Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Var Caríos drepinn
af Lýbíu-agentum?
Vissi kannski of mikið um hlutdeild arabaleiðtoga í hryðjuverkastarfsemi PLO
Remirez Sanchez og var hann
fæddur í Venezúela. Hann gekk í
lið með Alþýðufylkingu George
Habbash í skæruliðasamtökum
PLO einhvern tíma seint á sjöunda
áratugnum, þá á flótta undan
frönskum yfirvöldum vegna morða
á tveim lögreglumönnum og einum
uppljóstrara sem vísaði lögregl-
unni á slóð hans í Frakklandi.
Ýmis hryðjuverk á Vesturlöndum
voru Carlosi eignuð. Eitt meðal
þeirra, sem öruggt er talið, að hann
hafi stjórnað, var árásin á aðal-
stöðvar OPEC-sölusamlagsins í
Vinarborg þar sem olíumálaráð-
herrar meðal annars nokkurra
arabaríkja voru teknir gíslar.
Fangarnir voru látnir lausir þegar
Carlos of félagar fengu frítt leiði
með flugvél til Alsír og þaðan til
Líbýu.
ísraelsmenn telja að lokað hafi
verið fyrir munninn á Carlosi fyrir
lífstíð með því að hann hafi vitað
hættulega mikið um hlutdeild
ýmissa arabískra ráðamanna í
hryðjuverkum sem annars hafa
verið kennd við Palestínuaraba.
m-------------—►
Oftar en einu sinni var fuglinn flog-
inn úr hreiðrinu er lögreglumenn
ætluðu að handtaka Sjakalann.
Lögreglumenn fundu eitt sinn
mikinn vopnalager er tilheyrði
Sjakalanum á hótelherbergi í
Frakklandi og sést hluti hans hér á
myndinni.
Sjakalinn, eða Carlos, þótti mikill
kvennamaður og duglegur við að
afla nýrra vinkvenna.
ísraelskt blað hefur það eftir ónafn-
greindum foringja í Mossad, leyni-
þjónustu ísraels, að hinn illræmdi
hermdarverkamaður Carlos sé all-
ur.
Carlos, hryðjuverkamaðurinn ill-
ræmdi, er nú sagður dauður og
sennilega grafinn í Líbýu, eftir því
sem ísraelska blaðið „Davar“ held-
ur fram. Ber blaðið fyrir því ónafn-
greindan háttsettan foringja í ísra-
elsku leyniþjónustunni. - Er sagt
að Líbýumenn hafi sennilega fyrir-
komið Carlosi þar sem hann hafi
vitað hættulega mikið um leyni-
þjónustu araba.
Hið rétta nafn Carlosar var Ilych
„REAGAN, HETJAN OKKAR”
— Bandaríkjaforseta mjög fagnað í heimsókninni til Grenada
Lífshættuleg-
ir maurar
— eru komnir inn á danska spítala
Reagan Bandaríkjaforseti kvartaði
ekki yfir móttökunum í tæplega fimm
klukkutíma opinberri heimsókn
sinni til smáríkisins Grenada í
Karabíska hafinu.
Eyjaskeggjar kölluðu hann
„frelsarann" og virtust þakklátir
mjög fyrir innrás Bandaríkjahers á
eyjuna í október 1983 er fallvaltri
ríkisstjórn marxista var kollvarpað.
„Þakka þér fyrir að bjarga lífi
okkar“ og „Reagan, hetjan okkar"
voru setningar er sáust á veggspjöld-
urn í St. George’s, höfuðstað Gren-
anda, er forsetinn kom þar við í gær.
Reagan flutti stutt ávarp í Queens
garði i St. George’s þar sem þúsundir
eyjaskeggja fögnuðu forsetanum.
I ávarpi sínu réðst forsetinn að
Castro Kúbuleiðtoga og sandinista-
stjórninni í Nigaragua og kvað þess-
ar þjóðir beina hættu við lýðræðis-
þróun í álfunni. Forsetinn sagðist
aldrei myndu sjá eftir því að hafa
sent 7 þúsund hermenn sína til að
„frelsa Grenada" fyrir þrem árum
tæpum.
Lofar aukinni efnahagsaðstoð
Síðdegis í gær lagði forsetinn svo
blómsveig að minnisvarða um þá 19
bandarísku hermenn er féllu í inn-
rásinni.
Reagan fundaði með ríkisstjóra
landsins, Sir Paul Scoon, og Herbert
Blaize forsætisráðherra eftir athöfn-
ina við minnisvarðann.
í viðræðum sínum lofaði forsetinn
aukinni efnahagsaðstoð til ríkja
Karabíska hafsins, þar á meðal í
formi fleiri skólastyrkja, hagstæðari
innflutningskjörum fyrir vefnaðar-
vöru frá svæðinu auk samvinnu á
sviði endurbóta á réttarfari ein-
stakra ríkja í Karabíska hafinu.
Sleppt úr
stofufangelsi
Aflétt var aftur í gær stofufang-
elsi yfir 200 stjórnarandstæðinga
í Suður-Kóreu sem lögreglan
hindraði í að sækja stóran fund
Nýlýðveldisflokks Kóreu. Á
fundinum átti að marka stefnuna
til að knýja á úrbætur í kosn-
ingalögunum.
Sumir foringja 'stjórnarand-
stöðunnar fengu að fara frjálsir
ferða sinna en aðrir, eins og Kim
Dae-Jung, varð að vera áfram í
stofufangelsi. Hann er búinn að
vera tíu daga lokaður inni á
heimili sínu.
Gissur Pálsson, DV, Álaborg:
Lítill maur er farinn að bragða á
gæðum velferðarþjóðfélagsins hér í
landi. Hann er nefndur farómaurinn
(monomorium pharaonis).
Því miður hefur komið í ljós að
þessi maurategund er farin að angra
Dani óþægilega mikið og getur verið
beinlínis lífshættuleg ef ekki er að
gætt.
Maurarnir eru farnir að sækja frá
sínum venjulegu bústöðum inn á
spítalana þar sem þeir geta verið
lífshættulegir fólki sem er mótstöðu-
lítið (gamalmenni og smábörn).
Bit þeirra er í sjálfu sér ekki lífs-
hættulegt en þegar þeir finnast í
kringum dauðhreinsuð uppskurð-
aráhöld og blóðgjafaráhöld er voðinn
írski popparinn Bob Geldof. pottur-
inn og pannan í skipulagningu tón-
leika til hjál])ar hungruðum er gáfu
af sér milljónir dollara til hjálpar-
starfs í Afríku er einn af 85 er til-
nefndir hafa verið vegna úthlutunar
friðarverðlauna Nóbels í ár.
Geldof var einnig tilnefndur í fyrra
en þá kom tilkynningin um það of
vís. Þarna er sú hætta fvrir hendi
að þeir komist inn í blóðrásina og
það er lífshæt.tulegt.
Þrátt fyrir nafnið farómaur. sem
tengir hann i hugum manna Egypta-
landi. kemur hann upprunalega frá
Indónesíu og Austur-Indíum. Nafnið
stafar af því að trú manna er að þeir
hafi verið ein af sjö plágum Egvpta-
lands.
Eiginlega ætti maurinn ekki að lifa
í hinu kalda loftslagi sem ríkir í
Danaveldi en góð upphitun húsa
gefur honum lífsmöguleikann.
Þennan örsmáa maur er mjög erfitt
að uppræta og getur heilt maurabú
búið um sig í kúlupenna, annars lifa
þeir aðallega í sprungum og öðrum
skúmaskotum.
seint svo popparinn missti af mögu-
leikanum á útnefningu.
Aðrir er útnefndir hafa verið eru
Winnie og Nelson Mandela í Suður-
Afríku, ötulir andstæðingar kyn-
þáttastefnu þarlendra stjórnvalda,
umhverfisverndarmenn í samtökum
grænfriðunga og alþjóða olvmpíu-
nefndin.
íbúar Grenada flykktust um Reagan Bandaríkjaforseta í skammri heimsókn
hans til smáríkisins í gær og þökkuðu honum fyrir innrás Bandaríkjahers í
október 1983.
Geldof og Nóbel