Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Súkkulaðitíðin í hámarki páskaeggí
ar
Nú nálgast páskamir óðfluga með
öllu því umstangi sem þeim tilheyrir,
hátíðamat og auðvitað hinum ómiss-
andi páskaeggjum. í ár eru það tveir
aðilar sem framleiða páskaegg, Nói-
Siríus og Sælgætisgerðin Móna.
í þessum sælgætisgerðum hefur
súkkulaðiveislan staðið frá áramót-
um og nú síðustu dagana fyrir páska
er allt sett á fullt. Frá Mónu koma á
200.000 egg í 5 stærðum auk þess sem
páskaegg fyrir sykursjúka koma nú á
markað í fyrsta skipti. Þau innihalda
200 g af súkkulaði sem í eru annars
vegar 1076 hitaeiningar og hins vegar
1100 hitaéiningar. Súkkulaðið er
ýmist samansett úr mjólkurdufti,
ávaxtasykri, kakómassa, kakó-
smjöri, soyjamjöli og emulsifier lecit-
hin eða sorbitol, kakómassa, kakó-
smjöri, mjólkurdufti, heslihnetum-
assa, sakkaríni og lecithin. Ástæða
er að ' taka fram að þessi egg eru
eingöngu ætluð börnum og innihalda
leikfong í stað sælgætis.
Hjá Nóa-Siríus eru framleidd hátt í
300.000 egg í ár í 6 stærðum. Þórir
Haraldsson verksmiðjustjóri sagði
þetta mjög svipaðan fjölda og í fyrra
og sagði mest keypt af eggjum númer
3 og 4. „Við vitum í rauninni ekki
hvemig salan verður, en þetta er
alltafsvipað.
Í Sælgætisgerðinni Mónu var líf í tuskunum þegar DV-fólk kom á staðinn því
krakkar frá leikskólanum Bæjarbóli í Garðabæ voru í heimsókn og ljómuðu
eins og sólir. „Ég vildi að ég ætti svona súkkulaðivél," sagði einn um leið og
þau voru útleyst með páskaeggjum og smádóti.
Páskaeggin frá Mónu eru skreytt með pappírsskrauti, súkkulaði og slaufum
og þótt starfsstúlkurnar hafi verið að síðan um áramót sögðust þær hafa fulla
lyst á að gæða sér á páskaeggi um hátíðina.
Hér er konfektinu og molunum bætt í páskaeggin og auðvitað hinum ómiss-
andi málshætti sem oft kemur vel á vondan. Blaðamaður DV fékk „Allir eiga
glappaskot á ævi sinni“...
„Ef maður byijar að smakka þá getur maður ekki hætt,“ sagði skreytingar-
daman hjá Nóa og festi um leið blómaskraut á eitt eggið í viðbót við þau rúm
200.000 sem nú þegar hafa verið framleidd.
Verö á páskaeggjum frá Mónu
Þyngd Heild- Leiðb.
Stærð g/stk. söluv. smásöluv.
Lukkuegg 25g 25,- 45,-
1 3x20 g 50,- 90,-
2 105 g 115,- 205,-
4 210 g 228,- 410,-
6 270 g 290,- 520,-
8 350g 375,- 670,-
10 580 g 615,- 1100,-
Verð á páskaeggjum
frá Nóa-Siríus
Þyngd Heild-
Stærð g/stk. söluv.
1 50g 35,46
2 75 g 79,-
3 155 g 162,-
4 220 g 265,-
5 370 g 392,-
6 600 g 650,-
Leiðb.
smásöluv.
80,45
155,54
317,-
518,-
766,50
1.272,-
ir er síðasta verkið unnið áður en eggin streyma út til súkkulaðihungr-
aðra kaupenda sem bíða í spenningi eftir að tímabært sé að gæða sér á góðgæt-
inu. Mynd GVA.
Það skal tekið fram að ofan á heild-
söluverð leggst 25,88% vörugjald auk
25% söluskatts og er því leiðbeinandi
heildsöluverð miðað við lágmarksá-
lagninu kaupmanns.
-S.Konn.
„Mjög
fram-
bærileg
páska-
egg“
-niðurstaða
sælgætisgrísa DV
í framhaldi af heimsókn DV til
páskaeggjaframleiðenda fór fram
hið ómissandi DV-smakk. Hina
bragð- og smekkvísu dómnefnd
skipuðu Svanhildur Konráðsdóttir,
Gísli Kristjánsson.Jóhanna Sig-
þórsdóttir, Eiríkur Jónsson safn-
vörður, Amar Pájl Hauksson og
Kristján MárUnnarsson, oddamað-
ur var ljósmyndarinn Gunnar V.
Andrésson en Anna Bjamason
hafði yfirumsjón með störfum dóm-
nefndarínnar, enda þrautþjálfuð
„smakk-kona“.
Annars vegar var smakkað á
páskaeggi númer 8 frá Mónu og
hins vegar númer 5 frá Nóa-Siríusi.
Eins og lög gera ráð fyrir vom
umhúðimar teknar af fyrir smökk-
un svo tryggt væri að fyllsta hlut-
leysis væri gætt. Eftir gaumgæfilega
skoðun á útliti eggjanna vom þau
opnuð og innihaldið skoðað af jafn-
mikilli áfergju. Þegar komið var að
því að bragða á góðgætinu fjölgaði
skyndilega í dómnefndinni, undir
lokin hafði öll ritstjómin lýst áliti
sínu á eggjunum. Dómurinn var því
mjög lýðræðislega ákvarðaöur og
féll þannig:
Nói-Siríus vann á súkkulaðinu
með 5 stigum gegn 4 en Móna vann
á innihaldinu með 6 stigum gegn
3. Meirihluta dómnefndar fannst
Mónusúkkulaðið of sætt en féll
aftur á móti fyrir gómsætum kon-
fektmolunum sem leyndust inni í
egginu. Þrátt fyrir mikiar vanga-
veltur gátu menn ekki gert upp við
sig hvort eggið þeim þótti glæsi-
legra eða girnilegra í útliti og sætt-
ust á niðurstöðuna „Mjög fram-
bærileg bæði tvö".
Þá vitið þið, ágætu lesendur, að
ef marka má dóm hinna yfirlýstu
sælgætisgrísa á DV geta allir verið
himinsælir með eggin sín um pásk-
ana.
-S.Konn.
„Þetta er alveg ægilega girnilegt" - menn veltu eggjunum fyrir sér á alla
kanta og Amar Páll gat ekki á sér setið að pota svolítið i „sitt“ egg.
Jóhanna mundaði hnífinn og afhjúpaði leyndardóma páskaeggjanna. Hér
náði spenningurinn hámarki.
Þetta reyndist vera innanborðs í eggjunum, Móna á hægri braut með vinn
inginn og Nói á vinstri kanti, en þótti ekki standast Mónu snúninginn.
mmn
Hér er smökkunin hafin og leynir það sér ekki á andlitum sælgætisgrísa
DV. Borghildur Anna haföi (ægar hér var komið troðið sér manna fyrst í
dómnefndina en var brátt rekin burtu með harðri hendi. Mynd GVA