Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Síða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. Spurningin Strengir þú áramótaheit? Sigurlaug Sigurfinnsdóttir hús- móðir: Nei. það geri ég aldrei. Mér dettur það ekki í hug. Ég veit ekki hvort fólk gerir svoleiðis, ég hef alla- vega aldrei gert það. Garðar Ingólfsson, starfsmaður SVR: Það er eitthvað um það, ekki alltaf en ég var að spekúlera að fara að hætta að reykja. Ég vona að ég standi við það. steinunn tsjartmarsdottir hus móðir: Ekki nema það að ég reyn að verða betri manneskja. Annar; er ég hætt að reykja. Jú, ég stíg eflaust á stokk á nýársnótt og heit einhverju góðu. Gerum við það ekk öll? Edda Björnsdóttir, sendill og húsmóðir: Nei, alveg ábyggilega ekki, það hef ég aldrei gert. Fólk gerir það en heldur yfirleitt ekki þessi heit sín. Það er betra að vera ekki að því, standa frekar við orð sín. Ingigerður Guðmundsdóttir nemi: Nei, ég er svo ofsalega góð. Ég hef aldrei gert svoleiðis. Sumir gera það, reyndar frekar margir, held ég. Én ég efast um að heitin séu haidin. Magnús J. Hinriksson, gerir allt mögulegt: Ég á ekki von á að ég stígi á stokk og strengi heit. Fólk gerir þetta, hættir að reykja eða eitthvað slíkt, ég veit ekki um önnur heit. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Islenskar bókmenntir ÓA skrifar: Mikið af bókum streymir nú á markað og kennir þar margra grasa. Stundum verður mér á að hugsa hvort þetta sé ekki fullmikið af því góða því ég er nær viss um að tals- verður hluti þeirra bóka sem nú koma út mun ekki verða lesinn nema aförfáum. En það er kannski ekki endilega aðalmálið að sem flestir lesi bækurn- ar, vera má að þær séu jafnmikilvæg- ar þó enginn fletti þeim. Þá standa þær uppi í hillu árum saman, svolítið leyndardómsfullar og luma á merki- legum sannleika sem aldrei nær fram í sviðsljósið. En hver er ánægja þeirra sem skrifa bækur sem ekki vekja athygli? Svarið við því er ekki einhlítt, þeir eru eflaust til sem þykir mest um vert að vita það með sjálfum sér að hafa gert góða bók og finnst viðtökur almennings engu hafa við að bæta. Og þeir sem eru sannfærðir um að bókin þeirra er ekki eins góð og æskilegt var mega sjálfsagt vera fegnir því hversu fáir vita það. Ég er reyndar komin á þá skoðun að mestu skipti að skrifa bók, hvort sem einhver les hana eða ekki; Is- lendingar virðast hafa svo óskaplega þörf fyrir að koma sér á framfæri, gera upp við hitt eða þetta sem angrar þá og þeir losna ekki við fyrr en þeir hafa borið það á torg. En undarleg er sú árátta að vera sífellt að grufla í annarra ævi, banka upp á hjá einhverjum Jóni, Páli, Sigga, Nonna eða guð veit hverjum og fá að vita um ástir hans og leyndustu hugsanir, setja síðan á blað og birta landslýð með þeim ummælum að nú sé komin á markað óvenju opinská og hrífandi saga um mann sem aldrei lét deigan síga og hefur sko aldeilis lifað tímana tvenna. Víst hafa íslendingar gaman af bókum, um það efast enginn. Ekkiaðástæðulausu Dreifbýlingur hringdi: Agætu landsmenn! Ég er eldri kona á Hellu og get lítið hreyft mig. Þess vegna langar mig í nafni aldraðra að fara þess á leit við sjónvarpið að Derrick verði sýndur klukkan 21.00. Ég er nú hreint ekkert hissa á því að hagur myndbandaleiganna vænkist, jafnvel mig, eldri konu á Hellu, langar að fá skerm á þakið til að geta náð í erlendar sjón- varpsstöðvar. Dagskrá sjónvarps- ins er svo fjarskalega léleg - alveg með ólíkindum hvað hún getur verið léleg. Þess vegna er ég nú að kvarta, ég er ekki ein af þeim sem kvarta að ástæðulausu. „Vini hagstætt veittu lán“ Tilvonandi skuldari skrifar: í DV 6. des. í lesendadálki má sjá að einhverjum hefur brugðið við að lesa grein mína 29. nóv. um dráttar- vaxtalánin hagstæðu. Villa slæddist þó i grein mína í meðferð hjá DV, 5% breyttust í 7%. Lán, sem skuldari framlengir einhliða í 7-9 mánuði með því að neita áð borga (hann getur það vegna seinlætis fógeta), ber ekki 7% ársvexti umfram verðbólgu, eins og stendur í DV, heldur aðeins 5% eins og stóð í grein minni, ef verð- bólgan er 38% á ári (145/138 = 1,05). Sé verðbólguhraðinn 38,7% eins og hann hefur verið nú í 2 mánuði þá eru ársvextir umfram verðbólgu aðeins 4,5% (145/138,7 = 1,045). Það er hagstætt lán, ekki satt? Fógetakostnaður með auglýsing- um er ekki mikill (um kr. 9.000 af 500.000 kr. skuld) og lögfræðikostn- aður er enginn ef skuldareigandi snýr sér beint til fógeta. Sé um lög- fræðikostnað að ræða, þá er það víst að skuldareigandinn fær ekki eyri af þeim peningum og heldur ekki af fógetakostnaðinum. Hann fær bara áðurnefnd 4,5% á ári umfram verð- bólgu, og á meðan sá skuldseigi getur jafnvel lánað út peninga, sem hann sveikst um að borga, og fengið íyrir þá okurvexti í 7-9 mánuði. Kostnað- urinn til fógeta og lögfræðings, ef um hann er að ræða, er mjög léttvæg- ur hjá þeim hagnaði (helmingur). Já, 21 sala á 10 eða 11 mánuðum er lág tala miðað við að uppboðs- beiðnir skipta þúsundum. Lang- flestir geta borgað áður en síðara uppboð fer fram, það er bara stað- reynd hvað sem fröken skuldseig segir. Það er gömul saga að skuldarinn fyrirlíti þann sem lánaði honum peninga, þ.e. eftir að hann hefur fengið peningana. Þannig hefur það alltaf verið, enda segir máltækið; cadPra/acaD® KARLMANNASKÓR Póstsondum IKQflÆEs&M Laugavegi 1 — Sími 1-65-34 Vini hagstætt veittu lán, viljirðu losna við’ann; vænir hann þig víst um rán, vonlaust er að sið’ann. ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA yUJJ^ROAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.