Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986.
11
Yfirheyrsla Yfirheyrsla Yfirheyrsla Yfirheyrsla
Kjaftæði!
Egill Eðvarðsson í Eurovision-yfirheyrslu
- Ert þú persónulegur vinur Hrafns
Gunnlaugssonar og allra helstu popp-
tónlistarmanna á Islandi?
„Já. Ég er mikill vinur Hrafns
Gunnlaugssonar og það sama á við
um fjölmarga af bestu poppurum
þessa lands.“
- Er þar komin skýringin á því
að þið Björn Björnsson og fyrir-
tæki ykkar, Hugmynd, fenguð að
sjá um söngvakeppnina og leika
ykkur fyrir fé almennings með
vinum ykkar?
„Kjaftæði!"
- Hvers vegna kjaftæði?
„Vegna þess að ég er sannfærður
um að það hafi verið leitað til okkar
Bjöms af því að við erum atvinnu-
menn i dagskrárgerð. Þarna var
enginn klíkuskapur á ferðinni. Það
má reyndar taka það fram að það var
alls ekki Hrafn Gunnlaugsson sem fór
þess á leit við mig að við tækjum að
okkur þetta verkefni. Það var Pétur
Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
sjónvarpsins, sem gerði það þegar ég
vann að upptökum á áramótaskaup-
inu. Ég býst við að hann hafi gert það
vegna þess að hann vissi að við hefð-
um kunnáttu og þekkingu til að leysa
verkið af hendi. Þegar þetta var þá
var Hrafn Gunnlaugsson staddur í
Svíþjóð í kvikmyndaupptökum. Það
má svo sem vel vera að hann hafi
bent Pétri á okkur.“
- Hefur kostnaðaráætlun vegna
söngvakeppninnar verið hækkuð
úr 61/2 milljón i 10 milljónir?
„Ég kannast ekki við það. Við höf-
um haldið áætlun, vorum undir, svo
yfir, en nú held ég að við séum nánast
í jafhvægi."
- Fékk Jónas R. Jónsson 8 þús-
und krónur fyrir að kynna hvern
þátt í undankeppninni?
„Fyrirtæki okkar, Hugmynd, gerir
enga peningasamninga. Þau mál eru
öll hjá sjónvarpinu. Sjónvarpið borg-
ar fólkinu eftir sínum töxtum. Þar
komum við hvergi nálægt, tilkynnt-
um reyndar strax í upphafi að við
vildum ekkert hafa með slíka samn-
inga að gera.“
- Hvað eruð þið Björn með í
tímakaup á meðan á þessu verk-
efni stendur?
„Ég hef engar upplýsingar um það.
Bjöm sér um peningana. Annars
tókum við þetta ekki að okkur vegna
þess að okkur vantaði verkefni. Við
þurftum reyndar að ýta öðrum verk-
efnum til hliðar til að geta farið í
þetta og þar er um að ræða auglýs-
ingagerð sem vafalaust gefur miklu
meira í aðra hönd en þessi söngva-
keppni."
- Var keppendum ekki gert
mishátt undir höfði þegar sumir
sendu inn lög á spólum, nær
fullfrágengin á meðan aðrir not-
uðust við nótur?
„Það er tómt kjaftæði. Við hlustuð-
um á allt það efni sem okkur barst
og dæmdum lög eftir eiginleikum
þeirra en ekki útsetningum eða flutn-
ingi á spólum. Fyrir fagmenn er þetta
ekki svo mikið mál þó slíkt vefjist
fyrir ókunnugum. Allir, sem sátu í
Texti:
EiríkurJónsson
Myndir:
GVA
dómnefndinni lesa nótur, nema
kannski einn ...“
- Hver?
„Ég veit ekki hvort Jónas R. les
nótur.“
- Hvernig fóruð þið að því að
hlusta á 280 lög á fjórum dögum?
„Það er alltaf verið að gagnrýna
okkur fyrir einhvem ójöfnuð og
óheilindi. Þetta er tómt kjaftæði. Að
sjálfsögðu hlustuðum við ekki á öll
lögin til enda. Það þarf ekki að hlusta
í þrjár mínútur á sjö ára stelpu spila
frumsamið lag á píanó til að heyra
að sú litla á enn margt ólært. Þannig
var því farið í mörgum tilvikum. En
við hlustuðum á allt.“
- Hvattir þú alla helstu poppara
landsins til að senda lög í keppn-
ina?
„Já og mér finnst bara verst að
hafa ekki getað gert meira af því.“
- Hvers vegna var þá verið að
auglýsa eftir þátttöku alls al-
mennings. Var verið að hafa hina
að fiflum?
„Nei, hvers vegna máttu þeir ekki
vera með? Annars var það skoðun
nún og er enn að þessi keppni hefði
átt að vera lokuð. Við áttum að leita
til bestu manna okkar og láta þá eina
um að búa til lög. Þannig hefðum við
náð langbestum árangri. Sjónvarpið
vildi hins vegar hafa þetta opna
keppni og það varð úr.“
- Hefði ekki verið skemmtilegra
að velja eitthvert frumlegt lag
með séríslenskum einkennum í
stað þess að vera að apa stílinn
eftir söngkeppnislögum fyrri ára?
„Það var fjöldinn allur af sérkenni-
legum lögum, jafnvel skrýtnum og ég
man þau sum ennþá. Þau náðu því
hins vegar ekki að verða meðal 10
bestu og fóru því ekki lengra."
- Hefðir þú ekki getað beitt þér
fyrir þvi þarna í vinahópnum?
„Ef við eigum enn einu sinni að
minnast á þennan vinahóp minn þá
verð ég bara að segja að ef hefði átt
að útiloka alla kunningja mína frá
þessari keppni þá hefðu fáir orðið
með. Svo er náttúrlega hinn mögu-
leikinn að ég segði af mér. Ég lít á
kunningsskap minn við þetta fólk sem
styrkleikamerki frekar en klíkuskap.
Allt þetta jafnræðiskjaftæði i sam-
bandi við söngvakeppnina er ekki
áhugavert."
- Voru íslensku keppendurnir í
Bergen, þau Pálmi, Eiríkur og
Helga, valin með tilliti til útlits?
Hvernig þau tækju sig út á skján-
um?
„Já, að sjálfsögðu voru þau valin
með tilliti til útlits. Þau eiga að
syngja Gleðibankann í sjónvarpi og
við val á slíku gilda aðrar reglur en
við flutning á hljómplötu eða í út-
varpi. En fyrst og fremst verða þau
að hafa hæfileika til að syngja Gleði-
bankann. Það gera þau öll, Pálmi
verður ekki forsöngvari og Eiríkur
og Helga bakraddir. Þau syngja
Gleðibankann jöfnum höndum.“
- Hefðir þú ekki getað valið fal-
legra tríó?
„Jú, en ekki til að syngja. Þetta
fólk á að gera meira en syngja Gleði-
bankann. Það á einnig að vinna að
kynningu á landi og þjóð. Við skulum
ekki gleyma því að það eru 600 millj-
ónir sjónvarpsáhorfenda sem eiga
eftir að horfa á þau Pálma, Eirík og
Helgu syngja Gleðibankann. Þetta er
enginn dillibossahópur. Reyndar
langbesti hópurinn sem völ var á.“
- En ekki frumlegur?
„Við hefðum að sjálfsögðu getað
sent tvo söngvara og einn eldgleypi
til Bergen. Eða þá fengið Hólmfríði
Karlsdóttur til að leika millikafla á
klarinett og notað handboltalandslið-
ið í stað bakradda. Það hafa ýmsir
möguleikar verið skoðaðir. I þessum
hópi, sem við höfum nú valið, samein-
ast þrennt: Reynsla, kraftur og mýkt.
Það er töluvert.“
- Hefiir ykkur ekki tekist að gera
nein mistök í öllu þessu bralli?
„Jú, við hefðum átt að afhenda
höfundum laganna, sem komust í
úrslit, blómvendi í beinu útsending-
unni í sjónvarpinu. Það er kurteisi."
-í alvörutalað?
„Nei, það hefur ekkert komið upp
sem er annað tveggja óheiðarlegt eða
ólöglegt. Allar ábendingar um
klíkuskap afgreiði ég með einu orði:
Kjaftæði!" -EIR
Ekki bara Ijósmyndavörur, einnig
hljómtæki á hreint ótrúlegu verði
rmronnrm
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HFl|
LAUGAVEG1 178 - REYKJAVÍK. - SÍMI 685811
mimiimrmrmmmnr