Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Blaðsíða 17
DV. DRIÐJUDAGUR 4. MARS1986.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
í, Bogdan landsliðsþjálfari og Þórður
slandi
æti
af íslenskaliðinu
gegn Ungverjalandi. Þessi spá Scho-
bels sýnir þó að íslenska liðið á mjög
góða möguleika á að gera stóra hluti
í þessari keppni. Línurnar skýrast
mikið eftir leikina í kvöld en eins
og staðan er núna þá standa Ung-
verjar og Júgóslavar best að vígi.
-SK
iliðsþjálfarinn i handknattleik, hefur
Þriðji sigurinn í röð
gegn Dönum eriendis?
- ísland og Danmörk leika í HM í Luzem í dag
HOPNUM
IAYERN
eli sjúkraþjálfara
rtecht
almenn í herbúðum liðsins upp á
siðkastið og það er aðalástæðan fyrir
því að Arie Haan, stjóri Anderlecht,
þurfti að kalla Arnór til sín. Ekki
er búist við því að Arnór muni leika
á morgun en nokkuð víst verður að
teljast að hann verður á bekknum.
Þess má að lokum geta að sjúkra-
þjálfari Anderlecht, sá er varaði fé
lagið við því að nota Arnór, er ný-
kominn til liðsins. Hann er hollensk-
ur og hefur starfar sem aðalsjúkra-
þjálfari danska landsliðsins. -fros
rfa í lokin
Lí2.deildíkörfu
var staðan 69-67. Þá skoraði HSK
þriggja stiga körfu og hafði því bæði
stigin með sér.
Atkvæðamestur í liði HSK var
Einar Haraldsson með fimmtán stig
en í liði UÍA, Unnar Vilhjálmsson,
betur þekktur sem hástökkvari með
20 stig. Bæði liðin hafa tryggt sér
sæti í úrslitakeppninni.
-fros
,,Við erum hæfilega bjartsýnir á
góð úrslit gegn Dönum. Það er þó
ljóst að við verðum að vinna þennan
leik ef okkur á að takast að ná i mjög
gott sæti í þessari keppni,” sagði
Guðjón GuðmundsSon, liðsstjóri ís-
lenska landsliðsins, i samtali við DV
í gærkvöldi.
Um hádegisbilið í dag hélt íslenska
landsliðið héðan frá Bern áleiðis til
Luzern, heimabæjar þeirra Sigurðar
Grétarssonar og Ómars Torfasonar,
atvinnumanna í knattspyrnu, en þar
leika íslendingar gegn Dönum í kvöld
klukkan sjö. Gífurleg spenna ríkir
hér á meðal þeirra Islendinga sem
hér dvelja og ekki er talað um annað
Þorgils byrjar
Þorgils Óttar Mathiesen verður í
byrjunarliði íslands gegn Dönum i
Luzern í kvöld, það er ef Island byrjar
með knöttinn. Annars í fyrstu sókn.
Þá kemur Páll Ólafsson í liðið í stað
Alfreðs Gíslasonar. -SK
en leikinn í kvöld. Alltaf hefur verið
hart barist þegar íslendingar mæta
Dönum enda Danir okkar erkifjend-
ur á handknattleiksvellinum ekki
síður en i öðrum íþróttagreinum.
Síðast unnum við, hvað skeður
í kvöld?
Síðast, þegar íslendingar og Danir
léku landsleik í handknattleik á
Baltic Cup keppninni í Danmörku,
unnu íslendingar með þriggja marka
mun þrátt fyrir að marga snjalla
leikmenn vantaði í íslenska liðið.
Bæði lið tefla í kvöld fram sinum
bestu leikmönnum og vonandi fær
STEFAN
KRISTJÁNSSON
BLAÐAMAÐUR
DV SKRIFAR
FRÁHM
í SVISS
Þorgils Óttar að reyna sig á linunni.
Þónokkuð hefur verið skrifað um
landsleiki Islendinga gegn Dönum
bg Svíum og blöðin segja að þetta
verði „derbyviðureignir” eins og þær
gerist bestar. ' -SK.
Matthías með
besta tímann
- í Reykjavíkurmeistara-
mótinu í skíðagöngu
A-sveit Skiðafélags Reykjavíkur
vann sigur á Reykjavíkurmeistara-
mótinu í boðgöngu á skiðum er fram
fór um helgina við Borgarskálann í
Bláfjöllum. Sveitin sem var skipuð
þeim Matthíasi Sveinssyni, Ingólfi
Jónssyni og Einari Kristjánssyni
kom i mark á 2:04,17 en í öðru sæti
varð b-sveit sama félags á tímanum
2:15,27. Gengnir voru tíu kilómetrar.
Besta brautartímanum náði Matt-
hías Sveinsson. ' -fros
Magnús Bergs
æfirmeðVal
- og möguleiki á að hann leiki með
Valsliðinuísumar
Landsliðsmaðurinn kunni, Magnús
Bergs, sem leikið hefur um langt
árabil erlendis, síðast með Braunsch-
weig í Vestur-Þýskalandi, er byrjað-
ur að æfa á ný með sínum gömlu
félögum í Val. Hann var einn af burð-
Þórður til
Víðis
Þórður Þorkelsson. miðherji Reyn-
is í knattspyrnunni. hefur gengið til
liðs við 1. deildar lið Víðis í Garði -
ekki Keflvíkinga eins og mishermt
var í blaðinu í gær. -emm.
arásum Valsliðsins áður en hann
hélt í atvinnumennskuna. Gerðist
fyrst atvinnumaður hjá Borussia
Dortmund skömmu eftir að Atli
Eðvaldsson hafði gert samning við
þýska félagið.
Magnús Bergs hefur oft leikið
landsleiki fyrir Island, meðal annars
fyrstu landsleikina í fyrrasumar.
Samningur hans við Braunschweig
. rann út sl. vor og Magnús sagðist þá
ætla að leggja skóna á hilluna. Hann
er verkfræðingur að mennt. En nú
er hann sem sagt kominn á fulit á
ný og miklar likur á að hann leiki
meðValsliðinuísumar. hsim
• Magnús Bergs.
Úrslitin í Sevilla og Lyon
Knattspyrnusamband Evrópu ák-
vað á fundi sínum fyrir helgi leikstaði
fyrir úrslitaleikina í Evrópumótun-
um. Leikurinn í Evrópukeppni meist-
araliða mun fara fram í Sevilla og
leikurinn í keppni bikarhafa mun
fara fram í Lyon í Frakklandi.
Það var tólf manna nefnd sam-
bandsins sem komst að þeirri niður-
stöðu að láta leikinn í keppni meist-
araliða fara fram á Ramon Pizjuan
leikvellinum í Sevilla en ekki á velli
Barcelona til að hindra þá hugsan-
legu stöðu ef Barcelona myndi kom-
ast í úrslitin. íslenska landsliðið ætti
reyndar að þekkja vel til vallarins í
Sevilla því að liðið æfði nokkrum
sinnum á vellinum fyrir leik sinn við
Spán í haust. Lcikurinn mun fara
fram sjöunda maí en leikurinn í
keppni bikarhafa fer fram annan
maí.
' -fros
FRAM FEKK RUMLEGA1100
ÞÚS. KR. STYRK FRÁ UEFA
- vegna taps í Evrópukeppninni. Valurfékk 672 þúsund og
Akranes 528 þúsund krónur
Knattspyrnufélagið Fram fékk
51.493 franka, svissneska, eða eina
milljón 133 þúsund kr.íslenskar, í
styrk frá UEFA, knattspyrnusam-
bandi Evrópu, vegna þátttöku í Evr-
ópukeppni bikarhafa í haust. Á fundi
framkvæmdanefndar UEFA í Róma-
borg rétt fyrir helgi var samþykkt að
greiða félögum í Evrópumótunum
þremur 50% af tapi þeirra vegna
þátttökunnar. Fram komst sem
kunnugt er i aðra umferð. Tapaði
samtals 102.986 svissneskum frönk-
um á þátttökunni, þar af 60.621
franka vegna leikjanna við Rapid,
Vínarborg, í 2.umferð.
Akranes tók þátt í Evrópubikarn-
um, keppni meistaraliða, og fékk
23.993 franka styrk frá UEFA eða
um 528 þúsund krónur. Tap Akraness
vegna leikjanna við Aberdeen í
fyrstu umferð nam 47.987 frönkum.
Þá keppti Valur í UEFA keppninm
og fékk 30.547 franka styrk frá UEFA
- um 672 þúsund íslenskar - vegna
leikjanna við franska liðið Nantes.
Valur tapaði 61.095 frönkum vegna
þátttökunnar. Það var fimmta mesta
tapið hjá einstöku félagi vegna leikja
í 1. umferðinni. Rabat Ajax, Möltu,
tapaði mest eða 76.387 frönkum. Þá
Slavia, Prag, með 73.751 franka og
Galway Utd, írlandi, var með þriðja
mesta tapið, 65.626 franka.
hsím
• Kristján Arason skorar gegn
Rúmgníu á HM i Sviss.
DV-mynd Bjarnleifur.
KristjánAraó
þriðja sæti
-yfir markahæstu menn
á HM í Sviss
Kristján Arason, sem hefur leikið
mjög vel með íslenska landsliðinu hér
í Sviss, er þriðji markahæsti leikmað-
ur keppninnar fvrir leikina í k völd.
Krikján átti stórleik með íslenska
landsliðinu gegn Ungverjum í síð-
asta leik íslenska liðsins en samtals
hefur hann skorað 30 mörk í fjórum
leikjum og níu þeirra úr vítaköstum.
Annars lítur listinn vfir markahæstu
leikmenn þannig út eftir síðustu
leiki:
1. Kang, Suður-Kóreu...39/5
2. Duránona, Kúbu......37/9
3. Kristján Arason, íslandi..30/9
4. Voinea, Rúmeníu.....30/13
5. Waszkiewicz, Póllandi....28/10
6. PeterKovac,Ungv.landi...27/5
7. Ingolf Wiegert, A-Þýskal..27/0
8. M. Fenger, Danmörku.26/0
9. Björn Jilsén, Sviþjóð..25/12
10. E. Wundrelich, V-Þýskal.. 24/10
11. Cvetkovic, Júgóslavíu.23/4
12. Peter Weber, Sviss.23/9
13. Keld Nielsen, Danmörku...23/9
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu á Kristján þokkalega mögu-
leika á að verða rneðal markahæstu
manna og ef til vill tekst honum að
verða markakóngur keppninnar.
Það yrði svo sannarlega frábær ár-
angur í keppni þeirra bestu i heimin-
um. -SK
3000 sáu leik
íslandsvið
Ungverjaland
-semernæst-
mesta aðsóknin á
leikáHM
Af öllum þeim leikjum sem fram
fóru í fyrrakvöld hérá HM-keppninni
í Sviss komu næstflestir áhorfendur
til að sjá ísland leika gegn Ungverja-
landi í Basel.
Áhorfendur á leik Sviss og Austur-
Þjóðverja voru rúmlcga 4000 en 3000
áhorfendur fylgdust mcð leik íslands
og Ungverjalands. 2412 áhorfendur
sáu Sovétmenn sigra Vestur-Þjóð-
verja og 2379 áhorfendur voru á leik
Júgóslavíu og Spánar. Á leik Svía
og Rúmena voru 20(X) áhorfendur og
jafninargir voru þeir á leik Dana og
Suður-Kóreumanna. Aðsóknin á
leikina hér hcfur verið mjög góð og
þegar nær drcgur úrslitum keppn-
innar er uppselt á al (a leiki. -SK.
Svíarsækja
Svíþjóð mun verða eitt þeirra landa
er sækja mun um að fá að lialda
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik árið 1994 en á því ári munu
verða sextiu ár frá því að Sviar léku
sinn fyrsta landsleik í handknattleik.
Næsta heimsmeistarakeppni, er fer
fram árið 1990, verður í Tékkósló-
vakíu. -fros