Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. 9 Breta- drottn- ing sextug Elizabeth Bretadrottning hélt há- tíðlegt sextugsafmæli sitt í gær með því að koma víða fram opinberlega i Windsor og London en lögreglan hafði mikinn öryggisviðbúnað af kvíða fyrir hefndaraðgerðum vegna loftárásarinnar á Líbýu í síðustu viku. Afmælisins var minnst í öllum blöðum, útvarpi og sjónvarpi og í skófum víðast. Þótt drottningin sé þar með komin á þann aldur, sem almennt er búist við að konur í opinberu starfi setjist í helgan stein, þá hefur hún tekið af allan vafa um að hún hyggst víkja i bili fyrir syni sínum, Karli Breta- prins. Opinber hátíðahöld vegna afmæl- isins hófust með konunglegri skrúð- göngu í Windsor en síðar færði hennar hátign sig til London til þess meðal annars að hlýða á sérsaminn afmælissöng sem 6 þúsund skólabörn fluttu. Allar fjórar kynslóðir konungs- fjölskyldunnar bresku, mestöll ríkis- stjómin og sex núlifandi forsætis- ráðherrar Breta voru viðstödd guðsþjónustu í kapellunni við Windsorkastala um morguninn. Auðæfí Aquinos í sviðs- Ijósinu Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zúrich: Corazon Aquino gerði fyrir skömrnu kunnugt að eignir hennar næmu um 17,7 milljónum peseta eða rúmlega 28 milljónum ísl. króna. í þessari upphæð er andvirði fjölskylduhúss hennar rétt hjá Boston i Magsachusettes, sem ný- legar fréttir herma að hafi verið selt fyrir 21 milljón króna, sem Aquino mat til aðeins 10,5 milljóna í eignayfir- liti sínu. Þar voru skuldir upp á 4,4 milljónir peseta og eignir sem námu 22,1 milljón peseta. Fjölskylda frúarinnar á miklar sykurplantekrur norður af Manila og mat hún sinn hlut í þeim til 3,4 millj- óna peseta. - Auðæfi Aquinos setja hana í sjötta sæti í samanburði við eignir þeirra átján aðila, sem sæti eiga í ríkisstjóm hennar, en stjómin sú hin sama hefúr nýverið sett lög um að þeir sem starfa hjá ríkinu verði áð gefa nákvæmlega upp fjárhagsstöðu sína. Elizabeth Bretadrottning myndin var tekin þegar hún var krýnd. Olíusöluríki eins og Kuwait hafa nú skrúfað frá olíukrönunum að fullu til þess að kaffæra keppinauta OPEC og ná aftur fyrri tökum á olíumarkaðnum. OPEC heldur verð stríðinu áfram OPEC, samtök olíusöluríkja, ætlar að halda áfram verðstríðsáætlun sinni sem hefur leitt til þess að olíuverð hefur fækkað um helming síðan í des- ember og hofur um leið knúið nokkur olíuframleiðsluríki utan OPEC til þess að hætta framleiðslu í bili. „Þegar menn hafa byrjað á ein- hverju fara þeir ekki að hætta því, þegar loks það fer að skila árangri," sagði olíuráðherra Kuwait í gær í Genf þar sem var að ljúka fyrri hluta 16 daga aukafundar samtakanna. Þrettán olíuráðherrar aðildarríkj- anna ákváðu þó ekki í þessum áfanga viðræðnanna neinar nýjar aðgerðir sem haft gætu áhrif á verðþróunina. Þeir geyma sér það til framhalds- fundarins í júní. Þar með er ljóst að viðhaldið verður óbreyttu ástandi í framleiðslu til dæmis Saudi Arabíu sem hefur leitt til þess að oh'uverðið er komið niður í 11,50 dollara olíufatið úr 28 dollurum frá því í desember. Með framleiðsluflóðinu stefhir OPEC að því að endurheimta sína fyrri markaðshlutdeild í olíusölunni sem glatast hefiir á síðustu árum til nýrra framleiðsluríkja er standa utan OPECs. Menn eru ekki grunlausir um að verðstríðið beinist einnig gegn þeim aðildarríkjum OPEC sem ekki hafa fylgt framleiðslukvótum OPECs eða verðákvörðunum. Foreldrar þriggja ára, telpu, sem haldin er eyðnisjúkdómnum, segjast gefast upp á að reyna að lifa eðlilegu lífi í Ástralíu vegna fjandsamlegrar afstöðu samborgara þeirra. Vilja þau flytjast til Nýja-Sjálands. Eve van Grafhorst fékk sjúkdóminn með blóðgjöf við fæðingu og þótt heil- brigðisyfirvöld hafi marglýst því yfir að engin hætta sé á að annað fólk smitist af henni hafa meðborgarar hennar í bænum Gosford í Nýja Suð- ur-Wales ekki látið sannfærast. Það eru dæmi þess að nágrannarnir hafi hrækt í andlit litlu telpunnar, reynt að aka yfir hvolpinn hennar og reist háar stálgirðingar til þess að koma í veg fyrir að hún umgangist þeirra eig- in börn. Foreldrarnir fóru í vetur með telp- una til Nýja-Sjálands til læknisrann- sókna þar og fengu staðfestingu á niðurstöðum ástralskra lækna. En þar mætti dóttir þeirra slíkri samúð að þau ætla að flytja þangað með hana. Mál þetta hefur ýtt við Áströlum, sem um sfðustu helgi skutu saman 140 þúsund krónum til þess að létta fjöl- skyldunni flutningana. - Afi og amma Evu búa á Nýja-Sjálandi. Stjórn Corazon Aquino beitti sér fyr- ir lagasetningu sem skyldar háttsetta opinbera embættismenn til þess að gera opinberlega grein fyrir fjár- hagsstöðu sinni. Úrá 840 þúsund svissneska franka Gizur Helgason, fréttaritari DV i Zurich: Dýrasta úrið á evrópsku úra- og skartgripasýningunni, sem nú stendur yfir í Bem, kostaði 840 þúsundir svissneskra franka. Það var smíðað sérstaklega fyrir fyrir- tæki eitt í Genf. Úrið hefur eilífðardagatal, en er stillt fram til ársins 2100. Ódýrasta úrið er frá Hong Kong og kostar hingað komið tæpa þrjá franka. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd 3ja ára eyðni- sjúklingur flýr frá Ástralíu EBE-löndin snúastgegn Líbýu Fyrrum diplómat frá Líbýu hefur verið handtekinn í Róm grunaður um samsæri til þess að myrða sendiherra Bandaríkjanna, Egyptalands og Saudi Arabíu í fyrra. Um leið hafa Efnahags- bandalagsríkin kunngert ýmsar aðgerðir gegn Líbýu vegna meintrar hlutdeildar Líbýuyfirvalda í hryðju- verkum á Vesturlöndum. Aredi Mohammed Fituri (47 ára) var þar til í fyrra sendiráðsritari í líbýska sendiráðinu í Róm. Hann og annar líbýskur diplómat, sem fór frá Ítalíu á síðasta ári, eru taldir hafa verið í sam- særi með þriðja landa þeirra sem handtekinn var í fyrra með skamm- byssu á sér innanklæða. Fituri naut diplómatahelgi í fyrra og var þá vísað úr landi en hann kom til Ítalíu aftur í vetur. Samtímis hefúr Ítalíustjóm kunn- gert að hún ætli að takmarka fjölda líbýskra diplómata í landinu og raunar fjölda líbýskra borgara, sem fái land- vist. Sömuleiðis er ætlunin að fækka í ítalska sendiráðinu í Trípólí. Er það í samræmi við fyrirhugaðar aðgerðir tólf aðildarríkja EBE. í V-Berlfn hefúr lögreglan handtekið ríkisfangslausan Palestínuaraba vegna gruns um hlutdeild í sprengju- árásinni á diskótekið þar 5. apríl síðasta. í Bretlandi hefur lögreglan handtekið annan mann til viðbótar vegna rannsóknar á sprengjutilræð- inu við ísraelsku farþegaþotuna á dögunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.