Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. '
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Afganistan á innrásaraf mælinu:
Felldu tuttugu
sovéska hermenn
Afganskir skæruliðar felldu yfír 20
sovéska hermenn í Kabúl, höfuðborg
Afganistan, á fimmtudaginn, annan
dag jóla, í umfangsmikilli eldflauga-
árás á borgina.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Kabúl hafa staðfest að árásin hafi
átt sér stað.
Aðalskotmörk skæruliðanna voru
fimm, víðs vegar um borgina, þar á
meðal Darulawan herstöðin, aðal-
herstöð Sovétmanna í borginni. Stóð
árásin yfir í þrjá tíma.
Árásin átti sér stað á sama degi
og Sovétmenn og afganskir leppar
þeirra héldu upp á 6 ára byltingaraf-
mæli afganska kommúnistaflokksins
og 6 ára veru Sovétmanna í landinu.
Skæruliðar héldu einnig uppi hörð-
um ‘ árásum á afganska stjórnar-
hermenn á pakistönsku landamær-
unum og felldu þeir þar, að eigin
sögn, yfir 50 stjórnarhermenn.
Afganskir skæruliðar héldu upp á sex ára innrásarafmæli Sovétmanna með umfangsmikilli eldflaugaárás á
skotmörk í Kabúl. í árásinni felldu þeir yfir 20 Sovétmenn.
SONUR BHUTTOS
DÆMDUR í HEGN-
INGARVINNU
Sprengdu
neðanjarðar
Bandaríska orkumálaráðuneytið
tilkynnti um neðanjarðarkjarnorku-
vopnatilraunir hersins á tilrauna-
svæði í Nevadaríki á laugardag.
Að sögn talsmanns ráðuneytisins
var styrkur tilraunarinnar alls 150
kílótonn eða sem svarar 150 þúsund
tonnum af TNT sprengiefni.
Hér er um að ræða 16. tilraun
Bandaríkjamanna með kjarnorku-
vopn neðanjarðar á árinu.
Sovétmenn lýstu því yfir í sumar
að þeir myndu ekki láta fara fram
frekari tilraunir með kjarnorkuvopn
neðanjarðar á árinu og skoruðu á
Bandaríkjamenn að gera slíkt hið
sama.
Stjórn Reagans vísaði tillögu Sov-
étmanna á bug sem áróðursbragði.
Herdómstóll í Pakistan hefurdæmt
son Ali heitins Bhuttos, fyrrum for-
sætisráðherra landsins, í fjórtán ára
þrælkunarvinnu. Sjálfur var hann
ekki við því að hann dvelst í útlegð
í Damaskus í Sýrlandi.
Murtaza Bhutto var í hópi 37
stjórnarandstæðinga sem dæmdir
voru fyrir að beita ofbeldi til þess
að útbreiða pólitískar skoðanir sínar
en dómarnir gengu að þeim öllum
fjarverandi.
Murtaza stofnaði ásamt yngri
bróður sínum, Shahnawaz, skæru-
liðasamtökin Alk-Zulfikar og stóðu
þau meðal annars að flugvélaráni
1981 sem endaði í Kabul í Afghanist-
an. - Shahnawaz fannst látinn í júlí
í sumar í íbúð sinni i Cannes í
Frakklandi en í ljós kom að bana-
meinið var afar sjaldgæft eitur þótt
rannsókn hafi ekki enn leitt i ljós
hvernig dauða hans hefur að öðru
leyti borið að höndum.
Ali Bhutto átti fjögur börn. Dóttir
hans, Benazir, er leiðtogi Alþýðu-
flokks Pakistans en hin hafa ekki
tekið þátt í stjórnmálastarfi.
Palestinskir hryðjuverkamenn í æfingabúðurn.
Allir leita
Abu Nidaís
— en Gaddafi hefur skotiö skjólshúsi
yfirhanníLíbýu
Abu Nidal, hinn róttæki leiðtogi
skæruliða Palestínuaraba, sem
orðaður hefur verið við árásirnar
í flughöfnum Vínar og Rómar núna
eftir jól, hefur lengi verið eftirlýst-
ur vegna hryðjuverka.
Einn hryðjuverkamannanna frá
Róm sagði yfirvöldum að hann til-
heyrði sjálfsmorðssveit á vegum
skæruliðasamtaka Nidals og að í
bígerð væru fleiri hryðjuverkaár-
ásir í Evrópu. - Það voru samtök
Abu Nidals sem lýstu á hendur sér
sprengjutilræðinu í afgreiðslu ísra-
elska fiugfélagsins E1 A1 í Amster-
dam í október síðasta þar sem
engan sakaði þó. En átján létu lífið
og yfir hundrað særðust í árásunun
í Vín og Róm á föstudagsmorgun.
Klauf sig frá Al Fatah
Abu Nidal, sem heitir réttu nafni
Sabri Al-Banna (hitt þýðir „Faðir
baráttunnar"), klauf sig út úr A1
Fatah-skæruliðasamtökum Arafats
1974 og stofnaði eigin samtök
(Fatah byltingarráðið) sem höfðu
aðalbækistöðvar sínar fyrst í
Bagdad og síðar í Sýrlandi. Nú er
talið að hann haldi sig í Líbýu.
Menn halda að hann hafi lagt á
ráðin um ránið á egypsku farþega-
þotunni sem lenti á Möltu í síðasta
mánuði en það flugrán kostaði 60
mannslíf. Samtök hans eignuðu sér
skotárásina á sendiherra ísraels í
London 1982 sem leiddi síðan til
innrásar Israels í Líbanon.
Sá kvittur komst. á kreik í fyrra
að Abu Nidal hefði dáið af hjarta-
slagi en í nóvember birtist hann í
Trípólí þar sem fréttist af honum á
fundi með Gaddafi ofursta, leiðtoga
Líbýu.
Myrða hófsama PLO-menn
Hann var aðalfulltrúi PLO í
Bagdad þar til honum var vikið úr
þjóðfrelsishreyfingunni og hann
dæmdur til dauða fyrir samsæri um
að ráða Arafat af dögum. Hann
hefur eindregið verið andsnúinn
friðarsamningum í Austurlöndum
nær og er talið að hryðjuverka
menn hans hafi ráðið bana ýmsum
fulltrúum PLO í London, París,
Brussel, Madrid og Róm á síðasta
áratug. - Sjálfur hefur Nidal í við-
tali við blað eitt í Kuwait sagt að
hann hafi margsinnis hafnað kröf-
um um að drepa Arafat.
Nidal hefur sakað stjórnir ýmissa
arabaríkja um að styðja ekki mál
stað Palestínuaraba nema rétt
orði kveðnu og Fatah og aðrar
skæruliðadeildir innan PLO hefur
hann sakað um að „villast út af
by ltingarbrautinni".
Myröir kaupanauta sina
Tólf hryðjuverkamanna hans
bíða réttarhalda í Tyrklandi fyrir
morð á jórdönskum diplómat
Ankara í júlí síðasta sumar. Þrír
voru handteknir í Jórdaníu í síð-
asta mánuði fyrir morð á arab
ískum kaupsýslumanni sem sagður
var hafa orðið saupsáttur við Nidal
út af einhverjum viðskiptum. Sam-
tök Nidals eru sögð hafa staðið að
morðinu á palestínskum lögfræð-
ingi á vesturbakka Jórdanár
desember síðasta.
Nidal er fæddur í Jaffa 1943 og
var faðir hans áhrifamaður meðal
araba en íjölskyldan var í hópi um
100 þúsund Palestínuaraba sem
hröktust burt í sjálfstæðisstyrjöld
gyðinga og araba 1948.
íranirtóku
danskt
flutningaskip
Herskip frá íran stöðvaði á Oman-
flóa í fyrradag danskt skip, Horne-
land, sem meðal annars hafði um
borð 60 smálestir af sprengiefni er
fara átti til íraks. Horneland var
látið sigla til hafnar í íran þar sem
hald var lagt á þennan farm.
Horneland er þriðja danska skipið
sem írönsk yfirvöld stöðva á siglingu
þarna eystra síðan Persaflóastríðið
braust út en alls hafa þau síðan í
ágúst stöðvað þrettán erlend flutn-
ingaskip til að skoða farminn.
írönsk yfirvöld hafa ekki látið uppi
til hvaða hafnar Horneland var látið
sigla og ekkert hefur spurst af áhöfn-
inni ennþá þótt íranir kannist við
að skipið sé á þeirra valdi.
Sífellt íjölgar í fjölskyldu pólska verkalýðsleiðtogans Lech Walesa.
Á laugardaginn fæddist Walesa-hjónunum áttunda barnið, myndar-
legt stúlkubarn.
Ennfjölgarhjá
Lech Walesa
Lech Walesa, leiðtogi hinnar bönn-
uðu „Einingar", og eiginkona hanS;
Danuta, hafa nú eignast áttunda
barnið. Er það meybarn eins og sjö-
unda barnið sem Danuta átti 1982 á
meðan Walesa var í haldi.
„Ef hún kemur til með að líkjast
föður sínum eitthvað þá verður þetta
lagleg stúlka," sagði Lech Walesa,
drjúgur með sig, við blaðamenn á
laugardag.
Þau hjónin eiga nú fjóra svni og
fjórar dætur. - „Eg vildi gjarnan láta
þar staðar numið,“ sagði Walesa.
íran lokarKarq
íran ætlar að loka Karqeyju og
hætta að nota hana fyrir olíuútskip-
unarhöfn vegna stöðugra loft- og
eldflaugaárása íraka á hana. - Á
Karqeyju var stærsta olíuhreinsun
og útskipun olíuiðnaðar írans.
Síðan Persaflóastríðið braust út
hafa íranir byggt sér nýja hafnarað-
stöðu í Ganaveh um 25 nmílur norð-
austur af Karq og verður hún nú
tekin í gagnið og sömuleiðis verður
útskipun í hafnarbænum Jask, rétt
utan við Hermez-sund. Þriðja olíuút-
skipunarhöfnin er enn í byggingu.
Frá því í miðjan ágúst hafa Irakar
gert 59 árásir á Karqeyju og hafa
valdið miklu tjóni á mannvirkjum,
sem hefur orðið til þess að draga
mjög úr olíuútflutningi írans.
Verkfall lækna
Að minnsta kosti 25 sjúklingar á
sjúkrahúsum í Bangladesh hafa
andast síðan læknar landsins hófu
verkfall sitt fyrir viku. Aðallega
sjúklingar skólasjúkrahússins í
Rangpur sem þjást af nýrna- og lifr-
arsjúkdómum.
Sjúkraliðar og hjúkrunarfræðing-
ar annast sjúklingana á sjúkrahús-
um landsins á meðan læknarnir eru
í verkfallinu. Alls taka þátt í verk-
fallinu 40 þúsund læknar, verkfræð-
ingar og búnaðarfræðingar.