Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Fleiri lög- reglumenn í Palme- málið Gunnlaugur Jónsson, fréttaritari DV íSviþjóð: Tvö hundruð lögreglumenn hafa verið settir i rannsókn morðsins á Olof Palme, til viðbótar þeim þrjú hundruð sem nú þegar vinna ein- göngu við rannsókn morðmálsins. Lögreglan í Stokkhólmi vinnur nú að því að fínkemba hverfið þar sem morðið var framið, í þeirri von að einhverjar vísbendingar sé þar enn að finna. Meðal annars er bankað upp hjá ölium íbúum hverf- isins og þeir spurðir út úr um morð- nóttina. Hefur lögreglan verið gagnrýnd fyrir að vera að þessu núna fyrst, þremur vikum eftir morðið. Dreifðu níði um Palme Gunnlaugur Jónsson, fréttaritari DV í Svíþjóð: „Við erum fórnarlömb sovésks níðs og áróðurs," segja talsmenn Evrópska verkamannaflokksins, eða EAP öfgasamtakanna, sem mjög hafa verið í fféttum að undan- förnu í sambandi við rannsóknina á morðinu á Olof Palme. Flokkur þessi komst fyrst veru- legá í sviðsljósið þegar á daginn kom að maðurinn, sem handtekinn var, grunaður um morðið á Palme, reyndist hafa verið félagi í flokkn- um. Nú hefúr maðurinn hins vegar verið látinn laus en lögreglan held- ur áfram að rannsaka félagaskrá EAP. „Við athugum öll nöfhin til að sjá hvort eitthvert þeirra geti tengst morðinu á Palme,“ sagði ónafngreindur heimildarmaður inn- an lögreglunnar í samtali við Ex- pressení gær. EAP bauð ffam í síðustu þing- kosningum í Svíþjóð og fékk þá tæplega fjögur hundruð atkvæði. Flokkurinn var nær óþekktur þar til nú, við rannsókn Palme-morðs- ins. Hins vegar hefur komið á dag- inn að liðsmenn EAP hafa marg- sinnis reynt að leysa upp kosninga- fundi hjá Olof Palme, auk þess sem EAP hefur dreift níði um Palme, bæði í formi prentaðs máls og mynda. Mikael Ericson, talsmaður flokksins, sagði í gær að EAP krefð- ist þess nú að allir fjölmiðlar tækju til baka ásakanir sínar í garð flokksins. Sagði hann ennfremur að flokkurinn myndi á næstunni birta „upplýsingar" um þá aðila sem hefðu tekið þátt í að útbreiða „sov- éskan áróður" um flokkinn. Réðstá biskup Ókunnur rnaðrn-, með amerískan framburð, réðst í gær á erkibiskup í kirkju hans af því að erkibiskup- inn neitaði að gifta hann, að því er lögreglan í Sidney í Ástralíu hefur skýrtfrá. Maðurinn hafði farið inn í litla kirkju í úthverfi Sidney og beðið biskupinn að gifta sig og nýfundna ástralska vinkonu sína. Sagði hann að mjög lægi á hjónaþgndinu því að hann þyrfti fljótlega að yfirgefa Ástralíu. Biskupinn neitaði að framkvæma athöfnina vegna þess að hann vissi engin deili á mannin- um. Þá gerði hann sér lítið fyrir og sló biskupinn í andlitið. Að því búnu stökk hinn vonsvikni bníðgumi að skrifborði biskups, reif þar síma úr sambandi og flúði siðan. Hann hefur ennekki náðst. Reagan: frelsið Fulltrúadeild Bandaríkjaþings felldi tillögúr Ronalds Reagans um eitt hundrað milljón dollara aðstoð við Contra skæruliða sem berjast gegn sandinistastjórninni í Nig- aragua. Daníel Ortega, forseti Nigaragua, sagði af því tilefni að þetta þýddi ekki að endi hefði verið bundinn á það sem hann kallaði „Kryðju- verkastefnu" Bandaríkjanna gegn Nigaragua. Sagði Ortega að svo lengi sem Reagan legði alla áherslu á hernaðarlega lausn á þessum átökum í Mið-Ameríku væri bein íhlutun Bandaríkjamanna yfirvof- andi. Reagan, sem ásakað hefur sandin- ista um að breiða út marxiska bylt- ingu, hefur lagt mikið undir í þessu máli og hann sagði afgreiðslu þings- ins áfall fyrir frelsið. Kveikjuhlutir w E Intermotor Eitt mesta úrval kveikjuhluta i allar helstu bil- tegundir, m.a. kveikjulok, kerti, platinur, hamr- ar, þéttar, háspennukefli o.fl. Verðfrá 174 þús. I með ryðvöm SÖLUDEILDIN ER OPIN KL, 10-16 LAUGARDAG Fólksbílar og Sport Afar hagstæð greiðslukjör VERÐSKRA: LADA1200 ...............Uppseldur LADA1500skutbíll, 4ragíra ..Var 249.694,- Nú 178.440,- Ný sending áætluð 182.955,- LADA1500 skutbíll, 5 gíra.Uppseldur LADASAFÍR................Var 229.794,- Uppseldur Ný sending áætluð 166.526,- LADA LUX.................Var 259.888,- Nú 189.869,- Ný sending áætluð 189.869,- LADA SPORT LS, 5 gíra...Var 426.915,- Nú 315.874,- Nýsending áætluð 317.283,- Ryðvörn innifalin í verði. Allir okkar bílar eru árgerð 1986, ryðvarðir og tilbúnir til afhendingar strax. Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu Varahlutaverslunin opin kl. 9-12. Munið 10% afsláttinn. < BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. M iílj SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.