Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Side 29
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
29
Menning
Menning
Menning
Menning
Sundurlyndi en annars gott
Á heildina litið var hljómsveitin
góð, þótt nokkra hnökra mætti finna
á leik hennar. Voru styrkleikahlut-
foll allójöfn fyrst framan af, pákur
þrumandi sterkar í upphafssymfó-
níunni, en alvarlegast að sundur-
lyndis gætti milli strengja og blásara
og jafnvel strengja innbyrðis í fyrstu
hljómsveitarþáttunum. Þetta lagað-
ist þegar á leið en lýtti óneitanlega
vel unnið verk.
Tónleikunum lauk með samsöng
flytjendanna, Söngsveitarinnar Fil-
harmóníu og tónleikagesta og ko-
must allir í jólaskap við að syngja
saman, Um hann, sem ríkir, Sjá
himins opnast hlið og Heims um ból.
EM
Ærslafulltflug
Guömundur Björgvinsson
Næturtlug í sjöunda himni
Skáldsaga, 219 bis.
Lífsmark.
Á kápumynd svífur svartvængj-
aður maður af himnum ofan niður
í djúpið. Myndin minnir á goðsög-
una um unglinginn Ikarus, sem
flaug svo nálægt sólu að vængir
hans bráðnuðu og hann steyptist í
hafið. Þetta goðsöguminni hefur
gengið aftur í fjölmörgum nútíma-
skáldverkum, enda lýsir það
kannski betur en mörg önnur
reynslu nútímafólks. En á hvern
hátt tengist það „næturflugi“
Halldórs Hermannssonar?
Texta sögunnar er skipt í þús-
undogeitt atriði sem sum hver eru
örstutt. Óskyldum formum ægir
saman og hugarflugið er látið ráða
ferðinni. Höfundurinn stefnir í eitt
heimspekilegum vangaveltum,
ævintýrum, spakmælum og frösum,
hugleiðingum um vísindi og stjórn-
mál, mataruppskriftum, viðtals-
þáttum og goðsögum. Hann teygir
og togar textann, afmáir oft skil
draums og vöku og reynir með því
að tjá óreiðufulla vitund, sem tekur
við margvíslegum áhrifum að utan,
en megnar ekki að skipa þeim í
röklegt samhengi, haldin ofskynj-
unum og firrum.
Að sýna formleysuna
Að þessu leyti er tilgangur höf-
undarins af módernískum toga.
Hann gengur í fótspor ýmissa
skálda, sem hafa brotið upp skáld-
söguformið, og þá væntanlega í
Guðmundur Björgvinsson
þeirri viðleitni að sýna lífsreynslu
nútimamannsins á sannferðugri
hátt en hægt er í rökbundnum
raunsæisverkum; sýna formleys-
una og þá brotakenndu lífssýn, sem
við lifum við í dag: mann og heim
í uppnámi, ringulreiðina.
Höfundur leysir upp reglu sög-
unnar í bók sinni, atriðaskiptingin
er og tilviljunarkennd. Afleiðingin
er s'amt enginn óskapnaður því
þroskasaga Halldórs Guðbrands-
sonar myndar þráð, sem heldur
verkinu saman. Halldór er ungl-
Bókmenntir
MATTHÍAS VIÐAR
SÆMUNDSSON
ingur líkt og íkarus, menntaskóla-
piltur í Reykjavík fyrir og um 1980.
Lesandinn fylgist með honum frá
því hann svalar kynhvöt sinni í
fyrsta skipti, föstudaginn 26. ágúst
1977 kl. 23.30, þar til hann útskrif-
ast úr skóla, orðinn stúdent, eða,
með öðrum orðum, frá því hann
byrjar að lifa og þangað til hann
deyr, eins og segir í bókinni. í
millitíðinni gerist margt: sagt er frá
kvennafari og misheppnuðum
ástamálum, skáldskap og drykkju-
skap og fleira.
Sjálfstæð viðleitni
Halldór er um margt unglings-
lega einfaldur og reynslulaus, en
haldinn skapandi áráttu til mynd-
gerðar og skrifta, líkt og höfundur-
inn sjálfur. Verkið lýsir þroskaferli
hans, kynnum af kynlífi og dauða,
vexti og vígslu.
Hvernig tekst svo til? Að mínum
dómi er Næturflug um margt at-
hyglisverð tilraun og til muna betri
en fyrri skáldsaga Guðmundar,
Allt meinhægt, sem kom út árið
1982 og var fíaskó. Sagan er ærsla-
full og oft skemmtileg aflestrar en
þó með alvarlegum undirtón. Hins
vegar fmnst mér vanta nokkuð á
spennu og tilfinningalega dýpt í
þroskasöguna, einkanlega í sveifl-
una á milli lífs og dauða. Sjálfs-
morð vinarins í sögulok er til
dæmis tekið of lausum tökum til
að öðlast afl innan sögunnar. Það
er utangarnalegt. Einnig er of
mikið af bernskum húmor, óþörfum
atriðum og stílbrögðum sem ekki
eru annað en stælar, marklaus.
Engu að síður. Sagan einkennist
af ríku hugmyndaflugi og sjálf-
stæðri viðleitni. Það .er lífsmark í
henni.
MVS.
Spennum beltin — Notum ökuljósin
Við óskum landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Hinum 705 Toyota eigendum sem bættust í hópinn á árinu
óskum við til hamingju með nýju bílana og
vonum að bæði þeim og öðrum vegfarendum farnist vel
á ferðum sínum.
TOYOTA
0*1 J*
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S 91 -44144 '
essemm sIa