Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 22
22 Iþróttir Iþróttir DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. Iþróttir Iþróttir ÁRNISLEIT KROSSBÖND — oghann munþví ekki leika meira með unglingalandsliðunum ogliði Gróttu í vetur Árni FHóleifsson, hinn stór- efnilegi leikmaður Gróttu í 2. deild ha.idboltans, mun ekki leika með 'iði sínu meira á þessu keppnistírr-abili. Árni, sem á sœti í þremur iandsliðum, 18, 19 og undir 21-árs landsliðinu, sleit aö öllum likindum krossbönd i hné í leiknum við Dani með u-21 árs liðinu á HM á Ítalíu. Hann fer í uppskurð í dag. Séu krossbönd slitin hjá Árna, eins og flest bendir til, þá mun hann verða tíu vikur í gipsi. Eftir það getur hann fyrst farið að reyna á fótinn. Það er því frekar hæpið að Ámi muni geta ieikið með 18 ára iandsliðinu á Norður- landamótinu sem fram fer í vor. Þá mun 19 ára landsliðið án efa sakna Áma. Liðið hélt utan til Noregs í dag þar sem það mun leika tvo leiki við heimamenn. -fros STAÐAN 1. DEILD Eftir leik Vals og Þróttar á miðvikudaginn í Laugardals- höllinni er staðan þannig eftir leiki helgarinnar: Víkingur..ll 9 0 2 271-210 18 Valur....11 9 0 2 257-219 18 Stjarnan.il 7 2 2 257-222 16 FH.....11 6 0 5 268-255 12 KA.....11 4 1 6 223-229 9 Fram.....11 4 0 7 257-264 8 KR.....11 3 1 7 234-256 7 Þróttur.ll 0 0 11 223-335 0 Keppnin hefst á ný 4'. janúar. 12. umferðin verður leikin 4. og 5. janúar, 13. umferðin þann 8. janúar og 14. og síðasta umferðin verður leikin 11. og 12.janúar. Opnað í Bláfjöllum — ef veöurleyfir Sem óðast líður nú að því að skíðamenn taki fram skíðin sín og önnur áhöld sem þarf til skíðaiðkana. Margir bíða spenntir eftir því aö Bláfjallasvæðið verði opnað. Forráðamenn Blá- fjallasvæðisins hyggjast leggja í hann um helgina, nánar tiltekið á sunnudag EF VEÐUR LEYFIR. Blá- ijallasvæðið mun síðan verða opið á annan dag jóla og milli jóla og nýárs. Allt er þetta háð því að veður- guðirnir verði skíðamönn- um hagstæðir og nú er bara að vona að svo verði. -SK. ’ PIERRE GEYS REK- INN FRÁ WATERSCHEI — „þjálfarinn átti ekki virðingu leikmanna lengur/’ sagði Ragnar Margeirsson Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV í Belgiu: „Það var mikil óánægja með þjálf- arann, Hann var búinn að missa allan aga hjá liðinu og við leikmenn- irnir vorum hættir að bera virðingu fyrir honum,“ sagði Ragnar Mar- geirsson, atvinnumaður hjá Waterschei, í samtali við DV en þjálf- ari liðsins hefur verið rekinn frá fé- laginu. Waterschei er nú í 2. neðsta sæti í 1. deildinni í Belgíu og því í mikilli fallhættu. „Það fer um mig hrollur þegar ég hugsa til þess að leika í 2. deildinni hér næsta keppnis- tímabil. En ég vona að þetta lagist með nýja þjálfaranum,“ sagði Ragnar ennfremur. Við þjálfun hjá Waterschei tók varaþjálfari liðsins. • Aari Haan hefur verið ráðinn þjálfari Anderlecht frá 1. janúar nk. og tekur hann við af Paul Van Himst sem var rekinn frá félaginu fyrir nokkru. Haan er 36 ára og lék með Anderlecht á árunum 1975-81 og var fyrirliði liðsins um tíma. Þess má geta að Paul Van Himst fékk tæpar 2 milljónir króna greiddar er hann hætti hjá Anderlecht en hann var á samn- ingi hjá liðinu til ársins 1987. Þokkaleg laun fyrir að gera ekki neitt. -SK. Essen vann, 20:7 —og Alf reð skoraði 4 mörk Staðan á toppnum í Bundesligunni en Essen er með sama stigaíjölda að er nú þannig að Gummersbach er í loknum 11 leikjum. efsta sæti með 18 stig eftir 10 leiki -SK. Landsliðið án Alf reðs og Atla — og Páll Ólafsson mun líklega aðeins leika fyrsta leikinn, gegn Dönum á milli jóla og nýárs Frá Atla Hilmarssyni, frétta- manni DV í Þýskalandi: Leikmenn Lemgo áttu sér ekki viðreisnar von í gærkvöldi er þeir Iéku gegn Alfreð Gíslasyni og félögum í Essen. Leikmenn Lemgo voru algerlega heillum horfnir og skoruðu aðeins sjö mörk í leiknum en Essen skoraði 20. Alfreð Gislason skoraði 4 mörk í leiknum en Fraatz var markahæstur hjá Essen með 9 mörk. Fyrri hálfleikur var slakur hjá báðum liðum en staðan að honum loknum var 7-3. Fyrstu tuttugu mínúturnar í síðari hálfleik skoruðu leikmenn Lemgo ekkert mark og staðan þegar tíu mínútur voru til leiksloka var 16-3 Essen í vil. Síð- ustu tíu mínútur leiksins skoruðu liðin fjögur mörk hvort og lokatölur urðu 20-7 eins og áður sagði. Þess má geta að Essen fékk 13 vítaköst í leiknum. Alfreð Gíslason og Atli Hilmarsson munu ekki leika með íslenska lands- liðinu í handbolta gegn Dönum. Sem kunnugt er munu þjóðirnar Ieika þrjá leiki á milli jóla og nýárs. Páll Ólafsson mun að öllum líkind- um aðeins geta leikið fyrsta leikinn þar sem félag hans Dankersen leikur á hraðmóti á sama tíma. Nokkrir menn koma nú á ný inn í liðið frá því í leikjunum við Spán. Kristján Árason mun leika alla þrjá leikina og sómu sögu er að segja um Geir Sveinsson, Jakob Sigurðsson, Júlíus Jónasson og Valdimar Gríms- son en þeir léku allir með landsliðinu u-21 árs á HM fyrr í þessum mánuði. -fros „Tennisæði” — hefur gripið um sig fVestur-Þýskalandi vegna úrslitaleiks V-Þjóðverja og Svía Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð: ^ 1 dag hefst úrslitakeppni heims- meistarakeppni landsliða í tennis. Þriðja árið í röð eru það Svíar sem leika til úrslita og nú gegn Vestur- Þjóðverjum og fer keppnin fram í Múnchen í Þýskalandi. Fremstur í flokki í þýska liðinu er dýrlingur þýsku þjóðarinnar um þessar mundir, Boris Becker. Hann varð þjóðhetja í Þýskaiandi eftir að hann sigraði í Wimledon mótinu í Englandi, yngstur allra frá upphafi, 19 ára að aldri. Og öðrum fremur tryggði hann þýska tennislandslið- inu þátttökurétt í úrslitum HM með Saga West Ham United Saga enska knattspyrnuliðsins West Ham eftir John Moyniham er nú komin út í þýðingu Víðis Sigurðs- sonar. Saga félagsins er rakin allt frá stofnun þess árið 1895 er það nefndist Thames Ironworks og fram til þessa keppnistímabils. Þrátt fyrir að West Ham hafi aldrei unnið ensku deildakeppnina þá hefur liðið ávallt verið meðal frægustu liða. Geoff Hurst, Bobby Moore, Gordon Banks, Trevor Brooking og fleiri hafa séð til þess. Nú sjá önnur nöfn um að halda nafni félagsins á lofti. Liðinu hefur gengið mjög vel á þessu keppnistímabili og kannski hrynur deildavígið í vor, hver veit? Fjölmargar myndir eru í bókinni sem er 172 síður. Það er Bókhlaðan sem gefur bókina út. fros glæsilegum sigrum yfir landsliðum Bandaríkjanna og Tékkóslóvakíu. Svíar mæta ekki með sitt sterkasta lið í úrslitakeppnina. Sjötti besti tennisleikari í heimi (samkvæmt heimslista), Anders Járryd, hefur átt við vanheilsu að stríða undanfarið, legið í flensu, en verður samt vara- maður i liði Svía í úrslitunum. Sér- staklega mun fjarvera Járryds koma sér illa fyrir sænska liðið í tvíliða- leiknum. Þeir Stefan Edberg (i 5. sæti á heimslistanum) og Anders Járryd eru taldir bestu tvíliðaleiks- spilarar i heimi í dag. Gífurlegur áhugi er fyrir úrslita- leik Svía og Þjóðverja í Múnchen og uppselt er á alla leikdagana fyrir mörgum vikum. Dæmi eru þess að áhugamenn hafi boðið ibúðir sínar í skiptum fyrir aðgöngumiða og konur hafa boðið blíðu sína fái þær miða í staðinn. Árangur Boris Becker á tennisvellinum undanfarið hefur hreinlega umturnað Þjóðverjum sem ekki halda vatni yfir þessari nýju stórstjörnu sinni. Algert „tennisæði“ ræður nú rikjum í iþróttaheimi þý- skra og meira að segja knattspyrnan hefur orðið að lúta í lægra haldi, um stund að minnsta kosti. -SK. • Birgir Michaelsson, KR, skoraði 36 stig gegn Keflavík en það dugði ekki. — Keflavík sigraði KR örugglega, 84:77 Frá Magnúsi Gislasyni, frétta- manni DVáSuðurnesjum: Stórgóður leikur nýliðanna í úrvalsdeildinni i körfuknattleik, ÍBK, tryggði þeim mikilvægan sigur í gærkvöídi gegn KR. Kefl- víkingar skoruðu 84 stig en KR-ingar 77. Staðan i leikhléi var 43:34, IBKíhag. Með þessum sigri blanda Kefl- víkingar sér í toppbaráttu úrv- alsdeildar og greinilegt er að liðið verður við toppinn þegar upp verðurstaðið. Liðin skiptust á um að skora og jafht var í byrjun, 22-22, en fyrir leikhlé náðu Keflvíkingar mjög góðum leikkafla og komust í 41-26, í leikhléi var staðan 43-34. KR-ingar náðu að jafna metin, 63-63, í síðari hálfleik en þá voru sjö mínútur til leiksloka. Heimamenn voru síðan sterkari á lokasprettinum og sigruðu með sjö stiga mun eins og áður sagði, 84-77._ Lið ÍBK er að styrkjast þessa dagana og í gærkvöldi lék liðið mjög vel. Leikmenn voru mjög jaifhir að getu en Sigurður fngi- mundarson var stigahæstur með 23 stig. Iflá KR var Birgir Michaels- son í sérflokki og skoraði 36 stig. Páll Kolbeinsson skoraði 18 stig og Garðar Jóhannsson 10. Ástþór Ingason og Þor- steinn Gunnarsson skoruðu 4 stig hvor, Guðmundur Jó- hannsson 3 og Samúel Guð- mundsson 2. Sigurður Ingimundarson skoraði 23 stig fyrir ÍBK, Guðjón Skúlason 15, Jón Kr. 13,Ingólfur Haraldsson 11, Ólafur Gottskálksson 10, Hreinn Þorkelsson 8 og Magn- ús Guðfinnsson 4, Leikinn dæmdu þeir Krist- inn Albertsson og Bergur Steingrímsson og gerðu engar vitleysur að viðstöddum 219 áhorfendum. -SK. Tvisvar framlengt Haukar sigruðu Valsmenn í miklum baráttuleik i úrvals- deildinni i körfuknattleik í gærkvöldi með 88 stigum gegn 84. Framlengja þurfti leikinn í tvígang til að knýja from úrslit. Við þetta tap minnka meistaravonir Valsmanna verulega en að sama skapi eykur þessi sigur á sigur- möguleika Hauka í úrvals- deildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.