Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 44
DV. LAU GARDAGUR14. DESEMBER1985.
-■ 44
SVÆÐISSTJORN
VESTURLANDS
auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður við Sambýli
fjölfatlaðra, Akranesi.
Staða næturvarðar, 70%
Þroskaþjálfastaða, 40%
Staða uppeldisfulltrúa, 40%
Umsóknarfrestur ertil 20. desember. Nánari upplýs-
ingar veitir forstöðumaður í síma 93-2869 fyrir
hádegi.
BILASALAN
GRENSÁSVEGI 11.
SÍMAR 83085 OG 83150.
□□C3
REYKJAVÍKURVEGI 66 - 220 HAFNARFIRÐI
Nýkomin járnrúm, einstaklings- og hjónarúm.
Mjög hagstætt verð.
Ný sending af vegghúsgögnum.
Staðgreiðsluafsláttur
eða hagstæðir greiðsluskilmálar.
Opið til 18 á laugardag og kl. 2-4 á sunnudag.
1 m F O □ M
Reykjavíkurvegi 66, Hgfnarfirði, sími 54100
sawm.
m
Wfift
4*
■■■■■■
Við fyrstu sýn gæti einhveijum dottið í hug að þessi mynd væri frá Raufarhöfn. Svo er þó ekki. Dagur
Vilhjálmsson frá Þórshöfn tók hana á Suðurskautslandinu. Myndin sýnir rannsóknarstöðina sem hann
starfaði við.
FRÁ LANGANESI
A SUÐURSKAUTB
Dagur Vilhjálmsson frá Þórshöfn á Langanesi
hefur gert víðreist um ævina. Hann leit inn hjá
okkur á DV um daginn, staddur á íslandi í leyfi
frá störfum sínum fyrir Sameinuðu þjóðirnar, en
Dagur býr í Jerúsalem sem stendur, starfar þar
fyrir UNTSO, SÞ-stofnun sem vinnur við friðar-
gæslu fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Dagur hefur lifað ævintýraríku lífi
- a.m.k. ef við miðum við flesta
meðaljóna á Islandi. Hann nam við
Loftskeytaskólann frá 1971 til 73,
fluttist til Ástralíu 1974. „Það vár
mín fyrsta utanlandsferð. Ég fór
þangað sem innflytjandi, vann þar
við hitt og þetta fram í september 75
að ég hóf störf hjá ástralska um-
hverfismálaráðuneytinu. Ég var
sendur til Suðurskautslandsins í
janúar 1976.“
í 45 stiga frosti
Ástralíumenn sinna ýmsum rann-
sóknum á Suðurskautslandinu. Þeir
fylgjast með veðurfari, kanna jökul-
inn - þann stærsta í heimi - og gera
háloftaathuganir. Þeir vísindamenn
og starfsmenn, sem þangað eru send-
ir, dvelja oftast í heilt ár á því kalda
berangri og þurfa því að vera vel
undirbúnir, kunna sitthvað fyrir sér
í atriðum sem lúta að neyðarhjálp
og fleiru. Dagur var sendur í þjálfun
áður en hann fór til Suðurskauts-
landsins.
„Við vorum sendir upp í ástralska
hálendið og látnir spjara okkur þar
- sofa úti í svefnpoka, elda ofan í
okkur sjálfir og fleira þess háttar.
Svo fór ég á námskeið í póstþjónustu
því loftskeytamaðurinn var jafn-
framt póstmeistari stöðvarinnar
suður frá. Og ég lærði svæfingar því
að ég var aðstoðarmaður læknisins,
átti að geta svæft sjúklinga."
Suðurskautslandið er kaldasti
staðurinn á jörðinni. Eða svo segir
Dagur. Og liggur við að það fari
hrollur um mann þegar hann lýsir
veðurfarinu þar og frosti. „45 gráð-
ur,“ sagði Dagur. „Það var alvana-
legt. En þegar stillur eru, sem er oft,
stundum alveg stafalogn, þá getur
maður verið úti á stutterma skyrtu.
En svo skella á stormar með blind-
hríð. Ég hélt satt að segja að ég hefði
séð stórhríð hér á Islandi. En á
Suðurskautslandinu er stórhríðin
eins og íslensk stórhríð í margföldu
veldi."
Dagur fór í langferð inn á jökul-
breiðuna einhverju sinni meðan á
dvöl hans stóð. „Við fórum 250 mílur
inn á jökul. Það voru jarðýtur sem
drógu stóra sleða og á sleðunum
voru svefnskálar og mötuneyti."
Sú för hefur væntanlega verið
þægilegri en þegar Amundsen og
Scott ásamt félögum fóru um sömu
slóðir. „í þessari ferð upplifði ég
sérkennilegan hlut. Það er það sem
Ástralíumenn kalla „whiteout" -
einhvers konar hillingar eða spegl-