Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 24
24
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
Iþróttir
„Urslitin
ráðast á HM”
— sagði Þorgils Óttar
„Það var þreyta í liðinu. Við
lékum án Atla, Alfreðs og Páls
og því var alltaf keyrt á sömu
mönnum. Það hefði verið
skemmtilegra að standa sig vel
hérna í kvöld, sérstaklega vegna
þess að stuðningur áhorfenda var
svona góður,“ sagði Þorgils Óttar
Mathiesen.
Þetta er náttúrlega ekki leikur sem
skiptir neinu höfuðmáli. Úrslitin
ráðast á HM og þá höfum við allan
mannskapinn," sagði Þorgils. fros
„Vorum með
of fáa menn”
— sagði Þorbjöm
Jensson landsliðsfyrirliði
„Við gerðum okkur fyllilega
grein fyrir því fyrir leikinn að það
var annað hvort að duga eða
drepast fyrir Dani í kvöld. Það
hefði verið hrikaiegt fyrir þjálfara
þeirra að koma heim með tvö töp
á bakinu og eitt jafntefli gegn
Islandi sem alltaf hefur verið tal-
að um sem b-þjóð,“sagði Þor-
björn Jensson landsliðsfyrirliði
eftir leikinn í gærkvöldi.
Það sem réð þó mestu um úrslitin
í þessum leik var hvað við vorum
með fáa menn. Það var gífurleg
keyrsla á Kristjáni og það var eigin-
lega enginn sem gat leyst hann af.
Eg er sannfærður um það að við
getum unnið Danina í hverjum ein-
asta leik þegar við getum stillt upp
okkar sterkasta liði. Vendipunktur-
inn í leiknum var þegar Þorgils Óttar
náði boltanum en dómarinn dæmdi
boltann af okkur. Þetta atvik hafði
mjög mikið að segja því við þurftum
að skora þegar aðeins 2-3 mínútur
voru eftir. En baráttan heldur áfram
þvi fyrsti leikurinn á Baltic-Cup
verður gegn Dönum,“sagði Þorbjörn.
-fros
„Getum unnið á
góðum dögum”
sagði Kristján Arason
„Það var augljóst af leik Dan-
anna að þeir höfðu stúderað lið
okkar mjög vel. Það var spurn-
ingin um að leika maður á mann
en það olli of mikilli þreytu hjá
okkur,“ sagði Kristján Arason
eftir leikinn í gærkvöldi.
„Það að Danir náðu jafntefli við
okkur úr þessum leikjum þýðir að
við erum ennþá eitthvað á eftir. Við
getum unnið allar þessar þjóðir sem
við höfum leikið gegn að undanförnu
á góðum dögum en við þurfum ennþá
góða daga til þess þrátt fyrir miklar
framfarir á undanfömum árum.
Danir léku mun harðari vamarleik
í kvöld en í hinum tveim leikjunum
og við áttum erfiðara um vik fyrir
bragðið," sagði Kristján.
-fros
„Hlaut eitthvað
að gefa eftir”
— sagði Guðmundur
Guðmundsson
„Mér fannst þreyta einkenna
leik okkar, sérstaklega á síðustu
fimmtán mínútunum er þeir
sveifluðust fram úr okkur. Við
höfum leikið marga leiki að und-
anförnu og æft mjög stíft og það.
hlaut eitthvað að gefa eftir,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
eftir leikinn.
„Danir em með mjög sterkt lið, það
er engin spurning. Vöm liðsins er
mjög góð og mun betri en gegn þeim
dönsku liðum sem ég hef leikið gegn
áður.“
-fros
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþró
mm
BFm
m__Kmk Ij
HHmí wk
— Danir mun grímmarí en íslendingar og unnu öruggan sigur með norskri aðstoð,
17:21. Mikil þreyta ííslenska liðinu ogfjarvera lykilmanna kom berlega íljós
íslenska landsliðið í handknattleik lá í því í gærkvöldi. Danir
unnu öruggan fjögurra marka sigur í landsleik þjóðanna í Laugar-
dalshöll, 17-21, eftir að staðan i leikhléi hafði verið 8-9 Dönum i
vil. Danir voru mun grimmari en íslendingar í þessum leik og
ætluðu sér greinilega ekkert nema sigur. Sigur þeirra var þó i
stærra lagi og ef ekki hefði komið til afar hliðholl dómgæsla hefðu
Danir ekki riðið feitum hesti frá þessari viðureign og mátt þakka
fyrir að vinna sigur. Engan veginn skal þó sagt að dómararnir
hafi ráðið úrslitum en hjá því verður ekki litið að norsku dómararn-
ir dæmdu Dönum mjög í vil í mörgum tilfellum á mjög örlagaríkum
tíma í siðari hálfleik og svo var leikur íslenska liðsins heldur ekki
upp á mjög marga fiska. Svo fór sem sagt þegar upp var staðið
að hvor þjóð vann einn leik og einum lauk með jafntefli. Mjög svo
þolanleg útkoma þegar allt er tekið með í reikninginn.
lega kemur ekki í ljós fyrr en í Sviss.
Leikir landsliðsins þar skipta sköp-
Mörk íslenska liðsins: Kristján
Arason 5/2, Sigurður Gunnarsson
5/3, Guðmundur Guðmundsson
3, Júlíus Jónasson 1, Þorgils Ótt-
ar 1, Bjarni Guðmundsson 1 og
Þorbjörn Jensson 1. Islenska liðið
fékk sex víti í leiknum og nýtti
fimm þeirra, Paul Sörensen varði
eitt. Danir fengu fjögur vítaköst
og skoruðu úr öllum.
-SK.
Islenska liðið
Danir byrjuðu leikinn af miklum
krafti og komust fljótlega yfir eins
og raunar í öllum leikjunum þremur.
Michael Fenger skoraði fyrsta mark
leiksins og forustuna létu Danir ekki
af hendi það sem eftir var. Sex sinn-
um var jafnt á með liðunum en
mestum mun náðu Danirnir í lokin
þegar staðan var 16-20 og 17-21.
Það kom mjög berlega i ljós í þess-
um leik að lykilleikmenn vantaði í
íslenska liðið og þeir leikmenn sem
tekið hafa stöður þeirra Einars Þor-
varðarsonar, Atla Hilmarssonar,
Alfreðs Gíslasonar og Páls Ólafsson-
ar í leikjunum nú gegn Dönum hafa
staðið sig þokkalega en geta betur.
I leiknum í gærkvöldi vantaði sár-
lega skiptimenn. Þegar leiknir eru
þrír landsleikir á þremur dögum er
mikilvægt að hafa leikmenn á vara-
mannabekknum til að hvíla sverustu
stoðirnar. Og sérstaklega auðvitað í
þriðja leiknum. Þessar aðstæður
voru ekki fyrir hendi í gærkvöldi.
Lélegur sóknarleikur hjá is-
lenska liðinu
Ein aðalástæðan fyrir tapinu gegn
Dönum í gærkvöldi var slakur sókn-
arleikur hjá íslenska liðinu allan
leikinn. Það vantaði allan kraft í það
sem verið var að gera hverju sinni
og skipulagið var ekki upp á það
besta. Aginn lítill og oft skotið eftir
stuttar sóknir í ekki nógu góðum
færum. Þeir Sigurður Gunnarsson
og Kristján Arason náðu ekki að
sýna sínar bestu hliðar og raunar
enginn íslensku leikmannanna í
sókninni. í markinu stóð Kristján
Sigmundsson allan leikinn og varði
ekki vel, aðeins 6 skot og það þarf
einfaldlega að verja fleiri skot í
landsleik ef hann á að vinnast. Að
ósekju hefði átt að gefa Brynjari
Kvaran tækifæri en það var ekki
gert. Varnarleikurinn var eini Ijósi
punkturinn hjá íslenska liðinu í
leiknum í gærkvöldi og sú barátta
og kraftur sem sást til leikmanna
íslenska liðsins sást í vamarleiknum.
En það dugði ekki til.
Danir léku mjög fastan varnarleik
og dómarar leiksins hefðu átt að taka
mun fastar á mörgum brotum þeirra.
Og það verður að segjast eins og er
að dómarar leiksins komust illa frá
honum og leikurinn í gærkvöldi var
áberandi slakasti leikur þeirra hér á
landi að þessu sinni. Sérstaklega var
hroðalegt að sjá til þeirra um miðjan
síðari hálfleik þegar Bjarni Guð-
mundsson komst frír inn úr hominu
og var í dauðafæri þegar brotið var
mjög gróflega á honum en ekkert var
dæmt. Danir brunuðu upp völlinn
og breyttu stöðunni í 13-16. Þetta
var niðurdrepandi og ekki síður
þegar staðan var 15-17 og Þorgils
Óttar náði knettinum löglega af
einum Dananum en fékk dæmt á sig
aukakast. Tóm þvæla og ekki er það
ofsögum sagt að Danir hafi innbyrt
þennan sigur með drjúgri norskri
aðstoð.
var best í
fyrsta leiknum”
sagði Leif Mikkelsen, þjálfari Dana
„Ég tel að íslenska liðið hafi
leikið best í fyrsta leiknum. Þá
náði liðið að sýna mjög góðan
leik. Það hefur kannski haft eitt-
hvað að segja í kvöld að liðið var
búið að ná þremur stigum úr
tveimur leikjum. Það kann að
hafa ráðið því að leikmenn lögðu
sig ekki jafnmikið fram. Þessi
leikur var líklega sá slakasti af
hálfu islenska liðsins,“ sagði Leif
Mikkelsen, þjálfari Dana, eftir
leikinn i gærkvöldi.
„Ég tel að íslandsferðin hafi skilað
sínu. Að leika í þessari höll með
þessa áhorfendur er svolítið sérstakt.
Okkur líkar vel við áhorfendurna
vegna þess að þeir lifa sig vel inn í
leikinn.
Ég tel að sigur okkar nú hafi að
mestu byggst á vörninni. Útiskyttur
íslenska liðsins náðu lítið að beita
sér,“ sagði Mikkelsen.
-fros
Þolinmæðin þrautir vinnur ailar
„ísland á góða
Þrátt fyrir þennan ósigur gegn
Dönum í gærkvöldi er engin ástæða
til að stökkva upp á nef sér og leggj-
ast í þunglyndi. Þvert á móti. Næsta
verkefni hjá landsliðinu er Baltic
Cup keppnin í Danmörku en þar
mætum við Dönum í fyrsta leik. Þar
gefst tækifæri á að hefna úrslitanna
í gærkvöldi. Landsliðsmenn okkar
standa f ströngu þessa dagana, ekki
bara líkamlega heldur ekki síður
andlega. Stóra verkefnið er fram
undan í Sviss og áhangendur lands-
liðsins verða að sýna leikmönnum
og þjálfara þolinmæði út í ystu æsar.
Islenska landsliðið hefur sýnt það í
undanförnum leikjum að það stendur
framarlega í handknattleik miðað
við allan heiminn. En hversu framar-
möguleika á HM”
sagði Morten Stig Chrístiansen, fyrírliði Dana
„Island á góða möguleika á að
verða meðal sex efstu í heims-
meistarakeppninni. Liðið er mjög
gott. Margir mjög góðir leikmenn
og liðið leikur mjög sterka vörn.
Möguleikar liðsins á HM hljóta
því að vera mjög góðir,“ sagði
fyrirliði danska landsliðsins,
Morten Stig Christiansen, eftir
þriðja og síðasta leik íslendinga
og Dana.
Leikurinn í kvöld var mjög harður
en við erum mjög ánægðir með úr-
slitin og leik okkar. Fram að þessu
höfum við ekki náð að sýná okkai
rétta andlit ef undanskilinn er einn
leikur við Svía en ég held að við
höfum sannað það hér á íslandi að
við erum á réttri leið. Við áttum þó
í miklum erfiðleikum með hraðan
sóknarleik íslendinga og íslenska
liðið hafði góðan stuðning áhorfenda
á bak við sig sem gerði okkur einnig
erfitt íyrir. Við þurfum enn að bæta
margt í leik okkar en möguleikar
okkar á HM eru svipaðir og íslend-
inga ogSvía.
fros
ÁtU ekki von é að okkur
tækist ai vinna leik”
— sagði Bogdan landsliðsþjálfari eftir Danaleikina
„Þetta var enn ein æfingin fyrir
heimsmeistarakeppnina og ég get
ekki sagt að ég sé óánægður þrátt
fyrir tapið. Jafntefli í leikjunum
við Dani er náttúrlega ekki nógu
gott sé tekið mið af stöðu okkar
í dag. Það er hins vegar góður
árangur sé mið tekið af því liði
er við gátum stillt upp,“ sagði
Bogdan landsliðsþjálfari í gær-
kvöldi.
„Ég átti ekki von á því að okkur
tækist að vinna leik gegn Dönum en
það tókst á Akranesi þegar allt gekk
upp í sóknarleik okkar. í leiknum í
kvöld var það augljóst að Kristján
Arason, Sigurður Gunnnarsson og
Þorgils Óttar voru allir orðnir ör-
þreyttir. í lok þessarar átta leikja
hrinu, sem lauk í kvöld, tel ég að
besti leikurinn hafi verið síðasti leik-
urinn gegn V-Þjóðverjum.
Næsta verkefni er Baltic-Cup. Þar
lendum við í vandræðum í tveimur
fyrstu leikjunum er verða við Dani
og A-Þjóðverja vegna þess að margir
leikmanna geta ekki fengið sig lausa.
Prófraunin er HM. Ég mundi segja
að allt ofar en tíunda sæti væri mjög
góður árangur. Möguleikar okkar
eru svipaðir og Dana, V-Þjóðverja
og Spánverja,“sagði Bogdan. -fros