Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Blaðsíða 8
8 DV. DRIÐJUDAGUR 4. MARS 1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Engu næríleit að morðingjanum Harmi slegin yfirgefur Lisbet Palme sjúkrahúsið þar sem maður hennar var úrskurðaður látinn. Með henni eru sonur hennar, Márten, og Kjell Lindström sem var einkaritari Palmes. Wðræður olíuríkja Nokkur ríki, sem standa utan OPEC olíusamtakanna, hafa fallist á að taka upp viðræður við OPEC ríkin um leiðir til að stöðva verðfall á olíu. Að öllum líkindum munu þessar viðræður fara fram í Genf þann 18. mars næstkomandi. Egyptaland, Oman og Mexíkó eru meðal þeirra ríkja sem samþykkt hafa viðræður en norðursjávarolíu- framleiðendurnir Bretar og Norðmenn eru á móti samning- um við OPEC. Sprengjaábar Ellefu særðust, þar af tveir alvarlega, í mikilli sprengingu inni á bar í miðborg Parísar í gærkvöldi. Barinn, sem aðallega er sóttur af innflytjendum, gjör- eyðilagðist í sprengingunni. Ekki er vitað hvað orsakaði sprenginguna. Víetnamar syrgjaPaime Víetnam hefur lýst yfir tveggja daga þjóðarsorg vegna morðsins á Olof Palme. Fánar verða í hálfa stöng til minningar um Palme, „sem var barátiumaður fyrir friði, sjálfstæði, vináttu og sam- starfi þjóðanna“, eins og segir í tilkynningu víetnömsku frétta- stofunnar. Sviþjóð hefur verið Víetnam mjög innan handar með ýmiss konar aðstoð og framlögum. Eitt aðal hjálparverkefnið er timbur- og pappírsmyllan, Bai Bang, sem kostaði tvo milljarða sænskra króna. Sænska lögreglan viðurkenndi í morgun að hún væri engu nær í leit sinni að morðingja Olofs Palme for- sætisráðherra en á laugardag. „Við erum nánast staddir í sömu sporum," sagði John Winner yfirlögreglu- þjónn við fréttamenn. Kannski sloppinn úr landi Það þykir ekki óhugsandi að morð- inginn hafi sloppið úr landi en lýs- ingar af honum eru svo óljósar að flugvallarlögreglan telur sig ekki geta útilokað að hann hafi sloppið hjá henni. Ingvar Carlsson, eftirmaður Pal- mes, sagði í gær að yfirvöldin hefðu enga vísbendingu um ástæður morð- ingjans, þjóðerni hans eða annað. Lögreglan hefur hætt að svara spurningum fréttamanna en segist munu senda frá sér reglulega frétta- tilkynningar. Þekkti ekkjan morðingjann? Vitnisburður Lisbeth Palme, ekkju forsætisráðherrans, sem særðist óverulega í árásinni, er lögreglunni mikilvægt spor. Hefur lögreglan dregið til baka fyrri yfirlýsingu um að hún kunni að hafa séð morðingj- ann einhvers staðar áður. - Hefur það vakið upp vangaveltur um að lögreglan óttist um öryggi Lisbeth ef morðinginn kvíðir því að hún þekki hann. Enda er hafður mjög öflugur vörður um hana. Það er sannfæring lögreglunnar að morðið hafi verið rækilega undirbúið og að morðinginn hafi lengi verið búinn að elta Palme-hjónin áður en hannlét til skarar skríða. Trúa ekki á hryðjuverkasam- tökin Gunnlaugur A. Jónsson, fréttarit- ariDV í Lundi: Tvenn hryðjuverkasamtök hafa þegar lýst morðinu á hendur sér. Kom fram í gær að þegar á morðnótt- ina hafi sænska sendiráðið í Bonn fengið upphringingu manns sem sagði: „Þetta eru Rauðu herdeildirn- ar. Við höfum myrt forsætisráðherra ykkar.“ Önnur símhringing var síðan í gær til fréttastofu einnar í London en sá sem í símanum var sagði: „Þetta eru Holgeir Meins-samtökin. Við viljum staðfesta að við berum ábyrgð á morðinu á Olof Palme. Það var í hefndarskyni vegna viðbragða sænsku ríkisstjórnarinnar 1975, þeg- ar við höfðum tekið á okkar vald sendiráð V-Þýskalands í Stokkhólmi - og þær afleiðingar sem þau við- brögðu höfðu fyrir tvo af félögum okkar.“ V-þýska lögreglan segist vantrúuð á áreiðanleika þessara yfirlýsinga, morðið á Palme sé engan veginn dæmigert fyrir vinnubrögð Rauðu herdeildanna, ennfremur að enginn af félögum Holger Meins- samtakanna gangi nú laus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.