Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 11
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. 11 HVAÐ ER MINNISSTÆÐAST FRA ARINU SEM ER AÐ LIÐA? Sif Sigfúsdóttir Fyrirsætu- störf í París „Mér er óneitanlega minnisstæðast þegar ég var kosin ungfrú Norðurl- önd í Helsinki nú í haust,“ sagði Sif Sigfúsdóttir er DV spurði hana hvað henni væri minnisstæðast frá árinu sem er að líða. Hún hefur dvalið erlendis mikinn hluta ársins, nú síðast í Finnlandi og í París. „Ég fer aftur út núna fljótlega eftir áramótin. Ég fer fyrst til Finnlands, þar sem ég vinn smátíma, og svo til Parísar þar sem ég hef fengið samn- ing sem ljósmyndafyrirsæta,“ sagði Sif. „Þetta er allt búið að vera æðislega skemmtilegt og spennandi og ég er mjög hamingjusöm," sagði Sif Sig- fúsdóttir, ungfrú Norðurlönd. Þess má geta að Sif varð númer 3 í keppn- inni um titilinn ungfrú ísland í vor semleið. -A.Bj. Helgi Pétursson Úr rólegu og notalegu starfi í ritstjórastól áNT „Mér er efst í huga sú ákvörðun að fara úr rólegu og notalegu starfi í ritstjórastjól hér á NT með þeim slagsmálum við peningavandamál sem því fylgja," svaraði Helgi Pét- ursson, ritstjóri NT, er hann var inntur eftir eftirminnilegasta atburði ársins hvað hann snertir. Hvað væntingar næsta árs varðar sagðist hann vonast til að það takist að sameina vinstri dagblöðin. „Verði sú sameining ofan á tel ég að hún muni þá valda straumhvörf- um í íslenskri blaðamennsku og jafn- vel í stjórnmálum í landinu," sagði Helgi. „Ég mun svo hafa tækifæri til að fylgjast með úr návígi breytingum í fjölmiðlun í landinu á næsta ári. Ég býst við að það verði athyglis- vert.“ Helgi er nýskipaður af Alþingi í útvarpsréttarnefndina. Fyrir utan fjölmiðlahugleiðingar á næsta ári sagðist Helgi Pétursson, ritstjóri NT, vonast til þess að hann kæmist í gott frí á árinu. Guðni Jóhannesson Fórnarlömb húsnæðis- og vaxta- stefnu ríkis- stjórnarinnar efst í huga „Af erlendum viðburðum eru mér efstir í huga tveir, eldgosið í Kolomb- íu og jarðskjálftarnir í Mexíkó. Þetta eru hörmungar hliðstæðar þeim er við þekktum úr okkar sögu,“ sagði Guðni Jóhannesson, formaður Bú- seta, aðspurður um minnisstæða viðburði ársins sem er að líða. „Af innlendum vettvangi eru mér efst í huga þau ótalmörgu fórn- arlömb húsnæðis- og vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar sem hafa haft samband við mig og kynnt mér að- stæður sínar eftir að ég hóf opinber afskipti af þeim málum. Á næsta ári verða borgarstjórnar- kosningar og er það von mín að sú umræða og barátta sem þá verður uppi beinist að nýrri stefnu í hús- næðismálum, bæði hvað varðar skipulag og frumkvæði að byggingu félagslegs húsnæðis," sagði Guðni Jóhannsson, formaður Búseta, um væntingar næsta árs. Frlðrik Pálsson Árið verið okkur hagstætt „Árið, sem er að kveðja, hefur að mörgu leyti verið okkur Islendingum hagstætt til lands og sjávar þó við höfum sjálfir komið okkur í margs konar vanda sem okkur reynist erfitt að leysa. Batnandi skilyrði í sjónum og aukinn afli hlýtur að auka mönnum bjartsýni. Ég geng til nýs starfs eftir áramótin éftir tólf ára skemmtilegan tíma með saltfiskframleiðendum. Ég kveð gamla starfið að sjálfsögðu með söknuði en nýja starfið leggst líka vel i mig,“ sagði Friðrik Pálsson, nýráðinn forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Eðvarð Ingólfsson Fékk mér dökkar gardínur Eðvarð Ingólfsson skrifaði og gaf út tvær bækur á árinu 1985. Sextán ára í sambúð varð metsölubókin í ár - seldist í rúmlega 7.000 eintökum. Og bókin um Reyni Pétur seldist líka vel eða í um 3.000 eintökum. „Þetta ár verður mér minnisstætt sem eitt hið annasamasta - og óvenjulegasta í mínu lífi. Ég skrifaði tvær bækur. Ég tók við ritstjórn Æskunnar. Ég gifti mig á árinu. Og við keyptum saman íbúð. Ég hef þannig kynnst mikilli vinnu - og velgengni í tengslum við hana og velgengni í einkalífinu einnig. Ég er nú ekki nema 25 ára en þetta ár er án efa hið eftirminnilegasta sem ég heflifað. I vor sem leið hafði ég ekki tekið ákvörðun um að skrifa Sextán ára í sambúð - en svo fékk ég þessa flugu í höfuðið. Ég var með söguþráðinn fyrirfram ákveðinn, keypti mér dökkar gardínur, dró fyrir sólina - ég held að sumarið sem leið hafi verið einkar sólríkt og heitt - og sat við allan júlí og ágúst og skrifaði bókina. Þegar ég leit upp frá því verki þurfti ég svo að skrifa aðra bók, bókina um Reyni Pétur. Á stundum vann ég 17 eða 18 tíma i lotu, lokaði mig frá öllu öðru. Enda fór það svo að ég gleymdi giftingardeginum mínum. Við höfðum ákveðið að gifta okkur 20. september klukkan 14. Og ég ákvað að fara þann dag upp í Borgar- nes á bókaþing. Ég skrifaði í vasa- bókina mína: 20. september kl. 14 - Bókaþing. Konan mín minnti mig á að þarna átti fremur að standa: Gifting í Áskirkju. Og svo giftum við okkur. Árið hefur svo sannarlega verið annasamt. Við gerðum andlitslyft- ingu á Æskunni og það var tímafrekt verk sem fór fram fyrrihluta ársins. Auk starfanna þar og starfanna við bækumar þá var ég með tvo útvarps- þætti, einn á Rás 1 og annan á Rás 2.“ -GG Kjartan Ragnarsson Ráðlaus stjórn og fálmkennd andstaða „Mér er efst í huga átakið í sam- bandi við að koma sýningunni Land míns föður á svið hér í Iðnó. Allt árið 1985 var helgað þessari sýningu. Skömmu fyrir síðustu áramót var tekin ákvörðun um að ráðast í þetta verkefni. Og þegar sú ákvörðun var tekin þurfti að fara ofan í öll smáat- riðin. Fjárhagshliðin var auðvitað stærsti höfuðverkurinn. Ég var svo heppinn að fótbrotna um páskaleytið þannig að ég hafði afsökun fyrir því að halda kyrru fyrir og hugsa málið. Þann 20. maí hófust svo æfingar við Land míns föður og síðan hefur maður verið á káfi í öllu sem tengist sýningunni. Við gáfum okkur þó tíma til að taka okkur stutt sumarleyfi. Við fórum á Bláfellsháls og riðum þaðan til byggða. Og vorum viku á Búðum á Snæfellsnesi. Þegar ég lít yfir árið og reyni að horfa framhjá Land míns föður, þá finnst mér einna ánægjulegast hversu mikið hefur verið gert í nýja Borgarleikhúsinu. Og um leið og ég hugsa til þess. - og framtíðarinnar þá geri ég mér ljóst að það eru blikur á lofti. Ungir sjálfstæðismenn halda því fram að framlög til lista og menningarmála eigi að skera niður - og það stórlega. Hin harkalega peningapólitík er að ríða hér öllu á slig. Mér finnst ríkisstjórnin ráðalítil og stjórnarandstaðan fálmkennd í aðhaldi sínu. En veðrið í vetur hefur verið gott - og haldið bjartsýninni við líf. Þórarinn V. Þórarinsson, aöstoðarframkvæmda- stjóri VSÍ Ábyrgir kjarasamn- ingar „Það sem mér er efst í huga frá starfsvettvangi mínum á árinu er tvennt: kjarasamningar ASÍ og VSÍ í júnímánuði og lækkun á gengi bandaríkjadollars, sem valdið hefur okkur miklum búsifjum," sagði Þór- arinn V. Þórarinsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri VSÍ. „Kjarasamningar voru gerðir á grundvelli tilboðs VSÍ rúmum tveim- ur mánuðum áður en samningar gátu fyrst orðið lausir og án þess að aðilar vinnumarkaðarins gætu beitt hvor annan þvingunum af neinu tagi. Þetta gerir kröfu til ábyrgari vinnu- bragða því að það er miklu auðveld- ara að gera vitlausa samninga undir verkfallspressu." sagði Þórarinn. VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 30, REYKJAVÍK. SÍMI81240. UMSOKNIR Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 108 tveggja til fjögurra herbergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafarvogi í Reykjavík. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um ca 100 eldri íbúðir sem koma til endursölu síðari hluta árs 1986 og fyrri hluta árs 1987. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúa gilda lög nr. 60/1984. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B., Suðurlandsbraut, frá mánudegin- um 6. jan. og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 9-12 og 13-16. UmsÓknum skal skila eigi síðar en 7. febr. 1 986. Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.