Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 27
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. >g skýrði aðeins frá því sem gerðist.“ Srsson rítsfjórí INGIN PÆRIN" heitir á ensku. Þeir voru mjög dyggir þjónar síns fyrirtækis. Það reyndist þannig mjög erfitt að fá upplýsingar úr þeirri áttinni. En mér tókst svo, haegt og rólega, að opna þar ýmsar leiðir að upplýsingum. Skýringin á erfiðleikunum við öflun upplýsinga meðal starfsmanna er, held ég, aðal- lega sú að forráðamennirnir voru búnir að ljúga mannskapinn fullan. Þar að auki vantaði mig upplýsingar varðandi Útvegsbankann. Það reyndist mér erfitt því að þar er bankaleyndin í hávegum höfð sam- kvæmt lögum.“ Einn á báti - Þú varst lengi framan af einn á báti í umfjöllun um Hafskip - varstu undrandi á því hversu seint aðrir tóku við sér? „Ég var ekki tiltakanlega undr- andi. Ég þekki nefnilega íslenska fjölmiðla. I hópi ritstjóra og blaða- manna er ríkjandi einhver hugsun- arháttur sem gengur út á það að vera ekki að fjalla um mál sem aðrir fjölmiðlar hefja máls á. f blaða- mannahópi er gjarna sagt að „þetta blað eigi málið“. En ég held nú að í þessu tilviki hafi margt annað ráðið, t.d. pólitík. Ég var þannig ekki hissa, en hins vegar er ég alltaf jafngáttað- ur á þessari afstöðu blaða. Það er eins og þeir sem standa að fjölmiðlum á íslandi átti sig ekki á því að frétt er frétt. Og hún er ekki einkaefni neins blaðs, sérstaklega ekki ef hún er af svo alvarlegu tagi sem þetta mál. En mér fannst koma i ljós, strax eftir mína fyrstu grein, að blöðin voru hrædd. Það var einhver beygur i blöðunum. Því er ekki að neita að í greininni komu fram upplýsingar sem hefðu átt að verða þess valdandi að hárip risu á höfðum bankastjórn- ar Utvegsbankans. En svo varð nú ekki fyrst í stað. Almennt séð eru blöð á lslandi heldur ekki tekin mjög alvarlega. Blöðin hér eru ekki það afl sem blöð eru í öðrum vestrænum ríkjum. En vissulega verður það ekki frá þeim tekið að þau hafa áhrif, þó ekki væri nema á gang umræðunnar í þjóð- félaginu. En blöðin eru ekki afl - af þessari ástæðu sem ég nefndi, að þau eru hvert fyrir sig að krukka í sínu horni og styðja ekki við bakið hvert á öðru. Við þetta vil ég bæta að Helgar- pósturinn er, að því ég tel, eina frjálsa og óháða blaðið sem gefið er út á íslandi. Allt frá því að blaðið byrjaði að koma út, árið 1979, hefur það verið rekið með það fyrir augum að láta gott af sér leiða með því að kafa djúpt ofan í mál sem varða spill- ingu, ranga embættisfærslu. misferli í dómgæslu o.s.frv. Við segjum gjarna hluti sem önnur blöð þora ekki að segja. Við þurfum ekki grænt ljós hjá neinum stjórnmálaflokki og við erum djarfir. Og dirfska fer í taugarnar á sjálfumglöðum vald- höfum.“ Spillingin - Er spillingin allsráðandi á ís- landi, Halldór - nóg fyrir duglega rannsóknarblaðamenn að gera? „Kannski ekki allsráðandi, en spillingin virðist ærin og það er allt morandi í verkefnum. Ég held að DV ætti að taka upp þann sið að hafa einn mann eða tvo. helst heila deild, sem ekkert gerði annað en rannsaka. mál.“ Þin réttlætiskennd - er hún það sem þú lætur stjórnast af? „Það segir sig sjálft. Fái ég upplýs- ingar um spillingu, misbeitingu pól- itísks valds eða eitthvað sem flokkast undir spillingu, þá tel ég það skyldu mína að bregðast við því - tel það raunar skyldu allra blaðamanna að reyna að breyta samfélaginu til hins betra. Það er merkilegt við marga ís- lenska blaðamenn, að -þeir virðast álíta að blaðamaðurinn eigi að halda sér fast í einhverja hlutlægni - sem er fölsk. Það er ekki hægt að sinna starfi og um leið að fljóta í tómarúmi. Það er alltaf persóna á bak við frétt. Blaðamennska á að vera hlutlæg, en blaðamaður á ekki að hika við það að hafa skoðun. Ég á ekki við að þeir eigi að vera predikarar, það er engin þörf fyrir það. íslensk blöð búa reyndar svo illa að sínum blaðamönnum að þeir geta ekki sérhæft sig á ákveðnu sviði, s.s. svokallaðri rannsóknarblaða- mennsku. I Bandaríkjunum, þar sem ég þekki best til utan Islands, er nánast á hverju blaði sérstök rann- sóknardeild. Þetta er auðvitað dýrt. Og ætli það sé ekki hluti af skýring- unni hvers vegna þessu er svo lítið sinnt hér. En annar hluti er tregða stjórnvalda og embættismanna við að veita upplýsingar." - Vantar ekki lög um upplýsinga- skyldu stjórnvalda? „Það kom nú fram frumvarp um það efni fyrir nokkrum árum. Frum- varpið var nánast brandari. Niður- staða þess var að það hvíldi engin upplýsingaskylda á stjórnvöldum - undanþágurnar voru svo margar. í íslenskum lögum eru vel yfir 100 þagnarskylduákvæði. í sumum til- vikum er þetta auðvitað nauðsyn- legt, eins og trúnaðarsamband lækn- is og sjúklings eða lögfræðings og skjólstæðings - en nokkrir tugir þessara ákvæða eru mér a.m.k. ger- samlega óskiljanleg eða til hvers þau eru sett. Það er einhver leynifélagst- ilhneiging i íslenskum lögum. En | hvort lög um upplýsingaskyldu leysa 1 allan vanda er ég hreint ekki viss 1 um.“ Flóðgáttir opnast - Haískip komið á hausinn - hvað j tekur þá við hjá þér? „Heldurðu að ég fari að segja þér j það! En það er eins og jafnan að takist j blaði vel upp í svona verkefni þá j opnast fióðgáttir. Starfið hefur borið j árangur. Það er ekki nærri alltaf sem j maður sér árangurinn eins ljóslega j og varðandi þetta Hafskipsmál. Það j var mjög nauðsynlegt að við skyldum j taka svona á þessu. Úr því að enginn j annar fjölmiðill gat gert það eða j gerði það. Flóðgáttir hafa opnast. ; Mitt borð er yfirfullt af ýmsum mál- i um sem þangað hafa borist síðustu j daga. Það er bara vegna þessa. Það er fjöldi manns í okkar þjóðfélagi sem veit um hluti sem eru athugun- i arverðir. Yfirleitt þegir þetta fólk, en það vaknar við svona skrif. En það er rétt að taka það fram að flest af þeim málum sem byrjað er á reynast kannski engin „mál“ og það er einmitt það sem gerir rannsóknarblaðamennskuna dýra og tímafreka og þreytandi. Mér finnst að aðrir blaðamenn ættu að fara að taka eitthvað við sér. Og ekki bara á okkar blaði. Menn verða að fara að vinna af einhverju viti. Fjölmiðlar eiga ekki eingöngu að vera móttöku- stöðvar fyrir fréttatilkynningar. Nú er rétt að taka það fram að rannsóknarblaðamennska snýst ekki bara um það að grafa í einhverju spillingardíki. Hún getur eins snúist um að kanna sannleiksgildi almenn- ra staðhæfinga. Dæmi: Það hefur verið borið uppá Davíð Oddsson borgarstjóra að hann sé nánast ein- ráður í borginni. Að meirihlutinn samþykki það sem hann vill fá sam- tykkt. Og að minnihlutinn sé alveg áhrifalaus. Þetta hefur verið borið upp á Davíð. Hann hefur neitað þessú. Þarna er komið tilvalið verk- efni fyrir góðan blaðamann. Er þetta rétt eða rangt? Það má líta á stjórn- unaraðferðir Davíðs sem einhvers konar stil, ekki spillingu. En hvernig er stjórnkerfi borgarinnar í raun byggt upp? Þarna má spyrja margra spurninga. Þær gætu líka verið liður í að veita nauðsynlegt aðhald. En það er erfitt að fóta sig á þessu sviði, m.a. vegna þess að við hér erum ekki vön nákvæmri, vísindalegri blaðamennsku. Og embættismenn eru ekki vanir því að „leka“. 1 Bandaríkjunum t.d. er kerfið hrip- lekt. Og í fiestum tilvikum er það af hinu góða. Bandaríkjamenn hafa ríka réttlætiskennd og þeir horfa ekki aðgerðalausir á.“ Árangur Halldór heldur því fram að árangur af starfi blaðamanns sé í fæstum til- vikum sjáanlegur. Við stöndum upp og ætlum að setja punkt þegar Halld- ór kveikir eins og af tilviljun á sjón- varpinu. Fréttaþulur skýrir frá beiðni Alberts um rannsókn á af- skiptum sinum af málefnum Útvegs- bankans og Hafskips og fréttamað- ur segir að sumir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins krefjist afsagnar ráðherrans. (Sú staðhæfing var reyndar borin til baka næsta dag. Enginn krafðist afsagnar Alberts.) „Þarna er árangur,“ sagði Hall- dór. „Það er komin pólitísk alvara i málið. Ég man ekki eftir því í okkar tið að nokkru sinni hafi ráðherra sagt af sér - þótt þess hafi oft verið krafist. En þessi rannsókn - og hugsanleg afsögn - er þó áreiðanlega árangur. Ég lít svo á að rannsókn sé nauð- synleg. En ég lít einnig svo á að þessi ráðherra hafi lent i hagsmunatog- streitu sem ein og sér dugi til að hanneigiaðsegjaafsér.11 - -GG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.