Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 32
 DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. Sviðsljós Sviðsljós Davíð Ingi Guðmundsson, 12 ára, Sigurður Karl Jóhannsson, 10 ára, og Herbert Sveinbjömsson, 12 ára, með blaðið sitt, Stiömur. „Við erum að ná okkur í smápening, ætlum í ferðalag í vor.“ DV-mynd JGH. ,Ah, þið eruð hörkukarlar‘ Ungir blaðaútgefendur á Akureyri „Okkur langaði bara að gefa út blað og drifúm í því,“ sögðu þrír ungir piltar á Akureyri sem gáfú út sitt fyrsta blað í lok febrúar. Blað piltanna heitir Stjömur. í því era myndir af leikurum, söngvurum og hljómsveit um. Þá era þeir með brandara, grín og myndasögur. Stórsniðugt framtak. Piltamir heita Davíð In^i Guð- mundsson, 12 ára, Sigurður Karl Jóhannsson, 10 ára, og Herbert Svein- bjöfnsson, 12 ára. Enginn þeirra hefur komið neitt náfægt blaðaútgálú áður. „Við erum ekki svo lengi að vinna blaðið, við klippum út úr erlendum blöðum og nokkrum íslenskum, lím- um það upp og ljósritum svo á eftir. Þetta er nú allur galdurinn." Fyrsta tölublaðið af Stjömum var gefið út í 30 eintökum, annað í 40. „Næsta blað okkar verður í 50 eintök- um.“ Piltamir selja eintakið á 50 krónur. „Það hefur bara gengið vel að selja blaðið. Við fórum í verslanir, verk- smiðjur og skrifstofúr og bjóðum fólki blaðið.“ - Og hvað segir það þegar þið birtist? „Það hlær og segin Ah, ah, þið erað hörkukarlar, eða eitthvað svoleiðis.“ Ólyginn sagði... Omar Sharif leikur á móti Ava Gardner i sjón- varpsmyndinni Harem og þar eru þessar gömlu stjörnur í hlutverki hjóna. „I myndinni Mayerling var Ava móðir min,“ segir Omar sposkur „og líklega verður hún dóttir mín í þeirri næstu!“ Hans „Dolph“ Lundgren bjargaði sinni heittelskuðu Grace Jones frá drukknun rétt undan ströndum Jamaica. Diskódrottn- ingin var á vatnaskíðum þegar vélbátur hreinlega ók yfir hana, Dolph var nærstaddur, kastaði sér þegar til sunds og tókst að ná Grace upp á yfirborðið aftur. Hún var þá orðin meðvitundar- laus og mjög af henni dregið en komst fljótlega til heiisu á nær- liggjandi sjúkrahúsi. Mary Stavin er búin að fá meira en nóg af fótbolta. Hefur afgreitt allt sem honum viðkemur í eitt skipti fyrir öll - ekki síst fyrrum fótboitahetj- una George Best. Þessi fyrrum ungfrú heimur átti í vægast sagt stormasömu sambandi við Best i tvö ár og hefur nú snúið sér alfarið að öðru - og öðrum. Kúrsinn er tekinn á Hollívúdd þar sem reyna á fyrir sér sem film- stjarna en nafnið á hinni einu sönnu og nýbökuðu ást fæst ekki uppgefið að sinni. Julian Lennon er yndisleg blanda af karlmanni og smástrák segir heill hópur kerlinga i USA sem kaus hann kynþokkafylista karlmanninn i álfunni. Lambakjötið er sumsé komið í tísku aftur - eða þannig... „Um Simone tala ég í nútíð og ímynda mér að hún dvelji bara í sumarbústaðnum okkar um þessar mundir.“ Júlibam hjáMeryl Streep Hún er greinilega með slæman hlaupasting þótt sitjandi sé - Meryl Streep er konan og með á myndinni er eiginmaðurinn, Don Gummer. Hann er mynd- höggvari, þykir með afbrigð- um natinn eiginmaður og duglegur að fylgja henni á ferðalögum hvert sem er um jarðkringluna. Þau hjónin eiga von á þriðja barninu í júlímánuði og af þeim sök- um hefur Meryl afþakkað öll atvinnutilboð næsta árið. ffAstin erdá samleg,“ - segir Yves Montand Franski leikarinn og kyntáknið Yves Montand á yfirleitt auðvelt með að tjá sig um gömul og margfræg ástarsambönd sín við heimsins frægustu konur. Að hans sögn er ástin dásamlegasta fyrirbrigðið í þessari jarðargöngu og eitt stærsta atriðið í slíkum samböndum er að menn geti hlegið saman. „Ef það er ekki hægt er eitthvað mikið að, það sem Simone gat hlegið...“ segir Yves. Sú grimma Piaf „Og Edith, hún var skemmtilegasta kona sem ég hef á ævinni kýnnst. Við bjuggum saman i tvö ár og svo sleit hún sambandinu ó grimmdarlegan máta. Það var alltaf hún sem losaði sig við elskhugana og lengi á eftir gátum við alls ekki rætt málin. En svo urðum við vinir aftur og gátum haldið áfram að hlæja saman eins og áður." „Reyndar hef ég verið ótrúlega heppinn,“ heldur leikar- imi áfram. „Tvisvar upplifað stóra ástina með einstökum konum, Edith Piaf og Simone Signoret vora báðar stór- kostlegir persónuleikar og miklar konur. Með Marilyn Monroe hefði það sama eflaust orðið uppi á teningnum en ég elskaði konuna mina.“ Simone og sumarhúsið „Núna sakna ég Simone alveg hræðilega og reyni að trúa því að hún hafi bara farið um hríð í sumarhúsið okkar. Það gerði hún oft síðari árin og dvaldi þar tímun- um saman. En þegar ég svo fer þangað verður sannleikur- inn alltof ljós og erfiðara að gleyma. Þetta er miskunnar- leysi tilverannar - blákaldur veruleikinn er stundum óbærilegur." „Simone konan mín hefur verið minn bestí vinur og átt ást mina í gegnum árin.“ „Milli okkar Marilyn hefði getað orðið stórkostlegt ástarsamband en ég elskaði konuna mína.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.