Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
5
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Þjóðhagsstofnun
metur vegagerðarátakið
- fjármálaráðherra hefur ekki harðlæst á verktakatilboðið
„Það var auðheyrt á íjármálaráð-
herra að hann er uggandi um
afkomu ríkissjóðs og áuknar skuldir
í hlutfalli af þjóðarframleiðslu. En
hann lofaði okkur að athuga mat
Þjóðhagsstofnunar á tillögu okkar,
það mat berst væntanlega í vi-
kunni,“ sagði Pálmi Kristinsson,
framkvæmdastjóri Verktakasam-
bandsins, eftir fund í gær með
Þorsteini Pálssyni.
Verktakasamband íslands hefur
lagt fram tillögu um að flýta vega-
framkvæmdum innan þeirrar lang-
tímaáætlunar sem unnið er eftir.
Með því vilja þeir bjarga sér út úr
ógöngum, en vegna gríðarlegs sam-
dráttar í jarðvegsframkvæmdum
stendur um helmingur af vélakosti
verktaka ónotaður þetta árið. Þeir
benda jafhffamt á að samkvæmt
mati séu varanlegir vegir arðbær-
asta fjárfestingin í þjóðfélaginu.
í þeirri vegaáætlun sem Alþingi
samþykkti og unnið er eftir átti að
verja til vegagerðar í ár 1.352 millj-
ónum króna. Alþingi skar þetta
niður í 902 milljónir við afgreiðslu
fjárlaga. Verktakamir leggja til 1.
600 milljóna króna framkvæmdir.
Tillaga þeirra nær raunar yfir þrjú
ár, 1986-1988. Þeir vilja 5.100 millj-
óna framkvæmdir á því tímabili, en
vegaáætlun gerir ráð fyrir 4.451
milljón. Með sama niðurskurði og í
ár yrði framkvæmdaféð hins vegar
aðeins 2.708 milljónir króna.
Fjármagn til þess að framkvæma
Verktakar telja að um helmingur vinnuvélaflotans standi ónotaður í ár vegna verkefnaskorts, fjöldi fyrirtækja fari
á hausinn og hundruð manna í greininni missi atvinnuna. Þeir eru svartsýnir nema til komi úrræði eins og þeir
leggja til í vegagerð.
jafhmikið á þessum tíma og verktak-
amir leggja til og þetta fljótt ætla
þeir að fá aðallega með sölu sér-
stakra skuldabréfa á innlendum
lánsfjánnarkaði. Að hluta til gætu
komið til tekjur af bensíngjaldi, enda
gera verktakamir ráð fyrir að bens-
ínverð lækki þá ekki nema í 28
krónur á lítra. Meiri lækkun á inn-
kaupum komi ffam í hækkun
bensíngjalds beint til vegagerðar-
innar. Að sjálfsögðu koma svo til þau
ffamlög sem Alþingi ákveður á fjár-
lögum hverju sinni.
Hugmyndimar um skuldabréfin
hafa verktakamir mótað í samráði
við Kaupþing hf. sem telur að unnt
sé að rífa upp nýjan kaupendahóp
undir kjörorðum eins og betri vegir,
bætt lífekjör. Greinilegt er að fjár-
málaráðherra er ekki jafnviss um
þetta og óttast samkeppni við spari-
skírteirú ríkissjóðs. Það er meðal
annars þetta sem Þjóðhagsstofhun
fjallar nú um, auk hagkvæmni til-
lagnanna.
I rökstuðningi Verktakasam-
bandsins vegna þeirra er meðal
arrnars bent á að samdráttur í vega-
gerð, virkjana- og byggingarffam-
kvæmdum verði liklega 1.500-2.000
milljónir á þessu ári. Áhrif þess á
starfsemi verktaka verði stórfellt
atvinnuleysi í greininni, sérþjálfað
starfslið tvístrist, stöðvun og gjald-
þrot margra fyrirtækja og loks kosti
það stórfé að byggja greinina upp á
ný þegar framkvæmdir aukist aftur
eftir fáein misseri.
HERB
i AftacmiiMftAP
LrllMflwC 11 ■II
í FULLUM GANGI
Garðabær:
Listi
Alþýðubanda-
lagsins
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins í Garðabæ hefur verið
ákveðinn fyrir bæjarstjómarkosn-
ingamarí vor.
Hilmar Ingólfsson skólastjórí
skipar efsta sæti listans. I öðm
sæti er Albína Thordarson arki-
tekt, í þriðja Vilborg Guðnadóttir
háskólanemi, í fjórða Hallgrímur
Sæmundsson yfirkennari, í fimmta
Hafsteinn Hafsteinsson yfirkenn-
ari, í sjötta Saga Jónsdóttir leik-
kona og í sjöunda Ingólfur
Freysson íþróttakennari.
-APH
Um þessar mundir er mikið að
gera hjá þingmönnum og fjölmörg
frumvörp afgreidd sem lög frá Al-
þingi.
Á fyrri fundum þingdeilda í gær
vom fimm frumvörp lögfest. Frum-
varp um breytingar á söluskatti varð
að lögum. Það gerir ráð fyrir að inn-
heimtur verði söluskattur af þeirri
þjónustu sem innt er af hendi innan
fyrirtækja. Algengt er að stór fyrir-
tæki sjái sjálf um að þjónusta sig í
stað þess að kaupa þjónustuna ffá
öðrum aðilum. Þá varð svokallað
eldspýtnaffumvarp að lögum. Það
gerir ráð fyrir að afhuminn verði
einkaréttur ríkisins af sölu á eld-
spýtum og vindlingapappír. Frum-
varp um almannatryggingar varð
einnig að lögum. Þar er gert ráð
fyrir að ferðkostnaður sjúklinga
verði greiddur að 3/4 hlutum enda
séu ferðir fleiri en 30 á sex mánaða
tímabili. Einnig var lögfest frumvarp
um breytingar á greiðslum úr At-
vinnuleysistryggingasjóði vegna
nýgerðra samninga við fiskverkun-
arfólk. Frumvarp um þjónustu- og
endurhæfingarstöð sjónskertra varð
svo að lögum í gær. Þar er gert ráð
fyrir að stöðin geti fengið sérfræði-
þjónustu með samningi við augn-
deild sjúkrahúss.
-APH
BENID0RM
Beint flug ísólina
Ennfremur leiguflug á þriggja vikna
fresti til annarra
eftirsóttra sólskinsstaða.
Mallorka, Costa Brava, Costa del Sol
Sólarlandaferðir á viðráðanlegu verði
Gerið sjál verðsamanburð.
Brottfarardagar og okkar 16. mai 5.júni 26. júni 18. sept. 17. júli 7. ágúst 28. ágúst
ótrúlega hagstæða verð 9. okt.
2 i smáibúð, 3 vikur 20.460,- 24.640,- 26.780,-
Hótei með morgunverði og kvöldverðarhlað- borði 29.690,- 33.840,- 36.240,-
íbúðir og hótel á eftirsóttustu stöðunum.
íslenskir fararstjórar og fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir.
Uppselt i nokkrar ferðir og lítið eftir i flestar hinar.
= FLUGFERÐIR
= SGLRRFLUG
, Vesturgötu 17 símar 10661,15331, 22100.