Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Blaðsíða 18
18 DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985. HVAÐ ER MINNISSTÆÐAST FRA ARINU SEM ER AÐ LIÐA? Ásmundur Stefánsson Vonbrigði „Framþróun á árinu sem er að líða hefur trúlega verið flestum von- brigði,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands. „Það hefur ekki tekist að auka kaupmátt. Það hefur ekki tekist að minnka verðbólgu. Þó að ekki hafí verið neitt almennt atvinnuleysi þá sýnist óvissa um framtíðina vera mikil því að almenn atvinnuuppbygging hefur ekki verið stórstíg. Stefnt er að nýjum kjarasamning- um eins fljótt eftir áramót og unnt er. Aðalkrafan er hækkun kaup- máttar, í fyrsta áfanga um átta pró- sent. Aukinn kaupmáttur er grund- vallarforsenda fyrir þjóðfélagið ef ekki á að koma til landflótta. Mikil brotalöm er í rekstri 'hér á landi. Tryggja þarf að fjárfestingar nýtist betur og að fyrirtækjum sé betur stjórnað," sagði Ásmundur. Björn Ólafsson Málin sett í hakkavél „Mér er minnisstæðast hversu miklar undirtektir við fengum þegar við vöktum athygli á vanda þeirra sem standa í húsbyggingum og húsa- kaupum. Og síðan hvernig stjórnvöld hafa smám saman klúðrað húsnæðis- málunum. 'Þau hafa verið sett i hakkavél og möluð niður í nefndum og ráðum. Árangurinn hefur síðan verið eitthvað sem enginn skilur neitt í,“ sagði Björn Ólafsson, sem hefur látið að sér kveða í svokölluð- um Sigtúnshópi. „Á næsta ári vonast ég til að menn setjist endanlega niður og leysi þessi húsnæðismál á raunhæfan hátt. Og að þeir beiti sér að einhverju öðru en að kenna hver öðrum um þann vanda sem húsbyggjendur eiga við aðetja." - APH Sigmundur Guðbjarnason Bókvitið verður í askana látið „Eitt er mér minnisstæðara öðru fremur, en það er úthlutun 50 milljón króna á vegum Rannsóknaráðs ríkis- ins,“ sagði Sigmundur Guðbjarna- son, sem á gamla árinu settist í sæti rektors Háskóla Islands. „Þessum fimmtíu milljón krónum var úthlutað til rannsóknar á þróun- arverkefni í þeim tilgangi að styrkja undirstöðu að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Fjöldi ágætra umsókna sýnir að íslensk rannsóknarstarfsemi er vaxandi og þróttmeiri en margir telja. Geta Islendingar verið bjart- sýnir á framtíðina ef þeir hlúa að slíkum vaxtarsprotum og virkja bæði hug og hönd. Okkur lærist seint að bókvitið verður í askana látið - að minnsta kosti nú á tímum. Er því brýnt að efla menntun og þekkingaröflun og ekki síst hagnýtingu þekkingar í þágu atvinnulífs í landinu." -GP Valgerður Bjarnadóttir Ekkert sér- stakt minnis- stætt „Mér er,ekkert sérstakt minnis- stætt úr þjóðlífinu á þessu ári. Það hefur sýnt sig að pólitíkin heldur áfram í sama farinu og ekkert breyt- ist. Sú ríkisstjórn, sem situr nú, er bara framhald á 15 ára gömlu ævin- týri. Þær vonir sem bundnar voru við breytingarnar á ríkisstjórninni eru orðnar að engu, m.a. vegna þess að Þorsteinn Páísson er af gamla skólanum. Ég get heldur ekki séð að breytingar verði í stjórnmálalífinu á næstu 5 til 10 árum,“ sagði Valgerður Bjamadóttir, fyírverandi varafor- maður landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna. „ Þetta ár hefur reyndar verið skemmtilegt fyrir mig og ég vona að það næsta verði það líka. Pólitíkin mun sulla áfram og verðbólgan verð- ur komin upþ í 50 prósent á miðju ári. Það er alveg sama hvað hag- fræðingar og aðrir sérfróðir menn ræða um þessi mál, það verða engar breytingar." - -APH Böðvar Bragason Jöfn skipting á jarðar- gæðunum „Mér er afar margt minnisstætt frá þessu ári og er ekki reiðubúinn til að gera upp á milli þeirra atburða,“ sagði Böðvar Bragason, nýskipaður lögreglustjóri í Reykjavík. „Á næsta ári vildi ég sjá aukið samstarf á alþjóðavettvangi. Ég hef áhuga á að jarðargæðum verði skipt niður á réttlátan hátt. Þá á ég við misskiptinguna á milli suður- og norðurhluta jarðar. Ef ekki verða breytingar á þessu sviði er ekki hægt að gera sér vonir um varanlegan frið í heiminum. Ég tel að lausn á þessum vanda sé miklu mikilvægari en t.d. lausn á deilum stórveldanna." APH Guðmundur Einarsson Tutu einstakur ræðumaður „Af erlendum vettvangi er mér minnisstæðast að hafa hlustað á Desmond Tutu á þingi Sameinuðu þjóðannna í haust þar sem hann flutti magnaða ræðu um málefni Suður-Afríku. Hann er einstakur ræðumaður og það að vera prestur og stjórnmálamaður virðist nýtast honum vel. Af innlendum vettvangi er mér í fersku minni málefni Hafskips og Útvegsbankans. Það var margt sem upplýstist í því máli. Þar var af- hjúpuð sú pólitíska samtrygging í peningakerfinu og að menn í íslensk- um stjórnmálum skulu ekki vera ábyrgir gerða sinna. Það var maka- laus jólagjöf sem gömlu flokkarnir gáfu þjóðinni þegar þeir endurkusu bankaráð Otvegsbankans. Allt tal um endurskipulagningu bankakerf- isins hvarf i einu vetfangi með þess- ari kosningu," sagði Guðmundur Einarsson, formaður Bandalags jafn- aðarmanna. „Á nýju ári lít ég björtum augum á að BJ mun leggja fram nýja pólitík um möguleika og framtíð fólksins í landinu. Við ætlum að sýna fólkinu hvernig samfélag við viljum sjá hér á landi í framtíðinni fyrir börnin.“ Þórir Oddsson Annasamt ár hjá Rann- sóknarlög- reglunni „Þetta hefur verið annasamt ár hjá Rannsóknarlögreglunni. Upp hafa komið stór mál, s.s. okurmálið. Að því leyti er þetta ár sérstakt. Á dagblöðunum hefur skort skilning á störfum Rannsóknarlögreglunnar sem byggist auðvitað á hagsmunaá- rekstrum, blöðin vilja fréttir en geta um leið eyðilagt fyrir okkur fram- gang rannsókna í einstaka málum,“ sagði Þórir Oddson vararannsóknar- lögreglustjóri. „Hjá mér verða ekki stórfelldar breytingar. Rannsóknarlögreglan heldur áfram með svipuðu sniði. Norska skýrslan um breytingar á uppbyggingu lögreglunnar í landinu, sem birtist fyrir skömmu, getur auð- vitað skipt sköpum fyrir okkur ef henni verður sinnt,“ sagði Þórir Oddsson. - KB Sólveig Ólafsdóttir Verkefnin eru ærin fyrir konur „Árið 1985 hefur í mörgu tilliti verið mjög viðburðaríkt," sagði Sól- veig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands ísl. auglýsingastofa, um árið semer að líða. „Þegar ég rifja upp atburði ársins fer ekki hjá því að upp í hugann komi það sem tók mjög mikið af frít- íma mínum á árinu, en það voru störf í framkvæmda- nefnd 85-nefndar í lok kvennaára- tugar Sameinuðu þjóðanna. Nægir þar að nefna viðburði eins og útgáfu bókarinnar KONUR-HVAÐ NÚ, Listahátið kvenna, Kvennasmiðj- una, útifundinn á Lækjartorgi 24. október og atburði tengda þeim degi þegar forseti íslands sýndi stuðning sinn við íslenskar konur á eftir- minnilegan hátt. í tengslum við þetta vænti ég þess að konur láti nú hend- ur standa fram úr ermum á komandi ári og fylgi málum sínum eftir af krafti. Verkefnin eru ærin,“sagði Sólveig Ólafsdóttir. . ÞG Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Kraftur kvenna á árinu „Það tókst að endurvekja stemmn- inguna nú í haust sem ríkti á kvenn- afrídeginum 24. okt. 1975. Konur sýndu á þessu ári hversu gífurlegum krafti þær búa yfir. Það sem gerðist á Alþingi íslendinga aðfaranótt 24. okt. í ár, þegar lög um verkfallsbann í kjaradeilu flugfreyja voru keyrð í gegnum þingið, sýnir glögglega það skilningsleysi sem ríkir í garð kvenna sem launþega. Ákvörðun Vigdisar Finnbogadóttur forseta um að fresta undirskrift laganna er sögulegur atburður," sagði Sigríður Dúna alþingismaður. „Réttinda- og launamál kvenna er meðal brýnustu mála næsta árs á landsvísu. Á heimsvísu eru afvopnun og þróunarmál fyrst á dagskrá,“ sagði Sigríður Dúna ennfremur. KB Kristófer Már Kristinsson Árið sem ég var í pólitík „Þetta hefur verið nokkuð við- burðaríkt ár miðað við þau 37 ár sem ég hef lagt að baki, bæði í pólitík og prívatlífi. Mér er minnisstæður landsfundur BJ í byrjun þessa árs og það starf sem unnið var eftir hann og einnig hversu auðvelt reyndist að eyðileggja það. Ég mun líklega minnast þessa árs sem ársins sem ég var í pólitík. Ég er ekki eins bjartsýnn á að pólitík geti breytt þjóðfélaginu eins og ég var í upphafi þessa árs. Mér sýnist ekki að Bandalag jafnaðar- manna geti í nánustu framtíð orðið það afl sem geti rótað upp í íslensku stjórnmálalífi," sagði Kristófer Már Kristinsson, fyrrverandi formaður landsnefndar BJ. „Annars er ég hress og bjartsýnn á komandi ári. Ég ætla nú að taka mér fyrir hendur það sem ég hef áhuga á að gera. Fyrstu dagana á þessu ári ætla ég að nota til að leita mér að skemmtilegri vinnu." - APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.