Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. 11 Grænlenskt skip kyrrsett af fógeta Grænlenska fiskiskipið Bjal Jun- ior var kyrrsett í Hafnarfj arðarh öfn eftir að bæjarfógetinn í Hafnarfirði setti á það hafnbann þegar það ætl- aði að láta úr höfn á föstudagskvöld. Ástæðan fyrir hafnbanninu er sú að skipstjóri átti ógreiddan reikning við Véltak hf. í Hafnarfirði, sem hljóðar upp á u.þ.b. eina og hálfa milljón króna. Véltak hefur haft milligöngu um kaup á skelfiskverksmiðju sem Bjal Junior átti að flytja með sér til Grænlands. Verksmiðjan er að stærstum hluta keypt af íslenskum matvælum hf. en einnig var samið um kaup á einni vél frá Véltaki. Véltak sá einnig um flutning og nið- ursetningu verksmiðjunnar í bátinn en einmitt um það virðist deilan snú- ast þvi skipstjórinn heldur því fram að reikningur fyrir niðursetningu sé óeðlilega hár, í kringum 230 þúsund. „Það voru allir samningar varð- andi kaup á verksmiðjunni undir- skrifaðir og samið um verð nema fyrir niðursetningu, en það er erfitt að áætla fyrirfram," sagði Guðbjart- ru- Einarsson, eigandi Véltaks, í samtali við DV í gær. „Skipstjórinn hafði því einfaldlega ekki næga pen- inga með sér til að greiða þennan kostnað og þá bregður hann því fyr- ir sig að reikningur fyrir niðursetn- inguna sé allt of hár auk þess sem hann segir að niðursetning vélanna, eins og hún er nú í skipinu, geti ógnað öiyggi þess. Og síðan ætlaði hann að stinga af eftir að hafa sagt ósatt til um málavöxtu í samtali við fréttamann útvarpsins. Það kom því ekki annað til mála en að kyrrsetja skipið." -BTH Grænlenska skipið Bjal Junior kyrrsett í Hafnaríjarðarhöfn. Á innfelldu myndinni er skipstjórinn Allan Idd Jensen sem neitar að viðurkenna verð Véltaks fyrir niðursetningu skelfiskverksmiðjunnar auk þess sem hann segir hana ógna öryggi skipsins. DV-mynd PK. Selföss: Snyrtistofan flytur Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Snyrtistofa Þórhildar Karlsdóttui- flytur á næstunni í nýja félagsheimilið. Þórhildur flutti á Selfoss fyrir réttiun tveim árum. Setti hún þá strax upp snyrtistofu. Vakti það mikla ánægju hjá fólki að fá þessa þjónustu í bæinn í stað þess að þurfa að sækja hana til Reykjavíkur. Snyrtihúsið, en svo heit- ' ir stofa Þórhildar, býður upp á alla almenna snyrtingu og 30% afslátt fyr- ir ellilífeyrisþega. Talsvert er um að hópar, svo sem kvenfélög og þ. h„ hafi notfært sér þessa þjónustu. Þá hefur Þórhildm- farið heim til lífeyrisþega á Selfossi sem ekki eru ferðafærir. Biðja þeir einkum um fótsnyrtingu, bæði karlar og komn-. Þórhildur flytur, eins og áður sagði, í nýja félagsheimilið þegar það verður opnað um næstu mánaðamót. Þar verður stofan í 60 fermetra húsnæði. Pylsuvagn nýtur vaxandi vinsælda Frá Reginu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Magnús Jakobsson er eigandi að. pylsuvagninum sem stendur við Tryggvatorg á Selfossi. Tvö ár eru síð- an Magnús setti upp þennan nýtísku pylsuvagn sem nýtur nú vaxandi vin- sælda bæjarbúa. En þeir kviðu í upphafi fyrir því að fá hann vegna bamanna. En Magnús kann vel til verka og notar fyrsta flokks efni í allt semhann selur enda er salan eftir þvi. Húsmæð- ur á Selfossi og nágrenni kaupa franskar kartöflm- þegar þær gera fjöl- skyldunni dagamun í mataræði. Magnús er kjötvinnslumaður að iðn. Ég spurði hann hvers vegna hann hefði farið út í að reka pylsuvagn. Hann sagði að mikið væri gefandi fyr- ir að vera eigin húsbóndi þótt maður þyrfti að vinna helmingi lengri vinnu- tima og óneitanlega fylgdu þvi áhyggjur að vera með eigin atvinnu- rekstur. En lífið væri mörgum sinnum skemmtilegra er menn væru með eigin atvinnurekstur. Þess má geta að lokum að Magnús hefur gott lag á unglingunum sem ganga vel um pylsuvagninn. í ná- grenni hans sést hvergi rusl eins og annars er algengt við sjoppur og pylsuvagna. - segir Friðrik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvarinnar „Sá mikli útflutningur á ferskum fiski í gámurn, sem nú tíðkast, er fyrst og fremst kvótakerfinu að kenna,“ sagði Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, í samtali við DV á ráðstefnu sem haldin var á dögunum um framtíð íslensks fiskiðnaðar. „Ég benti á það, þegar kvótinn var settur á, að það kynni að skapast ójafhvægi við verðlagningu í Verð- lagsráði ef fiskseljandinn „ ætti“ fiskinn í sjónum eða a.m.k. réttinn til að sækja hann. En menn höfðu ekki miklar áhyggjur af því. En hver hefur raunin orðið. „Eigendur", auðlind- anna okkar, útgerðarmenn og sjó- menn þeirra, gefa fiskkaupendum bara langt nef. Þeir fara með „eignir" sínar eins og þeim sýnist og sigla með aflann til útlanda og selja hann þar, án tillits til þess hver áhrif það hefur á fisk- vinnsluna, fiskvinnslufólk eða rekstur þjóðarhúsins," sagði Friðrik. Útgerðin „á“ fiskinn - Er nokkur framtíð í íslenskum fisk- iðnaði, þegar mun hagkvæmara virð- ist, við núverandi aðstæður, að sigla með fiskinn beint á erlenda markaði? „Ef útgerðin heldur áfram að „eiga fiskinn", og ef verðið heldur áfram að vera hátt erlendis þá mun draga úr fiskvinnslunni. En það mundi þýða að æ erfiðara yrði að halda uppi eðlileg- um lífskjörum meðal þorra þjóðarinn- ar. Tekjuskiptingin mundi raskast mjög og tekjumar dreifast á fárra hendur. „Ég hef þó trú á því að þetta ástand muni jafna sig áður en alvarlegt ástand skapast fyrir fiskvinnsluna hér og að fiskvinnslan eigi fyrir sér bjarta framtíð. Þegar til lengri tíma er litið er að sjálfsögðu mun hagkvæmara fyrir þjóðina í heild að vinna fiskinn hér. Okkur hættir til að gleyma þessu, við erum ekki komin nógu langt af veiðimannastiginu." Erlend skip í íslenska landhelgi Friðrik sagði á ráðstefhunni um framtíð islensks fiskiðnaðar að ekki væri svo ýkja rnikill munur á því að hafa hér í landhelginni erlend skip, sem veiða fyrir erlendan markað, eða islensk skip sem gera það sömuleiðis og að hugsanlegt væri að meira feng- ist fyrir fiskinn í landhelgi okkar ef við mundvmi veita erlendum fiski- skipaeigendum rétt til þess að veiða innan landhelginnar. „Að tala um þetta i alvöru myndi sjálfsagt kallast landráð," sagði Friðrik. - Er útflutningur fisks í gámum þá i raun landráð? „Nei, ekki vil ég kalla það landráð, heldur frekar mjög óskynsamlega leið.“ - Hvaða kerfi í sjávarútvegi mundi hugsanlega koma í veg fyrir að fisk- vinnslan koðnaði niðui'? „Engin ein leið er algóð. Hugsanlega gæti frjáls fiskmarkaður breytt talsverðu en þá yrði að leggja kvótann niður. Gamla skrapdagakerfið gæti komið í stað kvótans, til þess að takmarka sóknina. Önnur leið væri að kvótanum væri skipt niður á vinnslustöðvarnar sem síðan semdu við aðra útgerðarmenn eða áhafnii- eigin skipa um að ná í þann afla, sem þeir hefðu fengið út- hlutað, á sem hagkvæmastan hátt. Þeir myndu síðan frj’sta aflann eða salta eða flytja hann ferskan á erlend- an markað, unninn eða óunninn, allt eftir því sem mest gefur í aðra hönd fyrir þjóðarbúið í heild. Aðalvandamálið er ekki það að fisk- urinn sé fluttur ferskur í gámum, heldur að ákvarðanatakan um það er ekki í réttum höndum. Mun eðlilegra væri að ákvarðanatakan væri í hönd- um fiskverkenda, þeirra sem eiga að hafa yfirsýn yfir alla markaðina og eru best til þess fallnir að meta það hvaða vinnslustig gefi mest af sér hverju sinni. Þannig myndi þjóðbúið i heild njóta góðs af en ekki aðeins nokkrir menn, eins og gerist við núverandi gámaútflutning. “ -KB Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sagði á ráðstefnu um framtíð íslensks fiskiðnaðar, sem haldin var fyrir skömmu, að núverandi kvóta- kerfi væri undirrót þeirra vandamála sem fylgdu í kjölfar útflutnings á ferskum fiski í gámum. Ákvarðanatökuna í hendur fiskverkenda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.