Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Page 12
12 DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöurog útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÖLFUR P.STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift, ÞVERHOLT111, SÍMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR H F. - Áskriftarverö á mánuöi 450 kr. Verö I lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Grýta fé ígæludýr Alþingi taldi sig nýlega þurfa að bjarga einni af fimm graskögglaverksmiðjum ríkisins frá gjaldþroti. Með 32 atkvæðum gegn 13 samþykkti það að auka hlutafé ríkis- ins í Vallhólmaverksmiðjunni í Skagafirði með skilyrði um hlutfallslega hlutafjáraukningu heimamanna. Reiknað er með, að ríkið leggi fram 11-15 milljón krónur gegn 4-5 milljóna framlagi heimamanna í Skaga- firði og Húnaþingi. Þar með eykst hlutaféð úr 10 millj- ónum í 25-30 milljónir. Þetta fé á að nota til að greiða 23 milljón króna gjaldfallnar skuldir verksmiðjunnar. f heild skuldar þessi nýlega verksmiðja 97 milljónir. Á móti koma birgðir, sem nema hálfri annarri ársfram- leiðslu. Þessar birgðir eru metnar á 40 milljónir. Það mat byggist á, að unnt sé að selja þær á verði, sem er svo hátt, að kaupendur finnast ekki nægilega margir. Þessi verksmiðja var tekin í notkun árið 1983, þótt fyrir væru fimm slíkar, sem höfðu meiri afköst en sem nam markaðinum í landinu. Hið sama ár var lokið skýrslu svokallaðra sérfræðinga, sem töldu þurfa að reisa sjöundu verksmiðjuna á Húsavík! Graskögglaverksmiðjurnar hafa löngum verið hug- sjónamál Búnaðarþinga. A þeim þingum hittast for- kólfar landbúnaðarins á kostnað ríkisins og samþykkja , að ríkið borgi hitt og þetta. Þingmenn hlaupa svo á eftir þessum ályktunum í von um fylgi. Lítið er spurt um, hvers vegna ríkið sem slíkt eigi að láta reisa svona verksmiðjur frekar en einhverjar aðrar og vera helzti eða eini hluthafinn í þeim. Það er bara talið sjálfsagt að ríkið borgi brúsann, ef hinar heilögu kindur eða kýr landbúnaðarins eiga í hlut. Gagnvart gæludýrum á borð við graskögglaverksmiðj- ur er fyrst hlaupið undir bagga með lánum. í fyrra útveguðu stjórnmálamennirnir 12 milljóna lán til að forða Vallhólmaverksmiðjunni frá gjaldþroti. Það hefur ekki dugað, svo sem samþykkt Alþingis sýnir. Brátt verður allt litróf hinnar pólitísku fyrirgreiðslu komið í notkun til bjargar graskögglaverksmiðjum. Veitt verða vildarlán, gefnir eftir vextir, lagt fram hlutafé, strikuð út vandamál. Allt verður gert nema viðurkenna í verki, að offramleiðsla er á graskögglum. f byrjun þessa vetrar áttu verksmiðjunnar 17 þúsund tonn af kögglum eftir 12 þúsund tonna ársframleiðslu. Birgðirnar námu því framleiðslu hálfs annars árs. Þar á ofan var afkastageta verksmiðjanna vannýtt í sumar um þriðjung eða um heil 6 þúsund tonn. Þessi vandræði hófust með lögum um graskögglaverk- smiðjur, sem Alþingi samþykkti 1973. Þá var efnt til samkeppni af hálfu ríkisins við eina verksmiðju í einka- eign á Kjalarnesi. Þá var stofnað til þess ástands, sem nú ríkir, - að allir tapa stórfé og þjóðin mest. Við mat á frammistöðu stjórnmálamanna á þessu sviði má ekki gleyma, að gæluverksmiðjur þessar eru reknar í skjóli 130% gjalds á innflutt kjarnfóður. Þær eru því enn eitt dæmið um, hvernig okkur er neitað um að njóta hins lága framleiðsluverðs á heimsmarkaði. Ef ríkið á mikla peninga aflögu, er hagkvæmara að leggja þá í listir og menningu, því að slíkt eykur ekki þar á ofan kostnað íslendinga af að lifa í landinu. En það er dæmigert, að Alþingi skrúfar fyrir framlög til lista og menningar um leið og það grýtir peningum í gæludýr á borð við graskögglaverksmiðjur, sem bein- línis spilla lífskjörum okkar. Jónas Kristjánsson „Fjárskortur, býst ég við“ Þetta var skýring forstöðuraanns Kópavogshælis þegar hann var spurður um orsök þess að viðun- andi brunavarnakerfi var ekki á hælinu þegar eldsvoðinn varð þar í vikubyrjun með þeim afleiðingum að einn vistmanna lést og fleiri voru í lífshættu. Hann bætti við einhverju á þá leið að ríkið teldi sig ekki hafa ráð á því að leggja mikið fé i fyrirbyggjandi aðgerðir. Þetta er vissulega ekki í fyrsta skipti sem við verðum vitni að því að fjárskortur hái því að nauðsyn- legir hlutir séu gerðir hérlendis. Svo einkennilegt sem það kann að virðast er hans sjaldan getið þá efna skal til fagnaðar og síst ef sá fagnaður snýst um svokallaða frændur okkar. Á hann er líka sjaldan minnst þegar kaupa skal bifreiðar handa æðstu pótintátum ríkiskerfisins, að ekki sé nú minnst á það ef byggja þarf verksmiðju sem framleitt getur atkvæði einhvers staðar þar sem virkilega munar um hvern einn. En við erum þeim mun rækilegar minnt á hann ef kría þarf út fjárframlag til lista eða menningarstarfsemi einhvers kon- ar eða til fyrirbyggjandi öryggisað- gerða. Þá fyrst fer nú fjárveitinga- valdið í alvarlegan baklás. Það þykir sjálfsagt að hafa öll stóru almenningssjúkrahúsin í höfuð- borginni án fullnægjandi eldvarna af því það kostar nokkra ráðherra- bíla að koma þeim á, slagar líklega hótt upp í Norðurlandaráðsfund. Það er líka allt í lagi, það verður örugglega enginn sóttur til saka þótt illa færi. Ákæruvald, dómsvald og framkvæmdavald yrðu ábyggi- lega öll sammála um að enginn væri sekur þótt heill tugur sjúkl- inga brynni inni ó sjúkrahúsi hér- lendis fyrir það að eldvarnakerfið væri ófullnægjandi. „Árans óheppni" yrði örugglega niður- staðan. Pottur víða brotinn Ég er sannfærður um að við ís- Kjallari á fimmtudegi MAGIMÚS BJARNFREÐSSON lendingar erum alveg sérstakir trassar hvað varðar öryggisráð- stafanir allar. Það á raunar við um okkur hvert um sig og ekki batnar það þegar til heildarinnar kemur. Ef við lítum fyrst til einstakling- anna má benda á nokkur dæmi. Það er ótrúlega sjaldgæft að sjá menn með hjálma í byggingar- vinnu á Islandi. Væri þó nokkrum krossum færra í kirkjugörðum ef þeir hefðu verið notaðir, að ekki sé minnst á við vinnu á þilfari fiski- skipa. Líklega þykir sjómönnum það merki um heigulshótt, sem ekki hæfir afkomendum víkinga, að bera slík höfuðföt. Þá hefur þáð að minnsta kosti til skamms tíma þótt fáránlegt að binda skutrennu- menn á togurum með línu heldur ber að taka áhættuna að þeir drukkni og hafa raunar margir farið þar fyrir helberan trassaskap. Björgunarvesti þykja jaðra við hirðfíflsbúning ó sjó. Við erum nú einu sinni komnir af víkingum. Þótt árlega farist fjöldi manns hérlendis einvörðungu vegna þess að þeir eru ekki í bílbeltum og fjöldi manns til viðbótar hljóti ævilöng örkuml þá er víst meiri- hluti bílstjóra of klár til þess að þurfa að spenna þau og auðvitað skipta þingmenn sér ekki of mikið af málinu. Það fær lika hver þjóð það þing sem hún ó skilið, sagði maðurinn. Og ekki batnar það þegar til heildarinnar kemur. Þótt við horf- um upp á sívaxandi umferðarslys veldur íjárskortur því að ekki er unnt að veita nema fáránlega lág- um upphæðum til umferðarörygg- ismála. Til þess að friða samvisk- una er haldin reiðhjólakeppni og efnt til jólagetrauna í happdrættis- formi ef tekst að fá velviljaða menn til að gefa vinninga. Allt góðra gjalda vert en leysir ekki vandann. Starfsmenn á þessum vettvangi standa róðþrota, þeir fá ekki fé. Hún kostar líka mikið spítaladvöl- in handa þeim sem ekki hefðu þurft að slasast. En þar er kerfið sjálf- virkt, það er allt í lagi að hlaða upp brunninn úr því barnið er dottið ofan í. Spara, spara, tala, tala ... Og það er víðar sem fjárskortur háir aðgerðum. Á sama tíma og eiturlyfin svokölluðu flæða yfir landið í miklu stærra mæli en nokkur opinber aðili fæst til að viðurkenna fást ekki peningar til að halda úti löggæslu og þeir fáu menn, sem hafa valið þetta hættu- lega löggæslusvið, eru að hrökklast brott, fyrst og fremst vegna að- stöðuleysis og mannfæðar. Þeim varð það einhverju sinni á að senda mann til útlanda og náðu með því stórum smyglara, sölumanni dauð- ans, en fengu ströng fyrirmæli um að gera þann skratta ekki aftur, það kostaði of mikið. Á meðan fimbulfamba opinberir aðilar með einhverjar kjaftasamkundur og nefndir sem hafa samráð um að gera ekki neitt og eru yfir sig ánægðar yfir árangrinum. Áhuga- menn halda uppi fræðslu sem eng- inn veit hvaða áhrif hefur en þess er vandlega gætt að halda ríkisút- gjöldum í lágmarki til löggæslu, enda eiturlyíjasmyglarar líka kjós- endur. Áhugamannasamtök halda að langmestu leyti uppi allri björgun- arstarfsemi, nema hvað Landhelg- isgæslan kemur þar myndarlega inn í. Mörgum sparsömum stjórn- sýslumanninum vex líka mjög i augum hvað hún þarf af fé og kannski verður reynt að fá smá- bátaeigendur til að taka við hlut- verki hennar. Það væri rétt eftir öðru. Til er apparat sem heitir Al- mannavarnir. Almenningur þekkir það hvað best af hressilegum lúðra- blæstri af háhýsum og kirkjuturn- um hér ó höfuðborgarsvæðinu. Líklega þykir stjórnvöldum láta nógu hátt í þessum lúðrum, í það minnsta er almannavarnakerfið ekki olhaldið af fjárframlögum. Ennþá hefur heldur ekki orðið stórslys sem rekja má til fjársveltis þar og því auðvitað óþarft að ausa peningum í málið. Sjálfsagt væri líka unnt að grípa til aukafjárveit- inga til þess að friða samviskuna ef ljóst væri að styrjöld væri að skella á. Allavega mætti þá kosta upp á skilti sem benda fólki á næstu loftvarnabyrgi og helstu neyðar- miðstöðvar en slíkir staðir eru lík- lega einu hemaðarleyndarmálin hérlendis - nema stefnan sé að koma í veg fyrir að of margir komist þangað. Dauðir menn kosta ekki peninga - og það er engin hætta á að neinn verði sóttur til óbyrgðar. Ekki á því landi íslandi. Magnús Bjarnfreðsson. a ,,Það þykir sjálfsagt að hafa öll stóru ^ almenningssjúkrahúsin í höfuðborg- inni án fullnægjandi eldvarna af því það kostar nokkra ráðherrabíla að koma þeim á, slagar líklega hátt upp í Norðurlanda- ráðsfund.“ „Ákæruvald, dómsvald og framkvæmdavald yrðu ábyggilega öll sammála um að enginn væri sekur þótt heill tugur sjúklinga brynni inni á sjúkrahúsi hérlendis fyrir það að eldvarnakerfið væri ófull- nægjandi."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.