Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 2
2 DV: ÞRÍÐJUDAGUR 22. ÁPRÍL 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Happdrætti Slysavamafélagsins Sex íbúða- vinningar á miða félagsins Aðeins ein íbúð af sjö er gengin út í happdrætti Slysavamafélags Is- lands. Dregið var 8. apríl síðastliðinn úr öllum útgefnum miðum. Miða- fjöldi var 224 þúsund. Samkvæmt upplýsingum frá Haraldi Henrys- syni, forseta Slysavamafélagsins, seldust rúmlega 60 þúsund miöar. „Það em mjög litlar líkur á því að einhver komi með vinningsmiða úr þessu, en þó er það hugsanlegt," sagði Haraldur. Að öllum líkindum renna hinar íbúðimar sex til Slysa- vamafélagsins. Ibúðimar sem ekki hafa gengið út em á miða númer 117336, 132917, 146387, 187263, 190464, 199381, -KB Hér fylgjast menn grannt með tölvunni velja vinningsnúmerin sjö í happ- drætti Slysavarnafélags íslands. Á myndinni má m.a. sjá þá Þorkel Gíslason borgarfógeta og Sigmar B. Hauksson. Bæjarfógeti krefst nafn- breytingar og hótar lokun Verður skemmtistaðurinn Starlight í Keflavík innsigiaður? Kvenfélagið í Grundarfirði, sem ber nafnið Gleym mér ei, hélt nýlega árshátíð. Þótti hún takast mjög vel og skemmtu gestir sér hið besta. Á myndinni má sjá nokkra þeirra og leynir ánægjusvipurinn á andlitun- um sér ekki. DV-mynd Bæring Löggu- skandall - leiðrétting Á lesendasíðu DV sl. föstudag, 18. apríl, birtist aðsent lesendabréf, eignað fjórum nafngreindum lög- reglumönnum. Lögreglumennimir sendu blaðinu ekki þetta bréf. Les- endabréfið birtist fyrir mistök. DV biður |>essa nafngreindu einstakl- inga afeökunar á mistökunum. Athugasemd viðfrétt Röntgentæknar á Borgarspítalan- um vilja koma eftirfarandi á fram- færi: Frétt DV 21.04., þar sem staðhæfl er að ein af kröfum röntgentækna í sérkjarasamningum sé þess efnis að eyðnisjúklingar fai ekki aðgang að salemum starfsfólks, er algerlega röng og ekki frá röntgentæknum komin. Blaðamanni DV var gert ljóst að þessi frétt væri úr lausu lofti gripin og ætti sér enga stoð. Þrátt fyrir það birti hann rangar upplýsingar og hörmum við vinnubrögð sem þessi. F.h. röntgentækna á Borgarspítal- anum: Auður Ó. Vatnsdal. Ema Agnarsdóttir. DV stendur við frétt sína. Hún er byggð á heimildum sem blaðið telur öruggar. Hitt er rétt að ekki er kom- ist svona að orði í kröfúgerð rönt- gentækna. „Lögregluþjónar heimsóttu mig á föstudaginn. Þeir komu með boðsend- ingu frá bæjarfógetanum þar sem mér var tilkynnt að ég yrði að breyta nafn- inu Starlight innan sjö daga. í bréfinu stóð að ef ég gerði það ekki yrði veit- ingaleyfi mitt afturkallað,“ sagði Ragnar Öm Pétursson, veitingamaður í Keflavík og eigandi Veislu hf., veit- ingahúss, Vesturbraut 17. Ragnar sagðist hafa auglýst dans- leiki undir nafhinu Starlight í blöðum fyrir sl. helgi. „Ég var búinn að aug- lýsa eftir nafrii á veitingastaðinn fyrir stuttu. Engar nothæfar tillögur bár- ust. Það var svo í sl. viku að ég ákvað að kalla veitingastaðinn Starlight," sagði Ragnar. „Við fengum ábendingu frá íslensku málfarsnefndinni um að nafhið Starl- ight væri brot á lögum frá 1982 um nöfn á veitingastaði. Það mætti ekki nota erlend nöfn á skemmtistaði.,, Bannað er að nota önnur nöfn á veit- ingastaði en þau sem skráð eru,“ sagði Jón Eysteinsson, bæjarfógeti í Kefla- vík. „Þar sem hér var um brot á lögum að ræða sendi ég Ragnari Erni Péturs- syni, eiganda Veislu hf., bréf þar sem ég fór fram á að hann breytti nafni veitingastaðarins," sagði Jón. Hvað ætlar Ragnar Öm að gera? „Ég hef nú málið í athugun. Það verð- ur tekin ákvörðun um það á morgun hvað gert verður,“sagði Ragnar Örn Pétursson. -SOS NYTT HAPPDRÆTTI BÆTIST í HÓPINN Frumvarp um talnagetraunir, stund- band íslands, Ungmennafélag íslands Þeim svipar til getraunaseðla í íþrótt- um nefhdar lotto, var í gær samþykkt og Öryrkjabandalag íslands starfræki um; í stað leikja koma talnaraðir. sem lög frá Alþingi. saman talnagetraunir. Getraunir sem Lögin gera ráð fyrir að íþróttasam- þessar eru nýtt fyrirbrigði hér á landi. -APH Mikil afköst á Alþingi: Fimmtán frumvörp afgreidd sem lög Fimmtán frumvörp voru afgreidd frá Alþingi í gær sem lög. Fundi í neðri deild lauk laust fyrir klukkan fjögur í nótt og í þeirri efri rétt eftir mið- nætti. Þá höfðu þingmenn fundað nær sleitulaust frá því klukkan tvö um daginn. Frumvarp um lögvemdun starfs- heitis og starfsréttinda kennara var samþykkt sem lög. Þar er m.a. gert ráð fyrir að óheimilt sé að ráða réttinda- lausa kennara til starfa. Þó er hægt að sækja um undanþágu þegar ókleift reynist að fá réttindamann. Þá varð hið margumtalaða frumvarp mennta- málaráðherra um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu að lögum í gær. Þá var lögfest frumvarp sem gerir ráð fyrir að dráttarvextir falli á vangoldin meðlög. Frumvarp um ógildingu húsaleigusamninga var einnig samþykkt sem lög. Samkvæmt frumvarpi, sem sam- þykkt var í gær, er Happdrætti Háskóla íslands heimilt að reka skyndihappdrætti með peningavinn- ingum. Mikill og nýr Iagabálkur um vamir gegn mengun sjávar varð að lögum. Þá var samþykkt að stofna Útflutningsráð íslands. Hlutverk þess er m.a. að efla ráðgjöf í því skyni að auka útflutning. Þá vom gerðar breyt- ingar á nýju útvarpslögunum. Þær fela í sér að aldraðir og öryrkjar verði undanþegnir afnotagjöldum. Loks var samþykkt frumvarp um ógildingu lög- geminga. -APH Nýju lánareglumar: Milliþinganefnd móti stefnuna í sumar Frumvarp um nýjar úlánareglur Húsnæðisstofnunar var afgreitt og samþykkt í neðri deild Alþingis í nótt. Enn á það eftir fá umfjöllun í efri deild. Samþykktar vom minniháttar breytingar á frumvarpinu m.a. að í stjóm Húsnæðisstofnunar skuli sitja fulltrúi frá VSÍ. I meirihlutaáliti félagsmálanefhdar kemur fram að samkomulag hafi orðið um að milliþinganefhd starfi áfram að mótun framtíðarstefnu í húsnæðismál- um og hún skili tilögum að hausti. Nefnd em tíu atriði sem sérstaklega skal vinna að. Meðal þein-a atriða er að finna reglur um veðhæfhi íbúða og félagslegs húsnæðis, einnig að gerðar verði ráðstafanir til að koma á móts við þá sem hafa orðið illa úti i hús- næðismálum eftir 1980 og einnig að stærðarmörk íbúða verði könnuð sér- staklega. Fulltrúi Alþýðuflokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, skilaði séráliti og lagði fram breytingartillögur sem fólu m.a. í sér að lánað yrði til svokallaðra kaupleiguíbúða. Tillögur hennar vom felldar. -APH Sverrir leysir ffá skjóðunni Menntamálaráðherra, Sverrir Her- mannsson, ætlar í dag að upplýsa þingmenn og þá er vilja á hlýða um hvað hann hyggst fyrir í málum Lána- sjóðs íslenskra námsmanna. Upphaflega stefhdi ráðherrann að því að leggja fram nýtt frumvarp um sjóðinn. Ekki verður úr því á þessu þingi vegna andstöðu framsóknar- manna. Efhi þessa frumvarps hefur aldrei formlega verið opinberað. Það ætti að koma fram í skýrslu er ráð- herra hefur samið um Lánasjóðinn. -aph

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.