Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 46
46 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Sveit Delta sigraði hjá BR Það ríkti mikil spenna í síðustu umferð aðalsveitakeppni Bridgefé- lags Reykjavíkur - tvær sveitir áttu möguleika á sigri - en þær áttu ekki innbyrðis leik. Sveit lyfjafyrirtækisins Delta hafði fjögurra vinningsstiga forskot á sveit Samvinnuferða-Landsýnar og því var almennt talið að sú fyrmefnda hefði ívið meiri möguleika. í hálfleik voru báðar sveitirnar nokkuð undir og ekki minnkaði spennan við það. Sveit Delta var fyrri til að ljúka sínum leik og í ljós kom .^f að hún hafði unnið seinni hálfleik stórt og leikinn með 18 vinningsstig- um gegn 12. Þar með blasti meistara- titillinn við því Samvinnuferðir þurftu að vinna sinn hálfleik með 69 impa mun. Þær sneru líka tapi í vinning en ekki nógu stóran og Delta varð sigurvegari. Eftirtaldir spilarar skipa sveit Delta: Þórarinn Sigþórsson, Þorlákur Jónsson, Guðmundur Hermannsson, Björn Eysteinsson, Guðmundur Arnarson og Þorgeir Eyjólfsson. Hér er spil úr seinni hálfleik Delta við sveit Páls Valdimarssonar: Austur gefur/a-v á hættu: iNokouk A 943 V 5 ,> Á1054 * G10742 Austuh A D6 . 1087 h 873 * KD965 Suimii * Á108752 •J ÁG9 G2 * 83 í lokaða salnum sátu n-s Oddur og Hrólfur Hjaltasynir en a-v Guð- mundur Hermannsson og Ljörn Eysteinsson. Þar gengu sagnir á þessa leið: Vksti it * KG V KD6432 0 KD96 * Á Tvísýn keppni í Húsavíkur- tvímenningnum Öðrum áfanga Húsavíkurtvímenn- ingsins, sem BSI og Samvinnuferðir standa að, lauk með sigri Jakobs Krislinssonar og Júlíusar Sigurjóns- sonar eftir mjög tvísýna keppni og harða. Stóðu þeir upp með 1577 stig, en Grettir Frímannsson og Hörður Blöndal, sem fastast höfðu fylgt á hælum þeim, höfðu 1543 stig. Höfðu Jakob og Júlíus forystu alla keppnina. Grettir og Hörður, þórar- inn Sigþórsson og Þorlákur Jónsson (sem urðu nr. tvö í fyrsta áfanga) og Guðmundur Pétursson og Magnús Torfason (sigurvegarar úr fyrsta áfanga) skiptust á um að anda niður um hálsmál þeirra Jakobs og Júlíus- ar. Grettir og Hörður hleyptu hinum þó ekki fram úr sér eftir fyrstu lotuna af þrem. Enduðu Guðmundur og Magnús með 1483 stig. > í lokahrinunni komust Kristján Blöndal og Jónas P. Erlingsson í 4. sætið með 1460 stig, en Þórarinn og Þorlákur höfnuðu í 5. sæti með 1429 stig. Þátttaka var minni en í fjrsta áfanga eða 34 pör (í stað 40). Austur Suður Vestur Norður pass 2T pass 2H pass 2S 3H 4S pass pass dobl pass 5H pass pass pass Það getur verið erfitt að meta þessar stöður og allavega óttaðist austur að fjórir spaðar stæðu. Það var hins vegar hvalreki að fá spilið ódoblað og a-v töpuðu aðeins 200. Það virtist hins vegar frekar slakur árangur því n-s eiga í mesta lagi þrjá spaða í spilinu. En víkjum yfir í opna salinn. Þar sátu n-s Þorlákur Jónsson og Þórar- inn Sigþórsson en a-v Jónas P. Erl- ingsson og Magnús Ólafsson. Nú tóku sagnir aðra stefnu: Austur Suður Vestur Norður pass 1S dobl redobl 2L pass 2H 2S ' 3H 3S 4H 4S dobl pass pass pass Vestur spilaði út laufaás og skipti síðan í tígulkóng. Þórarinn drap á ás, spilaði síðan trompás og meira trompi. Vestur var inni á trompkóng (hann brast kjark ti1 þess að gefa hann í ásinn) og í þessari stöðu spil- aði hann hjartakóng. Af einhverjum ástæðum lét austur tíuna og það var allt sem Þórarinn þurfti. Hann drap með ás og spilaði tígulgosa. Vestur drap með drottningu, spilaði meiri tígli, tían og laufi kastað heima. Síðan var lauf trompað, hjartanu trompsvínað og spilið var unnið og meistaratitillinn með. Frá Bridgefélagi Akureyrar Akureyrarmótinu í sveitakeppni lauk með sigri sveitar Páls Pálsson- ar. Með honum voru Grettir Frí- mannson, Hörður Blöndal, Páll Jónsson og Þórarinn B. Jónsson. f 2. sæti lenti svo sveit Stefáns Sveinbjörnssonar en með honum voru: Máni Laxdal, Reynir Helgason ogTryggvi Gunnarsson. 15 sveitir tóku þátt í mótinu og voru spilaðir 2X16 spila leikir, allir v/alla. Keppnisstjóri var Albert Sig- urðsson sem stjómað hefur öllum keppnum á vegum þeirra Akur- eyringa í fjölda ára. Röð efstu sveita: 1. sveit Páls Pálssonar 288 stig 2. sveit Stefáns Sveinbjörnssonar 267 stig 3. sveit Gunnlaugs Guðmundssonar 265 stig 4. sveit Jóns Stefánssonar 262 stig 5. sveit Arnar Einarssonar 260 stig 6. sveit Gunnars Berg 258 stig 7. sveit Kristjáns Guðjónssonar 255 stig 8. sveit Hauks Harðarsonar 232 stig Föstudaginn 13. desember spilar félagið við bridgedeild UMSE á 16 borðum (32 sveitir). Sunnudaginn 29. desember verður jólatvímennings- mót félagsins haldið í blómaskálan- um Vín v/Hrafnagil Spilamennska hefst kl. 9.30 um morguninn og spil- aðar verða tvær umferðir með hádeg- ismatarhléi. Keppnisgjalderkr. 1.500 á par (innfalin máltíð). Vigfús Páls- son mun annast útreikning (tölvuút- reiknað) en spilað verður eftir Mitc- hell-fyrirkomulagi. Skráning í jóla- mótið er þegar hafm hjá stjóm fé- lagsins og lýkur henni á Þorláksdag. Allt spilaáhugafólk er velkomið til keppni. Bridgefélag Siglufjarðar Lokið er árlegri fyrirtækjakeppni félagsins. Efst varð sveit opinberra starfsmanna með 1192 stig. Spilarar: Bogi Sigurbjömsson, Valtýr Jónas- son, Guðmundur Árnason, Rögn- valdur Þórðarson og Baldvin Valtýs- son. 2. Síldarverksmiðjur rikisins 1187 stig Spilarar: Jóhann Möller, Björn Þórðar, Sig- fús Steingr. og Steingr. Sigfússon. 3. Verzlunarmenn 1155 stig Spilarar: Ásgr. Sigurbj., Anton Sigurbj., Guðbr. Sigurbjörns og Stefanía Sigurbj. Nú stendur yfir 4ra kvölda tví- menningur með þátttöku 24ra para. Að lokum 2 umferðum er staðan þar.nig: 1. Anton Sigurbjörnsson- Bogi Sigurbjörnsson 271 stig 2. Stefán Benediktsson- Reynir Pálsson 260 stig 3. Sigfús Steingrímsson- Sigurður Hafliðas. 256 stig 4. Ari Már Þorkelsson- Siguijón Guðm. 253 stig 5. Ásgrímur Sigurbjörnsson- Jón Sigurbjörnsson 242 stig Bridgefélag Breiðholts Nú er lokið keppni í Butler- tvímenningi hjá félaginu. Þetta var fjögurra kvölda keppni með þátttöku 22 para. Úrsliturðuþessi: 1. Ragnar Ragnarsson- Stefán Oddsson 154 stig 2. Björn Halldórsson- Guðni Sigurbjarnarson 150 stig 3. Anton Gunnarsson- Friðjón Þórhallsson 147 stig 4. -5. Eiður Guðjohnsen- Inga Bernburg 144 stig 6. Ríkharður Oddsson- Þórður Þorvaldsson 138 stig Þriðjudaginn 17. des. verður síð- asta spilakvöld ársins. Spilað verður létt jólarúberta. Einnig verða veitt verðlaun fyrir aðalkeppni haustsins og eru þeir sem von eiga á verðlaun- um sérstaklega beðnir að mæta. Bridgefélag Selfoss og ná- grennis Önnnur umferð í firmakeppni fé- lagsins var spiluð fimmtudaginn 5. desember sl. Þessi fyrirtæki eru nú I efstu sætum: 1. Iðnaðarbankinn 118 2. Bakki s/f 114 3. Heildverslun Viðars Bjamasonar 111 4. Trésmiðja Sigfúsar Kristinssonar 108 5. Gróðrarstöð Lars Nielsen 107 6. -7. Vélsmiðja Valdimars Friðrikssonar 105 6.-7. Fiskverkun Bóasar Emilssonar 105 8.-9. Söluskálinn Arnberg 104 8.-9. Agnar Pétursson byggingameistari 104 10. Verslunin Lindin 102 Eftir tvær umferðir í einmennings- keppni félagsins eru þessir spilarar í 10 efstu sætunum: 1. Vilhjálmur Pálsson 207 2. -3. Sveinbjörn Guðjónsson 200 2.-3. Valtýr Pálsson 200 4. Sigfús Þórðarson 198 5. Guðmundur Sæmundsson 196 6. Valgarð Blöndal 194 7. Jón Birgir Kristjánsson 193 8. -10. Sigurður Reynir Óttarsson 192 8.-10. Sveinn Guðmundsson 192 8.-10. Úlfar Guðmundsson 192 Síðasta umferð verður spiluð fimmtudaginn 12. desember. Frá Bridgedeild Barðstrend- ingafélagsins Mánudaginn 9. desember hófst 2 kvölda jólatvímenningur. Úrslit eftir 1. umferð: 1. Hörður Hallgrímsson- Hallgrímur Kristjánsson 198 stig 2. Viðar Guðmundsson- Arnór Ólafsson 187 stig 3. Ágústa Jónsdóttir- Guðrún Jónsdóttir 184 stig 4. Gunnlaugur Þorsteinsson- Hermann Ólafsson 181 stig 5. Viðar Guðmundsson- Pétur Sigurðsson 180 stig 6. Stefán Olafsson- Kristján Ólafsson 175 stig 7. Jóhannes Sigvaldason- Jónas Guðmundsson 173 stig 8. Birgir Magnússon- Björn Björnsson 173 stig Mánudaginn 16. desember verður spiluð síðari umferð og hefst keppni stundvíslega kl. 19.30. Spilað er í Síðumúla 25. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Tveggja kvölda jólasveinakeppni hófst sl. þriðjudag hjá Skagfirðing- um. Spilað er eftir Mitchell-fyrír- komulagi (tölvuútreiknað) og taka 26 pör þátt í keppninni. Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu jólasveinanna þessi: 1. Hannes R. Jónsson- Páll Valdimarsson 424 stig 2. Esther Jakobsdóttir- Þorfinnur Karlsson 399 stig 3. Baldur Árnason- Gústaf Björnsson 374 stig 4. Magnús Aspelund- Steingrímur Jónasson 371 stig 5. Hildur Helgadóttir- Karólina Sveinsdóttir 365 stig 6. Steingrímur Steingrímsson- örn Scheving 361 stig 7. Daníel Jónsson- Sigurleifur Guðjónsson 340 stig 8. Helgi Nielsen- Sveinn Þorvaldsson 333 stig Meðalskor er 312 stig. Opið hús Síðasti spiladagur fyrir jól hjá Opnu húsi er á laugardag, 14. des- ember nk. Að venju var spilað sl. laugardag. 18 pör mættu til leiks og urðuúrslitþessi: N/S: Ásthildur Sigurjónsd,- Lárus Arnórss. 269 stig Bragi Björnss.-Þórður Sigfúss. 246 stig Guðmundur Þórðarson- Valdimar Þórðarson 241 stig Ólafur Láruss.-Sveinn Þorvaldss. 233 stig A/V: Alfreð Kristjánss.-Helgi Skúlason 258 stig Árni Alexanderss.- Hjálmar S. Pálss. 249 stig Baldur Arnason- Sveinn ^ígurgeirss. 232 stig Gunnar Porkelss- Sigurður Láruss. 211 stig Flest bronsstig í Opnu húsi 1985 hafa hlotið: 1. Sveinn Sigurgeirsson 84 stig 2. Baldur Árnason 72 stig 3. Albert Þorsteinsson 64 stig 4. Sigurður Emilsson 64 stig 5. Lárus Hermannsson 63 stig 6. Hrannar Erlingsson 63 stig 7. Anton R. Gunnarsson 59 stig 8. Ragnar Magnússon 59 stig Spilamennska hefst kl. 13.30 að Borgartúni 18. Öllum frjáls þátttaka. Bridge Stefán Guðjohnsen Frá Bridgesambandi Reykja- víkur Úrslit í Reykjavíkurmótinu í tví- menningi verða spiluð um þessa helgi í Hreyfilshúsinu og hefjast kl. 13 á laugardag. 28 pör spila til úr- slita. Mótinu lýkur sunnudagskvöld. Alls verða 108 spil spiluð í baromet- er-fyrirkomulagi. Skráning í Reykjavíkurmótið í sveitakeppni stendur nú yfir. Það hefst mánudaginn 6. janúar í Domus Medica. Hægt er að skrá sveitir hjá öllum félögunum í Reykjavík (sem eru í BSÍ) og á skrifstofu BSI (Ölafi Lárussyni). Skráningu lýkur fimmtudaginn 2. janúar nk. Frá Bridgeklúbbi Tálknafjarðar Lokið er 3 kvölda hraðsveita- keppni. Sveit Steinbergs Ríkharðs- sonar sigraði, eftir að hafa leitt mótið. Með honum eru: Guðlaug Friðriksdóttir, Þórður Reimarsson og Ævar Jónasson. Röð efstu sveita: 1. sveit Steinbergs Ríkharðss. 1631 stig 2. sveit Jóns H. Gislass. 1605 stig 3. sveit Björns Sveinss. 1487 stig Starfsemin hefst að nýju eftir jól með Butler-tvímenningskeppni. Bridgefélag Hafnarfjarðar Að loknum 6 umferðum af 11 er staða efstu sveita í sveitakeppni fé- lagsins þannig: 1. sveit Böðvars Magnúss. 123 2. sveit Kristófers Magnúss. 120 3. sveit Bjarna Jóhannss. 112 4. sveit Þórarins Sófuss. 97 5. sveit Erlu Sigurjónsd. 94 6. sveit Þrastar Sveinss. 94 Nk. mánudag, þ. 16. desember, verða næstu tvær umferðir spilaðar og lýstur þá saman fylkingum Bjarna og Kristófersm.a. Laugardaginn 28. desember verður síðan haldið stórmót í Hafnarfirði sem nánar verður auglýst síðar. Stórmótið á Húsavík 7. og 8. desember: Jakob Kristinsson (frá Akureyri) og Júlíus Sigurjónsson (frá Bolung- arvík) urðu sigurvegarar á 2. Stór- móti Bridgesambandsins og Sam- vinnuferða/Landsýnar, sem haldið er á Húsavík. 34 pör tóku þátt í mótinu að þessu sinni en fyrirkomu- lag er tölvuvædd Mitchell-tvímenn- ingskeppni, 3 lotur og 90 spil. Spilað er um gullstig, auk heildarverðlauna að verðmæti 350.000 kr. Aukaverð- laun á þessu móti voru Amsterdam- ferð fyrir sigur- egarana. Röð efstu para: 1. Jakob Kristinsson- Júlíus Siguijónsson 2. Hörður Blöndal- Grettir Frímannsson 3. Guðmundur Pétursson- Magnús Torfason 4. Kristján Blöndal- Jónas P. Erlingsson 5. Þórarinn Sigþórsson- Þorlákur Jónsson 6. Bryjnar Sigtryggsson- Guðlaugur Bessason 7. -8. Magnús Valgeirsson- Þorsteinn Bergsson 7.-8. Sigfús Þórðarson- Vilhjálmur Þ. Pálsson 9. Lárus Hermannsson- • Sigmar Jónsson 10. Jacquie MacGreal- Hermann Lárusson/ Vigfús Pálsson 11. Þóra Sigmundsdóttir- Pétur Skarphéðinsson 12. Jón Stefánsson- Sveinbjörn Jónsson 13. Óli Kristinsson- Guðmundur Hákonarson 14. Aðalsteinn Sigfússon- Jón Frímannsson 15. Magnús Halldórsson- Guðmundur Auðunsson 16. Reynir Helgason- Tryggvi Gunnarsson 1577 stig 1542 stig 1484 stig 1461 stig 1430 stig 1340 stig 1336 stig 1336 stig 1288 stig 1281 stig 1278 stig 1277 stig 1273 stig 1268 stig 1256 stig 1253 stig Þriðja og síðasta Stórmótið verður helgina 14.-15. febrúar ’86. 5 efstu pör standa best að vígi um aukaverðlaunin en tveir bestu áran- grar af þremur telja til heildarverð- launa. Heildarskor er fundin út þannig að margfeldi af prósentuskor miðað v/þátttöku í hveiju móti gildir. Keppnisstjóri var Hermann Lárus- son. Vigfús Pálsson annaðist út- reikning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.