Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. íslendingar semja við Norðmenn: Norömenn veiða loðnu innan200 nulna Frá og með deginum í gær var norskum veiðiskipum heimilað að yeiða allt að 75 þúsund lestir af loðnu innan 200 sjómílna fiskveiðilögsögu íslands ú tímabilinu 1. janúar til 15. febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem Norðmönnum er heimilað að veiða innan 200 mílnanna. Um þetta hefur orðið samkomulag milli norskra og íslenskra stjórn- valda. Samkomulagið er bundið því að Alþingi samþykki það. Samkvæmt Ekki bara hraðsuðu- kanna! Þessi kanna hefur alla kosti venjulegs hraðsuðuketils auk fjölmargra annarra. Hún er ótrúlega snögg að ná upp suðu, þú getur ráðið hitastig- inu, ef þess gerist þörf og brunahætta af völdum gufu er sáralítil þegar hellt er; þökk sé haganlegri hönnun. I könn- unni má sjóða súpur, egg, grænmeti o.fl., auk gamla góða blávatnsins. Botninn er sléttur - elementin falin þar undir - svo að leikur einn er að þrífa könnuna. - nutsöiD loloaiot Útsölustaðir: Árvirkinn sf. Selfossi Bjamabúð Tálknafirði Borgarljós Skeifunni Búsáhöld og leikföng Hafnarfirði Búsáhaldaverslun B.V. Hólagarði Domus, raftaekjadeild Einar Guðfinnsson Bolungan/ík Elís Guðnason Eskifirðl G. H. Ljós Garðabæ Garðakaup Garðabæ Gellir Skipholti Glóey Ármúla Guðni E. Hallgrímsson Grundarfirði H. G. Guðjónsson Suðurveri Hagkaup Heimilistæki Sætúni Heimilistæki Hafnarstræti Hekla hf. Laugavegi Húsið Stykkishólmi JL-húsið Vöruhús K.Á. Selfossi Verslunin Kassinn Ólafsvik Kaupfélag A-Skaftfellinga Höfn Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kaupfélag Borgfirðinga Akranesi Vöruhús KEA Akureyri Kaupfélagið Fram Neskaupstað Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfirði Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum Kaupfélag Hrútfirðinga Borðeyri Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi Kaupfélag Langnesinga Þórshöfn Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki Kaupfélag Vopnfirðinga Vopnafirði Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Kjami sf. Vestmannaeyjum Mikligarður Mosraf Mosfellssveit Norðurfell hf. raftækjas. Akureyri Óttar Sveinbjörnsson Hellissandi Radio- og sjónvarpsstofa Selfossi Radiohúsið Hverfisgötu Rafbær Siglufirði Rafmagn Vesturgötu Raforka hf. Akureyri Rafha Austurveri Raftækjaverslun Gríms og Áma Húsavík Rafviðgerðir Blönduhlíð Rafbúð R.Ó. Keflavík Rafbúðin Auðbrekku Rafþjónusta Sigurdórs Akranesi Raíbúðin Álfaskeiði Samkaup Njarðvík Sveinn Guðmundsson verslun Egilsstöðum Straumur (safirði Verslun Sig. Pálmasonar Hvammstanga JÓHANN ÓLAFSS0N & C0 43 Sundaborg >104 Reykjavík • Sími 82644 samkomulagi þessara landa eiga Norðmenn rétt á 15% af heildar- loðnuaflanum. í haust var loðnuk- vótinn aukinn um 500 þúsund lestir. Samkvæmt því eiga Norðmenn rétt á 15% af þessari aukningu, sem eru 75 þúsund lestir. Undir eðlilegum kringumstæðum hefðu Norðmenn fengið þennan hlut á næstu vertíð. Horfurnar á loðnuafla á næstu vertíð eru ekki góðar. Hugsanlegt er að heildarkvótinn verði ekki nema 300 þúsund lestir. Þá ættu Norðmenn rétt á að veiða 75 þúsund lestir af þeim kvóta plús 15% af heildarkvót- anum eða 120 þúsund lestir af 300 þúsund lestum. íslensk stjórnvöld leituðu til Norð- manna og könnuðu hvort þeir hefðu áhuga á að veiða þessar 75 þúsund lestir á vetrarvertíð. Niðurstaðan varð sú sem að framan greinir. - APH Guörún Ámadóttir framkvæmdastjóri BSRB Á síðasta stjórnarfundi BSRB var Guðrún Ámadóttir, meinatæknir á Landspítalanum, ráðin . fram- kvæmdastjóri bandalagsins. Við atkvæðagreiðslu á stjórnar- fundinum fékk Guðrún sjö atkvæði og Svanhildur Halldórsdóttir, fræðslufulltrúi BSRB, fékk fjögur. Tveir aðrir umsækjendur voru um stöðuna, annar óskaði nafnleyndar og hinn var Björn Arnórsson, hag- fræðingur bandalagsins. Áður en til kastanna kom höfðu þeir báðir dreg- ið umsókn sína til baka. Guðrún Árnadóttir hefur setið í stjórn BSRB og var formaður verk- fallsstjómar í fyrra.Hún sest í stól framkvæmdastjórans 1. febrúar á næsta ári.Haraldur Steinþórsson gegndi embættinu til síðustu mán- aðamóta. -ÞG ÍslandsþátturíBBC Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, fréttaritara DV í London: Á annan jóladag verður sýndur í breska sjónvarpinu, BBC, þáttur sem ber nafnið Magnússon’s Iceland. Þetta er 50 mínútna langur þáttur sem tekinn var á íslandi fyrir breska sjónvarpið síðastliðið sumar undir stjóm Magnúsar Magnússonar. „Þátturinn er unninn úr sjö tólf mínútna pistlum sem sýndir hafa verið í þættinum Temple Mill Ath One að undanförnu," sagði Magnús í samtali við fréttaritara DV. „Við vorum á fslandi í þrjár vikur í júlí í sumar og tókum upp efni á stöðum eins og Bláa lóninu, Mývatni, Gull- fossi og Geysi. Einnig fjalla ég um bókmenntir á íslandi, bæði að fornu og nýju og talaði við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur." f kynningu BBC á þættinum segir að þetta sé saga af persónulegri píla- grímsferð Magnúsar til íslands. Þar hsifi hann hitt gamla vini og heimsótt eftirminnilega staði. „Ég hef gert mitt besta til að kynna land og þjóð og það var gaman að fara til íslands og fjalla um það sem maður vildi. Mér hafa borist mörg hundruð bréf frá því að þættirnir voru sýndir á Temple Mill. Fólk hefur sýnt lækn- ingamætti Bláa lónsins mikinn áhuga og eins hefur mikið verið um bréf frá fólki sem kom til íslands í stríðinu og hefur áhuga á því að endumýja kynni sín við landið,“ sagði Magnús. Um fjórar milljónir áhorfenda hafa fylgst með Temple Mill þáttum Magnúsar og má búast við að annar eins fjöldi sjái þáttinn á annan í jólum. Nú nýlega hófust upptökur á Mastermind, hinum vinsæla spurn- ingaþætti Magnúsar. Að meðaltali fylgjast um 12 milljónir manna með þessum þáttum en sýningar á þeim hefjast í upphafi næsta árs. Við þetta er svo að bæta að í síð- ustu viku fæddist Magnúsi hans fyrsta barnabarn er dóttir hans, Sally Magnússon, eignaðist sveinbarn og lýsti Magnús sér sem „i sjöunda himni“ er hann ræddi við fréttaritara DV í gær. v Ríkisútvarpið: Breytt innheimta afnotagjaldanna Yfir 80% af notendum útvarps og sjónvarps hafa greitt gjöld sín fyrir árið 1985. Það eru mun lakari skil heldur en á sama tíma sl. ár. Inn- heimtuaðgerðir eru hafnar og hafa þeir sem skulda allt árið og meira fengið bréf frá RUV. Breytingar verða gerðar á inn- heimtu afnotagjalda á næsta ári. Þá verða afnotagjöld innheimt fjórum sinnum á ári en ekki tvisvar. Áfnot- endur fá senda fyrstu reikningana í byijun árs. Innheimtudeildin bíður nú eftir að fá nýja afnotendagjald- skrá. - -sos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.