Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. Spurningin Hvernig fannst þér Euro- vision-lögin á sunnu- dagskvöld? Íris Ingvadóttir nemi: Eins og Eurovision-lögin eru, hræði- leg. En ...íslenska myndbandið var langbest og Gleðibankinn þar að auki skásta lagið af þessum sex. Jón Helgi Eiðsson logsuðumaður: Mér fannst þau ágæt, Lúxemborgar- lagið best, en ég vil ekki dæma alveg strax. Islenska lagið á ensku kom betur út en öll hin. Haraldur Þráinsson vélsmiður: Mér finnst íslenska lagið langbest ef ég á að vera alveg hreinskilinn. En Lúx- . emborgar- og Júgóslavíulögin voru líka ágæt. Þórdís Gissurardóttir ellilífeyrisþegi: Mér leist þokkalega á, var hrifnust ;af norska laginu. /éttm ira Sveinbjörnsdóttir nemi: Mér nnst íslenska lagið best og mynd- tndið best en ég held að það besta eftir. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Margur verður af aurum api Smábóndi skrifar: Þessa dagana er um fátt meira talað en kvóta og skerðingu á mjólkurfram- leiðslu bænda. Það er mikið talað um erfiðleika bænda, og satt er það að þeir bændur, sem byggt hafa fjós á síðustu 3 árum og verða nú að borga okurvexti af lánum, eru mjög illa sett- ir og tímaspuming hvenær sumir þeirra fara á hausinn. Þá fara bændur með lítil bú mjög illa út úr skerðing- unni þvi á þá er lögð hlutfallslega mun meiri skerðing en stórbænduma. Það em skuldlausir stórbændur sem fara best út úr þessu en samt kveina þeir hæst og berja mest lóminn. Þegar fjölmiðlar fóru að segja frá einstökum skerðingartilfellum létu stórbændum- ir sér það vel líka og höfðu á orði að mál væri til komið að þjóðinni færi að skiljast hve þeir ættu bágt. En svo varð bónda nokkrum það á í samtali við fréttamann útvarpsins að tilgreina skerðinguna í lítrafjölda en ekki pró- sentum, og hann meira að segja verðlagði lítraíjöldann. Þá kom í ljós að blessaðir stórbændumir eru með margföld verkamannalaun fyrir mjólkurinnleggið og þar að auki koma svo tekjur af kjötsölunni. Og þetta em sömu mennimir sem löngum hafa hjalað um það á torgum og gatnamót- um að þeir fari ekki fram á annað en sambærileg laun og svonefhdar við- miðunarstéttir! Margir bændur, og þá einkum við á minni búunum, hlýddu því kalli að minnka framleiðsluna. Fæstir stór- bændanna önsuðu þessu kalli, þeir héldu áfram að auka framleiðsluna og ekki nóg með það, því mörg dæmi em um það að skuldlausir stórbændur fengu aukinn kvóta fram á síðasta ár með hjálp pólitískra vina á „hærri“ stöðum, og þetta var meira að segja viðurkennt af einum starfsmanni bún- aðarsamtaka ekki alls fyrir löngu. Og nú er allt komið í óefrii; óseljanlegar birgðir hlaðast upp og stórbændumir geta ekki lifað lengur í þeirri trú að það sé allt í lagi að framleiða sem mest og allt verði borgað upp í topp, og nú skammast þeir yfir því sleifar- lagi að ekki skuli leitað markaða erlendis. Vita þessir menn ekki að í öllum nálægum löndum er offram- leiðsla á landbúnaðarvörum? Ein ástæðan fyrir offramleiðslunni er misgengið milli verðlags og kaup- gjalds. Á seinustu misserum hefúr vöruverð farið síhækkandi en laun á vinnumarkaði nánast staðið í stað. Þetta sívaxandi bil milli vöruverðs og launa hefur stórlega dregið úr sölu á landbúnaðarvörum. En á þetta minnast stórbændumir aldrei. Hvem- ig skyldi standa á því? Nú er farið að brydda á hnútukasti milli norðlenskra og sunnlenskra stór- bænda og kenna nú hvorir öðrum um offramleiðsluna. Vill nú ekki einhver fjölmiðillinn taka sig til og birta skrá yfir ársinnlegg í öll mjólkurbú og mjólkursamlög landsins, t.d. síðustu 5-6 árin? Ef þetta yrði gert ættu málin eitthvað að skýrast um það hvar fram- leiðsluaukningin er mest. En eitt er vist, offramleiðslan er ekki okkur smá- bænduniun að kenna, hún er ein- vörðungu verk stórbændanna. Og þá kem ég að óhrjálegasta þætti þessa kvótamáls og er sá þáttur kveikjan að þessu greinarkomi. Nú gæla margir stórbændur við þá hug- mynd, og fara ekki dult með, sem sé að flæma okkur smábændur af jörðum okkar og ná þannig í kvóta okkar svo þeir geti haldið háum tekjum sínum óskertum. Öll lærðum við í æsku þessa fögru kenningu: „Það sem þið gerið einum af mínum minnstu bræðrum, það gerið þið mér.“ Þessi kenning virðist í hugum sumra manna dofna því meir sem pyngjan þyngist. Og hvað um úlfaldann og nálaraugað? En skyldi ekki mörgu sveitarfélaginu bregða við ef við smábændur verðum Laufey Sveinbjörnsdóttir verslunar- maður: Mér fannst það íslpnska best, hin voru svona la la. Skopsaga aldarinnar Bókaormur, 6946-3525, skrifar: Einhver hroðalegasta sóun á fjár- munum almennings er úthlutunin úr Launasjóði rithöfunda. Svo sem komið hefúr fram í grein í DV er í þeim hópi, sem þar fá úthlutað fé, vart að finna nokkum sem ritað hefúr ævifrásagnir sínar eða ann- arra eða það sem flokkast undir sagnfræði, þ.e. um raunverulega lífs- sögu fólksins í landinu. Nokkur ár fyrir og eftir síðari heimsstyrjöldina eru slíkur kafli í þjóðarsögunni að allra heimilda er þörf fyrir eftirkom- enduma eins og Indriði G. Þor- steinsson drap á í ágætu viðtali í sjónvarpinu. Slíkar frásagnir á að verðlauna en síður lélegar skáldsög- ur svo að ekki sé minnst á þá sem komið hafa á prent pésum með órím- uðum Ijóðum sem rykfalla í hillum bókasafna. I huga minn kemur hálaunað skáld (af almannafé). Aldrei hefi ég heyrt nokkum mann vitna til ljóða eftir þann mann eða að bóndinn á drátt- arvélinni, sjómaðurinn við vírinn og verkamaðurinn með hakann hafi nokkum tíma látið sér um munn fara vísupart eftir skáldið. Fyrir alllöngu kom út bók, ævi- saga dugnaðarmanns sem hafði frá mörgu merkilegu að segja, slík var hans lífesaga. Einn hinna sjálfsögðu launþega Launasjóðsins skrifaði niðrandi ritdóm um þessa bók sem svo náði metsölu. Ritdómarinn fann bókinni það helst til vansa að þar væm of mörg mannanöfn. Ekki veit ég til að höfundurinn, sem ritfærði frásagnimar, sé á jötu úthlutunamefndar Launasjóðs rit- höfúnda. Ef litið er yfir nafnalistann frá þeirri nefhd er þar að finna kynlegan hóp þótt einn og einn snillingur slæðist kannski með. Sá listi verður skopsaga aldarinnar, endurtekin ár eftir ár. „Nokkur ár fyrir og eftir síðari heimsstyijöldina eru slíkur kafli í þjóðarsögunni að allra heimilda er þörf fyrir eftirkomenduma eins og Indriði G. Þorsteinsson drap á í ágætu viðtali í sjónvarpinu.“ „...blessaðir stórbændumir em með margföld verkamannalaun fyrir mjólk- urinnleggið og þar að auki koma svo tekjur af kjötsölunni." flæmdir í burtu? Hverjir ætla að borga skattana þegar við erum famir? í mörgum sveitarfélögum em það smá- bændumir sem bera tiltölulega hæstu skattana og útsvörin. Ég efa ekki að stórbændavaldinu og vinum þess á „hærri“ stöðum takist að flæma okkur smábændur af jörðum okkar því við eigum formælendur fáa og verðum því fyrr eða síðar leiddir á höggstokkinn. Og þá skulum við að endingu litast um á aftökustaðnum, og með hliðsjón af því sem á undan er gengið er ekki ýkja erfitt að gera sér í hugarlund það sem þar fer fram. Við smábændumir röflum eflaust og spyrjum hvað verði um bömin okkar ung og smá, en társtokkin sveit stór- bænda, sem mætt er á staðnum, huggar okkur með svofelldum orðum: „Ó, hve þið eigið gott. Mikið vildum við gefa til að mega fylgja ykkur, en forlögin hafa áskapað okkur að lifa enn um stund við sult og seym í þess- um auma táradal búmarks og kvóta. Líf er eftir þetta líf, elsku vinir. Nú hverfið þið til sælla heima á vit refa- ræktar og fallandi skinnaverðs og ekki þurfið þið að kvíða framfærslukostn- aði því í hvert mál munu fáeinir fisktittir úr eldispollum Jóns metta ykkur, og skiptir þá engu hve mörg þið emð, því tími kraftaverkanna er ekki á enda mnninn. Amen.“ „Þar sem kommar skammast sín svo mjög fyrir upprunann sem raun ber vitni - þ.e.a.s. að þeir em flestir ættaðir úr söfnuði Stalíns sáluga & Company - hvem- ig væri það þá fyrir áðurnefnda flokksleiðtoga að leitast við að finna rætur tegundarinnar í köldum gusti og dragsúgi?“ Um uppruna tegundarínnar Elín Jóhannsdóttir skrifar: Margir hérlendra kommaleiðtoga láta gjaman í það skína að þeir hafi alist upp á skikkanlegum íhalds- og krataheimilum en að þeir hafi síðan fyrir rás atburðanna snúist til vinstri, m.a. vegna vondra aðgerða Banda- ríkjamanna og annarra auðvalds- sinna. Alkunnar em frásagnir ritstjóra Þjóðviljans, t.a.m., og formanns Al- þýðubandalagsins (sem kosinn hefur verið „leiðinlegasti þingmaðurinn" af starfshópi á Alþingi) í þessa vem. Þessar frásagnir kommaleiðtoganna minna um sumt á gamla skipsögu um konu nokkra er .orðið hafði bams- hafandi, og þótti henni með ólíkindum þar eð hún hefði eigi haft náin kynni af karlmönnum. Taldi konan einna sennilegast að þunginn mundi stafa af dragsúgi í baðstofunni. í fyllingu tímans ól svo konan bam. Var það stúlka er síðan var neftid Guðrún Trekkvindsdóttir. Þar sem kommar skammast sín svo mjög fyrir uppmnann sem raun ber vitni - þ.e.a.s. að þeir em flestir ættað- ir úr söfnuði Stalíns sáluga & Company - hvemig væri það þá fyrir áðumefnda flokksleiðtoga að leitast við að finna rætur tegundarinnar í köldum gusti og dragsúgi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.