Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1986, Qupperneq 34
34 DV. FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986. Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíða á hesta- mennskunni - segir hestamaðurinn og presturinn Sigurður Haukur Guðjónsson Séra Sigurður Haukur Guðjónsson var við gegningar í Viðidalnum þegar DV-menn voru þar að forvitn- ast um hagi hestamanna. Hann á þar ásamt fjölskyldu sinni hesthús, glæsilegt að öllum búnaði og áber- andi þrifalegt. Reyndar tókum við hús á honum þar sem hann var að sinna hestum organistans síns. „Hann er austur í sveitum þessa stundina og kemst því ekki til gegn- inganna," sagði klerkurinn. Þannig gengur það meðal hestamanna. Menn hlaupa í skarðið fyrir félagana þegar þörf er. Stólpagripir { hesthúsi Sigurðar kynnti hann fyrir okkur gripina. Þar stendur m.a. á stalli mikill stólpagripur, Þokki bróðir Fannars sem á undanförnum árum hefur verið einna frægastur góðhesta hér á landi. Þokki fyllir nú tuttugu árin, virðulegur öldungur og þó enn fjörugur því hann sótti mjög í að glettast við ljósmyndarann.. Sigurður túlkaði atgang hans sem merki um að nú væri kominn tími til að fara út að viðra sig. Hrifinn af frekjudöllum „Ég sótti mikið í frekjudalla þegar ég var yngri,“ segir Sigurður Hauk- ur. „Það eru hestamir sem kallaðir em Homfirðingar. Hin síðari ár hef ég lært að meta meira rólegri gripi. Ég ólst upp austur í Ölfusi og hef allt síðan ég var krakki haft áhuga á hestamennsku. Það dregur síðan ekki úr áhuganúm að öll fjölskyldan er með í þessu. Ég held að hesta- mennskan sé besta heilsubót sem hægt er að hugsa sér. Auðvitað er þetta dýrt tómstunda- gaman en það á líka við um fleira sem menn gera sér til gamans. Hestar eru t.d. hrikalega dýrir hér á höfuð- borgarsvæðinu. Úti á landi eru þeir aftur á móti ódýrari þannig að menn verða helst að þekkja einhvern fjarri höfuðborginni til að geta eignast hesta á viðráðanlegu verði. Á síðustu þremur ámm hef ég eignast fjóra hesta sem allir vom fengnir gegnum kunningsskap. „Matur“ fyrir hrossin Síðan kostar fóðrið sitt. Ég hef enga aðstöðu til heyskapar og kaupi því allt hey. Kostnaðurinn við það er breytilegur eftir árferði. Einnig gef ég mikið af „mat“, grasköggla og kjarnfóður. í þetta fara nokkrir fjármunir en þeim er ekki illa varið. Mér finnst alltaf jafngaman að fást við hestana og finn aldrei til þreytu. Hins vegar er það segin saga að hversu þreyttur sem ég er þegar ég kem úr vinnunni þá er öll þreyta horfin þegar ég kem í hesthúsið." - GK Óskadraumurinn að eignast hesta „Ég er búinn að vera með bakter- hjón, Agnar og Erla Ásmundsdóttir, margra rætast. En nú er allt tilbúið íuna frá því ég var krakki,“ sagði fengu sér hesta. * og fjölskyldan að meðtöldum barna- Agnar Ólafsson sem var við gegning- Agnar var á sjónum til skamms börnunum tekur þátt í hestamenns- ar ásamt fjölskyldu sinni. Það er þó tíma. Þegar menn stunda þá atvinnu kunni. ekki liðið nema á annað ár síðan þau er erfitt að láta þennan óskadraum Agnar viðurkenndi að hesta- Þokki er í miklu uppáhaldi hjá Sigurði. Þetta var mikill gæð- ingur en er nú kominn á efri ár. DV-myndir KAE Þreytist aidrei Ekki dýrasti munaðurinn - rætt við Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóra Fáks „Einu sinni var sagt að ódýrara væri að eiga hest en að reykja einn pakka af sígarettum á dag. Ég held að þessi viðmiðun sé enn í fullu gildi,“ sagði Öm Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík. „Ýmsum þykir hestamennska dýrt tómstundaga- man en á meðan kostnaðurinn er ekki meiri en þetta geta allir eignast hest. Það sýnir sig líka að í félaginu er fólk úr öllum stéttum og á öllum aldri.“ Veldið í Víðidalnum Stærsta hesthúsaþyrping landsins er í Víðidalnum ofan Reykjavíkur. Þar ræður Fákur löndum. I Fáki eru nú um 800 félagsmenn og reyndar hafa nokkrir fleiri aðstöðu i Víðid- alnum en borga félagsgjöldin. „Þetta er vandamál sem þarf að ráða bót á hið bráðasta," sagði Örn. Félagið á hluta hesthúsanna í Viðidalnum og leigir þau félags- mönnum á kostnaðarverði. Einnig er þar mikið af svokölluðum sjálfs- eignarhúsum sem einstakir félags- menn hafa byggt á athafnasvæði félagsins. Líkt og önnur hestamannafélög sinnir Fákur helstu þörfum hesta- manna. Það rekur nýtt og glæsilegt félagsheimili. Það efnir til nám- skeiða fyrir unglinga sem eru að feta sig fyrstu skrefin í hestamennskunni. Starfandi er fræðslunefnd sem býður upp á ýmis námskeið. T.d. hefst á þessum degi námskeið í járningum. Þá er innan félagsins kvennadeild sem stendur fyrir frægum kaffisam- sætum nokkrum sinnum á vetri. Strið eða hvað? Félaginu er einnig ætlað að gæta hagsmuna félaganna út á við. Örn nefndi sem dæmi að nýverið hefði vatnsveitustjóri lagt fyrir borgar- stjórn erindi þess efnis að loka Heið- mörkinni fyrir allri umferð. „Það er verkefni félags eins og Fáks að finna farsælli lausn á þessu máli en að loka þessu útivistarsvæði. Undanfarin ár hefur mikið verið kostað til að gera Heiðmörkina aðlaðandi fyrir al- menning. Það nær ekki nokkurri átt að láta þessa friðunarmenn loka öll- um opnum svæðum fyrir almenn- ingi,“ sagði Örn. Af öðrum verkefnum félagsins má nefna mótahald. Innan félagsins er efnt til firmakeppni og hvítasunnu- kappreiðar Fáks eru meðal kunnari hestamannamóta. „í sumar er síðan landsmótið á Hellu hápunkturinn á starfi hestamanna í ár. Við verðum þar að sjálfsögðu," sagði Örn. Ekki dýrara en verið hefur Örn sagði að aðeins bæri á deyfð meðal hestamanna nú um þessar mundir eftir stöðugt vaxandi umsvif undanfarin ár. „Kostnaðurinn hefur sennilega ekki aukist að neinu marki en fólk hefur minna á milli handanna nú en oft áður. Verð á hestum hefur alltaf verið voðalega misjafnt og erfitt að alhæfa um hvort það er hærra nú en verið hefur. Verð á hestum er að öllum jafnaði hæst hér á höfuðborgarsvæðinp. Því er ódýr- ast að kaupa úti á landi. Þeir sem eru að byrja kaupa þó oft miðlungs og slakari hesta sem ganga kaupum og sölum hér á svæðinu fyrir fremur lítið verð. Síðan er töluvert um að hrossa- miðlarar kaupi hesta úti á landi og flytji hingað inn á svæðið og selji með dágóðum hagnaði. Þannig er þó hægt að eignast dágóða hesta án þess að hafa sambönd við helstu hrossabændurna." GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.