Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Síða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. MÖGNUÐ SPENNUSAGA Menning Menning Menning DAVID 0SB0RN SAMSÆRIÐ ,,ÞAÐ VERÐUR EKKI GEFIN ÚT BETRI BÓK f ÁR ... feannprtiaberðlunín Crla Snorrabraut 44. Sími 14290 MJUK BARNATEPPI Flugferö. Stærð 80x110cm. Verð kr. 586,- Bjartir litir. Æskan. Stærð 80x110cm. Verð kr. 61 2,- Stærð 110x140. Verð kr. 1.012,- Gulbrúnn grunnur og skýr mynd. Púðar úr mjúku þvottekta akrýli. Nr. 1 Velðiferð. Nr. 2 Gönguferð. Nr. 3. Vinarferð. Nr. 4. Skógarferð. Þvottekta. Stærð 35x38 cm innrömwun Margar stærðir af tilbúnum römmum og úrval rammalista. Póstsendum. Snorrabraut 44. Simi 14290 Pósthólf 5249.1 Nr. 5 Dúlla. Nr. 6 Snúlli. Þvottekta. Stærð 35x38 cm. Nú er skáldhjartað köllunar klukka Ingimar Erlendur Sigurösson: LJÓSAHÖLD OG MYRKRAVÖLD. Víkurútgáfan 1985. Hartnær þrír áratugir eru síðan Ingimar Erlendur gaf út fyrstu ljóða- bók sína, Sunnanhólma, hálfþrítugur að aldri. Nú sendir hann okkur hina tíundu að ég held. Það duldist engum að skáld var á ferð í Sunnanhólmum en þó annað. Það er sem því hafi orðið tafsamt að brjótast úr steinin- um, og það sé að reyna að líma saman brot hjartans á öðrum vegum og með gömlum ráðum. Hin skarpa hugsun og líkingaauðgi eru enn á sínum stað og með í för, en orðkynngin er harð- hentari og óvægnari, stundum stirð- legri. Því veldur einkum breyting að fylgja honum eftir, enda getur enginn trúað fyrir aðra: Er ljósboði himins í lyfting stár og lokið er skúrum, ég hengi til þerris mín harmatár á himneskum snúrum. Ingimar Erlendur Sigurðsson - „boðunarkrafan farin að reyna ugg- vænlega á skáldskaparstoðirnar“. - ungt atómskáld að þeirrar tíðar nafngift, orti alveg órímuð lausmáls- ljóð, en kunni vel með orð að fara og var hvass og snjall í hugmyndalík- ingum, hitti oft naglann vel á höfuð- ið. Og ástin var ofarlega á baugi, oftast hugumglöð en þó með skugg- um: Ástin er steinn sem opnaðist og bauð þér inn, luktist síðan aftur, brjótirðu hjarta þitt kemstu út. Tíunda ljóðabókin heitir Ljósahöld og myrkravöld, og er fróðlegt að lesa hana samhliða hinni fyrstu. Engum dylst að þar er sama skáld á ferð - ljóðstíls og lífsviðhorfs. Lausmáls- skáldið er orðið að harðsvíruðum rímara og stuðlara, jafnvel svo að stundum dugar ekkert minna en hringhenda eða sama endarím í hverri línu allvæns kvæðis. Skáldið vissi svo sem af guði í Sunnanhólmum, en sú snerting var aðeins lausleg. Nú gegnir öðru máli. í nýju bókinni er að minnsta kosti annað hvert ljóð og hjarta skáldsins „köllunar klukka“, knúin til þess að ná áheyrn almættis. Það er vafamál hvort rímið og guð hafi í nokkru aukið skáldskap Ingimars vængi, en ef til vill orðið vegabót og sáttagjörð í lífi hans, þó að ég eigi bágt með Laglega orðuð trúarjátning, ekki skal því neitað. Þótt trúarbirtingin í þessum ljóðum Ingimars sé oftast nokkuð orðská, svo að orðin verði stundum eins og steinar sem kastað er af afli að hörðum hnetuskurnum til þess að brjóta þær að kjarna - og takist það stundum en ekki ætíð, á hann líka til mildan og bljúgan hljóm eins og í þessu jólavöggustefi. Vöggu hvitri vetur ruggar, varla andar blær. Hvítir eru himinskuggar, hnígur j ólasnær. Vonarbarn sem veika huggar, varla hjartað slær. Signdir eru sálargluggar, sjálfur guð þeim nær. Honum þykir nútíðin heldur reikul á guðs vegum og segir í spurn og svari: Hví á nútíð hvergi lausnarson? hendur orðsins snara fleyga von. Frelsun andans fjötrar hagsýn trú fjölmiðlun í hennar stað er nú. Það þykir skáldinu ill skurðgoða- dýrkun sem von er til. Þótt Ingimar Erlendur hafi nú svo að segja alfarið sveigt skáldfák sinn á himingötu verður varla sagt að ganglag fararskjótans sé trúarvingl eða flótti. Honum virðist ekki gatan til sátta og lausnar sérlega greið og hann herjar á múra svo að segja í hverju ljóði. Orðin eru hvassar örvar Drög að smásögum Eiríkur Brynjólfsson. ISMÁSÖGUR FÆRANDI: Skákprent 1985. Þau eru stór orðin á baksíðu þessarar þókar. H.S. segir að í sögum Eiríks Brynjólfssonar grein- ist hvergi byrjandabragur, hann kveði sér hljóðs sem þroskaður höfundur og gangi með sinni fyrstu bók til sætis framarlega á íslensku skáldaþingi. Þessi samsetningur tekur flestu því fram sem í bókinni stendur og má þó ýmislegt um hana segja. Hverjum er H.S. að þjóna með þessum ummælum? Varla höfundinum, því enginn hefur gott af oflofi. Því síður lesandanum. Útgefandinn reynir í þessu tilviki að selja honum vöru á fölskum forsendum. Og ætti að varða við neytendalög. Það er því miður allt- of mikið um innantómt skrum á bókakápum. Þeir sem að því standa mega svo sem gera sjálfa sig að athlægi. En hvers vegna höfund- inn? Af hverju að gera til hans kröfu í huga lesenda sem hann getur ekki risið undir? Smámenni og máttarstólpar. Sögumar átta í I smásögur færandi eru misjafnar að gæðum en einkennast þó allar af gaman- sömum og kæruleysislegum stíl; höfundurinn gerir sér far um að vera frjálslegur og veður oft á súðum eins og kerling yfir kaffi- bolla, orðmargur um of. Þessi stíll nýtur sín skást í þeim sögum sem eiga fyrst og fremst að vera gaman- mál. En jafnvel þeim er spillt með Eiríkur Brynjólfsson - „eyði- leggur ágætar hugmyndir“. Bókmenntir MATTHÍAS V. SÆMUNDSSON óþarfa lausmælgi. Höfundurinn fellur í sömu gryfju og ótalmargir á undan honum: leyfir sögunni sjálfri ekki að tala sínu máli heldur fyllir hana athugasemdum og út- skýringum, málalengingum. Vont dæmi um það er í sögunni Allsber maður og konur í buxum sem þó er með þetri textum í þókinni. Þar sér höfundur ástæðu til að taka fram í eftirskrift að setningar, sem hann leggur einni persónunni í munn, séu hafðar innan gæsalappa af því þær séu teknar úr tilteknum blöðum - hallærislegum. Þessi skýring er að vísu í anda stílsins en sýnir þó einn höfuðgalla flestra sagnanna. Þær eru hálfgildings ritgerðir um vond ástönd í þjóð- félaginu, ádeilur fullar af boðskap sem höfundur reynir að troða í lesandann - með góðu eða illu. I sögunum eins og Litla manninum og Atburðum dagsins beinir höf- undurinn spjótum sínum að mátt- arstólpum sem setjast á smámenni, ráðherrum með stóra vindla, kapít- alískum föntum. Þessar persónur eru fífl og fautar, asnalegar með afbrigðum. Nú er í lagi með ádeilu en til að hún sé boðleg í bók- menntaverki verður hún að lúta listrænum kröfum. Höfundurinn tekur hins vegar upp klisjubornar manngerðir og notar þær nær óbreyttar með þeim árangri að ádeila hans verður flatneskjuleg eða „banöl“. Eyðileggur með þvi móti annars ágætar hugmyndir eins og í Litla manninum. Ég er í engum vafa um að höfund- ur þessarar bókar getur skrifað. Víða bregður fyrir líflegum lýsing- um og fjörlegum athugunum sem hafa má gaman af. Hins vegar skortir hann, enn sem komið er, vandvirkni og sjálfsgagnrýni, vit- und um að orðið er dýrt. Svo mælist ég til þess að H.S. hætti að skrifa utan á bækur. MVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.