Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Göng undlr Miklubraut Hermann fyrir rétt í júní - segist koma heim „Hermann hringdi í mig á fimmtu- daginn og staðhæfði að hann myndi snúa heim og verða viðstaddur réttar- höldin. Þau verða haldin snemma í júní,“ sagði Ólöf Pétursdóttir, héraðs- dómari við bæjarfógetaembættið í Kópavogi. Ólöf mun dæma í okurmáli Hermanns Björgvinssonar. Hermann Björgvinsson er sem kunnugt er staddur í Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu sinni. Brottför hans af landinu vakti nokkum úlfaþyt með- al yfirvalda og óskaði Ólöf Péturs- dóttir eftir því að Hermann hefði samband við sig og útskýrði ferðalag sitt: „Hermann hringdi í mig á tilsett- um tíma og það var gott í honum hljóðið," sagði Ólöf. - Vissirðu hvaðan hann hringdi? „Nei, enda kemur mér ekkert við hvar Hermann er á ferðalagi. Honum er frjálst að ferðast," sagði Ólöf Pét- ursdóttir. -EIR Innbakaður hanakambur - matarveisla ársins fyrir 3500 krónur Réttimir verða 8 og seldir miðar aðeins 80 í stórveislu matreiðslumeist- ara er haldin verður í Kvosinni 13. maí næstkomandi. Það er Klúbbur matreiðslumeistara sem stendur fyrir sælkeraveislu þess- ari sem í nágrannalöndum okkar gengur undir nafninu „Gala dinner“. Matseðillinn hefúr þegar verið ákveð- inn og kennir þar ýmissa grasa: í forrétt verður Terrine með sniglum, skelfiski og kavíarsósu, innbakaður hanakambur með madeirasósu, hrá ýsa (hituð í tvær mínútur í ofiji) á blað- lauksblöðum og kampavínssorbet. f aðalrétt verður boðið upp á fyllt andalæri með olífusósu og hreindýra- liíúr og matarveislunni lýkur með „dylgjum kokksins" er mun vera sitt lítið af hveiju. í lokin verður borið fram koníak, kaffi og konfekt. Undir borðum mun Jón Sveinsson, kennari í Hótel- og veitingaskólanum,' flytja erindi um hvemig maginn vinn- ur úr matnum og stefnt er að því að fá einhvem vínfróðan til að halda tölu um gæðavín. Klúbbur matreiðslumeistara stefnír að þvf að gera matarveislu þessa að árlegum viðburði í bæjarlifi Reykja- víkur. Miðaverð hefur verið ákveðið 3500 krónur. -EIR ........ .. ......................i , Eldri borgarar á Setfossi í heimsókn í Mosfellshreppi Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Félag aldraðra og sveitarstjómin i Mosfellshreppi buðu eldri borgurum á Selfossi nýlega til kaffidrykkju. Já, ráðandi menn í Mosfellssveit kunna að taka á móti gestum. Haldið var af stað í tveim stórum sérleyfisrútum frá Selfossi. Var stopp- að við öndvegissúlur Davíðs borgar- stjóra. Þar komu Sigsteinn á Blikastöðum og Jón stórkjúklinga- bóndi á Reykjum í rútumar. Kynntu þeir ferðafólkinu það sem fyrir augu bar í ferðalaginu um Mosfellssveit. Jón var kynnir í rútunni sem ég var í og var mál hans áheyrilegt. Hann yrði áreiðanlega góður kennari.En það er nú önnur saga. Ekið var um Mosfellshrepp þveran og endilangan og var það ánægjuleg ferð. Var m.a. stoppað við Lágafells- kirkju en hún var því miður lokuð. Síðan var boðið til kaffidrykkju í fé- lagsheimilinu. Þar var blessuð kaffi- lyktin í öndvegi og miklar kræsingar á borðum, þar á meðal tvær svo risa- stórar tertur að Guðjón Vigfússon, smiður á Selfossi, sagðist aldrei hafa séð aðrar eins. Kvaðst hann ætla að mæla þá bökunarofna sem hann kæm- ist í tæri við til að athuga hvort hægt væri að baka svona stórar tertur í heilu lagi. Undir borðum las Sigríður Þorvalds- dóttir leikkona upp skemmtilega sögu eftir Gunnar Gunnarsson. Matthías spilaði á harmóníkuna af mikilli list og stjómaði dansi af röggsemi. Þá hélt oddviti hreppsins, Magnús Sig- steinsson, ræðu. Eldri borgarar á Selfossi munu lengi minnast þessarar ferðar og ráðamanna í Mosfellshreppi sem stóðu fyrir ógley- manlegum móttökum. Unnið hörðum höndum við að leggja nýja pípu í hitaveitusfokk- inn við Elliðaárnar. Nýja pipan er mun stærri en sú fyrri, enda borgin orðin mjög vatnsfrek. Verkinu þarf að vera lokið fyrir lax- veiðitímabilið þvi ekki má fæla laxana. En unnið verður áfram við gamla Reykjastokkinn, hann veður endurnýjaður að Öskjuhlíð. -KB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.