Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Lagt tíl að RLR fáist eingöngu við meiri háttar af brotamál: Eina lögreglustjóm á allt höfuðborgarsvæðið Löggæslu Hafnarfíarðar- og Kópavogsumdæma á að leggja undir lögregluna í Reykjavík, verði farið að tillögum norska ráðgjafar- fyrirtækisins IKO, sem nú liggja fyrir. Það leggur ennfremur til endurskipulagningu Rannsóknar- lögreglu ríkisins og að hún einbeiti sér að meiri háttar afbrotamálum. Tillaga er gerð urn nýtt skipulag fögreglunnar í Reykjavík. Skilið vcrði á milli ábyrgðar á aðgerðum og forvömum og stjómun og stjórnsýslu. Meðal annars á rann- sóknardeild að taka við rannsókn þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæð- inu úr höndum RLR. Lagt er til að haldið verði þeim lögreglustöðvum sem fyrir em í Reykjavík en að Árbæjarstöð nái einnig til Breið- holts og sinni einnig Mosfellssveit og Kjós. Þá er gert ráð fyrir að lögreglu- stöðvarnar í Hafnarfirði og Kópa- vogi verði útibú hjá lögreglunni í að losa hana við minni háttar mál Oddsson vararannsóknarlögreglu- Reykjavík. VarðstofurverðiáSelt-' og að efla deild eftirgrennslunar stjóri, Stefán Hirst, skrifstofustjóri jarnarnesi, í Garðabæ og í Mos- og einnig tæknideild, skráningar- hjá lögreglustjóranum í Reykjavík fellssveit með vakt frá miðjum degi kerfi verði bætt og komið á beinu og William Th. Möller, aðalfulltrúi fram á kvöld. Varðstofumar falli sambandi við Interpol. Það sam- lögreglustjóra. I svokallaðri stýri- annarsundirnæstuhverfisstöðvar. band er nú í gegnum dómsmála- nefnd verkefnisins voru auk Reiknað er með ákveðinni tölu ráðuneytið sem hefur lengi neitað tveggja Norðmanna fyrmefndur lögreglumanna á hverri lögreglu- að afbenda RLR viðkoraandi fjar- Leifur og svo Hjalti Zóphaníasson, stöð, fáeinum rannsóknarlögregiu- skiptatæki. deildarstjóri í dómsmálaráðuneyt- mönnum frá afbrotadeild og starfs- inu, sem var formaður. mönnum til að sinna forvömum. Með norska ráðgjafarfyrirtækinu - HERB Varðandi RLR er helst lagt til unnu Leifur Eysteinsson, Þórir „Það er allt í lagi með bílinn,“ sagði lögregluþjónninn, sem kom á staðinn. Egill Jónsson, eigandi bílsins, stendur ánægður fyrir aftan bíl sinn. DV-mynd Gunnar Bender. Happdrættisskuldabréfin héldu ekki ívið mjólkurverðið: DUGDIFYWR 60 lARUM ÁRB1975 EN 23 NÚNA Fréttí DVvarð til þess að bíll- inn fannst „Það er þungu fargi af mér létt. Bíllinn er óskemmdur," sagði Egill Jónsson, eftir að búið var að finna bifreið hans, Opel Ascona, sem stolið var við Marfubakka sl. laugardags- kvöld. Það vildi svo einkennilega til að EgiII var að borga síðustu af- borgun sína af bílnum í fyrradag, eða rétt áður en Þorsteinn Snædai hafði samband við DV og tilkynnti að hann hefði fundið bílinn. DV sagði frá því í fyrradag að bíll- inn væri ófundinn og að eigandi hans hefði heitið þeim sem gæti gefið upplýsingar um bifreiðina, þannig að hún fyndist, kr. 10.000. Eins og svo oft áður sýndi það sig að DV er sterkuríjölmiðill. Aðeins stuttu eftir að DV var komið á götuna var bíllinn kominn í leitirnar. „Eg er mjög ánægður að hafa getað veitt Agli aðstoð,“ sagði Þorsteinn. Þeir Egill og Þorsteinn mættust hér á DV og var þá hringt í lögregluna til að iáta vita um bílfundinn. Þorsteinn fann bílinn í Mjölnis- holti, þar sem búið var að leggja honum að húsabaki, rétt við Banana- söluna. - SOS Fasteignamat hækkarum 28 og33% Verðmat fasteigna á landinu hækkaði um síðustu mánaðamót. íbúðarhúsnæði hækkaði um 28% en atvinnuhúsnæði um 33%. Á því árs- tímabili sem liðið er frá síðustu breytingu fasteignamatsins hefur byggingarkostnaður hækkað um 37%. Á landinu eru 191 þúsund fasteign- ir, þar af tæplega 85 þúsund íbúðir. Heildarmat allra fasteignanna er 244,5 milljarðar króna. Ef þyrfti að reisa öll þessi mannvirki núna kost- aði það hins vegar 318,3 milljarða króna. Um matið, sem Fasteignamat ríkis- ins framkvæmir eftir tilteknum form- úlum. má nefna dæmi: 2ja herbergja íbúð í Breiðholti, 65 fermetrar, er meth: o 1.534 þúsund krónur. Einbýli úr steypu í Fossvogi, 226 fermetrar, er metið á 5.891 þúsund krónur. Sex hæða skrífstofubygging í mið- borg Reykjavíkur, 1.208 fermetrar, er metin á 26.853 þúsundir króna. Einbýli úr steypu, á tveim hæðum, á Akurevri er metið á 3.623 þúsund. Jörð í Borgarfirði með liðlega 40 hektara túni, þokkalega hýst, er metin á 4.604 þúsund krónur. HERB Fyrir tíu árum voru gefin út happ- drættisskuldabréf ríkissjóðs vegna hringvegarins. Andvirði hvers bréfs var tvö þúsund gamlar krónur. Inn- lausnarverð hvers skuldabréfs er í dag 814,45 krónur. Við myntbreyt- ingu breyttist nafnverð bréfanna í 2o krónur og í dag eru þetta rúmar átta hundruð krónur með verðbót- um. Ekki eru allir á eitt sáttir um að þessi skuldabréf hafi verið hagstæð fjárfesting. Ámi Sigurðsson, einn lesanda DV, er ósáttur við þessa verðtryggingu. Hann hefur reiknað út að árið 1975, þegar hann keypti happdrættis- skuldabréf ríkissjóðs, hafi hann feng- ið 35,09 lítra af bensíni fyrir 2000 gkr. Þá kostaði bensínlítrinn 57 gkr. Núna er hægt að fá um 23 bensínlítra fyrir innlausnarverðið. Við getum bætt því við að sumarið 1975 kostaði mjólkurlítrinn 33 gkr. og í dag kostar hann 35,40 kr. Fyrir 10 árum fengum við rúma 60 lítra af mjólk fyrir 2000 gkr. en í dag fáum við 23 lítra af mjólk fyrir innlausnar- verð skuldabréfsins. Þó að verðtryggingin hafi vart haldið í við verðlag má hafa í huga að þetta eru happdrættisskuldabréf og skipta vinningarnir hundruðum þessi tíu ár. Fyrstu árin, eða fram að myntbreytingu 1981, voru árlega dregnir út nokkrir milljón króna vinningar og eftir það tíu þúsund króna vinningar. Þaðan af lægri vinningar skipta hundruðum. LAUGAVEGI LOKAÐ FYRIR BÍLAUMFERÐ Laugavegi verður lokað fyrir um- ferð annarra ökutækja en strætis- vagna í dag frá kl. 13-18, laugardag- inn 21. desember kl. 13-22 og mánu- daginn 23. des. kl. 13-23. Þó verður sú undantekning að öll umferð verð- ur heimiluð á tímabilinu kl. 19 og 20 vegna vörudreifinga í verslanir. Gjaldskylda verður í stöðumæla fyrrgreinda daga á meðan verslanir eru opnar. Þá verða bifreiðastæðin í Tollhúsinu við Tryggvagötu og Kol- aporti opin á sama tíma. Starfsmenn verslana og annarra fyrirtækja í miðborginni eru hvattir til að leggja bifreiðum sinum fjær vinnustað en venjulega fram að jól- um. Er þá sérstaklega bent á bif- reiðastæði milli Vatnsstígs og Frakkastígs á lóð Eimskips, sem Reykjavíkurborg hefur á leigu. Lögreglan verður með aukna lög- gæslu þar sem þess er mest þörf í borginniframaðjólum. - SOS Samkvæmt upplýsingum frá Seðla- bankanum hafa safnast fyrir vinn- ingar síðustu árin sem fólk hcfur ekkihirtumaðsækja. . ÞG Stúlka kærð fyrir manndrápstilraun Ríkissaksóknari hefur gefið út Maðurinn var stunginn í kvið- ákæru á hendur stúlku þeirri sem stakk mann í kviðinn við Hverfís- götu á dögunum. Ákæran hljóðar upp á tílraun til manndráps. Til vara stórfelldar líkamsmeiðing- ar. inn. Lögreglan fann manninn á Hverfisgötu þar sem hann var blóðugur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Borgárspítalans þar sem læknar gerðu að sárum hans. SOS Bóksölulisti Kaupþings: Eðvarð efstur anir af 106 úr skrá bókaútgefenda yfir söluaðila sína. Áætlað er að úrtakið sé um þriðjungur af bóka- markaðnum. Við val úrtaksins var tekið tillit til búsetudreifingar í landinu. Kaupþing hf. hefur tekið að sér að kanna sölu bóka fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Gerðar verða fjórar vikulegar kannanir í desember 1985 og síðan mánaðar- lega út nóvember 1986. Úrtakið í könnuninni er 20 versl- Tíu söluhæstu bækurnar í fyrstu könnuninni, sem gerð var vikuna 4. 10. desember, eru þessar: Nr. Titill Höfundur 1. Sextán ára í sambúð Eðvarð Ingólfsson 2. Guðmundur skipherra Kjærnested Sveinn Sæmundsson 3. Löglegt en siðlaust Jón Ormur Halldórsson 4. Njósnir á hafinu Alistair MacLean 5. Bara stælar Andrés Indriðason 6. Margsaga Þórarinn Eldjárn 7. Jólasveinabókin Rolf Lidberg 8. Gunnhildur og Glói Guðrún Helgadóttir 9. Lífssaga baráttukonu Inga Huld Hákonardóttir. 10. Hvað er klukkan? Vilbergur Júlíusson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.