Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 26
26 DV. ÞRIDJUDAGUR 22'. APRÍL 1986. Einar Ágústson sendiherra lést 12. apríl sl. Hann fæddist í Hallgeirsey i Austur-Landeyjum 23. september 1922. Foreldrar hans voru Ágúst Ein- arsson og kona hans Helga Jónas- dóttir. Einar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1941. Lögfræðiprófi lauk hann frá Háskóla íslands árið 1947. Að loknu háskóla- námi gerist Einar starfsmaður Fjárhagsráðs og jafnframt skrif- stofustjóri Sölunefndar varnaliðs- eigna. Hann gegnir starfi fulltrúa í fjármálaráðuneytinu 1954-57, en ræðst þá til Sambands ísl. samvinnu- félaga og verður fuiltrúi forstjóra og sparisjóðsstjóri Samvinnuspari- sjóðsins 1957 63. Jafnframt því að veita forstöðu lífeyrissjóöi Sam- bandsins til ársins 1960. Árið 1963 var hann ráðinn fyrsti bankastjóri Samvinnubankans. Því starfi gegnir hann til ársins 1971. í alþingiskosn- ingum 1963 er Einar í framboði fyrir Framsóknarflokkinn og vann þar sinn annan kosningasigur. Hann er svo þingmaður Reykvíkinga til árs- ins 1978. Hann er skipaður sendi- herra í Danmörku frá 1. janúar 1980. Eftirlifandi eiginkona hans er Þór- unn Sigurðardóttir. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Af þeim eru þijú á lífi. Útför Einars verður gerð í dag kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Gunnar Jónsson, fyrrverandi hús- vörður Verslunarskóla íslands, er látinn. Soffia Riis, Háteigsvegi 4, andaðist á öldrunardeild Landspítalans hinn 19. apríl. Sigurður Jónsson, Melabraut 57, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 13.30. Elín Jóhannesdóttir, fyrrv. hjúkr- unarkona, Patreksfirði, Álfheimum 22, Reykjavík, lést í öldrunardeild Landspitalans 19. apríl. Soffia Guðrún Vagnsdóttir frá Hest- eyri, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 23. april kl. 15. Sr. Leó Júlíusson, fyrrverandi pró- fastur á Borg á Mýrum, andaðist 18. apríl. Regína Jakobsdóttir, Steinsbæ, Eyr- arbakka, lést í sjúkrahúsi Suður- lands, Selfossi 18. apríl. Kristinn Kristjánsson, Bergstaða- stræti 11A, áður til heimilis að Brúarósi, Kópavogi, lést að kvöldi 16. apríl sl. Útförin fer fram frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 25. apríl kl. 15. Guðjón Brynjólfsson, Búðargerði 3, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 12. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurbjörn Árnason frá Landakoti, Sandgerði, lést í Borgarspítalanum þann 17. apríl. Útförin verður aug- lýst síðar. Hallfríður Friðrika Jóhannesdóttir andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, hinn 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Skúli Magnússon kennari, Meistara- völlum 13, andaðist í Landspítalan- um 15. þ.m. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. apríl kl. 15. Erik Södrin, lést 16. apríl. Tilkynningar Námsmeyjar - Löngumýri veturinn ’65-’66. Hafið samband í tilefni 20 ára af- mælis við eftirtaldar: Viddý s. 74800, Elfa s. 622269, Dóra s. 82896, Ellen s. 671028 eftir kl. 20 sem allra fyrst. Starfslaun listamanna I fjárlögum 1986 eru ætlaðar kr. 4.692.000 til starfslauna listamanna. Starfslaunin miðast við byrjunar- laun menntaskólakennara og starfs- tímann þrjá til tólf mánuði. Umsóknir voru 120. Starfslaun hlutu: 12 mánaða laun: Haukur J. Gunnarsson leikstjóri Jóhanna K. Yngvadóttir myndl.maður 6. mánaða laun: Nína Gautadóttir myndlistarmaður Sigurlaug Jóhannesd. myndl.maður Sóley Eiríksdóttir myndlistarmaður Steingr. E. Kristmundss. myndl.maður Jóhannes Helgi rithöfundur Stefanía Þorgrímsdóttir rithöfundur Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona 3. mánaða laun: Ásdís Sigurþórsdóttir myndlistarmaður Ásgerður Búadóttir myndlistarmaður Guðm. Thoroddsen myndlistarmaður Guðrún Svava Svavarsd. myndl.maður Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður Hallgrímur Helgason myndlistarmaður Haraldur Ingi Haraldss. myndl.maður Haukur Dór myndlistarmaður Helgi Þorgils Friðjónss. myndl.maður Jónína Guðnadóttir myndlistarmaður Kristján Guðmundsson myndl.maður Kristján Steingr. Jónss. myndl.maður Lísbet Sveinsdóttir myndlistarmaður Sigrún Eldjárn myndlistarmaður Sigurður Þórir Sigurðss. myndl.maður Svala Sigurleifsdóttir myndlistarmaður Sverrir Ólafsson myndlistarmaður Þór Vigfússon myndlistarmaður Þórður Hall myndhstarmaður Þuriður Fannberg (llúrí) myndl.maður Örn Þorsteinsson myndlistarmaður Glúmur Gylfason tónlistarmaður Gunnar R. Sveinsson tónlistarmaður Hörður Torfason tónlistarmaður Mist Þorkelsdóttir tónlistarmaður Páll Eyjólfsson tónlistarmaður Þórir Baldursson tónlistarmaður Elísabet Þorgeirsdóttir rithöfundur Valdís Óskarsdóttir ljósmyndari Viðar Eggertsson leikari Viðar Gunnarsson söngvari Úthlutunarnefnd skipuðu: Birgir Sigurðsson, sr. Bolli Gústavsson og Knútur Hallsson, formaður. Iðjuþjálfafélag íslands 10 ára í mars 1986 náði Iðjuþjálfafélag íslands merkilegum áfanga 10 ára afmæli félagsins. Á rúmlega 10 árum hefur iðjuþjálfum á íslandi fjölgað úr einum einstaklingi í stéttinni í 38. Reyndar eru íslenskir iðjuþjálfar 53, en 15 eru erlendis. Iðjuþjálfar á íslandi eru allir menntaðir erlendis í u.þ.b. 10 mis- munandi löndum, þó er gert ráð fyrir námsbraut í iðjuþjálfun við Háskóla íslands samkvæmt lögum um iðju- .þjálfun sem fengu löggildingu 1977. Við stefnum að stofnun iðjuþjálfa- skóla á íslandi en vegna fámennis og fjárskorts hefur það ekki tekist enn. Yfírleitt eru á milli 20 og 25 manns í námi erlendis á hverjum tíma. 4 iðjuþjálfar eru með masters próf. Iðjuþjálfar vinna nú á 18 mismun- andi vinnustöðum hér á landi: á 4 sjúkrahúsum og 3 endurhæfíngar- stöðvum. Iðjuþjálfar vinna líka á vemduðum vinnustöðum, hjá sjálf- stæðum félögum, í svæðisstjórn ( 1 iðjuþjálfi er framkvæmdastjóri einn- ar svæðisstjórnar) og hjá Trygginga- stofnun ríkisins. Nokkrir iðjuþjálfar vinna við iðjutækni (ergonomi) bæði í skólum og á vinnustöðum og 1 iðju- þjálfi vinnur hjá hjálpartækjabank- anum. Félagið hefur gefið út stéttarblað tvisvar á ári síðan 1979. í tilefni 10 ára afmælis félagsins var haldinn glæsilegur aðalfundur 15 mars sl. í húsnæði BHM. Þá var Jóna Kristo- fersdóttir, fyrsti íslenski iðjuþjálfmn, gerð að heiðursfélaga. Einnig var Hope Knútsson heiðruð fyrir for- mennsku í 10 ár. I tilefni afmælisins hafa nokkrir félagsmenn, sem voru með í stofnun félagsins, safnað sam- an í 2 stórar og myndarlegar möppur alls konar skemmtilegum pappírum, myndum, greinum og skrám sem gefa yfirlit yfir starfsemi félagsins síðast- liðin 10 ár. Einnig gefum við út afmælisblað í maí. Þeir sem hafa áhuga á að fá annað- hvort kynningarbæklinga um menntun, hugmyndafræði og starfs- svið iðjuþjálfa eða að gerast áskrif- endur að iðjuþjálfablaðinu er bent á að skrifa til: Iðjuþjálfafélag Islands, pósthólf 8845, 128 Reykjavík. Styrkir úr minningarsjóði Þor- gerðar S. Eiríksdóttur Síðastliðin 8 ár hafa 18 tónlistarnem- endur hlotið styrki úr minningar- sjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur. Sjóðurinn er í vörslu Tónlistarskól- ans á Akureyri og styrkir eru veittir við skólaslit. Nemendur, sem stund- að hafa nám við Tónlistarskólann á Akureyri og hyggja á, eða hafa þegar byrjað háskólanám í tónlist, eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 1. maí og þurfa umsækjendur að greina frá námsferli og námsáformum í umsókn sinni. Sjóðurinn aflar tekna með móttöku minningarframlaga og eru minningarkort seld í Tónlistarskól- anum á Akureyri og bókabúðunum Huld og Bókvali. Árlega er efnt til tónleika til styrktar sjóðnum. Fundir Sumarfagnaður eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni efnir til sumarfagnaðar í Sigtúni við Suðurlandsbraut á sum- ardaginn fyrsta, 24. apríl nk. Samkoman hefst kl. 20. Skemmtiat- riði og dans. Hljómsveitin Dansspor- ið leikur danslög milli- og eftir- stríðsáranna. Söngvari með hljómsveitinni er Kristbjörg Löve. Stjórn félags eldri borgara verður til viðtals í Sigtúni á sumardaginn fyrsta milli kl. 17 og 19 og gefur upp- lýsingar uin fyrirhugaða starfsemi félagsins. Á sama tíma hefst sala aðgöngumiða. Aðgöngumiðaverð 200 krónur. Aðalfundur Kvenfélags Bæjar- leiða verður haldinn í kvöld, þriðjudag 22. apríl, kl. 20.30 í safnaðarheimili Langholtskirkju. Sumarfagnaður Húnvetninga- félagsins verður í Domus Medica miðvikudag- inn 23. apríl (síðasta vetrardag) og hefst kl. 22. Skemmtiatriði kl. 23. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Sagnfræðifélag - félagsfundur Fundur verður haldinn í Sagnfræði- félagi Islands í kvöld, þriðjudag 22. apríl, kl. 20.30 í Árnagarði við Suður- götu, st. 423. Fundarefni er erindi sem dr. Ingi Sigurðsson lektor flytur: Skógrækt sem leið til lausnar á vanda skosku hálandanna 1919-1985. Fund- urinn er öllum opinn. Tapað-Fundið Högni tapaðist frá Háteigsvegi Grábröndóttur ungur högni tapaðist frá Háteigsvegi á sunnudaginn sl. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 21178. Tónlist Jazzkvöld í Stúdentakjallaranum Þriðjudagskvöldið 22. apríl leikur norrænn jazzkvartett í Stúdenta- kjallaranum. Þár koma fram sax. Anders Kortsen, píanó Sven-Eric Johansson, bassi Birgir Bragason, trommur Jón Björgvinsson. Jazz- kvöldið hefst kl. 21.30 en barinn verður opnaður kl. 21. 50 ára afmæli á í dag, þriðjudag 22. apríl, Einar Pálmason skipstjóri, Sóltúni 5, Keflavík. Hann er frá Snóksdal í Miðdölum. Hann er kvæntur Jóhönnu Auði Árnadóttur. Hann er á sjó í dag. Nk. laugardag, 26. apríl, ætla þau að taka á móti gestum í safnaðarheimili Innri- Njarðvíkurkirkju eftir kl. 20. Spilakvöld Kvenfélag Kópavogs heldur spilakvöld í kvöld, þriðjudag 22. apríl, kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Handsnyrting á hárstofunni Cortex Nýlega opnaði Ebba Kristinsdóttir aðstöðu til acilnaglagerðar og al- mennrar handsnyrtingar á hárstof- unni Cortex, Bergstaðastræti 28a sími 621920. Ferðalög Giktarfélag íslands Vorferð félagsins til Ítalíu er 26. maí til 16. júní. Enn eru nokkur sæti laus. Upplýsingar í síma 29740. ÚTIVIST 10 ÁRA Útivistarferðir Fimmtudagur 24. april, sumardag- urinn fyrsti: 1. Kl. 10.30, þjóðleið mánaðarins: Svínaskarð. Þessi forna þjóðleið úr Kjósarskarði yfir að Hrafnhólum var fjölfarin fyrrum. Gott útsýni úr skarðinu. Tiltölulegaauðveld leið. Verð 400 kr. 2. kl. 10.30, Móskarðshnúkar. Svínaskarðsleið gengin að hluta. Verð 400 kr. 3. Kl. 13, Sumarkinn - Tröllafoss. Gengin ný, skemmtileg leið bak við Haukafjöllin i tilefni sumarkomu. Verð. 400 kr., frítt f. börn m. fullorðn- um. Brottför frá BSl, bensínsölu. Sunnudagur 27. apríl: Kl. 10.30, Esja - Hátindur - Esju- horn. Kl. 13.00, kræklingafjara í Hvalfirði. Helgarferðir: 1. Fimmvörðuháls, gönguskíðaferð 24.-27. apríl. Gist í húsum. Gengið á Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul. Kveðjið veturinn á frábæru skíðasvæði. Brottför sumardaginn fyrsta kl. 8.30. Farastj. Reynir Sigurðsson. 2. Sumri heilsað í Þórsmörk 25.-27. apríl. Brottför föstud. kl. 20. Gist í Utivistarskálanum í Básum. Göngu- ferðir við allra hæfi. Kvöldvaka með sumarsöngvunum. í'ararstj. Ingi- björg S. Ásgeirsdóttir. Uppl. og farm. á skrifstofunni, Grófinni 1 (Vesturg. 4), símar 14606 og 23732. Ath., skrifst. er flutt úr Lækjarg. 6a. Sjáumst. Ferðafélagið Útivist. KRR REYKJAVIKURMOT MEISTARAFLOKKUR i kvöld kl. 20.30. FYLKIR - KR Á GERVIGRASINU Í LAUGARDAL □ □ □ □ □ □ □ Blaðbera vantar g STRAX □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ £ \ AFGREIÐSLA 9 U Þverholti 11 - Sími 27022 U □□□□□□□□□□□□□^ KÓPAVOGUR: Sæbólsbraut Marbakkabraut Hraunbraut Kársnesbraut 1-39

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.