Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Side 21
DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986. 21 Ibrótlir Iþróttir Iþróttir Kristján Sigmundsson - snjall í markinu gegn Austur-Þjóðverjum. ,HUGARFARSBREYT- ING í HÁLFLEIK’ — sagði Kristján Sigmundsson, besti leikmaður íslands í leiknum í gærkvöldi Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- manni DV á Baltic Cup: Altt of lítil tm a sign — sagði Þorbergur Aðalsteinsson Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- manni DV á Baltic Cup: „Við höfðum allt of litla trú á ís- lenskum sigri í kvöld. Sóknarleikur- inn var slakur í fyrri hálfleik og þá vorum við allt of seinir aftur í vörn- ina. A-Þjóðverjar virðast vera í topp- formi. Leikmenn liðsins höfðu meiri snerpu og kraft en við,“ sagði Þor- bergur Aðalsteinsson eftir leikinn í gærkvöldi. -Hvað um leikinn við Sovétmenn? „Það er erfitt að spá góðum úrslitum því þeir eru algjörir ofjarlar okkar,“ sagði Þorbergur. - fros „Það varð mikil hugarfarsbreyting á leikmönnum í hálfleik. Mun meiri timi var settur í sóknarleikinn og meiri agi og það gaf ávöxt,“ sagði Kristján Sigmundsson markvörður sem var besti leikmaður islenska liðsins í gærkvöldi. „A-Þjóðverjar voru búnir að gera út um leikinn í fyrri hálfleik er leik- menn liðsins skoruðu grimmt úr hraðaupphlaupum. Ég er ánægður með leik sjálfs mín í leiknum og mér finnst öryggið hjá mér alltaf vera að aukast," sagði Kristján. -fros , Alltaf sama vandamálið hjá okkur’ — sagði Bogdan landsliðsþjálfari eftir tapið fyrir A-Þjóðverjum Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- „Strákarnir léku mjög illa í sókn- manni DV á Baltic Cup: „Austur-Þjóðveijar eru með lið í næsta gæðaflokki fyrir ofan Dani en það er alltaf sama vandamálið hjá okkur. Eftir sigurleiki nær liðið ekki að einbeita sér í næsta leik á eftir. Ef þetta verður svona í Sviss þá náum við ekki góðum árangri þar,“ sagði Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari eftir leikinn í gærkvöldi. inni í fyrri hálfleik en seinni hálfleik- urinn var hins vegar mjög góður hjá liðinu. Einbeitingin var þá mjög mikil og árangurinn lét ekki á sér standa. Ég er mjög ánægður með þessi úrslit en leikurinn í kvöld gegn Sovétmönnum verður mjög erfiður. Þeir koma til með að mæta tvíefldir til leiks eftir tapið fyrir Dönum. -fros „Munum beri- ast til sigurs” — segir Kristján Arason um leikinn viö Sovétmenn í kvöld Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- manni DV á Baltic Cup: „Það voru öll ótímabæru skotin í fyrri hálfleiknum sem gerðu útslagið. Sjálfur fann ég mig ekki og reyndi þá að leika meira inn á línuna,“ sagði Kristján Arason eftir leikinn við A-Þjóðveija í gærkvöldi. „Munurinn á að leika gegn Dönum og Sovétmönnum er að gegn Dönum reynum við alltaf að sækja upp miðjuna en það komum við varla til með að geta gegn hávörn Rússa. Vonandi tekst okkur þó að finna einhverja aðferð til að sigra þá og það mun muna mikið um þá leik- menn sem koma til liðs við okkur fyrir leikinn. Við munum berjast til sigurs," sagði Kristján. -fros Einar og Siggi voru grýttir — af spönskum áhorfendum eftir að þeir höfðu sýnt f rábæran leik í sigri Tres de Mayo á Leon Ademar. Siggi skoraði níu og Einar varði f jögur víti Sigurður Gunnarsson og Einar Þorvarðarson voru hreint óstöðv- andi þgar lið Tres de Mayo vann góðan útisigur á Leon Ademar í 1. deildinni spænsku í gærkvöldi, 22-16. íslendingarnir tveir lögðu grunninn að sigri liðs síns. Sigurður skoraði niu mörk, þar af fjögur úr vítaköst- um, en frammistaða Einars mark- varðar var þó enn glæsilegri. Hann varði yfir 26 skot, þar af fjögur vita- köst. Það var gífurleg stemmning meðal tvö þúsund áhorfenda á leiknum sem flestir voru á bandi heimaliðsins. Einar og Siggi fengu óblíða meðferð hjá blóðheitum stuðningsmönnum Leon Ademar sem fleygðu í þá öllu lauslegu er sigur Tres de Mayo liðs- ins var i höfn. GAUPI MEÐ TILBOÐ FRÁ NORSKU LIÐI — „Getur allt eins verið að ég slái til” Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- manni DV á Baltic Cup: Guöjón Guðmundsson er nú með tilboð um að þjálfa norskt 1. deildar lið upp á vasann. Tvö norsk félög hafa upp á síökastið verið i sambandi við Guðjón eða Gaupa eins og hann er oftast nefndur. „Ég er að hugsa málin og það getur allt eins verið að ég slái til,“ sagöi Guðjón en hann hefur veriö aðstoð- armaður Bogdans landsliðsþjálfara undanfarin þijú ár. Samvinna þeirra nær þó enn lengra aftur í tímann þvi aö Guðjón var Bogdan einnig innan- handar þegar sá síðarnefndi stjórn- aði Víkingsliðinu. - fros Magnús Ingi varði 27 skot — er HK vann Blika HK vann fremur óvæntan en sann- gjarnan sigur á toppliði 2. deildarinn- ar í handknattleiknum, Breiðabliki, er liðin mættust í Digranesi í gær- kvöldi. Lokatölur urðu 26-20. Úrslitin þýða að HK hefur tryggt sér sæti í keppninni um 1. deildar sæti sem að öllum líkindum mun fara fram i byijun næsta mánaðar. Breiðablik er þegar öruggt upp í 1. deild. Það var mikill hasar í leik Kópavogs- liðanna. HK kom mjög á óvart með stór- góðum leik sem Blikarnir áttu ekkert svar við. Magnús Ingi Stefánsson, mark- vörður HK, var óneitanlega maðurinn á bak við sigurinn en hann varði hvorki meira né minna en 27 skot í leiknum. SergeiBubka. Næsti leikur Tres de Mayo verður á sunnudaginn gegn Canteras. -fros í Digranesi, 26-20 Atkvæðamestir í liði HK voru þeir Rúnar Pétursson, sem skoraði átta mörk, og Elvar Óskarsson er gerði sjö. Hjá Breiða- bliki stóð Jón Þór Jónsson upp úr en hann skoraði níu mörk. Tveir Blikar fengu að sjá rauða spjaldið eftir aðfinnsl- ur við dómara leiksins. Ármann vann sigur á Aftureldingu að Varmá, 23-21. Egill Steinþórsson varð markahæstur Ármenninga með fimm mörk en Axel Axelsson skoraði níu mörk fyrir Aftureldingu. Afturelding var yfir í hálfleik, 13-10. -fros Staðan er nú þannig: Jakob kvennagull Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta- manni DV á Baltic Cup: Jakob Sigurðsson, hornamaöurinn í landsliöinu sem leikur með liði Vals, var umsetinn unglingsstúlkum við komu landsliðsins til Viborg þar sem leikurinn við A-Þjóðveija fór fram. Unglingsstelpumar virtust í meira lagi hrifnar af Jakobi, höfðu margar meðferðis mynd af honum sem þær létu leikmanninn skrifa nafii sitt á. -fros Breiðablik Armann HK Haukar ÍR Afturelding Þór, Vest. Grótta 12 10 13 9 13 13 13 12 13 13 2 305-260 20 3 323-303 19 3 311-289 17 6 302-297 14 6 313-294 13 6 303-292 9 8 285-309 9 12 252-350 1 Á laugardag leikur Ármann við Gróttu og allar líkur eru á að Ár- menningar tryggi sér þá sæti i 1. deild. HK leikur þá við ÍR. Á sunnu- dag leika Haukar og Breiðablik. -hsim Tvö heimsmet innanhúss — í frjálsum íþrottum í Japan Tvö heimsmet innanhúss í fijálsum iþróttum voru sett á miklu móti í Osaka í Japan í gær. Ben Johnson, Kanada, sem varð í þriðja sæti i 100 m hlaupinu á ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, liætti heimsmetið í 60 metra hlaupi um fjóra hundruðustu úr sekúndu. Hljóp á 6,50 sek. Eldra heimsmetið átti Bandarikjamaður- inn Houston McTear, 6,54 sek., sett 1978. Johnson haföi algjöra yfirbmói i hlaupinu í Osaka og sagöi eftir það að hann mundi nú setja stefnuna á heimsmet Calvin Smith, USA, i 100 m hlaupi utanhúss í sumar, 9,93 sek. Sergei Bubka, Sovétríkjunum, setti heimsmet innanhúss í stangarstökki. Stökk 5,87 metra. Eldra metið átti Billy Olson, USA, 5,86 m. Sett 1983. Bubka notaði sömu stöng á mótinu í Osaka og hann setti heimsmetið utanhúss á sl. sumar þegar hann stökk sex metra í París. -hsím Atli með f jögur mörk — í sigri Giinzburg á Kiel. Essen og Dankersen töpuðu Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV í Þýskalandi: „Þetta er lélegasti leikur okkar á tímabilinu. Leikmenn mínir virtust ekki hafa neinn áhuga á leiknum,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf- ari Kiel, í v-þýsku Bundesligunni í handboltanum eftir að lið hans hafði tapað, 25-20, fyrir Gunzburg. Sigurinn var mjög mikilvægur fyrir Giinzburg en liðiö hefur nú hlotið tíu stig. Atli Hilmarsson skoraði fjögur marka liðsins og var nokkuð ánægð- ur með sinn hlut. „Þetta var sigur liðsheildarinnar. Allir leikmenn áttu góöan leik,“ sagöi Atli en hann hélt i morgun til Danmerkur til keppni i BalticCup. Essen mátti þola mjög óvænt tap fyrir Göppingen á útivelli og á meðan vann Grosswaldstadt sigur á botnlið- inu Berlín og hefur nú fjögurra stiga forystu. Dankersen, liðið sem Páll Ólafsson leikur með, lá einnig í valn- um. Tapaði fyrir Dortmund, 26-20, á útivelli. -fros íþróttir einnig ábls.22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.