Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 19
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
19
HVAÐ ER MINNISSTÆÐAST FRÁ ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA?
Sigurður Guðmundsson
Mannfegurð
og bersvæði
landsins
„Flutningur til íslands er mér
minnistæðast á árinu og þær breyt-
ingar sem hér hafa orðið á mörgum
sviðum mannlífs til hins betra.
Menningarlífið er blómlegra, sam-
skiptin frjálslegri og veitingastaðir
fleiri. Það er gaman að koma heim
eftir 7 ára fjarvist. Það sló mig hve
Islendingar eru glæsilegir og landið
er bert og hrjóstrugt," sagði Sigurður
Guðmundsson læknir.
„Framtíðin í mínu starfi er fólgin
í því að rannsaka og vinna við eyðni-
sjúkdóminn. Framtíðin er ekki björt
því þessi faraldur á eftir að breiðast
út á íslandi eins og annars staðar í
Evrópu. Þetta mun kosta aukinn
ótta og mæðu meðal fólks og aukin
peningaútlát af hálfu ríkisins,"
sagði Sigurður. - KB
Jón Baldvin Hannibalsson
Fundaher-
ferðin
minnisstæð-
ust
„Mér er vafalaust minnisstæðust
fundaherferðin mikla hjá okkur, í
allt 100 fundir frá árslokum 84 til
vors ’85. Ég spái því að þetta funda-
met standi öldina. Sem stjórnmála-
manni var mér þetta ómetanleg
reynsla," sagði Jón Baldvin Hannib-
alsson, formaður Alþýðuflokksins.
„Á næsta ári geri ég mér vonir um
að hitastig sjávar og lífsskilyrði
haldist með besta móti. Það gæti
þýtt að góður sjávarafli bætti upp
lélegt stjórnarfar og jafnvel afsannað
þráhyggju kvótasinna," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson. - KÞ
Magnús Axelsson
Stórkost-
legur sigur
„Hvað útvarp snertir, þá var það
stórkostlegur sigur fyrir okkur
áhugamenn um frjálsan útvarps-
rekstur að ný útvarpslög hafi verið
samþykkt á Alþingi. Það verður
mikið til bóta fyrir almenning í
landinu að nýjar úrvarpsstöðvar taki
til starfa. Nú þegar er stórt gat í
sambandi við ýmsar upplýsingar á
landsbyggðinni. Þrátt fyrir að ríkis-
útvarpið hafi marga frábæra starfs-
menn þá geta þeir ekki fyllt upp í
það gat. Ég sé nú fyrir mér þrjár til
fjórar útvarpsstöðvar sem geta byrj-
að að starfa fljótlega eftir áramót,“
sagði Magnús Axelsson, varafor-
maður íslenska útvarpsfélagsins.
„Með þetta í huga get ég ekki
annað en horft björtum augum fram
til ársins 1986. Það eru skemmtilegir
tímar framundan,“ sagði Magnús.
- sos
Páll Pétursson
Viðburðaríkt
ár og gott
„Þetta hefur verið viðburðarikt ár
og gott. Mér er minnisstæðastur sá
árangur sem hefur náðst í norrænu
samstarfi. Sem forseti Norðurlandar-
áðs hef ég haft mikið samband við
kollega mína á hinum Norðurlönd-
unum. Við höfum ákveðið að færa
út kvíarnar og láta meira til okkar
heyra á alþjóðavettvangi," sagði
Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
„Ég vona að næsta ár verði eins
gott. Ég vona þó að okkur gangi
betur í verðbólguslagnum og að
Framsóknarflokknum gangi vel í
bæjarstjórnarkosningunum. Ég
vænti þess að frumvarp til laga um
ríkisendurskoðun verði samþykkt.
Það myndi veita mjög mikið aðhald
í fjármálum ríkisins. Þá vona ég að
þingsályktunartillaga mín um fryst-
ingu kjarnorkuvopna nái fram að
ganga,“ sagði Páll Pétursson. - KÞ
Kristín Á. Ólafsdóttir
Vonaaðkjör
fólks batni
mikið
„Af innlendum vettvangi er mér
minnisstæðust kvennaráðstefna sem
konur í Alþýðubandalaginu gengust
fyrir í mars. Umræður voru þar mjög
frjóar og lifandi og þátttakan góð og
almenn. Það er greinilegt að konur
eru að sækja á brattann pólitískt
séð. Anpað sem kemur upp í huga
mér er Hafskipsmálið og hvernig það
mál afhjúpaði þá spillingu sem hér
ríkir og misskiptinguna í þjóðfélag-
inu. Þarna getur fólk séð hvernig
farið er með peninga í þessu þjóð-
félagi,“ sagði Kristín Á. Ólafsdóttir,
varaformaður Alþýðubandalagsins.
„Af erlendum vettvangi er mér efst
i huga sú umræða sem hefur verið
um hungrið í heiminum. Kannski
einmitt nú, þegar neyslan er í al-
gleymingi, kemur upp í hugann
hvernig þessi jarðarkúla er fjarri því
að vera eins og hún á að vera.
Á næsta ári vona ég að kjör fólks
breytist mikið frá því sem nú er.
Fólk getur ekki lengur látið bjóða
sér þau kjör sem alltof stórum hópi
launþega er boðið uppá. Ég hef trú
á þvi að farið verði í harða baráttu
á þeim vettvangi. Það getur ekki
talist eðlilegt að fjórða hver einstæð
móðir þurfi að leita á náðir Félags-
málastofnunar," sagði Kristín Á.
Ólafsdóttir. -KÞ
Helgi Ólafsson
Gæfan var
mér hliðholl
„Það má kannski segja að stór-
meistaratitillinn og ýmislegt í kring-
um hann, góðar móttökur við heim-
komuna, sé ofarlega í mínum huga
við áramót,“ sagði Helgi Ólafsson,
þriðji stórmeistari íslendinga í skák.
„Þetta skákmót í Kaupmannahöfn
var mikil orrahríð og töluverð dra-
matik síðustu mótsdagana áður en
stórmeistaratitillinn var í höfn.
Ég þurfti að taka mig ansi rækilega
á í síðustu skákunum, þurfti að vinna
tvær til þrjár síðustu skákimar til
að ná þessum titli. Það tókst nú, en
eftir mikla baráttu. Síðasta skákin
var geysilega flókin og spennandi og
auðvitað allt lagt undir. Undir slík-
um kringumstæðum verða oft mjög
vitlausar skákir og allt getur gerst.
Gæfan var mér svona frekar hlið-
holl,“ sagði Helgi um síðustu móts-
dagana i mars síðastliðnum áður en
stórmeistaratitlinum var náð.
Af innlendum atburðum kvað
Helgi Hafskipsmálið óneitanlega
vera nokkuð ofarlega í huga og þá
umfjöllun sem verið hefur um þau
málifjölmiðlum.
„Það sem snert hefur mína fjöl-
skyldu mest er sennilega Hafskips-
málið.
Faðir minn er einn bankastjóra
Útvegsbankans og tengist þvi um-
fjöllun þeirra mála.
Mér hafa komið illilega á óvart
niðskrif fulltrúa Alþýðubandalags-
ins, hver á fætur öðrum, og reyndar
annarra flokka um þessi mál.“
Sigurður Helgason
Vongóður
um gott ár
fyrir Flug-
leiðir
„Mér er að sjálfsögðu minnisstætt
er ég í byrjun árs tók við forstjóra-
stöðunni hjá Flugleiðum.
En af innlendum vettvangi kemur
annars fyrst upp í hugann þegar
starfsmenn Flugleiða keyptu hluta-
bréf ríkisins í félaginu.
Af erlendum atburðum minnist ég
helst fundar Reagans og Gorbatsjovs
í Sviss. Þó ef til vill hafi ekki komið
mikið út úr þeim fundi þá er skoðun
mín sú að hann stuðli að friði í heim-
inum.
Ég er töluvert vongóður um gott
ár fyrir Flugleiðir en þó er margt sem
við þurfum að varast og sigrast á,
t.d. er geysimikil samkeppni á N-At-
lantshafsleiðinni. En vegna hins
ágæta starfsfólks Flugleiða hef ég trú
á að við munum standa okkur.“
Albert Guðmundsson
Hafskips-
málið
skemmdi
fyrir mér
jólin
„Af árinu sem er að líða er mér
minnisstæðast gjaldþrot Hafskips,
enda skemmdi það mál fyrir mér
jólin. Það er í fyrsta skipti á ævi
minni sem ég nýt ekki jólanna sem
skyldi," sagði Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra.
„Þetta mál er mér það ofarlega í
minni að ég man ekki eftir neinu
öðru. Á næsta ári vona ég að bjartara
verði yfir og ekkert annað mál þessu
líkt komi upp til að slá skugga yfir
landsmenn,“ sagði Albert Guð-
mundsson. - KÞ
Svavar Gestsson
Okurmálin
og
gjaldþrotin
hrikaleg
„Undirbúningur, aðdragandi og
niðurstaða landsfundar Alþýðu-
bandalagsins er mér einna minnis-
stæðast af árinu sem nú er að líða.
Ég tel að landsfundurinn marki
ákveðin kaflaskil í íslenskum stjórn-
málum. Flokkurinn er sterkari en
áður eins og þegar hefur komið fram
með ýmsum hætti að undanförnu.
Framan af árinu ríkti svartsýni og
þróttleysi með baráttu verkalýðsins
gegn stjórnarstefnunni. Nú er unnt
að breyta þvi með þeim áherslum sem
Alþýðubandalagið lagði grundvöll
að á sínum landsfundi," sagði Svavar
Gestsson, formaður' Alþýðubanda-
lagsins.
„Þá er mér mjög ofarlega í huga
þau hrikalegu okurmál, sem gnæfa
upp úr, svo og gjaldþrot Hafskips og
fleiri fyrirtækja er hafa flokkast
undir gælufyrirtæki Sjálfstæðis-
flokksins, ýmist gjaldþrota eða hafa
sagt sig á sveitina, eins og ísbjörn-
inn. Þenslan hjá milliliðunum er
óeðlileg á meðan fólkið og fram-
leiðslan berst í bökkum.
Á næsta ári vona ég að niðurstaða
sveitarstjómarkosninganna verði
stjórnarflokkunum refsing og marki
þannig kaflaskil i íslenskum stjórn-
málum eftir myrkur hægri stefnunn-
ar nú í nokkur misseri,“ sagði Svavar
Gestsson. . KÞ
Steingrímur
Hermannsson
Vonandi fer
verðbólgan
niður á við
„Mér er minnisstæðastur fundur-
inn í Brussel með Bandaríkjaforseta
og öðrum forsætisráðherrum Atl
antshafsbandalagsríkjanna. Þar
ríkti mikil bjartsýni og menn voru
tilbúnir að leggja ýmislegt á sig til
að jafnvægi næðist í heiminum,"
sagði Steingrimur Hermannsson for-
sætisráðherra.
„Af innlendum vettvangi er af
mörgu af taka en ætli mér sé ekki
efst í huga viðureignin við verð-
bólguna. Þar hefur okkur ekki geng-
ið nógu vel en vonandi tekst betur
til á næsta ári. Ég vona að okkur
takist að þoka verðbólgunni niður á
við á komandi ári. Ég er bjartsýnn á
það. Einnig vænti ég þess að þolan-
legir kjarasamningar náist, bæði til
handa launþegum og vinnuveitend-
um. Ég vona að þeir samningar verði
frekar í líkingu við þá sem gerðir
voru í febrúar 84 en haustið sama
ár,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son. - KÞ
Jóhannes Gunnarsson
Öryggismál
neytenda í
brennidepli
á árinu
„Á því ári sem nú er að líða hafa
Neytendasamtökin hugað mjög að
málum sem snerta öryggi neytenda.
Má þar nefna endurskinsmerki og
upplýsingar á íslensku á umbúðir
efna sem innihalda eiturefni eða
önnur hættuleg efni,“ sagði Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, er DV spurði hann um
minnisstæðustu atburði ársins sem
er að líða.
„Gæðakönnun Neytendasamtak-
anna á endurskinsmerkjum á sl.
sumri hefur gerbreytt gæðum þess-
ara merkja til hins betra og settar
hafa verið reglur um ítarlegar upp-
lýsingar á umbúðir þeiiTar vöru sem
inniheldur eiturefni.
En mikið vantar þó á að farið sé
eftir þessum reglum og er það verð-
ugt verkefni framleiðenda og dreif-
ingaraðila að koma þessum sjálf-
sagða hlut í lag á nýja árinu,“ sagði
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. -A.Bj.