Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Síða 45
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
45
H| '
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
„Við vorum að fara til afa og ömmu í Ameríku en fórum í jólasveinalandið í staðinn!“
„Ha, á ég að fá pakka?“
„Nei, sérðu! Þarna
er ungfrú heimur!“
— undur í landi jólasveinsins
Um þessar mundir snýst flestallt
um jól, jólasveina og jólagjafir í
þessu landi - einstaka man þó eftir
gömlum sögnum um frelsun mann-
kyns og fæðingu Jesúbarns. Allir
sem vettlingi geta valdið og hafa
börn til umráða drífa sig á dansleiki
tengda jólum og þar er að sjálfsögðu
að finna rauðklædda sveina síð-
skeggjaða - stundum í fylgd með
myndarkvenmanni.
Þetta sama þema mætti ferðalöng-
um milli Ameríku og Evrópu rétt um
jólin - það er að segja farþegum í
þotum Flugleiða á leiðinni. Millilent
var á Islandi sem endranær og í
þessum heimkynnum jólasveinsins
var heil-mikið að gerast - flugstöðin
full af syngjandi og dansandi fólki,
þarna var lúðrasveit sem spilaði jóla-
lög og rauðklædddir sveinar útdeildu
gjöfum með kvenveru sér til aðstoð-
ar. Stúlkan sú að vísu ívið smágerð-
ari en hin hefðbundna fylgikona
jólasveinanna íslensku - ber titilinn
ungfrú heimur og heitir Hólmfríður
Karlsdóttir
Hópur unglinga snarstöðvaðist þeg-
ar stigið var inn í flugstöðina og einn
hrópáði: „Nei, sjáiði, ungfrú heimur
er þarna!“
„Ertu vitlaus," segir sá næsti vantrú-
aður en er samstundis sannfærður
af þeim þriðja. „Víst -. hún var ein-
mittfrá íslandi.“
Næsta verk var að grafa í ákafa eftir
myndavélinni og hlaupa út í flugvél
aftur - hvað er pottþéttara þegar
heim er komið en að geta sýnt eigin
myndir af fegurstu konu heimsins?
Minnstu farþegarnir urðu ekki
minna forviða en höfðu þó ívið meiri
áhuga á jólasveinunum, einkum i
upphafi. I þessu heimalandi jóla-
sveinsins voru spiluð og sungin jóla-
lög, þau fengu fyrsta jólapakkann
þetta árið og sum þeirra vissu greini-
lega varla í hvorn fótinn var hent-
ugra að stíga.
Hin nýkjörna ungfrú heimur hafði í
nógu að snúast við eiginhandarárit-
anir og var umkringd aðdáendum af
eldri gerðinni. Strax og færi gafst
sneri þó fóstran Hólmfríður sér að
yngstu farþegunum, aðstoðaði jóla-
sveinana við úthlutun pakkanna og
var fljót að" vinna yngri hjörtun einn-
ig-
Farþegar í þeim vélum Flugleiða
sem leið áttu um Keflavíkurflugvöll
þennan desemberdag gleyma líklega
seint þessu landi jólasveina og fag-
urra kvenna börnin með óvænta
jólagjöf’ að skilnaði en þeir eldri
myndarlegan auglýgingabækling um
land og þjóð. Það er greinilega hægt
að stunda landkynningar án þess að
verða dæmalaust leiðinlegur í leið-
inni!
- baj
í landi jólasveinsins er slík eintök að sjálfsögðu að finna á hverju strái
og lúðrasveit er nauðsynlegt undirspil.
,Mamma, sjáðu hvað þessi jólasveinn gerir!
Ungfrú heimur, Hólmfríður Karlsdóttir, aðstoðaði sveinka við útdeilingu jólagjafanna. DV-myndir PK