Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
15
Lesendur Lesendur Lesendur
„Hver á að drepa selinn?“
Annasamir dagar á Alþingi
H.G.Vm. skrifar:
Nú eru miklar annir á hinu háa
Alþingi. Mörg mál þarf að afgreiða
í rótarhasti, jafnvel með afbrigðum.
Hver á að drepa selinn? Tekst Alex-
ander að klúðra málum sveitarfé-
laga? Fáum við bjórinn, Bjöm og
Stefan?
Já, þau em mörg stóm málin,
annasamt á þingi eins og vant er
þegar hillir undir langþráð sumarfn
eftir andvökunætur í okkar þágu.
Þá er sá sem þetta klórar á blað
hefur komið á þingpall hefúr verið
ærið þunnskipað í hinum háu sölum.
Mun þó ætlast til að háttvirtir sitji
þingfundi. Einn til tveir ráðherrar
hálfdottandi. Ofbauð þá einum af
fáum stjómarliðum í sal og átaldi
landsfeður harðlega. Þeir væm þó
kosnir þingfúlltrúar eða hvað.
Þá kem ég að efninu. Þegar annir
em orðnar svo miklar og tímaþröng-
in yfirþyrmandi að háttvirtir þm.
verða að afgreiða frumvörp ólesin,
þá verður að fara að afstressa menn-
ina.
Eitt stjómarblaðið, bara eitt, gerir
sér ljóst að hér stefnir í óefni. Hvar
lendir þetta með þessa örþreyttu
menn, sem þykir þó svo vænt um
okkur, atvkæði sín, að þeir mega
ekki til þess hugsa að hætta að sveit-
ast fyrir okkur á hinu háa Alþingi.
Blað forsætisráðherrans ræðir
vandann vegna frumvarpsins sem
gleymdist að lesa: „Hvaða ályktanir
má draga af þessu? Einfaldasta og
rökréttasta ályktunin er sú að ráð-
herrar og þingmenn hafi tekið við
þessu stjómarfrumvarpi hálfsofandi
og láðst að lesa það jafngaumgæfi-
lega og efrn stóðu til. Hvað getur
valdið svo dæmalaust útbreiddum
sofandahætti meðal eigi ógreindra
manna og kvenna? Svarið hlýtur að
vera: árlegar vorannir á Alþingi.
Enn einu sinni hefúr sannast ræki-
lega hversu hættulegt er að þinga
stutt og misvel."
Já, satt var orðið. Nú má ekki
dragast lengur að mennimir fái vel
úti látið fimm mánaða sumarfrí.
Vonandi berast langþreyttum
landsfeðrum blómvendir áður en
bjallan gellur.
pjj^UREYRIAlG^^
Gerist Áskriftarsíminn
áskrifendur! á Akureyri er 25013
á Akureyri,
Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað.
Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
— VIÐ FÆRUMIYKKUR —
Afgreiðsla — auglýsingar Skipagötu 13 — Akureyri. Sími 25013.
DAGLEGA
Blaðamaður
Afgreiðsla okkar
Skipagötu 13
er opin virka daga kl. 13—19
og laugardaga kl. 11—13.
ATHUGIÐ!
Tekið er á móti smáauglýsingum
í síma 25013 og á afgreiðslunni,
Skipagötu 13.
Teinamöppur fyrir Úrval
Sent í póstkröfu
ef óskað er
Handhœg lausn til a<) vardveita bladid.
Hálfur árgangur í hverja möppu
Fást á afgreidslu l 'rvals,
Þverholti //. sími (91) 27022
og h já Bindagerdinni..
Smidjuvegi 22.
símar (91) 77040 oy (91) 35468