Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Page 20
20 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. Menning Menning Menning Menning Menning Konur þurfa ekki að vera litlar REYNDU ÞAÐ BARA Höl. Kristín Bjarnadóttir. Útg.: Briet. Konur i karlastörfum. Og hvað með það? Við fyrstu sýn getur þetta virkað eins og þreytt umræðuefni, jafnvel að manni finnist asnalegt að þurfa að ræða það eitthvað frek- ar að jafnréttisbaráttan hafi náð þetta langt. í bókinni ræðir Kristín Bjama- dóttir við sjö konur sem vinna störf sem hingað til hafa verið nær ein- göngu unnin af karlmönnum; stýri- maður, vélstjóri, prófessor, hús- gagnasmiður, söðlasmiður og fangavörður. Það sem er einkar athyglisvert við bókina er að jafnréttishugsjón- in sem slík - krafa kvenna um að eiga jafna möguleika á vinnumark- aðinum - virðist ekki hafa grund- vallað starfsval þessara kvenna. Má vera að jafnréttisbaráttan hafi ýtt undir þær að leita í starfsgrein- ar sem þær höfðu áhuga á. Þær virðast öllu fremur hafa brotist áfram af eigin rammleik og áhuga. Engin „remba“ Einn viðmælandinn virðist mæla fyrir munn þeirra allra þegar hún segir: „Hvort konur em í meiri- hluta í sumum starfsgreinum og karlmenn í öðrum, finnst mér að ætti ekki að skipta máli í jafnréttis- baráttunni. Það sem skiptir máli er að litið sé á manneskjuna og störfin sem hún vinnur sömu aug- um, hvort heldur hún er karl eða kona. Enn er það ekki gert. Og það gerist ekki allt í einu. Margir þurfa tíma til að átta sig á því að konur þurfi ekki endilega að vera svo litlar." Ef einhver heldur að konurnar Bókmenntir SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR sem rætt er við séu með „rembu“ yfir starfi sínu; að þær séu að reyna að sanna eitfhvað eða ögra sam- félaginu, er sá með ranghugmynd- ir. Þær lýsa.baráttu sinni gagnvart fordómum bæði karla og kvenna án beiskju. Þær gera sér grein fyrir því að fordómar segja meira um fólk sem hefur þá en þær manneskj- ur sem verða fyrir þeim. Engin einkamálahnýsni Um tilurð bókarinnar segir höf- Kristín Bjarnadóttir. undur í eftirmála: „Kannski var hugmyndin sú að reyna að átta sig á hvort konur sem ynnu með körl- um í grónum karlastörfum væru eitthvað „öðruvísi" konur og hugsuðu á allt annan hátt en þær sem vinna hefðbundin kvenna- störf.“ Á mig virkuðu þessar konur blátt áfram og skemmtilegar, laus- ar við alla tilgerð og sýndar- mennsku. Eru það öðruvísi konur? Þessi bráðskemmtilega bók hefur fleira gott til að bera en ánægjuleg- ar persónur; hún er einkar vel unnin: Efninu er vel fylgt eftir - engin einkamálahnýsni. Viðtölin eru hæfilega löng og að síðustu er setning bókarinnar einstaklega góð. Ég óska nýja kvennabókaforlag- inu Bríet til hamingju með þessa frumraun og sting jafnframt upp á því að allir atvinnurekendur í hefð- bundum karlagreinum fái hana í jólagjöf. S.S. Góðir dómar Jóhanna Kristjónsdóttir, gagnrýnandf Mbl. Ámi Bergmann, gagnrýnandi Þjv. Erlendur Jónsson, gagnrýnandi Mbl. Jóhanna Kristjónsdóttir, gagnrýnandi Mbl. • • • Það þarf ekki fleiri orð ÍSAFOLD „Margt skipast á mannsævi,“ sagði Þrándur í Götu Sr. Emil Björnsson: -MINNI OG KYNNI. Útgelandi: Örn & Örlygur, 1985. Mörgum mun hafa þótt sem þáttaskil hafi orðið í sögu ríkisút- varpsins, þegar þeir létu af störfum með stuttu millibili tveir máttar- stólpar þess, þeir Andrés Bjömsson útvarpsstjóri og sr. Emil Björns- son, fréttastjóri sjónvarps. Þessir menn voru svo lengi búnir að vera heimilisvinir þjóðarinnar, að fáir hafa komizt til samanburðar, vin- sælir og virtir. Lengi var það siður, að efldur væri ófriður í ríkisútvarp- inu og þá ekki sízt af stjórnmála- mönnum, en mér finnst, þegar ég lít til baka, að í tíð þeirra tveggja hafi ríkt nánast Fróðafriður. Varla hafði sr. Emil staðið upp úr sæti sínu hjá sjónvarpinu, fyrr en frá honum kom bók, ekki mikil að vöxtum, en drjúg að efni um ýmsa einstaklinga, sem hann hefur átt meiri og minni samskipti við. Bókin nefnist Minni og kynni. Mér virðist, að auk tveggja inn- gangsritgerða sé hér um að ræða kafla úr ræðum (líkræðum?) úr starfi sr. Emils sem prests hjá Óháða söfnuðinum og svo sjón- varpsviðtöl. Ekki kemur fram, hvenær þessar frásagnir hafa verið samdar, en margir munu kannast við sjónvarpsviðtölin. Svipur hjá sjón Þetta er allt vel samið og oft komizt ágætlega að orði auk þess sem víða er fjölbreytilegan fróðleik ágætra greina, t.d. eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson blaðamann (í rit- gerðasafninu Við sem byggðum þessa borg, III. bindi). Þakka þér sömuleiðis Það er góður fengur að frásögn- um af þeim fjölfróða og skemmti- lega manni Hendrik Ottóssyni og hans einlæga byltingarstússi, og af þeim skörungskonum Aðal- björgu Sigurðardóttur, sem Jónas kallaði „allrasystur" og Maríu Maack, sem hefði þó mátt gera meiri skil. Sama á við um Guðrúnu H. Þorgrímsdóttur, móður sr. Em- ils. Stórskemmtileg er frásögnin af sr. Vigfúsi Þórðarsyni, sem taldi sig töluvert öruggari um lífið á öðrum hnöttum, þegar ófermdur drengurinn var búinn að láta í ljós skoðun sína á þessu merkilega máli. Margir muna sjónvarpsþættina, þar sem sr. Emil ræddi við þá Sig- urð Nordal, Brynjólf Bjarnason og Gylfa Þ. Gíslason, afburðamenn hvern á sínu sviði, en óneitanlega verður þetta allt dauflegra, þegar það er komið i bókarform. Mér finnst jafnvel hálfkauðalegt, þegar viðtalinu við Brynjólf lýkur með þessum orðum: Sr. Emil: „Þakka þér fyrir skemmtilegt spjall.“ Brynjólfur: „Þakka þér sömuleið- is, Emil.“ Þarna hefði nú verið gott að hafa skæri við höndina. Sr. Emil Björnsson - „getur skrifað betri bók‘ Bókmenntir PÁLL LÍNDAL að finna enda slípast margt á mannsævi. Ég er þó viss um, að sr. Emil hefði getað samið töluvert áhugaverðari bók. Ég held, að það sé ekki mjög algengt, að ræður, þótt góðar séu í sjálfu sér, njóti sín á prenti og sama má segja um sjón- varpsviðtöl. Áhrif ræðu eru eins og menn vita mjög háð því um- hverfi, þar sem ræðan er flutt og hvernig flutningur er. Og sjón- varpsviðtöl eru á sama hátt háð sínum myndræna bakgrunni og hvernig orðaskipti fara fram. Þetta fer allt meira og minna forgörðum í prentuðu máli. Þótt margt gáfu- legt og skemmtilegt falli til, verður þetta oft svipur hjá sjón. En snúum okkar nánar að efninu. Fyrst í bókinni eru tvær alllangar ritgerðir um Jónas frá Hriflu og Halldór Laxness. Ekki fæ ég séð, að þær bæti neinu við öll þau ósköp, sem um þessa garpa hefur verið ritað, þær eru þó vel læsileg- ar. Sama má raunar segja um frá- sögn af Jóhönnu Egilsdóttur. Ævi- saga hennar er aðgengileg auk Hlutur sr. Emils í þessum þáttum hefur verið rómaður. Kararterstyrkur Ég sá ekki viðtalið við Ömar Ragnarsson, en það er fróðlegt og skemmtilegt aflestrar. Kannski nýtur maður þessa betur því að maður sá ekki þáttinn í sjónvarpi. Viðtalið gefurmjög geðfellda mynd af þessum ágæta sjónvarps- og skemmtimanni, sem hefur tekizt flestum, ef ekki öllum betur að búa við frægð og vinsældir án þess að bíða tjón á sálu sinni, svo að maður formerki. Til þess þarf mikinn karakterstyrk. Ég hef verið nokkuð gagnrýninn á þessa bók, ekki vegna þess að ég geri mér ekki ljóst, að hún er langt fyrir ofan meðallag þess, sem nú er boðið upp á. Gagnrýnin er ein- göngu af því sprottin, að ég er viss um, að sr. Emil getur skrifað betri bók, og ég vona, að þess verði ekki langt að bíða. Til þess skortir hann hvorki greind, söguefni né ritfæmi. Bókin er geðug að frágangi öll- um. Efnisyfirlit þykir mér þó held- ur ófullkomið og ekki fylgir nafna- skrá. Á bls. 137 er minnzt á mikinn loftbelgjafrömuð, Holgeir Másson. Heitir maðurinn ekki Holberg Másson? Misminnir mig kannski? P.L.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.