Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. Pemngamarkaðurinn Viðskipti Viðskipti Viðskipti Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt- um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tírrrabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaðá verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 8%,-þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun e: því einnig 15,5%. 18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fímm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársQórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 24 manna fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30450 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. A endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á grunni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÚÐA (%) 21.-30.04. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sja sérlista li iillfliijlililíl INNLÁN ÚVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0 10.25 6 mán.uppsögn 12.5 12,9 12 mán.uppsógn 14.0 14.9 SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sptrað 3-5 min 13.0 Sp. 6mán.ogm, 13.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 Hlaupareikningar 4.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3jamán.uppsögn 1.0 6 mán.uppsogn 3.5 innlAn gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR B.mU.lki>doll«.. 8.0 Sterlingspund 11.5 Vestur-þýsk mörk 4.5 Danskar krónur 8.0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (fnmenir) 15.25 VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (Inrenni.) ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 VIOSKIPTASKULDABRÉF 3) HLAUPAREIKNINGAR VFIRDFlATTUR 9.0 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF AÍ2I/2Í.Í 4.0 Lengrien21/2ár 5,0 ÚTLÁN T1L FRAMLEIÐSLU SJÁNEÐANMÁLS1) 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0 14,0 11.0 12.6 12.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0 13.0 9.0 11.0 10,0 10.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 3.0 2,5 3,0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 1.0 1.0 1,0 1,0 1.0 1.0 1.0 1.0 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0 7,5 6.5 7.0 6.5 7,5 7.0 7.0 6.5 11,5 10.5 11,0 11.5 11,5 11.5 11.5 10,5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7,0 7.0 7.0 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 kge 19,5 kge 19.5 kge kg« kge kge 15,5 15.5 15.5 15,5 15.5 15,5 15.5 15.5 kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge 9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur- þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta- skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. SeHjamames: Bærinn keypti ísbjamarhúsin á 25 milljónir Tuttugu og íimm milljónir fær Grandi hf. íyrir gömlu ísbjamarhúsin á Seltjamamesi. Kaupandi er bærinn, sem fær að greiða upphæðina á 19 árum, en hún er verðtryggð og með 2% ársvöxtum. Húsin, sem þama er um að ræða, em vinnslusalir og frysti- klefar, alls 6-7 þúsund fermetrar. Að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra er hluti húsanna í leigu og ætlunin er að leigja þau að mestu leyti íyrir geymslur. Þannig á að nást fyrir kaupunum að mestu eða öllu. Megintilgangurinn með kaupunum er annars sá að tryggja bænum umráð yfir lóðinni vegna framtíðaruppbygg- ingar á miðbæjarsvæðinu. HERB Istak byggir þak fyrir 25-27 milljónir króna Nú má telja fúllvíst að ístak hf. byggi og komi upp þakinu yfir miðbæ Sel- tjamamess fyrir 25-27 milljónir króna. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri sagði DV að samningar væm á lokastigi. Þakgrindin verður bæði úr tré og áli og ýmist verður notað gler eða plast í gluggana. Eftir útboð vegna þessa verks fengu bæjaryfirvöld bakþanka þar sem kostnaður virtist ætla að fara upp úr öllu valdi. Þau tilboð sem komu næst upphaflegum áformum hljóðuðu upp á 46-52 milljónir króna. Með því að nota tré að vemlegum hluta í grind og plast í glugga lækkar kostnaðurinn næstum um helming. Að sögn bæjarstjórans hafa enn komið upp nýjar hugmyndir um mikil- væg tæknileg atriði, eins og opnanlega glugga. Þær munu þó ekki verða til þess að tefja verkið og er reiknað með að því verði lokið seint í haust eða í byrjun vetrar. HERB Meira en 100 milljónir í vinninga hiá DAS Nýtt happdrættisár er að hefjast hjá DAS. Heildarverðmæti vinninga á ár- inu verður 11,5 milljónir króna. Utanlandsferðum mun fjölga úr 770 í 1440 á ári. Vinningar til bílakaupa verða 48 á 200 þúsund krónur, en auk þess verða þrír valdir bílar: Ford Si- erra GL. 2000 í júni, Toyota Land Crusier STW station HR í desember og Saab 900 árgerð 1987 er verður dreginn út í febrúar á næsta ári. Vinn- ingar til íbúðakaupa verða á 600 þúsund krónur en í 1. flokki á 1 millj- ón. Og að venju verður einn stór aðalvinningur í seinasta flokki ársins, apríl 1987: húseign eftir vali að upp- hæð 3,5 milljónir króna. í fréttatil- kynningu frá happdrættinu segir að það sé von happdrættisins að vinning- ur þessi falli til viðskiptavina, sem þó hefur ekki skeð undanfarin tvö ár, þótt viðskiptavinir spili á tæp 70% útgefinna miða og happdr t því á rúm 30%. Húsbúnaðarvinnmgar á 10 þúsund verða einnig samtals 1440 og lægstu vinningar verða á 5 þúsund krónur. Afrakstur happdrættisins rennm- til framkvæmda sjómanna- dagsráðs. Nýlokið er við endurhæfingadeild Hrafhistu í Hafnarfirði og liggur næst fyrir að endumýja og endurbæta Hrafnistu í Reykjavík. -MS Lánskjarabólgan 6,1% - vísitalan hækkar um 0,46% 1. maí Lánskjaravísitalan, sem lækkaði lítillega um síðustu mánaðamót, hækkar afitur um næstu mánaða- mót. 1. maí verður hún 1432 stig og þar með 0,49% hærri en núna í apríl. Ef sama þróim héldi áfram í heilt ár yrði Iánskjarabólgan 6,1% það ár. Sé sömu reikningskúnst beitt, en miðað við þróun lengra aftur í tím- ann, sést hver gjörbreyting hefur orðið á verðbólgu og lánskjarabólgu. Miðað við hækkun lánskjaravísitölu síðustu þrjá mánuði yrði árshækkun 10,7%. Ef vísitöluhækkunin síðustu sex mánuði gilti í heilt ár yrði hún 21,2%. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.