúlkan fer.“ Tværstefnur Þetta finnst sumum matreiðslu- meisturunum fyndið, öðrum 'ekki. Það sama má segja um næsta kaflann í ræðu ritstjórans. Hann íjallar um tvær meginstefnur í íslenskri matar- gerðarlist; belgfyllingarstefnuna og barokkstefnuna. „Belgfyllingarstefnan einkennist af því að á diska kjöts eða fiskjar er hlaðið fjórum hrúgum af mjög soðnu grænmeti. Barokkstefnan er skrey- tilist sem tekur meira mið af útliti matarins en hinu að einhver eigi að borða hann. Reyndar er barokk Spurningum rignir - Hvers vegna lítur þú á matargerð sem list umfram aðrar faggreinar? „Þetta er eins og með tréskurð svo dæmi sé tekið. Tréskurður byrjar sem handverk en toppurinn getur orðið list. Þegar iðn er orðin list er farið að fjalla um hana sem slíka.“ - í „Nouvelle Cuisine“ er ekkert það til sem ekki var fyrir í sígildri matreiðslu. Og hvað þýðir að vera að tala um þessa nýju stefnu hér á landi, stefnu sem grundvallast á fersku hráefni þegar haft er í huga að 95 prósent af öllu kjöti á íslandi er fryst? „Þetta er rétt. Það er ekkert í nýju stefnunni sem ekki var til í þeim eldri en hér er fyrst og fremst um áherslu- mun að ræða. Það hafa orðið fram- farir í vísindum og þekkingu manna og fólk tekur tillit til þess þegar það velur sér mat. Persónulega tek ég alltaf fisk framyfir k’jöt ef hann á annað borð er á matseðlinum af þeirri einföldu ástæðu að ég get ekki unnið eftir kjötát. Ég verð slappur, þungur og missi alla skerpu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.