Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1986, Page 25
DV. J>RIÐJUDAGUR 4. MARS1986. 25 Sandkorn Sandkorn Vel gerð skattskýrsla Af því að almennilegt fólk er nú búið að skila skatt- skýrslunum sínum og skussarnir að leggja sið- ustu hönd á verkið er vel við hæfi að birta eftirfar- andi glens: Bílstjóri einn fyrir austan þótti duglegur að bjarga sér og sinum, og vel það. Þrátt fyrir þetta voru tekjur á skattframtali hans nánast engar, og vel fyrir neðan þau mörk sem hann og ijöl- skylda hans þurfti til lífs- viðurværis. Skattstjóri sá er þjónaði i heimabyggð bílstjóra gat verið beinskeyttur ef því var að skipta. Eitt sinn er bílstjórinn kom að skila skattframtali sínu rýndi skattstjóri lengi í plaggið en laumaði svo út úr sér: „Heyrðu, Jón minn, þú og öll þin fjölskylda létust i apríl.“ Á lambhús- hettu einni fata Þeir Hvergerðingar sem áttu leið um götur þorpsins dag einn i fyrri viku urðu ákaflega felmtraðir við sjón þá er þeim mætti. Þeir sáu nefnilega mann einn á harðahlaupum. Var hann allsnakinn en með myndar- lega lambhúshettu á höfð- inu. Erfiðlega hefur gengið að fá upplýsingar um þetta sérkennilega mál því auð- vitað flokkast það undir málaflokkinn „feimnis- mál“. En eftir því sem næst verður komist mun maður- inn hafa runnið skeiðið á adamsklæðunum einum eftir aðalgötu þorpsins. Þegar hann kom að verslun einni við enda götunnar hugðist hann höndla þar en hætti við þegar rúta full af fólki stoppaði fyrir utan verslunina. Hann skokkaði þvi til baka eftir aðalgöt- unni þannig að vegfarend- ur voru nú loks neyddir til að trúa eigin augum. Eftir því sem næst verður komist var þarna um ein- hvers konar veðmál að ræða milli vinnufélaga. Átti sá djarfi að dónast um þorp- ið og kaupa kók á leiðinni. Því erindi lauk hann í Olis-- sjoppunni á staðnum. Segir sagan að hann hafi orðið heilum 40 þúsund krónum ríkari á striplinu. Löng leið til Keflavíkur Hún getur reynst löng leiðin til Keflavíkur ef marka má ferðasögu bréf- korns sem barst okkur í hendur fyrir skömmu. Það var póstlagt í Reykjavik þann 24. janúar siðastlið- inn. Var greinilega skrifað utan á það heimilisfang í Keflavík. En þrátt fyrir það var bréfið borið út á sam- svarandi heimilisfang í Reykjavík. Heimilisfólkið þar end- ursendi bréfið að sjálf- sögðu. En ekki hafði langur timi liðið þegar bréfið var enn borið út á sama heimil- isfang í Reykjavík. Tók fólkið það nú til bragðs að skrifa eftirfarandi orðsend- ingu utan á umslagið: „Kæri póstur! Þetta er í annað skipti sem þetta sama bréf kemur hingað. Seinast fór ég með það í pósthúsið og benti á að á því stendur KEFLAVÍK. Nú er að vita hvort þetta dugirbetur." Og þetta mun hafa dugað þvi næst var bréfið borið út á rétt heimilisfang í Kefla- vík. En þar hafnaði það ekki fyrr en 10. febrúar eða rúmum hálfum mánuði eftir að það var póstlagt í Reykjavík. Það væri synd að segja að þeir væru hraðlæsir á pósthúsinu í Reykjavík. Þingeyskt Dallas Þingeyingar eru óvenju góðir með sig þessa dagana. Þykjast þeir standa sig manna best í afþreyging- ariðnaði. Þeir komu nefni- lega við sögu í ærsla- krimmanum „Á fálkaslóð- um.“ Einnig í kvikmynd- inni „Rauðu skykkjunni" , svo og „ Ut í óvissuna" eftir Desmond Bagley. Og Þing- eyingar hugsa hærra, ef marka má pistil í Víkur- blaðinu: ,, Fransmenn sem óttuð- ust neikvæð áhrif hinnar ruddalegu Dallassyrpu á fíngerða franska menn- | ingu, hófu sjálfir fram- JR: mývctnskur kísilbóndi eöa...? leiðslu á seríu eftir sömu kokkabókum. Að fenginni reynslu ís- lendinga af hinum ill- ræmdu Dallasfigúrum ann- ars vegar og frábærri frammistöðu Þingeyinga í sjónvarpsmyndum hins vegar, liggur það í hlutarins eðli að þegar RUV sér sóma sinn í að hefja framleiðslu á heimatilbúinni græn- sápuóperu a la Dallas, þá þarf ekki að leita lengi að umhverfi eða leikurum. Hinn íslenski JR hlýtur að verða annað hvort mý- vetnskur kisilbóndi ellegar húsvískur stórútgerðar- maður...“ Pamilla: Þingeysk kennslu- kona...? Umsjón: Jón G. Hauksson. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Melabraut 63, efri haeð, Seltjarnarnesi, þingl. eign Svanhildar Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 7. mars 1986 kl. 16.45. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hrólfskálamelum, skreiðarskemmu á horni Nesvegar og Suðurstrandar, austurenda, Seltjarnarnesi, þingl. eign Péturs Snælands hf„ fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 7. mars 1986 kl. 16.15. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 7. og 10. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni lóð á Langeyrarmölum, ásamt mannvirkjum, Hafnarfirði, þingl. eign Langeyr- ar hf„ fer fram eftir kröfu Sambands almennra lífeyrissjóða og Gjaldheimtunn- ar i Hafnarfirði á eigninni sjálfri föstudaginn 7. mars 1986 kl. 15.30. _____Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 131 „ 137. og 140. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Fjóluhvammi 3, Hafnarfirði, þingl. eign Þorsteins Sveinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Hafnarfirði, innheimtu ríkissjóðs, Guðjóns Steingrimssonar hrl„ Sambands almennra lifeyrissjóða, Þorvarðar Sæmunds- sonar hdl. og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 7. mars 1986 kl. 15.00. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 9., 19. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Garðavegi 6B, Hafnarfirði, þingl. eign Péturs Sigurgunnarssonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 7. mars 1986 kl. 13.45. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta í Álfheimum 74, þingl. eign Heilsuræktarinnar Glæsibæ, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl„ Ásgeirs Thorpddsen hdl„ Baldurs Guðlaugssonar hrl„ Tryggingast. ríkisins, Landsbanka íslands, Gústafs Þ. Tryggvasonar hrl„ Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Guðjóns Á. Jónssonar hdl„ Ingólfs Friðjónssonar hdl. og Kristins Sigurjónssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. mars 1986 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. REYKJAVÍK 1786-1986 Á 200. afnuelisávi Reykjavíkur verd- ur nýtt útihú Borgarhókasafns Reykjavíkur opnaó í Gerðubergi 3-5 þriðjudaginn 4. mars. Boryarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, opnar það með viðhöfn kl. 16.30. Borgarbókasafn í Gerðubergi hefur almenna starfsemi sína kl. 19 í dag, þriðjudaginn 4. mars. í safninu er útlánsdeild fyrir fyrir börn og fullorðna, upplýsinga- þjónusta, tímaritadeild og tónlistardeild með góðri aðstöðu til að hlýða á hljómplötur úr tónlistardeild safnsins. Safnið verður opið mánudaga - föstudaga kl. 9-21 og laugardaga kl. 13-16. Einnig verður opið þar næstu þrjá sunnudaga i mars kl. 13-17. Um opnunartíma í sumar verður nánar ákveðið síðar. Boðið er til sérstakrar kynningardagskrár fyrstu starfsdaga bókasafnsins og er hún öllum opin og aðgangseyrir enginn. Dagskrá- in er sem hér fer á eftir: ÞRIÐJUDAGUR 4. mars. Kl. 21: Tónlistardagskrá (í samvinnu við Menningarmiðstöðina, Gerðubergi, sem á þriggja ára starfsafmæli þennan dag). Atli Heimir Sveinsson: „Guðsbarnaljóð“, tónlist við samnefnt ljóð Jóhannesar úr Kötlum urn Guðmund Thorsteinsson, Mugg. Flytjendur: Bernharður Wilkinson, flauta, Einar Jóhannesson, klarinett, Hafsteinn Guðmundsson, fagott, Monika Abendroth, harpa, Szymon Kuran, fiðla, Carmel Russill, selló, Friðrik Guðni Þórleifsson, Vilborg Dagbjartsdóttir. Einsöngur: Kristinn Sigmundsson. Undirleikari: Jónas Ingimundarson. MIÐVIKUDAGUR 5. mars. Kl. 14: Litla brúðuleikhúsið flytur Rauðhettu. Kl. 20: Tónlistardeild safnsihs kynnt í umsjá Friðriks Þórs Þórleifssonar. FIMMTUDAGUR 6. mars. Kl. 10.30: Rauðhettaendurlekin. Kl. 21: Unglingadagskrá í umsjá Fellahellis. Efni: Ástin í unglingabókum. Skemmtiatriði og kvikmynd. Spurningakeppni diskóráðs. LAUGARDAGUR 8. mars. Kl. 16: Bókmenntadagskrá. „Mannlíf í Reykja- vík í 200 ár. Frá Jóni Espólín til vorra daga. Samfelld dagskrá í ljóðum og lausu máli í umsjá Eiríks Hreins Finnbogasonar. Flytjendur: Helga Bachmann, Erlingur Gísla- son o.fl. — Geymið auglýsinguna. — SUNNUDAGUR 9. mars. Kl. 14: Skotturnar úr Breiðholtsskóla koma í heimsókn, kíkja í bækur safnsins og kynna sig. Höfundur: Brynja Benediktsdóttir. Skottur: Fína Skotla: Saga Jónsdóttir. - Litla Skotta: Guðrún Alfreðsdóttir. Stóra Skotta: Guðrún Þórðardótl'r. Kl. 16: Endurtekin tónlistardagskrá frá þriðju- deginum 4. mars. Lýkur þar með kynningardagskrá bókasafns- ins. Myndlistarsýning. Jón Reykdal sýnir verk sín í bókasafninu. Bveiðhyltingai’ og aðvir bovgavhúav! Bovgavstjóvn Reykjavíkuv býðuvyðuv velkonma í Bovgavbókasafn í Gevðubevgi!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.