Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Page 11
DV. DRIÐJUDAGUR 4. MARS1986.
11
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Janúarappgjörið:
Mun ódýrari en
desembermánuður
KRONUR
7000
MEÐALTALSKOSTNAÐUR
í JANÚAR1986
6139
3 4 5
FJÖLSKYLDUSTÆRÐ
Meðaltalstölur í heimilisbókhaldinu
hjá okkur voru mun lægri í janúar
heldur en í desember, eða 3.821 kr. á
mann, án tillits til ijölskyldustærðar.
Sami kostnaður var í desember 5.099
kr. Þetta er mjög eðlilegt. Oft er ríflega
keypt inn í desember og eiga menn
þá oft birgðir sem lifað er á í janúar-
mánuði.
Oft hefur það verið á þann veg að
meðaltalstölumar hafa ekki komist
upp í jólamánuðinn fyrr en í maí.
Við reiknuðum einnig út meðaltals-
kostnað hjá hinum ýmsu fjölskyldu-
stærðum. Eins og jafnan áður var
hæst útkoman hjá einstaklingunum
sem senda okkur inn upplýsingaseðla.
Þeir voru með 6.139 kr. að meðaltali
ámánuði.
Næstdýrust var útgerðin hjá þriggja
manna flölskyldunum sem voru með
4.474 kr. á mann að meðaltali. Lægst
var útkoman hjá tveggja manna fjöl-
skyldunum sem voru með 3.309 kr. á
mann að meðaltali.
Hjá fjögurra manna fjölskyldunum,
sem er jafnan fjölmennasti hópur
þeirra sem senda okkur upplýsinga-
seðla, var meðaltalið 3.955 kr. á mann,
hjá fimm manna fjölskyldunum var
það 3.508 kr. á mann, hjá 6 manna
fjölskyldunum var það 3.670 kr. á
mann og 3.514 kr. hjá fjölmennustu
fjölskyldunum sem sendu okkur upp-
lýsingaseðla, þeim sjö manna.
Nú er kominn nýr mánuður til þess
að gera upp og biðjum við fólk að fylla
upplýsingaseðilinn út og senda okkur
hann án tafar.
-A.Bj.
Athugasemd
fraSolhf
DV hefúr borist athugasemd
frá Davíð Scheving Thorsteins-
syni vegna greinar sem birtist
hér á Neytendasíðunni 26. febrú-
ar.
Þessi athugasemd er í tilefni
ummæla Margi-étar Guðmunds-
dóttur frá Vatnsskarðshólum í
Mýrdal þar sem haft er eftir
henni að svaladrykkir séu „fullir
af rotvamarefnum og ýmsum
aukaefnum sem eru langt frá því
að vera holl eða góð“.
Davíð Scheving Thorsteinsson
\nldi í þessu sambandi koma þeirn
upplýsingum á framfæri að í
Svala væru engin rotvamarefhi
og það aukaefni sem er í drykkn-
um er unnið úr gulrótum og því
þrungið af vítamínum. Varð-
andi þá könnun, sem vísað er til
að DV hafi staðið fyrir á ávaxta-
dtykkjum, vildi hann einnig
upplýsa að innihald Svala reynd-
ist vera það sama og gefið er upp
á femunum.
Þessari athugasemd er því hér
með komið á framfæri.
-S.Konn.
Vísitölufjölskyldan með fjór
föld laun „okkar“ fjölskyldu
„Um leið og ég sendi upplýsingaseðil
janúarmánaðar langar mig að senda
ársuppgjör fyrir árið 1985. Konan mín
hefúr haldið heimilisbókhald síðan
1983 og skrifað niður hvem smáhlut
í stílabók, heiti, vigt og verð. Ég tók
mig til og skoðaði þetta bókhald til
þess að sjá hvað þarna mætti betur
fara,“ segir m.a. í bréfi frá heimilis-
föður sem búsettur er úti á landi.
Uppgjörið þeirra hjóna er ákaflega
nákvæmt og merkilegt í alla staði.
Launin em lág eða 273.514 kr. yfir
árið sem gerir 22.792 kr. á mánuði að
meðaltali. Þótt þessi hjón okkar greiði
engan skatt og séu í frírri húsaleigu
að því er virðist vantar þau upp á að
endar nái saman yfir árið. Eins og
segir í bréfinu þurftu þau að fá fyrir-
framgreiðslu á janúarkaupi til þess að
standa skil á desemberreikningum.
Vísitölufjölskyldan
Fyrir skömmu vom birtar tölur yfir
það hvað vísitölufjölskyldan svokall-
aða þarf til þess að lifa sæmilegu lífi
á þessu ári en það reyndist vera ein
milljón og tvö hundmð þúsund kr.
Munar þar allmiklu og á okkar fjöl-
skyldu eða rúmlega fjórfalt. Nákvæm
skilgreining var á útgjöldum vísitölu-
fjölskyldunnar og gerðum við að
gamni okkar að reikna út hve margir
hundraðshlutar hver útgjaldaliður var
aftekjunum.
Vísitölufjölskyldan þarf að eyða 23%
í matvöm en okkar fjölskylda þarf að
borða fyrir 36% af laununum. Það
bendir til þess að okkar fjölskylda
hafi alltof lágt kaup, sem er líka auð-
sætt af kauptölunum.
Okkar fjölskylda eyddi 17% af laun-
um sínum í tóbak og drykki (visitölu-
fjölskyldan 5%). í bréfinu segir enda
að „konan er hætt að reykja og ég er
búinn að draga úr reykingum, er
raunar hættur í bili“, segir í bréfinu.
I bréfinu er einnig bent á að þau
hjón hafi ekki farið í bíó eða á ball í
tvö ár, né aðra skemmtun og þau eigi
ekki bíl.
Okkar hjón notuðu 9% af laununum
til fata- og skókaupa. Er það svipað
og vísitölufjölskyldan gerir en hún
notaði 8% af launum sínum í þann
lið. Okkar fólk notaði h'tið í húsgögn
og annan heimilisbúnað eða aðeins
2% á meðan vísitölufjölskyldan notaði
heil 8% í þann lið. Okkar fólk er hins
vegar heilsuhraust eins og vísitölufjöl-
skyldan. Báðar fjölskyldurnar notuðu
aðeins 2% af Iaununum í heilsuvemd.
Vísitöluflölskyldan notaði 9% í
„aðrar vömr og þjónustu" á meðan
okkar fólk notaði 8% í hreinlætisvör-
ur o.fl. til heimilisins. Okkar fólk
þurfti að nota 23% af launum sínum
í „ferðir, póstgjöld, happdrætti, áskrift-
ir o.fl.“ á meðan vísitöluflölskyldan
notaði 14% til reksturs bifreiðar, 2%
í ferðir og flutning, 10% í tómstundir
og menntun og 0,7% í önnur útgjöld
en þessir liðir gera samanlagt 26.7%.
Mjólk og kjötdýrast
I bréfinu er nákvæm sundurliðun á
matvörukostnaðinum. Hann var upþ
á kr. 99.571 yfir allt árið. (rúml. 8 þús.
kr. á mán. sem er 2.700 kr. á mann að
meðaltali). Kostnaðinum er skipt á
eftirfarandi hátt:
Mjöl, grjón, brauð, kökur og bökunarvörur kr. Prósent 14.210 14%
Kjöt- og kjötvörur 24.248 24%
Fiskur og fiskvörur 4.736 5%
Mjólk(673 1) rjómi ostur egg 29.420 30%
Smjörlíki olíur 5.864 6%
Grænmeti og ávextir 14.774 15%
Kartöflur og kartöfluvörur 2.142 2%
Sykur 1.015 1%
Te kafii kakó súkkulaði 3.157 3%
Takið eftir hve fiskur er lítið notaður
en víða úti á landi er erfitt um vik að
ná í nýjan fisk, sem er mun ódýrari
en kjötmeti. Fiskútgjöldin em ekki
nema 5% af allri upphæðinni á meðan
kjöt og kjötvömr em 24%. Mjólkurút-
gjöldin eru gn'ðarlega hátt hlutfall af
heildampphæðinni, 30%. Þetta er svo
nákvæmt bókhald að það er m.a.s.
tekið fram hve marga 1 af mjólk þarna
er um að ræða eða samtals 673 1. Það
er að meðaltali 1,7 I á dag alla daga
ársins. Það er ekki mikið af unninni
og dýrri mjólkurvöru inni í upphæð-
inni þannig að það er erfitt að sjá
hvernig fara á að spara á þessum lið.
Ekki völ á aukavinnu
„Við getum ekki skapað okkur
aukavinnu og tekjur okkar em svona
lágar. Við treystum okkur ekki til að
flvtja suður á mölina. Að leigja hús-
næði og annað sem kæmi til myndi
skapa okkur enn meiri vandræði.
Konan þyrfti þá að fara að vinna utan
heimilisins einnig. Þá yrði barnið að
fara á barnaheimili, eða börnin því
annað bam er á leiðinni. Við viljum
gjaman ala bömin okkar upp sjálf.
þess vegna fluttum við í sveit.
Svo vil ég þakka fyrir allt það sem
birst hefur á Neytendasíðunni," segir
í þessu bráðskemmtilega bréfi frá
heimilisföður.
Við þökkum bréfið og vonum inni-
lega að nýir kjarasamningar eigi eftir
að færa þessu unga fólki auknar tekjur
þannig að matarkostnaðurinn verði
lægra hlutfall af heildartekjunum.
-A.Bj.
BETRIUMFERÐARMENNING 8
í UMSJÁ BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA
„Bíll með ökuljós kveikt sést í
ÖLLUM tilfellum betur í umferðinni“
- segja sérfræðingar í umferðaröiyggismálum
Nú em jólin afstaðin og öll sú
ljósadýrð sem þeim fylgdi. Fyrir jólin
keppast allir við að setja upp jóla-
ljósaseríur sem víðast til að prýða
umhverfið.
Einn er sá vettvangur sem jóla-
stemmningin nær ekki til, það eru
bílarnir á götunum. Flestir bílstjórar
gera sér nefnilega grein fyrir að
betra er að hafa kveikt á bílljósunum
allan ársins hring. Reyndar eru
sumir ökumenn í sparnaðarhugleið-
ingum og spara ökuljósin við og við.
en á undanfömum ámm fer þeim í
hópi ökumanna fjölgandi sem gera
sér grein fyrir mikilvægi ökuljós-
anna allan sólarhringinn. Við viljum
aðeins benda þeim fámenna hópi,
sem ekki hefur enn látið sannfærast
um mikilvægi ökuljósanna allan
sólarhringinn, á að í nýjum umferð-
arlögum, sem nú liggja fyrir hinu
háa Alþingi, er gert ráð fyrir því að
lögleidd verði notkun ökuljósa all-
an sólarhringinn yfir vetramiánuð-
ina. Svo það er eins gott að byrja
að fara að venja sig við notkun
þeirra. Það er alls ekki að ástæðu-
lausu áð notkun ljósanna verði lög-
leidd allan sólarhringinn. Hver
kannast ekki við það, sem mætir bíl
þegar sólin er lágt á lofti og skín
beint í augun, hve mun auðveldara
er að sjá bílinn, sem á móti kemur,
ef hann notar ökuljósin.
Að'mati þeirra, sem að umferðar-
öryggismálum starfá, sjást bílar í
öllimi tilfellum fyrr og mun betur
hafi þeir ökuljósin kveikt. Því vilja
þeir ganga enn lengra og láta lög-
leiða ökuljós allan sólarhringinn allt
árið, enda telja þeir að mönnum
hætti síður við að gleyma ökuljósun-
um á þegar þeir drepa á bílnum, séu
þeir í þjálfun allt árið og taki sér
ekki frí frá ökuljósunum yfir sum-
artímann. En á meðan ekki er búið
að lögleiða notkun ökuliósa allan
sólarhringinn yfir vetrarmánuðina
verðum við, góðir ökunienn, að láta
skynsemina ráða og hafa þau sífellt
tendruð á akstri. Við sem viljum
sýna okkur og sjá aðra í umferðinni
verðum að vona að ljóslausi hópur-
inn opni augun fyrir mikilvægi ljóss-
ins í umferðinni.
E.G.